Vísir - 16.02.1980, Qupperneq 4
Laugardagur 16. febrúar 1980.
4
Einari Bollasyni, landsliðsþjálfara í körfuknattleik, var i vetur keppni atvinnumanna í Bandarikjunum er leikinn besti körfuknatt-
boðið til Seattle í Washington til að kynna sér þar þjálfun. Einar fór leikur í heiminum í dag.
þessa ferð í boði Marv Harsman, þjálfara Péturs Guðmundssonar
hjá University of Washington, en auk þess að fylgjast með æfingum Það var mikill heiður, sem Lenny Wilkens, þjálfari Seattle Super-
hjá því liði átti hann þess kost að fylgjast með æfingu og leikjum hjá sonics sýndi Einari, er hann bauð honum að vera viðstaddur æfingu
meistaraliði Bandaríkjanna í körfuknattleik atvinnumannanna, hjá liðinu og ræða við sig. Þessar æfingar eru ávallt lokaðar öllum
Seattle Supersonics. óviðkomandi og fá engir að fylgjast með þeim nema þeir sem vinna
Margir Islendingar fylgdust á sinum tíma með keppni atvinnu- aðþjálfun liðsins. Einar varð fúslega við þeirri ósk Helgarblaðsins
mannanna í sjónvarpi Varnarliðsins á Kef lavíkurflugvelli, en i að skýra frá ferð sinni,í þeirri grein sem fer hér á eftir.
Bandaríski þjálfarinn
spurdi um verdbólguna
og eldgosid í Eyjum
— Einar Bollason landsliðsþjálfari i körfuknattleik spjallar við Helgarblaðið
um ferð sína á slóðir bestu körfuknattleiksmanna heimsins
Þjálfari liðs Seattlé Super-
sonics, sem Varð sigurvegari i
keppni atvinnumannaliðanna i
bandariska körfuknattleiknum á
siðasta keppnistimabili, heitir
Lenny Wilkens og er blökku-
maöur, rúmlega fertugur að
aldri. Hann var áður i hópi bestu
leikmanna i Bandarikjunum og
lék með ýmsum þekktum s.s. Los
Angeles Lakers og Supersonics,
siðasta árið einnig sem þjálfari
þar.
Ariö 1975 var hann rekinn frá
félaginu, en hafði áður byggt upp
framtiöarlið þess með kaupum á
ungum snjöllum leikmönnum. Sá
sem tók við starfi hans sem þjálf-
ari þótti ekki skila miklum
árangri, leikmennirnir voru
óánægöir og vildu að Lenny Wilk-
ens tæki viö aftur og svo fór að
eigendur félagsins urðu að biöja
hann um að taka viö störfum sin-
um að nýju. Þaö geröi hann á
miðju keppnistimabili 1977-1978
og liðið komst i úrslit. 1 fyrra var
hann siðan með liðiö allt keppnis-
timabiliö og undir hans stjórn
sigraöi liðið i NBA-keppninni og
hlaut þar með titilinn „Heims-
meistarar félagsliða”.
Góðar tekjur
Lenny Wilkens þi£gur nú hæstu
laun, sem nokkur fþróttaþjálfari I
Bandarikjunum hefur. Þau hafa
ekki verið gefin upp nákvæmlega
en talaö er um 200 milljónir is-
lenskra króna á ári!
,,Ég hafði mikinn áhuga á þvi
að hitta þennan mann og fá tæki-
færi til að spjalla við hann”, sagði
Einar Bollason þjálfari fslenska
landsliðsins, er Helgarblaöið
ræddi við hann, „enda þjálfar
hann besta körfuknattleikslið
heims I dag. Þegar Marv Hars-
man, sem þjálfar Pétur Guð-
mundsson hjá University of
Washington, komst að þessum
áhuga minum, hringdi hann til
Wilkens og var það auðsótt að fá
að mæta á æfingu hjá liöinu,
fylgjast meö hvernig liðið æfir og
spjalla við Wilkens. Ég lft á þetta
sem mikinn heiður, enda eru
æfingar liðsins að öllu jöfnu alveg
lokaðar fyrir utanaðkomandi og
fréttamenn fá aldrei að fara þar
inn”.
