Vísir - 16.11.1979, Qupperneq 11
11
VÍSIR
Föstudagur 16. nóvember 1979
Erliðleikar í hitaveitumálum Akureyringa:
vatnsskorturinn
40% af Hðrfinni
,,Það er ekki hægt að
segja annað en að það
hafi komið töluverður
afturkippur i þessar
hitaveituframkvæmdir
okkar Akureyringa, en
það er þó kannski ekki
ástæða til að örvænta
enn” sagði Helgi M.
Bergs bæjarstjóri, þeg-
ar Visir innti hann eftir
hvað þessum málum
liði.
Helgi sagöi að þaö heföu skap-
ast miklir erfiöleikar i vatnsöfl-
un og þeir erfiðleikar heföu ver-
ið tviþættir: i fyrsta lagi heföi
reynst erfitt að gera við eina 40-
50 sekúndulitra holu að Lauga-
landi, sem heföi skaddast, en
Helgi M. Bergs bæjarstjóri.
það kæmi væntanlega fljótlega i
ljós hvort það yrði hægt eða
ekki. í öðru lagi væru svo tækni-
legir erfiðleikar i sambandi við
niðursetningu á dælum i holurn-
ar en setja þyrfti dælur niður á
250 metra dýpi sem væri helm-
ingi meira dýpi en dælur hefðu
áöur verið settar á hér á landi.
Helgi var spurður hversu
mikill vatnsskorturinn væri og
sagði hann að það væru um 100
sekúndulitrar sem á vantaði.
Heildarþörfin væri hins vegar
um 250 sekúndulitrar af nýju
vatni, en heildarvatnsþörf
Akureyrarbæjar næmi aftur á
móti 330 sekúndulitrum. Mis-
munurinn stafaöi af þvi aö
hluti af hitaveitukerfinu i bæn-
um yrði tvöfaldur þannig að
vatn sem hefði verið hitað upp
að nýju væri aftur látið fara inn
á kerfið. Til þessarar upphitun-
ar þyrfti kyndistöð en þessi við-
bótarupphitun næmi þó ekki
nema um 6% af þeirri orku sem
þyrfti til að hita upp bæinn.
Loks taldi Helgi enn ekki séð
hvernig þessum málum lyktaði,
en það væri þó ekki ástæða til að
leggja árar i bát þótt illa gengi i
bili. — HR
Hafnarfiröi bregöur fyrir f ýmsum myndum i kvikmyndinni, eins og i augum þeirra, sem þar svipast
um.
Hafnfirðingum boðið að
sjá hýra Hafnarfjörð
,,Þú hýri llafnarfjörður”, nefn-
ist kvikmynd sem bæjarstjórn
Hafnarfjarðar hefur látið gera
um hátiðarhöldin i bænum í tilefni
af 1100 ára afmæli Islandsbyggð-
ar 1974.
t myndinni er ennfremur
brugðið upp svipmyndum úr bæn-
um, bæjarlifinu og af ibúum i leik
og starfi. Farið er I heimsóknir I
skóla bæjarins, nokkur fyrirtæki
og liknarstofnanir. Þá er kynntur
rekstur bæjarins og ýmissa stofn-
anna.
Samið var við Kvik s.f. um gerð
myndarinnar en umsjón með töku
hafði Páll Steingrimsson. Kvik-
myndun önnuðust Asgeir Long,
Ernst Kettler og Páll Steingrims-
son. Texta samdi Asgeir Guð-
mundsson.
Kvikmyndin uaa Hafnarfjörð er •
i lit, tekin á 16 millimetra filmu.
Sýningartiminn er 45 minútur.
Myndin verður sýnd I Bæjarbiói
á laugard. 17. og aftur þann 24.
nóvember. Hvorn daginn verður
myndin sýnd þrisvar, klukkan
13.30, 14.30 Og 15.30.
Aðgangur að sýningum þessum
er ókeypis og öllum heimill.
—KP.
Kári litli í danska úlvarpinu
Danska útvarpið er um þessar
mundir að flytja barnabókina
Kári litli i sveit eftir Stefán
Júliusson. Bókin kom út i Dan-
mörku árið 1976 og aftur árið eftir
og er nú uppseld.
A dönsku nefnist bókin Drengen
og hunden og er lesin i sérstökum
barnatimum á laugardags-
morgnum i nóvembermánuði,
Rigmor Hövring þýddi bókina en
Jörgen Kanstrup hefur búið
hana til flutnings i útvarp. Lesari
er Per Sessingö.
A siðastliðnu vori kom út á
dönsku önnur Kárabók Stefáns
Júliussonar, Kári litli og Lappi I
þýðingu Þorsteins Stefánssonar
rithöfundar. Crtgefandi er sá sami
og fyrri bókarinnar, Birgitte Höv-
rings Biblioteksforlag. Hefur
þessi seinni bók fengið góða dóma
i Danmörku sem hin fyrri.
—SG
Húsmæðrabasar
Húsmæðrafélag Reykjavikur heldur sinn árlega basar á sunnudag-
inn klukkan 14 að Hallveigarstöðum. Margt góðra muna verður á boö-
stólum, þar á meðal jóladúkar, jólasvuntur, sokkar, vettlingar, púðar
og prjónuð leikföng. Einnig verður á basarnum jólaföndur sem konur
hafa unniö, að ógleymdum lukkupokum fyrir börn.
ORIGINAL ®
UuschoIh*
Símar: 24478 & 24730 Grettisgötu 6
Stærstu framleiðendur
heims á baðklefum og
baðhurðum allskonar
Söluumboð:
Kr. Þorvaldsson & Co
wasnBH