Vísir - 16.02.1980, Qupperneq 30

Vísir - 16.02.1980, Qupperneq 30
Laugardagur 16. febrúar 1980. 30 ! óperutónleikar Sinfóniuhljóm- sveitar tslands LA TRAVIATA eftir G. Verdi Flytjendur: ólöf K. Harðardótt- ir. Garðar Cortes. Guðmundur Jónsson. Anna Júliana Sveins- dóttir Eiisabet Erlings- dóttir, Sigurður Björnsson, Halldór Vilhelmsson, Hjálmar Kjartansson, Kristinn Hallsson, Kristinn Sigmundsson. Söngsveitin, Fflharmónia, kór- stjóri Marteinn H. Friðriksson, aðstoðarmaður Agnes Löve. Hljómsveitarstjóri Gilbert Levine. Aðstoðarmaður Sue Marie Peters. Undirritaður gat þvi miður ekki verið viðstaddur þessa tón- leika fyrr en þeir voru fluttir i annaö sinn, fimmtud. 14. febr. Þá hafði Már Magnússon, sem sungið haföi eitt af smærri hlut- verkunum á fyrstu tónleikun- um, forfallast á siðustu stundu, og gekk framkvæmdastjóri Sin- fóniuhljómsveitarinnar, Sigurð- ur Björnsson, inn I hlutverkið fyrirvaralaust. A frammistöðu hans var þó hvorki blettur né hrukka. Guðmundur Jónsson, sem á fyrri tónleikunum hafði veriö eitthvað miður sin vegna nýafstaðinna veikinda, hafði nú náð sér og söng af sinu venju- lega öryggi og myndugleik. Einn kórmanna, Kristinn Sigmundsson, kom á óvart með flutningi nokkurra tónhendinga sem heyra til þremur allra minnstu hlutverkum óperunnar. Það má mikið vera, ef hann er ekki efni i „alvörusöngvara”. Um frammistööu einstakra söngvara i aukahlutverkum er annars ekki ástæða til að fjöl- yrða. Þeir skiluðu allir hlut- verkum sinum með þeirri prýði, sem vænta mátti, og fellu vel inn I heildina. En um söngvarana i aðalhlut- verkunum, þau Ólöfu Harðar- dóttur og Garðar Cortes, verður að hafa fleiri orö. Rödd G-röars er ekki ein af þessum miklu óperuröddum, sem glansa á há- um og sterkum brjósttónum og er stundum, þvi miður, beitt meir af kröftum en viti. Röddin er ekki mikil, en Garðar fer vel með hana, og nýtist hún þvi eins og best verður á kosið. Án þess aö gera litið úr nokkrum öörum verður þó að segja eins og er, að þaö var Ólöf Harðardóttir sem „átti” þessa tónleika. Glæsileiki hennar bæði i söng og fram- komu og vald hennar yfir hinu mikla og erfiða hlutverki Vio- lettu lét engan áheyranda ósnortinn enda uppskar hún fagnaðarlæti I samræmi við það. Hún er ekki lengur „efni- leg” söngkona, hún er þegar farin að efna myndarlega þau loforð, sem hún hefur gefið áheyrendum slnum á undan- förnum árum. Söngsveitin Filharmónia var ágætlega æfð og jafnvægi radda betra en oftast áður. Karlarnir, þótt þeir séu enn helmingi færri en konurnar, sýndu óvenjulega snerpu. Söngsveitin viröist aftur vera á framfarabraut undir handieiðslu Marteins Hunger Friörikssonar. Sinfónluhljómsveitin lét ekki sinn hlut eftir liggja. Undirleik- ur i óperum Verdis frá þessu timabili lætur ekki mikið yfir sér og sýnist oft i fljótu bragði hversdagslegur og jafnvel lág- kúrulegur, en hann leynir á sér og á drjúgan þátt i að skapa og undirstrika hin miklu blæbrigði tilfinninganna i þessu róman- tiska verki. Samtakaleysi blás- ara var til ama á stöku stað, en það stafar eflaust af þvi, að tré- blásarar annarsvegar og málm- blásarar hins vegar voru stað- settir svo fjarri hver öðrum á sviðinu, að þeir voru naumast I kallfæri sin á milli. Þetta ætti að athuga. 