Sæti fyrir 90 þúsund
„Ég hef aldrei séð annað eins
fþróttahús eins og íþróttahöll
félagsins.svo mikið mannvirici er
hún. Körfuboltinn er leikinn f einu
horni hússins og eru þá sæti fyrir
40 þúsund áhorfendur og oftast
uppselt á leiki liösins. Annars er
höllin einnig notuö fyrir leiki I
„football” — bandariskri knatt-
spyrnu — þá er leikið á gervigrasi
innanhúss og sæti fyrir 90 þúsund
áhorfendur.
Þegar ég fór á leik hjá liðinu
með Pétri Guðmundssyni lögðum
við bil okkar við hlið hússins. Inn-
gangurinn var hinsvegar á hinni
hliðinni og við vorum 15 minútur
að ganga f kring um húsið að inn-
ganginum. Það er eins og gefur
aö skilja ekkert smá fyrirtæki að
koma fólkinu öllu fyrir i þessu
húsi en það er leyst á þann hátt að
bílar keyra fólkið upp utan á hús-
inu alveg upp á efstu hæð og ég sá
einnig marga bila á leið þar upp,
hlaðna gosdrykkjakössum og
öörum varningi”.
Tæknilegar æfingar
A æfingunni hjá liðinu varð
Einar vitni að þvf, að leikmenn
einbeittu sér eingöngu að tækni-
hliö körfuboltans, enda þekkist
það ekki að æfingar félagsins fari
i það að byggja upp úthald leik-
manna.
„Leikmennimir sjá alveg um
slikt sjálfir, þeir eru i fullri út-
haldsþjálfun, þegar keppnistima-
bilið hefst”, sagði Einar. „Ef þ'aö
kemur i ljós, aö úthaldsþjálfun
þeirra er eitthvað ábótavant, þá
er ekki beðið lengi með að taka þá
út af launaskrá. Samkeppnin er
gffurleg og ég get nefnt nokkrar
tölur I þvi sambandi.
A hverju ári útskrifast 15-20
þúsund körfuknattleiksmenn úr
háskólum i Bandarikjunum og I
þeim hópi eru 7-800 toppleikmenn.
1 atvinnumannadeildinni — NBA
— eru hinsvegar aðeins 22 lið og á
hverju ári eru ekki teknir inn
nema um 40 nýir leikmenn svo að
sjá má, að það er hart barist um
þær stööur sem losna.
Þetta er hin glæsilega bygging, Iþróttahús Seattle Supersonics I Seattle, sem tekur 90 þúsund áhor-
fendur i sæti. Ef myndin prentast vel, má sjá akvegi fyrir bifreiðar utan á húsinu, en bflar flytja áhor-
fendur upp á efstu hæöir áhorfendapallanna.
„Pétur Guðmundsson á góða möguleika á að verða fyrsti eriendi körfu-
knattleiksmaðurinn, sem veröur atvinnumaður i Bandarfkjunum”
segir Lenny Wilkins, þjálfari Seattle Supersonics.
Spurð! um verðbólguna
„Lenny Wilkens tók mjög vel á
móti mér og á meöan aðstoðar-
mennhans stjórnuðu æfingu liðs-
ins, ræddi ég stuttlega við hann.
Wilkens virtist greinilega vita
eitthvað um tsland, hann spurði
mikiö um eldgosið f Vestmanna-
eyjum og ekki var áhugi hans
minni á aö ræða verðbólguna á Is-
landi. En hann hafði aldrei vitað
að það væri leikinn körfuknatt-
leikur á Islandi fyrr en hann sá
Pétur Guömundsson.
„Mér haföi varla dottið það i
hug”, sagði hann, en bætti siðan
við: „En land sem framleiðir
leikmann eins og Pétur Guð-
mundsson sem leikur með Uni-
versity of Washington er greini-
lega ekki að stfga sin fyrstu skref
I Iþróttinni. Eigiö þið fleiri svona
leikmenn eins og Pétur?”
Þá spurði ég hann hvort hann
teldi, að Pétur ætti möguleika á
að komast I atvinnumennsku,
þegar hann lyki námi I háskóla.
„Ég hef fylgst með Pétri og
hann er gffurlegt efni”, sagöi
Wilkens. „Hannhefur óvenjugóða
boltameðferð af svo hávöxnum
leikmanni að vera og ég held að
hann eigi tvímælalaust mögu-
leika á aö komast i atvinnu-
mennskuna og verða þannig
fyrsti erlendi leikmaðurinn, sem
leikur I NBA deildinni. Og ekki
skemmir það fyrir honum að æfa
undir handleiðslu Marv Harsman
Texti: Gylfi Kristjánsson