Vísir - 16.11.1979, Blaðsíða 13

Vísir - 16.11.1979, Blaðsíða 13
17 VÍSIR Föstudagur 16. nóvember 1979 Námsstjórarnir í skólarannsóknadeildinni vinna aö námsskrárgerö og endurskoöun námsefnis og kennsluhátta á grunnskóla-og framhaidsstigi og leiöbeiningastörf fyrir kennara. Þessi mynd var tekin i bækistöövum námsstjóranna viö Ingólfsstræti I Reykjavík I gær. Visismynd: JA. Skólarannsóknadeildin lær 166 mlllj. tll starfseml slnnar á árlnu: MIKIL VINNA m ENDURSKOBUN NÁMS- EFNIS OG GERD NÝS Sextán námsstjórar starfa nii hjá skólarannsóknadeild menntamálaráöuneytisins, þar af tiu i fullu starfi, en i föstu starfsliöi deildarinnar eru fjórir starfemenn. A fjárlögum þessa árs er veitt til starfsemi deildarinnar rúmum 166 milljónum króna, en um 60% þessarar upphæöarfer til náms- efnisgeröar. . Þetta kemur fram i greinar- gerð um starfsemi skólarann- sóknardeildarinnar, sem Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri menntamálaráðuneytisins hefur tekið saman og sent fjöl- miðlum. Tilefni greinargerðar Birgis eru ummæli Geirs Hallgrims- sonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins þess efnis að rann- sóknardeildin hafi vaxið mikiö og þar séu 89 starfsmenn. 1 þessu sambandi sagði Geir, að þetta vekti spurningar um það, hvað allt þetta fólk hefði fyrir stafni og hvort slik miöstyring sé af hinu góða. Samkvæmt upplýsingum Birgis Thorlacius, ráðuneytis- stjóra, hefur skólarannsokna- deildin enn ekki getað sinnt ýmsum verkefnum sinum, svo sem námssrkárgerð og náms- efnisgerð fyrir forskóla eöa sér- kennslu. Helstu verkefni skólarann- sóknadeildar eru námskrárgerð og endurskoðun námsefnis og kennsluhátta á grunnskóla- og framhaldsstigi, aö undantekn- um faggreinum iðnfræðslu- skóla, en Iðnfræðsluráö annast námskrárgerð i þeim greinum, og auk þess leiðbeiningastörf hverskonar fyrir kennara á grunnskólastigi. Til þessara verkefna hafa veriö ráönir námstjórar, en skv. 63. gi. grunnskólalaga er heimilt að ráða þá til allt aö fjögra ára I senn. Umfangsmikil endur- skoðun Námstjórar hafa umsjónmeð framkvæmd áætlunar um endurskoðun námsefnis og gerð námsskrár, hver i sinni grein. Þeir hafa með höndum leið- beiningastörf fyrir kennara i hlutaðeigandi grein t.d. með heimsóknum i skóla, með þvi að halda fræðslufundi fyrir kenn- ara, og foreldra þegar þess er óskað. Þá taka þeir verulegan þátt i að undirbúa og skipu- leggja endurmenntunarnám- skeið fyrir kennara á vegum Kennaraháskóla tslands. Námsgreinar, sem kenndar eru reglulega 1 grunnskóla og hafa fasta tima á stundaskrá, eru 12 að tölu og hefur verið leit- ast við að ráða námstjóra I þeim öllum. Þegar það er haft i huga að sumar þessara greina eru kenndar öll 9 ár grunnskólans og aðrar eitthvað skemur er augljóst að endurskoöunin i heild er mjög umfangsmikil. Samning námsbóka Eins og áður er vikið aö er endurskoðun námsefnis, samn- ing námsbóka og handbóka fyrir kennnara stór þáttur i starfi skólarannsóknadeildar. Á þessu sviði er um að ræða verkaskiptingu milli skólarann- sóknadeildar og Rikisútgáfu námsbóka á þann veg að skóla- rannsóknadeild sér um samn- ingu bókanna og kostar hana en Rikisútgáfa námsbóka sér um útgáfu þeirra og stendur straum af útgáfukostnaöinum. Einstök verkefni eru algjörlega I hönd- um Rikisútgáfunnar. Til þess að semja einstakar námsbækur eða námseiningar eru i flestum tilvikum ráðnir starfandi kennarar sem hafa þetta sem aukastarf oft á tiðum með fullu starfi, og er gert endanlega upp viö þá þegar handrit er tilbúið. Reynslan hefur sýnt að æskilegast er að ráða höfunda i fullt starf þann tima sem verkið tekur en að- stæöur hafa ekki leyft það. Þó eru nú starfandi samkvæmt sér- stökum samningi tveir náms- efnishöfundar og eru þeir taldir með i þeim tölum sem áður eru nefndar. Til að tryggja sem bestan árangur starfsins hafa námsefnishötundar samráð við hóp kennara en sumir þeirra prófa oft hið nýja efni I kennslu áöur en til útgáfu kemur. 