1 heild var glæsibragur yfir þessum tónleikum, og drama- tisk tilþrif stjórnandans, Gil- berts Levine, sem vikið var að i umsögn um sinfóníutónleika ný- lega, nutu sin nú til fulls. Kunn- ugir segja, að aðstoðarmaður hans, Sue Marie Peters, hafi unnið mjög gott starf á æfing- um, en þvi var þá llka fylgt eftir með markvissum og áhrifa- miklum hætti. Ég hef annarsstaðar leiðrétt þá missögn, að þetta sé i fyrsta skipti sem ópera er flutt hér á tónleikum. Slikar tilraunir voru gerðar með ágætum árangri fyrir fullum tuttugu árum. Það er vel, að þráðurinn hefur verið tekinn upp aftur, og vonandi lætur Sinfóniuhljómsveitin ekki hér staðar numiö. Óperu- flutningur með þessum hætti má ekki koma niður á annarri starfsemi hljómsveitarinnar, en hann getur verið ágæt auka- geta, unnið hljómsveitinni nýja áheyrendur og kynnt þeim jafn- framt óperur, sem litil von er til að verði færðar upp á islensku leiksviöi I tið núlifandi manna. Ennfremur mundi þaö skapa hinni vaxandi stétt ágætra en verkefnasnauðra söngvara aukin tækifæri til að láta til sin heyra. En enginn ætti aö hafa á móti þvi að erlendir söngvarar taki þátt i tónleikahaldi af þessu tagi. Samstarf við góða erlenda listamenn gæti einmitt verið holl reynsla hinum ungu söngvurum okkar. Þaö hefur verið margsýnt, að unnt er að flytja óperur meö islenskum söngvurum eingöngu, a.m.k. sumar óperur, og þarf út af fyrir sig ekki aö sanna það oftar. Jón Þórarinsson Leikbruouiand: Meislari Jakob kom inn á kreik aftur Leikbrúðuland, Frikirkjuvegi 11, sýnir á sunnudaginn, 17. febrúar, kl. 3, þrjá þætti um Meistara Jakob, og verða sýn- ingar á þeim þrjá næstu sunnu- daga þar á eftir á sama tima. Flestir krakkar kannast vist við Meistara Jakob þann óforbetran- lega prakkara brúðuleikhússins. Persónan Meistari Jakob á rætur að rekja til markaöstorganna i Evrópu á miðöldum. Kringum hann hefur skapast ákveðinn leik- still, sem ekki hefur breyst mikið, en virðist samt enn njóta jafn- mikilla vinsælda. Þeir þrir þættir sem sýndir verða, heita Meistari Jakob bakar, Meistari Jakob gerist barnfóstra og Meistari Jakob og afmælistertan. Meistari Jakob bakar var fyrsta leikritið, sem Leikbrúðu- land setti upp, fyrir 7 árum. Meistari Jakob gerist barnfóstra var sýnt veturinn eftir, en Meist- ari Jakob og afmælistertan er nú sýnt i fyrsta sinn hér i Reykjavik. Alls hafa verið sýnd 9 leikrit um Meistara Jakob I leikbrúðulandi. Leikbrúðuþættirnir um Meistara Jakob eru þýddir úr dönsku og staðfærðir. Verö aðgöngumiða er kr. 1500. Miðasalan er opnuð á sýningar- dögunum kl. 13., og er þá hægt að panta miða i sima 15937. H.S. Hér er nornin að stela bakaranum, I leikbrúðuþættinum Meistari Jakob og afmælistertan, til þess að geta borðað kökur alla daga. Ljósm. BG. Menningardagar mennta- og fjölbrautaskðlanema Menningardagar Landssam- bands Mennta- og fjölbrauta- skólanema hófust i gær i Mennta- skólanum við Hamrahlið með þvi að nemendur Fjöibrautaskólans Itreiðholti sýndu söngleikinn Kabarett undir stjórn Sigrúnar Björnsdóttur. 1 dag klukkan 14.00 verður dag- skrá i Menntaskólanum i Hamra- hlið þar sem nemendur úr Menntaskólanum á Isafirði sýna einþáttunginn „Party” eftir Odd Björnsson. Einnig verða nem- endur úr Flensborgarskólanum með kynningu á leikriti. 1 kvöld verður tónlistardagskrá og stendur hún frá klukkan 20.00- Vlsisbíó Maður tiltaks verður I Visisbfói i dag, og er þar um að ræða kvik- mynd um sömu persónur og gerðu garðinn frægan I sjón- varpsþáttunum með sama nafni. Sýning myndarinnar, sem er í lit- um og með islenskum texta hefst kl. 15 i Hafnarbiói. Merki menningardaga Landsam- þands Mennta- og Fjölbrauta- skólanema 22.00 en þar munu skólahljóm- sveitir leika. Auk þessa verða i allan dag hraðskákmót, ljós- mynda og kvikmyndasýningar I Menntaskólanum við Hamrahlið. Á morgun, sunnudag verður „Opið hús” i Menntaskólanum við Sund milli klukkan 15.00 og 18.00. Þar verður boðið upp á ljóðadjass, ljósmyndasýningu og fleira. Dagskránni lýkur svo um kvöldið kl. 21.00 með tónleikum i sal Menntaskólans við Sund þar sem kórar skólanna syngja.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.