Vísir - 16.02.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 16.02.1980, Blaðsíða 5
, Laugardagur 16. febrúar 1980. 5 sem ég tel vera einn af bestu þjálfurum i Bandarikjunum”. Fari svo aö Pétur komist i at- vinnumennskuna i Bandarfkjun- um, þá á hann fyrir höndum aö fá ágætis laun sem leikmaöur þar. Leikmenn liöanna hafa frá 40 milljónum og upp I 200 milljónir Islenskra króna I árslaun og eru engir iþróttamenn I heiminum nema toppmenn i golfi og tennis meö hærri laun. En Pétur á langa leiö fyrir höndum og erfiöa en vonandi gengur honum vel I bar- áttu sinni fyrir þvi aö gerast at- vinnumaöur i þessu höfuövigi körfuknattleiksins I heiminum. „Ég spuröi Wilkens hvort hann teldi aö bestu landsliö Evrópu i körfuknattleik ættu einhvern möguleika I keppni viö atvinnu- mannaliöin I Bandarikjunum. Þá brosti hann breitt og sagöi, aö þetta væri hlutur, sem ekki þyrfti aö ræöa. Hann benti mér á, aö landsliö Júgóslaviu heföi nýlega veriö á keppnisferö I Banda- rikjunum, en JUgóslavarnir eru i fremstu röö I Evrópu. Þeir léku marga leiki I Bandarikjunum gegn háskólaliöum, og töpuöu þeim öllum meö nokkrum mun. Wilkens taldi aö þaö væri tilum 40 háskólaliö I Bandarfkjunum, sem gætu unniö bestu landsliö Evrópu auöveldlega og aö atvinnu- mannaliöin, sem leika i NAB deildinni væru mörgum gæöa- flokkum fyrir ofan þessi háskóla- liö. ,,Ég baö þennan þekkta þjálf- ara aö gefa ungum körfuknatt- leikspiltum á Islandi ráölegging- ar. „Þaö veröur enginn góöur körfuknattleiksmaöur nema meö þrotlausum æfingum. Aöalatriöið er að vera alltaf meö bolta I hönd- unum, það á aö „dribbla” bolta á undan sér á leiðinni I skólann á meöan veriö er aö reikna heima- dæmin og reyndar alltaf þegar hægt er aö koma þvi viö. Þaö þarf ekki mikinn eöa dýran útbúnaö og nægir aö minna á, aö flestir bestu leikmenn I bandariskum atvinnu- körfuknattleik hafa komið úr fá- tækrahverfum. Þá er mikið atriöi aö æfa báöar hendur jafnt og strax og piltur hefur náö leikni I þvi að „dribbla” boltanum, á hann aö æfa sig I aö gera þaö meö bundiö fyrir augun. Og ég mæli eindregiö meö þvi aö ungir leik- menn séu óhræddir viö aö reyna eitthvaö nýtt meö boltanum, gefa Einar Bollason, landsliösþjáfari tslands I körfuknattler; i góöum mundssonar hjá University of Washington, i miöið er Lenny Wilkens sem er tekin á æfingu hjá Seattle Supersonics. féiagsskap. Lengst til vinstri er Marv Harsman, þjálfari Péturs Guö þjálfari Seattle Supersonics og Einar er lengst til hægri á myndinni, hann afturfyrir sig og fleira i þeim dúr”. Pétur vinsæll Einar heimsótti einnig Univer- sity of Washington og dvaldi hjá körfuknattleiksliði skólans þar i nokkra daga i boöi Marv Hars- man þjálfara en meö þessu liöi leikur Pétur Guömundsson eins og kunnugt er viö góöan oröslir. „Aöstaöan hjá þessu liöi stórkostleg, enda er þetta 4. Þetta eru þrir af körfuknattleiksþjálfurunum hjá University of Washington, þar sem Pétur Guömunds- son leikur. Frá vinstri eru Bob Johnson, þá Marvi Harsman aöalþjálfari og til hægri er Denny Houston, en hann stýröi einmitt islenska landsiiöinu i siöasta Noröuriandamóti i körfuknattleik. stærsti háskóli i Bandarikjunum meö 37 þúsund nemendur. Ein- hverjir tugir starfsmanna vinna eingöngu I kring um körfuknatt- leiksliö skólans, þaö eru þjálfar- ar, nuddarar, skrifstofufólk, búningaveröir, læknar, áhalda- veröir og fleira og fleira fólk sem vinnur eingöngu aö þvi að sjá um, aö málefni liösins séu i lagi. Leikmenn liösins eru nánast hetjur i hópi annarra nemenda skólans og á þeim leikjum, sem ég sá meö liöinu varö ég var viö aö Pétur er i hópi þeirra allra vin- sælustu enda oröinn geysisterkur leikmaöur. Þaö var mjög lærdómsrlkt fyrir mig _aö fylgjast meö æfingum liösins. Þjálfararnir voru á fullri ferö um allan völl og ef menn voru ekki inni á vellinum aö æfa sig máttu þeir ekki setjast niöur fyrir utan. Ef þeir geröu þaö þá gilti þaö sama og aö viökomandi væri oröinn þreyttur og hann var þá sendur I baö. Barátta leik- mannanna á æfingum kom mér einnig mjög á óvart, þaö er ekkert gefiö eftir, enda samkeppnin um stööur I liöinu hörö og óvægin”. „Samskipti Péturs og Harsman þjálfara hafa ekki alltaf gengiö árekstralaust. Þaö vakti til dæmis mikla athygli i fyrra en Pétur lýsti þvi yfir i hádegis- veröarboði meö blaöamönnum, aö hann fengi ekki aö spila nógu mikiö meö liöinu og vildi hann kenna Harsman um þaö aö nota sig ekki nógu mikiö. Þetta kom sem sprenging þvi aö yfirleitt leyfa leikmenn sér ekki aö gagn- rýna þjálfara sina en Harsman haföi svar á reiöum höndum og setti Pétur út úr liöinu I þremur næstu leikjum!” Einar tjáöi Helgarblaöinu aö þessi ferö sin heföi verið geysi- lega lærdómsrik og hann myndi búa lengi aö þeirri reynslu og kunnáttu, sem feröin aflaöi hon- um. Okkur þótti hinsvegar fróö- legt I lok þessa spjalls aö spyrja hann hvort hann heföi ekki rekist á Flosa Sigurösson I feröinni, en hann leikur meö menntaskólaliöi I Seattle og hvort hann hygðist ekki nota þá Pétur og Flosa I Is- lenska landsliöinu á Norður- landamótinu i vor. „Ég sá einn leik meö liöi Flosa, Olympic High school og lék hann meö I þeim leik. Hinsvegar var hann veikur I þessum leik og ekki mikiö aö marka það sem hann sýndi. En það er ekki vafamál aö ef hann leggur rækt viö körfu- boltann þá á hann eftir aö veröa styrk stoö i landsliöinu. Honum hefur fariö mikiö fram en hvort hann veröur meö landsliöinu I vor er ekki hægt að segja til um I dag. Pétur mun hinsvegar leika lykilhlutverk i landsliöinu á Noröurlandamótinu I vor, þaö mun allt snúast um aö nýta hina miklu hæö hans — 2.17 metra. — Ég sá hvernig hann er notaður hjá sinu liöi og vona aö þaö eigi eftir aö koma sér vel. Pétur kem- ur heim um miðjan mars og ef til vill Flosi lika og munu þá strax leika meö landsliðinu gegn lands- liöi Sovétrikjanna hér”, sagði Einar. gk-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.