Vísir - 19.12.1979, Page 15
vísm
Miövikudagur 19. desember 1979.
VlSIR
Miövikudagur 19. desember 1979.
Einn hinna slösuöu borinn frá flaki þyrlunnar.
Brakiö úr þyrlunni fannst allt aö 150 til 200 metrum frá flakinu. Vfsis-
myndir: GVA
nokkur hundruð feta hæð.
Ragnar Vignir kom á
staðinn upp úr klukkan
háíf sex. Þá voru farþeg-
arnir enn inni í Cessnunni.
Þeir voru allir með með-
vitund og báru sig vel.
/,Það var svo kalt, að þau
voru ekki flutt úr vélinni.
Bandaríkjamennirnir
höfðu skilið eftir tvo menn
og það var hlúð að hinum
slösuðu eftir föngum.
Er þyrlan kom í fyrra
sinn, var enginn læknir
með og þeir þorðu ekki að
hreyfa stúlkurnar vegna
þess, að þeir héldu, að þær
væru með bakmeiðsli."
Ragnar sagði, að svo
virtist sem Cessna vélin
hefði rekist í aflíðandi
hæð, sem hallaði um tvær
til þrjár gráður, en ekki
lægi Ijóst fyrir hvað hefði
valdið því. Og hefði vélin
síðan endasteypst. —KS
Björgunarþyrla Varnarliösins brotlenti nokkur hundruö metrum frá Cessnunni og brakiö dr henni var aö flnna á
vfö og dreif. Til vinstri er björgunarbátur þyrlunnar, en hann var blásinn upp til aö skýla hinum slösuöu.
Cessna vélin á slysstaö. Hún haföi greinilega runnlö til upp I móti og endastungist.
Hlúö aö einum hinna slösuöu á slysstaönum á Mosfellsheiöi.
Björgunarþyrla frá
Varnarliðinu, sem send
var á slysstað Cessna
flugvélarinnar i gær,
brotlenti skömmu eftir
flugtak. t vélinni voru 10
manns og slösuðust allir
alvarlega, fimm Banda-
rikjamenn i áhöfn þyrl-
unnar, tveir islenskir
læknar og þrír farþegar
úr Cessnavélinni. Þyrl-
an hóf sig til flugs klukk-
an 19.08 og 5 minútum
síðar hrapaði hún tæpan
kflómetra frá slysstaðn-
um, miðja vegu milli
Hengils og Þingvallaveg
ar, þar sem afleggjarinn
er að Stiflisdal. Þyrlan
stórskemmdist, er hún
hrapaði fyrir augunum á
björgunarmönnum, sem
voru komnir á staðinn
og brot úr henni fundust
um 150 til 200 metra frá
flakinu. Er björgunar-
menn komu aðvifandi
voru tvær finnskar
stúlkur, sem voru far-
þegar i Cessna-vélinni,
að skriða úr flakinu, og
voru þær þó mikið slas-
aðar úr fyrra slysinu.
Veður var frekar slæmt
og gekk á með éljum.
Cessna vélin brotlenti
einhverntíma laust eftir
klukkan þrjú í gærdag.
Fernt var í vélinni, nýsjá-
lenskur maður, auk
finnsku stúlknanna, og
franskur flugmaður. Þau
slösuðust öll alvarlega en
ekkert þeirra lífshættu-
lega. Þyrlan hafði áður
farið eina ferð til Reykja-
víkur með franska flug-
manninn.
„Þyrlan hóf sig á loft og
það virtist allt mjög eðli-
legt, þar til allt í einu, að
henni virtist förlast flug-
ið", sagði Ragnar Vignir,
aðstoðaryf irlögregluþjónn
hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins, í samtali við Vísi í
nótt, en hann var sjónar-
vottur að þyrluslysinu.
„Við sjáum hana hverfa
í tæplega kílómetra fjar-
lægð frá flakinu af Cessn-
unni og hrapa til jarðar.
Hún lækkaði flugið allt í
einu og okkur fannst eins
og vélin hefði þagnað
skyndilega.
Við óttuðumst mest, að
eldur gysi upp, en sem bet-
ur fer var það kraftaverk-
ið í þessu öllu, að svo varð
ekki.
Við fórum strax á stað-
inn á tveim vélsleðum og
aðrir hlupu í ofboði — og
björguðum fólkinu úr f lak-
inu og hlúðum að því eftir
bestu getu, þar til sjúkra-
bílar komu.
Þyrlan var ákaflega illa
útleikin og mikið brotin og
allir meira og minna slas-
aðir."
Ragnar sagðist álíta, að
þyrlan hefði verið komin í
Skúli Jón Sigurösson hjá Loft-
feröaeftirlitinu meö neyöarsendi
Cessnunnar. Þetta litla tœki varö
til þess aö véiin fannst.
15
Olfuvl ðsKlpianetnd:
RÆTTIIM NORSKA OLÍU
„Viö ræddum nánar um þaö
tilboð sem þessir aöiiar geröu
okkur á sfnum tima en engar
ákvaröanir voru teknar og mál-
inu haldið opnu áfram”, sagöi
Geir Haarde ritari oliu-
viðskiptanefndar viö Vfsi en
nokkrir nefndarmanna voru I
Noregi rétt fyrir helgina aö
ræöa viö- finnska fyrirtækið
Neste og norska fyrirtækið
Norsk Hydro.
Geir sagöi að i þessum viö-
ræðum heföi hvorttveggja veriö
rætt um viöskipti á næsta ári og
viðskipti til lengri tima. Hér er
bæöi um aö ræöa gasollu og
bensln en magniö getur veriö
breytilegt.
Verö- og greiösluskilmálar
eru meö talsvert öörum hætti en
i oliusamningnum viö Rússa og
sagöi Geir aö þaö væri álitamál
hvort þetta tilboð væri óhag-
stæöara en samningarnir viö þá
eins og haldiö hefur veriö fram.
Oliuviöskiptanefnd hefur ekki
enn tekiö afstööu til þess hvort
mælt veröur meö aö gengiö
verði til samninga viö þessa
aöila en fundur veröur haldinn I
nefndinni á morgun.
Nú þegar hafa verið lögö drög
aö kaupum á 100 til 150 þúsund
lestum af gasoliu á næsta ári frá
breska oliufyrirtækinu BNOC,
sem er I ríkiseign.
— KS.
FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Felgum og affelgum
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING
Hjólbarðaþjónustan
Laugavegi 172,simar 28080, 21240
HEKLAHF