Vísir - 16.11.1979, Blaðsíða 20
VtSLR
Föstudagur 16. nóvember 1979
24
dánaríregnii
Haukur Guömundur
Jóhannesson Kvaran j
Haukur Jóhannesson.flugmaöur,
lést af slysförum 8. nóvember sl.
Hann fæddist 20. april 1959 og var
þvi aðeins tvitugur að aldri er
hann lést. Hann var sonur hjón-
anna Ornu Hjörleifsdóttur og
Jóhannesar R. Snorrasonar, yfir-
flugstjóra Flugleiða.
Guðmundur Kvaran, flugmaður,
lést af slysförum 8. nóvember sl.
Guðmundur fæddist 22. janúar
1958. Hann var sonur Kristinar
Helgadóttur Kvaran og Einans G.
Kvaran. Að afloknu stúdentsprófi
hóf hann flugnám og hafði nýlega
fest kaup á litilli flugvél er hann
lést.
Ástriður Jóns- Sigrlður Erna
dóttir Ástþórsdóttir
Ástriður Jónsdóttir lést þann 9.
nóvember sl. en hún var fædd 18.
april 1893 að Þóroddsstöðum i
ölfusi. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðrún Gisladóttir og Jón
Ólafsson en fluttust þau siðar til
Reykjavikur. 1912 gekk Astriður
að eiga Sigurð Kjartansson,
kaupmann i Reykjavik, en hann
lést 1967. Attu þau fimm börn. og
eru nú fjögur þeirra á lifi
Sigriður Erna Astþórsdóttir lést
þann 11. nóvember sl. Hún
fæddist 18. september 1924. Hún
starfaði sem talsimavörðun á
Alþingi.
Þórunn Jóns-
dóttir
Þórunn Jónsdóttir lést 6.
nóvember sl. Hún fæddist 25.
mars 1917 i Súðavik. Maöur
hennar var Jakob Guðmundsson,
Hnifsdal, og áttu þau fimm börn
en slitu samvistum 1958 og bjó
Þórunn eftir það i Reykjavik.
ýmlslegt
Basar
Hinn árlegi basar Fósturskóla
Islands verður haldinn i húsi
skólans við Sundlaugaveg,
laugardaginn 17. nóvember kl.
14.00 eh.
Margt góöra muna, m.a. jóla-
vörur, ýmiss konar handavinna
og kökur.
Nemendur 3. bekkjar
Basar Kirkjunefndar kvenna i
Dómkirkjunni verður á morgun
laugardaginn 17. nóvember i
Casa Nova, nýbyggingu MR, og
hefst kl. 14.00. Margt góðra og
fallegra muna á boðstólum á hag-
stæðu verði.
A morgun, laugardaginn 17.
nóvember, heldur Kvenfélag Há-
teigssóknar basar að Hallveigar-
stöðum, og hefst hann kl. 2 e.h.
Með þessum linum vil ég minna
þá, er kunna að lesa þær á basar^
inn. Þar verður margt ágætra og
þarflegramunaá boðstólum. Hafa
kvenfélagskonurnar unnið sjálfar
þessa muni eða aflað þeirra.
Sömuleiðis verða seldar kökur á
basarnum.
Agóða af sölu þessara muna verð-
ur varið til þarfa Háteigskirkju
og til liknarmála. Kvenfélag Há-
teigssóknar hefir unnið að þess-
um málum alla tið og hefir haft
forgöngu um söfnun til ýmislegra
verkefna kirkjunnar og nú siðast
hefir kvenfélagið lagt fram fé,
sem er afrakstur starfsemi
þeirra, til að létta undir meö
kaupunum á hinum nýju kirkju-
klukkum i Háteigskirkju, er nú
hljóma yfir byggð á helgum dög-
um. Vegna framlags Kvenfélags
Háteigssóknar var lagt út i þessi
kaup, og svo er um fleira, er Há-
teigskirkja hefir notið vegna at-
orku félagskvenna.
Margt er enn ógert og mörgu
ólokið, sem þörf er á að þokist
áfram. Mun Kvenfélag Háteigs-
sóknar leggja sig fram um stuðn-
ing við það allt.
Félagskonur hafa sýnt mikla
samstöðu og fórnfýsi i starfsemi
sinni og þeim skulu færðar alúð-
arþakkir um leið og allir velunn-
arar kirkjunnar eru hvattir til að
fjölmenna á basarinn að Hall-
veigarstöðum á morgun.
ArngrimurJónsson,
SJALFSBJÖRG! Basar Sjálfs-
bjargar i Lindarbæ 1. des. Basar-
vinna á hverju fimmtudagskvöldi
fyrir félaga og velunnnara i
félagsheimilinu Hátúni, 1. hæð kl.
8.30. Munum veitt móttaka á
fimmtudagskvöldum á skrifstofu,
simi 17868.
Kvenfélag Hreyfils. Basar 18.
nóvember kl. 2 I Hreyfilshúsinu
v/Grensásveg. Konur geri skil
fimmtudaginn á sama stað.
Kökur vel þegnar.
Sunnud. 18.11. kl. 13
Sandfell-Lækjarbotnar, létt
ganga i fylgd með Kristjáni M.
