Vísir - 16.02.1980, Síða 11
11
vism
Laugardagur 16. febrúar 1980.
íréttagetiŒun krossgótan
ÖGMUNOUR
^orÚKkshöf N
1. Margir Þorláks-
hafnarbúar vilja að
þorpið verði gert að
kaupstað og skilið frá
sveitarfélaginu.
Hvaða hreppi tilheyrir
Þorlákshöfn?
2. Skjálftahrina hófst
við Kröflu í byrjun
vikunnar. Upptök
skjálftanna hafa
lengst af verið á
svipuðu svæði. Hvar?
3. Vetrarólympíu-
leikarnir hófust í vik-
unni. Hvar eru þeir
haldnir?
4. Bandarískur skák-
maður, sem mun taka
þátt í Reykjavíkur-
skákmótinu, er kom-
inn til landsins og hef-
ur hann verið með
nokkur f jöltefli. Hvað
heitir hann?
5. islandsmeistarar Vals
i handknattleik, liðið,
sem er komið í undan-
úrslit í Evrópukeppni
meistaraliða, tapaði í
vikunni fyrir botnlið-
inu í 1. deild. Hvaða lið
sigraði íslandsmeist-
arana?
6. Búnaðarmálastjóri
hefur ákveðið að láta
af störfum af heilsu-
farsástæðum. Hvað
heitir hann?
7. Hver sigraði i mara-
þonkeppninni í diskó-
dansi, sem haldin var
i Klúbbnum um síð-
ustu helgi?
8. Hvað hækkaði bensín-
verðið mikið á síðasta
ári?
9. I vikunni voru kjörnir
nýir formenn þing-
flokka Alþýðubanda-
lagsins og Fram-
sóknarf lokksins.
Hvað heita þeir?
10. Hver er Robert
Mugabe?
11. Knattspyrnu-
snillingurinn Kevin
Keegan, sem leikið
hefur með Hamburg-
er SV undanfarin ár,
hefur ákveðið að snúa
heim til Englands fyr-
ir næsta keppnistima-
bil. Með hvaða liði
ætlar hann að leika?
12. Hvaða kvikmynd
hlaut verðlaun Kvik-
myndahátíðar fyrir
islenskar myndir?
13. Hver varð Skákmeist-
ari Reykjavíkur 1980?
14. Söngleikurinn „Kaba-
rett" er nú sýndur í
Reykjavík. Hvaða
leikfélag sýnir hann?
15. Hvað heitir ráðu-
neytisstjóri sjávarút-
vegsráðuneytisins?
Spurningarnar hér að ofan eru allar byggðar á
f réttum í Vísi síðustu daga. Svör eru á bls. 22.
spurnlngaleikui
1. Hvenær er bolludag-
ur?
2. Hver er munurinn á
lús og fíl?
3. Hver er meðalfjar-
lægð tunglsins frá
jörðunni: a) 384.000
km, b) 3.840.000 km,
c) 38.400 km?
4. Hvað er klukkan í
Reykjavík þegar hún
er 12 á hádegi í Kaup-
mannahöfn?
5. Hvað heitir gjaldmið-
ill Portúgala?
6. Hvers konar leikur er
stundaður í kirkjum?
7. Hvar er veðurat-
hugunarstöðin
Reyðará?
8. Hvaða gata er á milli
Stangarholts og
Meðalholts í Reykja-
vík?
9. Hvað heitir leið 1 hjá
SVR?
10. Hvað verður arabi,
sem dettur í Rauða
hafið?