Vísir - 16.02.1980, Blaðsíða 12
Laugardagur 16. febrúar 1980.
helgarpopp
Klkt inn I hugarfylgsni
CHRISSIE
HYNDE
í Pretenders
„Við hefðum átt að tala um þetta kvöld”, segir Chrissie Hynde i
lok viðtalsins, „þegar ég hafði verið i Roxy með Skynsama Skip-
stjóranum og við höfðum farið upp á svið og sungið ,,Ég og frú
Jóns”. Eftir það fór ég i kjallaraholuna þar sem æföum, en þar var
svo kalt og dimmt, ég varð að miga í holu i gólfinu, en ég átti tvo
pundseöla i vasa minum og ákvað að bregða mér hingaö yfir”.
,,En þegar ég kom hingað varstu sofandi og ég byrjaði aö kiifra
upp vinnupallana á byggingunni hér viö hliðina til þess aö freista
þess að komast inn um gluggann og lögreglubill ók hjá og þeir sáu
mig og byrjuðu að hrópa til min aö koma niöur á götuna aftur. Og þú
vaknaðir upp vegna hávaðans og komst út að glugganum til þess að
sjá hvað gengi á og löggurnar fengu störu af þvi að þú varst allsber
og þú öskraðir á þá að hleypa mér inn, en það bjátaði ekkert á hjá
mér...”
„Við þurfum ekki að tala um þetta núna, Chrissie. Við skulum
heldur ræða um það hvað þú ert að gera þessa dagana. Þaö skiptir
mestu máli”.
Ótrúlegur hraði
Þannig hefst viðtal Melody
Maker við fyrstu stórstjörnu ný-
hafins áratugar, söngkonuna og
lagasmiðinn Chrissie Hynde,
sem er primus mótor nýbylgju-
hljómsveitarinnar bresku, The
Pretenders. Sú er stýrir penn-
anum I þessu viðtali er fyrrum
samverkakona hennar, Vivien
Goldman, en Chrissie fékkst um
nokkurt skeið við poppblaöa-
mennsku og skrifaöi m.a. fyrir
New Musical Express. Mun
Chrissie t.a.m. hafa skrifaö
eftirminnilega um komu Davids
Cassidy til Lundúnaflugvallar.
„Siðustu vikurnar hefur allt
gerst meö svo ótrúlegum
hraða”, segir Chrissie, „svo
hratt aö mér hefur reynst ókleift
að halda puttunum á púlsinum.
Ég var aö hugsa um þaö á leið-
inni hingað, hljómsveitin hefur I
raun og veru aöeins starfað i ár
og það er ekki lengri timi siðan
fyrsta smáskifan okkar kom út,
þá höfðum við aldrei leikið opin-
berlega eða neitt, núna eru
smáskifurnar orðnar þrjár og
öll lögin hafa farið innfyrir topp
þrjátiu á vinsældalistunum.
Núna eigum viö lag i efsta sæt-
inu, stóra platan fór rakleitt i
efstasætiá BBC listanum og við
höfum fimm eöa sex sinnum
komið fram I „Top Of The
Pops”...
Hræðsla og ótti
...Ég er alltaf slegin ótta
vegna lagasmiöa. En ég byrjaöi
að semja lög fyrir rösklega tiu
árum og ég er ennþá gagntekinn
af lagasmiðum. En ég er alltaf
hrædd um að ná ekki tökum á
nýju efni... Ég get ekki unnið
undir álagi, og ég vil ekki vinna
út frá sjónarmiði samkeppninn-
ar. Um leið og örlar á sam-
keppni, dreg ég mig I hlé — mér
geðjast ekki aö kapphlaupi i
neinni mynd”.
Sú eirðarlausa
Blaöakonan minnist á nokkr-
ar stallsystur þeirra Chrissie
sem hafa reynt að koma sér
áfram i tónlistarheiminum.
Siðan segir hún:
„Chrissie, sú eirðarlausa,
talaði sýknt og heilagt um það
hversu örvæntingarfull hún
væri um stofnun hljómsveitar —
ó, ef aðeins hún gæti komiö
hljómsveit á legg — hefur nú
gefið út þrjár smáskifur og
breiðskifu i svælt lögum sinum
inn I eyru þjóöarinnar um
svipað leyti og pönkið er að
syngja sitt siðasta og við erum
skilin eftir með hljómsveitir
ungu kynslóðarinnar, sumar
góöar, aðrar slæmar, dæmdar
af tónlistinni, ekki „pönki”.
