Vísir - 16.11.1979, Blaðsíða 3
3
Kjörorð óháös
blaðs (Kópavogi:
Svipmelrl og
sjálfstæöari
bæjarbrag
Nýtt frjálst og óháö blaö í
Kópavogi hóf göngu sfna síöast-
liðinn mánudag. bað heitir Kópa-
vogstfðindi og er þvf ætlaö að
koma út hálfsmánaöarlega. Rit-
stjóri er Herbert Guðmundsson,
en hann hefur áöur ritstýrt m.a.
íslendingi-lsafold á Akureyri,
Frjálsri verslun og timaritinu
Hús og hibýli.
Útgefendur segja að blaöinu sé
ætlað að vera ffetta- og málefna-
vettvangur fyrir Kópavogsbúa og
stuðla að sinu leyti að svipmeiri
og sjálfstæðari bæjarbrag I
stærsta kaupstaö landsins.
Útgefandi er samnefnt fyrir-
tæki, en eigandi þess er Heimir
Br. Jóhannsson. —KS
VlSIR
Föstudagur 16. nóvember 1979
Amundi Ámundason, framkvæmdastjóri i Jólamagasininu i Sýningarhöllinni. —
Visismynd: BG
„YFIRBYGGÐ VERSLUNARGATA”
Jóla-Magasin, stórverslun 28
kaupmanna, var opnuð I Sýn-
ingarhöllinni, Bfidshöfða i
fimmtudaginn.
Framkvæmdastjóri
Jóla-Magasins, Amundi
Amundason, sagði, að slik
verslun væri alger nýjung hér á
landi. Fyrirmyndin væri sótt til
erlendra stórmarkaða, þar sem
heilu fjölskyldurnar gætu kom-
ið, verslaö, skemmt sér og feng-
ið hressingu. Þarna væri boöið
upp á skemmtidagskrár, þar
sem fram kæmu meöal annarra
Brunaliðið, Brimkló, Halli og
Laddi, Jörundur, Tóti trúður,
Magnús og Jóhann kórar, dans-
flokkar og náttúrulega jóla-
sveinar. Þá yrðu tískusýningar
reglulega. Barnaleikvöllur er á
svæðinu og barnagæsla fyrir þá,
sem vilja. Atta metra hátt jóla-
tré verður i anddyri hússins,
svokölluðu torgi. Þá veröa
kaffiveitingar, og er verðiö þaö
sama og á almennum veitinga-
stöðum.
En aðalatriöiö er að sjálf-
sögðu verslanirnar.
,,Ég kalla þetta stærstu yfir-
byggðu verslunargötu lands-
ins”, sagði Amundi. „Þarna eru
28 fyrirtæki á 4800 fermetra
gólffleti, og er verslað með allt
milli himins og jaröar.
Hingað geta fjölskyldurnar
komið, verslað i ró og næði i
hlýju og rúmgóöu húsnæði,
skemmt sér og notið jólastemn-
ingarinnar, i stað þess að
hlaupa búð úr búð i kulda og
slabbi niðri I bæ”.
— ATA
Fáir virðast vita um
leigiendasamtökin
Forráðamenn leigjendasam-
takanna segja furöu gegna, hve
fáir vita um tilvist leigjendalag-
anna, sem tóku gildi fyrir fimm
mánuðum, eða fyrsta júni síðast-
liðinn.
Samtökin hafa sent frá sér
upplýsingar um þessilög og þykir
VIsi ástæða til að birta efni þeirra
leigjendum til glöggvunar, en þar
eru meðal annars ákvæði um
fyrirframgreiðslur. Þarsegir I 51.
grein að óheimilt sé að krefjast
meiri fyrirframgreiöslu en sem
nemur fjóröungi umsamins leigu-
tlma. Svo að dæmi sé tekið, ef
samningur er geröur til eins árs.
er ekki hægt að krefjast fyrir-
framgreiðslu til lengri tima en
þriggja mánaöa Ef greitt er ár
fyrirfram veröur að gera samn-
ing til fjögurra ára. Sfðar á leigu-
timanum má aöeins fara fram á
þrjá mánuði fyrirfram I einu.
1 55. grein sömu laga segir, að
leigusali eigi rétt á að krefja
leigutaka um tiltekna fjárhæö,
sem tryggingafé, áður en honum
er afhent húsnæöið til afnota. Má
upphæðin nema allt að þriggja
mánaöa leigu fyrir húsnæðið eins
og hún er I upphafi leigutímans.