Baldurssyni. Verð 2000 kr. fritt f.
börn m. fullorðnum. Farið frá
B.S.l. vestanverðu.
Útivist 5, ársrit 1979 er komiö út
og óskast sótt á skrifstofuna,
Lækjarg. 6a, sem er opin kl. 13-17
næstu daga.
(Jtivist
manníagnaöir
Samtök Svarfdælinga i Reykjavik
og nágrenni halda árshátið sina I
félagsheimili Fóstbræðra við
Langholtsveg laugardaginn 17.
nóvember kl. 19.
gengisskiáning
Gengið á hádegi Almennur Ferðamanna-
þann 14.11. 1979 . gjaldeyrir gjaldeyrir
Kaup Sala Kaup Sala
1 Bandarikjadollar 391.40 392.20 430.54 431.42
1 Sterlingspund 824.10 825.80 906.51 908.38
1 Kanadadoliar 330.20 330.90 363.22 363.99
100 Danskar krónur 7430.80 7446.00 8173.88 8190.60
100 Norskar krónur 7741.30 7757.10 8515.43 8532.81.
100 Sænskar krónur 9213.20 9232.00 10134.52 10155.20
100 Finnsk mörk 10246.10 10267.00 11270.71 11293.70
100 Franskir frankar 9356.90 9376.00 10292.59 10313.60
100 Belg. frankar 1357.60 1360.40 1493.36 1496.44
100 Svissn. frankar 23636.30 23685.60 25998.83 26054.16
100 Gyllini 19755.20 19795.60 21730.72 21775.16
100 V-þýsk mörk 21973.30 22018.20 24170.63 24220.02
100 Llrur 47.29 47.39 52.02 52.13
100 Austurr.Sch. 3056.60 3062.90 3362.26 3369.19
100 Escudos 774.30 775.90 851.73 853.49
100 Pesetar 587.50 588.70 646.25 647.57
100 Yen 161.74 162.07 177.91 178.28
(Sméauglysingar — sími 86611
IBilaviöskipti ]
Kvartmiiuklftbburinn
heldur kvikmyndasýningu i Nýja
Biói kl. 14.00 laugardaginn 17.
nóvember. Komið og sjáið Burt
Reynolds trilla á Ford tönginni i
bestu bilamynd sem hér hefur
verið sýnd.
Stjórnin
Til sölu Mercury Cougar ’71
Skoðaður ’79. Allskyns skipti
koma til greina. Uppl. að Iðufelli
12 eftir kl. 7 á kvöldin.
Austin Mini Clubman
árg. ’76 með Utvarpi, segulbands-
tæki, sumardekk og vetrardekk.
Uppl. i sima 75642 á kvöldin.
Dodge Dart Swinger árg. ’71
sjálfskiptur meö vökvastýri, út-
varpi og kassettutæki, sumar- og
vetrardekk. Bein sala eða skipti á
dýrari bil. Uppl. I sima 13837 á
skrifstofutima og 10399 á kvöldin.
Golf GL árg. ’77 til sölu.
Ekinn aöeins 29 þús. km, vel meö
farinn. Uppl. i sima 26383 eftir kl.
19.
Datsun disel
til sölu, skráður sem nýr 1978,
keyrður 124 þús. km. Vél keyrð
18. þús. km. Skipti á stórum
jeppa eöa VW rúgbrauð er tekur
8-10 manns i sæti,koma til greina.
A sama stað er til sölu VW
Variant station. Góöur bill. Uppl.
i sima 16712 og 76333.
Bfla og vélasalan As auglýsir.
Erum ávallt með 80 til 100 vöru-
bilaá söluskrá,6hjólaoglOhjóla.
Teg: Scania, Volvo, M. Benz,
Man.Ford, G.M.C. International,
Bedford, Austin, Trader, Heinzel.
Einnig vöruflutningabila. Teg:
Scania, M.Benz, G.M.C. Bedford,
Heinzel, Withe, Miöstöð vörubila-
viðskipta er hjá okkur. Bila og
vélasalan As. Höfðatúni 2, simi
24860.
Skodi 110 L árg. 1974,
Til sölu Skodi 110 L árg. ’74, I góðu
lagi, skoöaöur 1979. Verð kr.
400.000.- Upplýsingar i sima 42461
eftir kl. 20.00.
Bíla og vélasalan As auglýsir.
Oldsmobile Cutlass ’72 og ’74,
Chevrolet Laguna ’73, Chevrolet
Malibu ’74 sportbill, Chevrolet
Nova ’73, Ford Torino ’74,
Plymouth Duster ’71, Dodge Dart
’75, Ponitiac Lemans ’72, Bronco
’66, Scout ’66, Willys ’75 Lada
Sport ’78, Dodge Weapon ’55, M.
Benz 240 D’75, M. Benz 230 ’75,
Ford Fiesta ’78, Hornet ’74, Lada
1200 station ’78, Skoda Amigo ’77,
Cortina ’72 og 74, Morris Marina
’74, Datsun 180 B ’78, Mazda 929
’74 og ’76, Volvo 244 DL '75. Auk
þess mikið af smábilum, sendi-
ferðabilum og pickup bilum. Bila
og vélasalan, Höfðatúni 2, simi
24860.________________________
Rally Escort Lotus til sölu.