166 milljónir á fjárlög- um Af þessum vinnubrögðum leiðir að það eru mjög margir sem tengjaststarfi deildarinnar með einum eða öðrum hætti án þess að þeir verði taldir starfs- menn hennar. Sumir þessara aðila fá enga þóknun fyrir sitt framlag, aðrir minniháttar, nánast táknræna þóknun og nokkrir meira. Er vandséö hvernig unnt er að telja starfs- menn skólarannsóknadeildar 89 einsogfram kemuri ummælum Geirs Hallgrimssonar i Þjóð- viljanum á dögunum eöa hvernig viðtækt samráð og dreifing verkefna getur flokkast undir miðstýringu. Á fjárlögum ársins 1979 eru veittar kr. 166.507 þús. til starf- semi skólarannsóknadeildar, þar af kr. 129.000 þús. til endur- skoðunar námsefnis á grunn- skólastigi. Af þessari upphæð fara u.þ.b. 40% eða kr. 54.000 þús. til námstjórnarstarfa, til greiðslu á feröakostnaöi, til greiðslu á kostnaði vegna fjöl- ritunar og útgáfu margskonar leiöbeininga- og fræðslubækl- inga o.fl. Hinn hluti fjárveit- ingarinnar fer til námsefnis- gerðarskv. þvisem áðurer lýst. Það kunna að vera skiptar skoðanir um það hvort fé til námsefnisgerðar eigi að veita til Menntamálaráðuneytisins, skólarannsóknadeildar eða til Rikisútgáfu námsbóka. Hitt er staðreynd að kostnaður vegna þessara verkefna svo cg vinnu- aflsþörf breytist ekki við það. Framlög í lágmarki Birgir Thorlacius segir i lok greinargerðar sinnar: Skv. fjárlögum fyrir árið 1979 er stofn- og rekstrarkostnaður grunnskóla kr. 12.792.611 þús., þar af stofnkostnaöur kr. 1.979.500 þús. Erhér um að ræða 6.3% af útgjöldum rikisins á yf- irstandandi ári. Það hlýtur að vera kappsmál að þessir fjár- munir nýtist eins vel og kostur er, en til þess að svo megi verða er óhjákvæmilegt aö halda uppi starfsemi sem lýtur aö þvi að kanna og gera úttekt á hinum ýmsu þáttum skólastarfsins og finna þannig nauðsynlegar for- sendur fyrir margvislegum á- kvörðunum sem oft þarf að taka, halda uppi starfsemi til að kynna nýjungar i kennslumál- um og starfsháttum skóla og siöast en ekki sist þarf að sjá skólum fyrir viðunandi kennslu- gögnumsem eru i samræmi við kröfur hvers tima. Miðað við þær tölpr sem áður eru nefndar er á þessu ári varið a) 0,42% af stofn- og rekstrar- kostnaði grunnskóla til leið- beiningastarfa, rannsókna og kannana. Þegar grunnskóla- lögin voru i undirbúningi var þessi þörf metin 1%. b) 2,9% af stofn- og rekstrar- kostnaði grunnskóla til náms- efnisgerðar og er þá reiknað með þvi sem skólarannsdkna- deild fær til þessarar starf- semi, Rikisútgáfa námsbóka, en hún fær á þessu ári kr. 268.122 þús., svo og Fræðslu- myndasafn rikisins sem fær kr. 30.296 þús. Reynslan sýnirað þessi fram- lög eru i algjöru lágmarki og samanborið við önnur lönd er hér ekki um hátt hlutfall að ræða. Ji „Ekki allar skynsamlegar flugferðirnar i þá daga” Helgarviötaliö er viö Agnar Ko- foed-Hansen, flugmálastjóra, sem segir frá ýmsu þvi, er á daga hans hefur drifið. Siðasti sótarinn i Reykjavik. Spjallað er viö Guömund Sigmunds- son um störf sótara fyrr og nú, en hann er sá siöasti, sem gegnir þeim starfa i Reykjavik nú. „Við eigum allir uppskeruna segir Soffanias Cecilsson i Grundar- firði, sem nú á i „skelstriðinu” á Breiðafirði við sjávarútvegsráðu- neytið. Soffanias er i fréttaljósinu þessa helgina. OG ALLT HITT Helgarpistill sr. Siguröar Hauks Guöjónssonar, bókarkafli eftirGunnar M. Magnúss, myndasögur, getraunir, kross- gátan, gagnaugað, helgarpoppið, hringurinn, Sæikerasiö- an, Sandkassinn og ýmislegt fleira. erkomin! ■ ■ * „Vegir liggja til allra átta....” Lag Sigfúsar Halldórssonar viö Ijóö Indriða G. Þorsteinssonar kvað nú vera vinsælasta diskólagiö meöal islenskra ungiinga. „Diskókóngarn- ir” Sigfús og Indriöi G. rifja upp minningar um þetta gamla, góða iag úr kvikmyndinni „79 af stöö- mni

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.