Jafnframt segir i áðurnefndri 51.
grein, að ef leigutaki er krafmn
um tryggingafé.þáeróheimiltað
krefja hann um fyrirfram-
greiðslu. 1 55. grein er kveöiö á
um. aö tryggingaféö skuli varð-
veitt I banka eða sparisjóði á
hæstu mögulegum vöxtum.
„Þrátt fyrir að lög þessi hafi
veriðí gildi I fimm mánuði, gegnir
furöu, hve fáir vita um tilvist
þeirra”, segir I greinargerö
Leigjendasamtakanna. ,,Viö
hvetjum alla til að kynna sér efni
laganna, en þau er hægt að fá á
skrifstofu félagsmálaráðuneytis-
ins og hjá Leigjendasamtökunum
að Bókhlöðustig 7. Einnig má
geta þess að opið hús verður n.k.
laugardag á milli 3 og 6. Guörún
Helgadóttir mætir og stjórn sam-
takanna kynnir starfsemina og
lögin yfir kaffibolla. Skrifstofa
samtakanna er annars opin alla
virka daga frá 3 til 6.
Margt bendir tii að leigjendur hafi ekki kynnt sér efni leigjendaiag-
anna, sem tóku gildi i sumar.
FJÖLVA t=j!=> ÚTGÁFA
Klapparstíg 16 mmi Simi 2-66-59
Listaverkabækur — fegursta jólagjöfin
Mörgum finnst erfitt að velja
vinum sinum jólagjafir, finna
eitthvað, sem uppfyllir þá
ánægju að gefa eitthvað sem er
allt i senn gagnlegt, fróðlegt,
ánægjulegt og verðmætt.
Fjölvi hefur svar við þvi. Falleg
listaverkabók er alltaf og alls
staðar afar vel þegin gjöf. Slik
gjöf gleður, lyftir huga, vekur
aðdáun og athygli. Góð lista-
verkabók höföar til allra, hvort
sem vinurinn er karl eða kona,
ungur eða gamall, og af hvaða
starfsstétt sem er.
Fyrir nokkrum árum voru lista-
verkabækur um hina fremstu
meistara heimslistarinnar ekki
fáanlegar á islensku. Aðeins
voru fáanlegar listaverkabækur
á útlendum málum.
En nú hefur Fjölvi bætt úr þeim
vanda og gefið út á islensku
listaverkabækur um marga
fremstu meistara heimslistar-
innar. Spyrjið um listaverka-
bækur Fjölva i hvaða bókabúð
sem er og þiö getið valið úr
fremstu meisturum, Leonardo
da Vinci, Rembrandt, Goya,
Manet, Matisse, furöufuglinn
Duchamps sem er frumkvöðull
nútima listar.
Nú siðast er nýkomin i bóka-
búðirnar ein allra fallegasta
bókin um hinn furðulega meist-
ara Van Gogh. A næsta ári held-
ur listaverkaútgáfan áfram og
mun Fjölvi þá væntanlega gefa
út bækur um norska málarann
Edvard Munch og hinn stór-
furðulega Salvador Dali.
Listaverkabækur Fjölva eru
einstaklega fagrarog vandaðar,
litprentaðar af fádæma list-
fengi. En þær hafa lika inni að
halda ýtarlega ævisögu lista-
mannanna og svara mörgum
spurningum, hvernig Leonardó
málaöi Kvöldmáltiöina og Mónu
Lisu, gjaldþrot og niöurlæging
Rembrandts, hinar frægu Maju-
myndir Goya, sú klædda og
nakta og ógnvænlegar Myrkur-
myndir hans. Þá er lýst æðinu á
Van Gogh. Veröið á bókunum er
breytilegt, milli 7 og 10 þús. Það
eru góð kaup og varanlegt verö-
mæti.
Listasagan
Ef menn vilja svo gefa enn
voldugri listaverkabækur, þá
hefur Fjölvi lfka á boðstólum
Stóru listasöguna, sem er
feiknalegt verk i þremur bind-
um og i sérstakri gjafaöskju.
Rekur alla meginstrauma lista
frá Steinöld og fram til popplist-
ar nútimans. Þetta er stórbrotið
verk, en kostar lika sinn pening,
um 25 þús. kr.
Nútíma-listasagan
Hún er ekki enn komin út, en er
á leiðinni. Fjölvi stendur skjálf-
andi á beinunum, hvort takist að
koma henni timanlega fyrir jól.
Þetta verður lang stærsta og
glæsilegasta bók, sem Fjölvi
hefur gefið út og mun væntan-
lega kosta um 30 þús. kr.