Billinn er útbúinn samkvæmt
ströngustu öryggiskröfum BIKR.
Lotus vél, 2ja kambása, 2 tvöfald-
ir 40 mm Weber blöndungar ca.
120-130 SAE, læst drif, veltibúr,
4ra punkta Britex öryggisbelti, 2
slökkvitæki, 5 kg bæði, sjúkra-
kassi, þrlhyrningur, rallstólar,
Digistop rall-klukka, Halda twin-
master km-teljari, lestrarlampi,
2 Hella kastarar, 2 SIBI kastarar,
álhliðarpanna og Koni sport rall-
demparar. Bremsur yfirfarnar,
fjaðrir nýlegar og styrktar,
gormar Heavy Duty, spyrnur
nýjar, Fiber útvikkanir, spoiler
að aftan, Bandag ralldekk, ný-
sprautaður. Billinn er allur ný-
yfirfarinn. Uppl. I sima 73964 eftir
kl. 6.
Mazta 818 Station.
Til sölu Mazta Station
1973. Mjög vel með farinn.Uppl.
i sima 81053.
Höfum varahluti i:
Audi ’70, Land Rover ’65, Cortina
'70, franskan Chrysler ’72, Volvo
Amazon ’65, M. Benz ’65, Saab '68,
VW ’71, Fiat 127, 128 og 125 o.fl.
o.H. Einnig úrval af kerruefni.
Höfum opið virka daga frá kl. 9-7,
laugardaga kl. 10-3. Bilapartasal-
an Höfðatúni 10 sími 11397.
Bílaleiga
Leigjum Ut nýja bila:
Daihatsu Charmant — Daihatsu
station — Ford Fiesta — Lada
sport. Nýir og sparneytnir bilar.
Bllasalan Braut sf., Skeifunni 11,
simi 33761.
Bflaleigan Vik sf.
Grensásvegi 11, (Borgarbflasal-
an). Leigjum út Lada Sport 4ra
hjóla drifbila og Lada Topaz 1600.
Allt bilar árg. '79. Simar 83150 og
83085. Heimasimar 77688 og 25505.
Ath. opið alla daga vikunnar.
veiöimaðurinn
Námskeið nr 2 I fluguköstum
hefst sunnudaginn 18. nóv. kl. 1000
i Iþróttahúsi KHI v/Háaleitis-
braut. Lánum öll tæki.
Armenn
(Ýmislegt ^ )
Hljómtæki.
Þaö þarf ekki alltaf stóra aug-
lýsingu til að auglýsa góð tæki.
Nú er tækifærið til aö kaupa góðar
hljómtækjasamstæður, mag'nara,
plötuspilara, kasettudekk eða
hátalara. Sanyo tryggir ykkur
gæðin. Góðir greiðsluskilmálar
eða mikill staðgreiðsluafsláttur.
Nú er rétti timinn til að snúa á
veröbólguna. Gunnar Ásgeirsson,
Suðurlandsbraut 16. Simi 35200.
ATHUGIÐ
Sl. laugardagskvöld tapaöist blátt
kvenmannstölvuúr (Casio) ásamt
svörtu passaveski með skilrikj-
um. Skilvis finnandi vinsamleg-
ast hringi i sima 81523.
Stærsti bilamarkaður landsins.
A hverjum degi eru auglýsingar'
um 150-200 bila I Visi, I Bilamark-
aði Visis og hér I smáaug-
lýsingunum. Dýra, ódýra, gamla,
nýlega, stóra, litla, o.s.frv., sem
sagt eitthvað fyrir alla. Þarft þú
aö selja bil? Ætlar þú að kaupa
bö? Auglýsing i Visi kemur við-
skiptunum i kr'ing, hún selur, og
hún útvegar þér þann bil, sem þig^
vantar. Visir, simi 86611.
Ósk um telex-afnot.
Oska eftir að komast I samband
við einstakling eða fyrirtæki í
miðbænum, sem hefur aðgang að
telex. Tilboð sendist blaðinu.
Fæst nú 6
Járnbroutar-
stöðinni
KAUPMANNAHÖFN
IANDLEG HREYSTl-ALLRA HBLL
l
|«GEÐVERNDfe
?\7
■ GEOVERNDARFÉLAG ÍSLANDS
Munið
| FRÍMERKJASÖFNUN
félagsins,
Innlend
og erlend
Gjarna umslög heil/
einnig vélstimpluð
umslög
skrifstofan
Hafnarstræti 5,
Pósth 1309 eða síma 13468
ÁSKRIFENDUR!
Ef blaðið kemur EKKI með skilum ti! ykkar,
þá vinsamlegast hringið í síma 86611:
virka daqa til kl. 19.30
laugardaga til kl. 14.00
og mun afgreiðslan þá gera sitt besta til þess
að blaðið berist.
Afgreiðslo VÍSIS Sími 86611
'M STYRK® GEÐVERNOARMAUN ■