Hugsar um framtiðina
Og Chrissie tekur oröið:
„Ég er ánægð með árangur-
inn, fólksins vegna, sem hefur
unnið að þessu með okkur, sjálf
brýt ég ekki heilann um þetta,
ég hugsa aðeins um næstu smá-
skifu og næstu breiðskifu og ég
hugsa um nýtt efni og þriggja
mánaða túrinn sem við veröum
að skvera af á viku. Það er
mörg brotalömin varöandi
hljómleikana, við höfum átt svo
annrikt vegna þessarar svoköll-
uðu velgengni. Hópsins vegna er
ég þó ánægð...”
Ekkert annað skiptir
máli
Goldman spyr hvort starfiö
sé henni allt.
„Fyrir mig skiptir þetta eitt
máli”, segir Chrissie. Það er
gersamlega ekkert annaö sem
máli varöar i minu lifi. Og ég
mun færa hverja þá fórn sem
nauðsynleg er... allt. Mér
stendur á sama hvort ég á mér
samastað og hvort ég sem
félagsvera fer i hundana, þvi
það eitt skiptir máli að rækta
meö sér réttu hæfileikana”.
„Persónuleiki fólks breytist
ekki þó ytri aöstæður taki
breytingum. Sennilega verð ég
ávallt mjög niöurdregin og
sennilega fer ég út aðra hvora
helgi og drekk mig haugfulla og
geri sjálfa mig aö algerum bein-
asna og sennilega verð ég i raun
og veru alltaf dálitið einmana
og ein mins liðs... og ég sé ekki
að það geti breyst hvort heldur
ég er þjónustustelpa I siðdegis-
boöum eða starfa að þessu”.
Hreinræktað rokk
Chrissie Hynde semur megnið
af lögum Pretenders og texta
auk þess sem hún annast svo til
allan sönginn. Tónlist
Pretenders er hreint og klárt
rokk. Plata þeirra hefur al-
mennt fengið góða dóma m.a. i
Billboard þar sem plötunni voru
gerð Itarleg skil. Fullvist má
telja að rokkunnendur komist
ekki hjá þvi að heyra meira I og
af þessari ungu hljómsveit
Chrissie Hynde, en hvort þess-
ari 28 ára gömlu bandarisku
popphet ju tekst að skrá nafn sitt
og hljómsveitar sinnar á spjöld
tónlistarsögunnar svo eftir
verði tekiö — verður timinn að
leiða i ljós. Byrjunin lofar þó
góöu.
—Gsal
Kristján Róbert Kristjánsson skrifar
Dr. Feelgood —
Let it roll
Þeir félagar I Dr. Feelgood
hafa starfað saman siðan 1971
með aðeins einni breytingu, er
þeir skiptu um gltarleikara.
Þeir hafa á þessum tima gefið
út niu hljómplötur. Tóniist
þeirra hefur aðallega byggst á
rythm og blues i svipaðri mynd
og Rolling Stones og Pretty
Things fiuttu á árunum 1963-65.
Þótt þeir hafi spilað þessa
tónlist í gegnum árin hlutu þeir
ekki vcrulega hylli fyrr en ’76 er
ojhylgjutónlistin var að ryðja
sér rúm, enda á sama grunni
byggð.
Dr. Feelgood skipa þraut-
reyndir menn sem eru greini-
lega með allt á hreinu hvaö þeir
eru að gera.
k.r.k.
7.5
Steve Forbert—
Jackrabbit Slim
Stcve Forbert er kominn með
aðra plötu sina Jackrabbit Slim.
Forbcrt er vaxandi tónlista-
maöur og hefur margt gott fram
að færa. Sumir hafa meira aö
scgja gerst svo djarfir að lfkja
honum við meistara Dyian.
Hann leikur á gitar og munn-
hörpu og hefur nokkuð sérstæða
rödd, en frekar kraftlitla sem
oft á tiöum dregur úr áhrifa-
mætti þess sem hann hefur fram
að færa i textum sinum.
Forbert leggur nokkuð mikið
upp úr textunum og tekst það
mjög vel. Með sama áframhaldi
má búast viö miklu af honum I
framtiöinni.
K.R.K.
6.5
Gunnar
Salvarsson
skrifar