Vísir - 19.12.1979, Blaðsíða 3

Vísir - 19.12.1979, Blaðsíða 3
VISIR Miðvikudagur 19. desember 1979. 3 Sljórnarmyndunarlllraun Slelngrlms: „ÞETTA ER BÚH) SPIL” „Það ætla ég að vona og helst fyrir jól, það væri gott að geta andað léttar yfir hátiðarnar” sagði Steingrimur Hermannsson formaður Fram- sóknarflokksins þegar Visir spurði hvort hann ætlaði að skiia umboði sinu til stjórnarmyndunar til forseta fyrir áramótin. Þingmenn sem Vísir ræddi viB á Alþingi i gær voru almennt á þeirri skoðun aö ekkert útlit væri fyrir vinstri stjórn og sagöi Ólafur Ragnar Grímsson að Al- þýðuflokkurinn væri búinn aö sjá til þess, aö svo yrði ekki. Þing- menn Alþýðuflokksins studdu sjálfstæðismenn i fjárveitinga- nefnd eins og kunnugt er og einnig stóðu þeir að þvi að Geir Hall- grimsson var kjörinn formaður utanrikismálanefndar. 1 gær var beðið eftir næsta leik sem er kjör formanna i aðrar nefndir, en það fer fram I dag I flestum nefndun- um. Menn vita ekkert hvaöa af- stöðu Alþýðuflokksmenn taka i hinum ýmsu málum og telja sum- ir aö þeir séu með þessu að reyna að viöhalda þvi ástandi til að sitja sem lengst i rikisstjórn. Þá telja menn að vegna viðbragöa við kjöri i fjárveitinganefnd og utan- rikismálanefnd séu kratar nú tregir til að styðja sjálfstæðis- mann i formennsku I fleiri nefnd- um og einnig sem varaformann fjárveitinganefndar. Einn af við- mælendum VIsis sagöi „Það vita allir, að það hefur frá upphafi verið ljóst, að ekki yrði mynduð vinstri stjórn. Þetta er ekkert nema sjónarspil. Hins vegar vilja menn úr öllum flokkum liðka fyr- ir þvi að þau mál sem brýnust eru hljóti afgreiðslu og störf þingsins einkennast nokkuð af þvi”. Annar þingmaöur sagði að það væri mikill vilji fyrir þvi hjá framsóknarmönnum og hluta af krötum og Alþýðubandalags- mönnum að endurnýja vinstri stjórnina. Mestu mistök Stein- grims hefðu verið að fallast ekki á tillögu Alþýðuflokksins um að forsetar þingsins yrðu kosnir eftir stærð flokka og kratar fengju for- mann fjárveitinganefndar. Ef svo hefði farið væri allt með meiri spekt og meiri likur á stjórnar- samstarfi þessara flokka. Raunar væri alveg dæmalaust að hans mati hvaö Steingrimur væri klaufalegur og ólaginn við að sætta menn og málefni. Loks sagði einn af viðmælend- um Visis á alþingi i gær „Þetta er búiö spil! Það eru bara forms- atriði að staðfesta þaö”. „Nú duga engin lausatök" I upphafi þingfundar I Samein- uðu þingi flutti Benedikt Gröndal skýrslu forsætisráðherra um stööu mála, þar sem ekki væri eölilegt að flytja stefnuræðu við núverandi aðstæður. Benedikt drap á þau mál sem núverandi rlkisstjórn hefur beitt sér fyrir. Loks sagði hann: „Nú er mikilvægast i Islenskum stjórnmálum að mynduð verði stjórn, sem er reiðubúin til að takast á við efnahagsvandann án alls lýðskrums. Nú duga engin lausatök. Rikisstjórn Alþýðu- flokksins mun þann tima sem hún situr gera það sem hún getur til að koma I veg fyrir að vandinn ágerist og þaö er tilhæfulaust að vandinn hafi aukist fyrir til- verknað hennar”. Hverjir standa í vegi fyrir stjórnarmyndun? Geir Hallgrimsson tók til máls um ræðu Benedikts og sagöi meöal annars að upptalning á verkum núverandi rikisstjórnar væri ekki mikil afrekaskrá en I Hagnýtar jótagjafir fyrir ungiingana Skrifborð og kommóður Trésmiðjan OJeriA ivo vel eg litiS lee Laugovegi 166 Simar 22229 og 22222 Ragnar Arnalds formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og Sighvatur Björgvinsson fjármdlaráð- herra bera saman bækur sinar á Alþingi i gær. (Vfsismynd GVA). skýrslunni væri þungur áfellis- dómur um vinstri stjórnina. Eng- um blandaðist hugur um hið al- varlega efnahagsástand og það kallaöi á samstöðu innan þings og utan til aö leysa vandann. Steingrimur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins sagði aö allt sem þarna heföi komið fram heföi legiö fyrir I ágúst i sumar, nema hvað staðan væri töluvert verri en hún hefði þurft að vera vegna ótimabærra kosninga. Hann kvaðst ætla aö láta reyna á það á allra næstu dögum hvort stjórnarmyndunar- viöræöur tækjust eða ekki. Ragnar Arnalds sagði að ekki mætti leysa vandann með kjara- skeröingu og gerði að umtalsefni stuðning Alþýöuflokks viö sjálf- stæðismenn i nefndum. Friðrik Sophusson sagði það visbendingu um skoöun Ragnars á þingræði aö honum þætti ámælisvert aö hindrað væri aö minnihluti á alþingi næði meiri- hluta i nefndum og kvaðst vilja fá svör frá Steingrimi um hverjir það væru sem stæðu i vegi fyrir aö tækist að mynda stjórn, en fundi var slitið eftir að hann íauk máli sinu, svo aö hann fékk ekki svör viö þvi. —JM Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra fylgihluta, svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússi- kubbur og limgeröisklippur. Alla þessa fylgihluti má tengja við borvélina með einkar auðveldum hætti, svo nefndri SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernd- uð uppfinning SKIL verksmiðjanna, Ekkert þaft að fikta með skrúfjárn eða skiptilykla heldur er patrónan einfaldlega tekin af, vélinni stungið í tengistykkið og snúið u.þ.b. fjórðung úr hring, eða þar til vélin smellur í farið. Fátt er auðveldara, og tækið er tilbúið til notkunar. Auk ofangreindra fylgihluta eru á boðstólum hjólsagarborð, láréttir og lóð- réttir borstandar, skrúfstykki, borar, vírburstar, skrúfjárn og ýmislegt fleira sem eykurstór- lega á notagildi SKIL heimilis- borvéla. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL Einkaumboö á fslandi lyrir Skil rafmagnshandverkfæri. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 (5) Eigum einnig fyrirliggjandi margar fleiri gerðir og stærðir af SKIL rafmagnshandverkfærum. Komið og skoöiö, hringið eða skrifið eftir nánari uþplýs- ingum. 1439 H Heimilisborvél Mótor: 380 wött Patróna: 10 mm Stiglaus hraðabreytir í rofa: 0-2600 sn/mín. Höggborun: 0-36000 högg/min. 1417 H. Heimilisborvél Mótor: 420 wött Patróna: 13 mm Stiglaus hraðabreytir í rofa og tvær fastar hraðastillingar: 0-900 eða 0-2600 sn/mín.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.