Vísir - 16.02.1980, Síða 20
vism Laugardagur 16. febrúar 1980.
hœ krakkar!
Saga um stráka
Siggi og Jói voru að
hjóla heima hjá Jóa.
Þá klessti Siggi á Jóa.
Þá meiddi Jói sig. Óli
hló. Jói var reiður og
hljóp á eftir Óla, en
náði honum ekki. Svo
fór Jói heim og vildi
ekki leika sér meira úti
i dag.
Siggi fór með Jóa inn
i bilaleik. Þeir léku sér
lengi. Svo fór Siggi
heim til sin að borða.
Stefán 1. G. Kópavogs-
skóla.
Strákur að leik.
Guðrun M. 7 ára i Kópavogsskóla teiknaði þessa mynd.
Viðar Þór 7 ára I Kópavogsskóla teiknaöi þessa mynd. Krakkarnir í 1. G. I Kópavogsskóla hafa sent siö-
unni mikiö efni, bæöi sögur og myndir, sem sumt birtist fyrir viku og annaö á eftir aö birtast. Þið eruö
dugleg aöskrifa og teikna, krakkar i 1. G. Kópavogsskóla. Þaö er gaman aö fá svona mikiö af góöu efni
frá duglegum krökkum.
Karólina, 7 ára, i Kópavogsskóla, teiknar þessa
mynd af kennaranum sinum, henni Mariu.
DAGUR
HJA EDDU
Einu sinni var stelpa. Hún hét Edda. Edda var i
skóla. Eddu fannst gaman i skólanum. Einn góð-
an veðurdag fór hún i skólann. Kennarinn hét
Maria. Edda kunni starfi. Maria var góður kenn-
ari. Hún kennir reikning. Edda vissi, hvað 5+5
var. Maria lánaði þeim kubba.
Nú var skólinn búinn. Þá fór Edda heim. Edda
var i góðu skapi. Þegar hún kom heim, var
mamma hennar glöð. Edda á systur. Hún er bara
3 ára. Edda leikur sér með henni. Edda fór i rúm-
ið. Hún biður bænirnar sinar. Svo sofnar hún.
Jórunn, 7. ára, l.G, Kópavogsskóla.
Framhalds-
sagan - 5. hluti
Lóa
Lóa, Tómas og Guð-
rún héldu hlutaveltu og
hún gekk ljómandi vel.
Þau söfnuðu miklum
peningum, sem þau
ætluðu að gefa i bygg-
ingarsjóð sjúkra-
heimilis fyrir aldrað
fólk.
Á mánudag eftir að
hlutaveltan var haldin,
fóru þau öll með pen-
ingana á skrifstofuna,
þar sem tekið var við
framlögum til sjúkra-
heimilisins.
Konan, sem tók við
peningunum, varð
fjarskalega ánægð og
hún sýndi þeim likan af
heimilinu.
Lóa, Tómas og Guð-
rún voru lika mjög
ánægð, og þegar þau
komu heim fóru þau
strax að hugsa um
næstu hlutaveltu. Þau
áttu nefnilega afgang
af hlutunum, sem þau
höfðu fengið á fyrstu
hlutaveltuna. Seinna
ætluðu þau svo að safna
meiru og halda aðra
hlutaveltu. Þau
geymdu alla hlutina,
sem eftir voru, i stór-
um plastpoka.
Það kom i hlut Lóu að
geyma plastpokann.
Þegar krakkarnir
komu heim, hittu þau
Ragnar, skólabróður
sinn. Hann var að flýta
sér út i fótbolta. úti við
skólann var góður völl-
ur og þar voru nokkrir
strákar að leika sér.
Lóa, Guðrún og
Tómas stönsuðu og töl-
uðu við Ragga.
— Megum við vera
með? spurði Tómas.
— Já, en flýtið ykkur
þá, við erum að fara að
skipta i lið.
Krakkarnir hlupu
allir út á völlinn. Tveir
stórir strákar skiptu i.
lið. Svo var keppt. Það
átti að spila upp á tiu
mörk.