Vísir - 26.02.1980, Síða 5
VÍSIR
Þriöjudagur 26. febrúar 1980
Kosningar
í Rðdesíu
Salisbury og aðrar borgir i
Ródeslu minna þessa dagana
helst á rammgirt virki vegna
mikil viðbilnaðar til að hindra
ofbeldisaðgerðir næstu þrjá daga
meöan kosningar fara fram I
Ródesiu, en þær hefjast á morg-
un.
Herflokkar eru á stöðugum
eftirlitsferðum um stræti, settir
hafa verið götutálmar I úthverf-
um og á aðliggjandi þjóðvegum
og vopnaöir lögreglumenn eru á
hverju horni.
Flest er gert til þess aö reyna
að uppfylla skilyröi vopnahlés-
samkomulagsins f London sem
batt I bili endi á sjö ára skæru-
hernaðinn I Ródesfu, en þar var
gert ráö fyrir frjálsum kosn-
ingum.
1 Soames lávarður og landstjóri
hefur bannað alla stjórnmála-
Ifundi eftir að kjörstaðirnir opna i
fyrramálið og þar til úrslitin hafa
verið gerð kunn. Hann mun i
kvöld flytja útvarps- og
'sjónvarpsræðu, þar sem búist er
'viö þvi, að hann hvetji landsmenn
til ab neyta atkvæðisréttarins og
fullvissi þá um, að kosningin sé
algjörlega leynileg. Hann hefur
skorað á alla framboðsaðila að
láta af tilraunum til þess að reyna
að hræða kjósendur til þess að
greiða þeim atkvæði.
Rannsaka
misgjörðir
keisara-
Fórnardýr SAVAK, leyniþjón-
ustu keisarastjórnarinnar fyrr-
verandi i lran, munu I dag koma
fyrir sérstaka nefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna, en hún er
stödd I Teheran til þess aö kanna
misgjörðir keisarastjórnarinnar.
Vitnaleiðslurnar fara fram
fyrir luktum dyrum, en nefndin
hefur kannað skjöl og eldri
stjórnskýrslur, sem yfirvöld
lrans hafa látið henni i té.
I gær fengu nefndarmenn til
viðtals einn af mannréttindabar-
áttumönnum írans úr tið keisara-
stjórnarinnar og báðu hann um að
leggja fram skýrslu um mann-
réttindi, meðan keisarastjórnin
var viö lýöi.
Nefndin er skipuð fulltrúum frá
Alslr, Frakklandi, Sri Lanka,
Sýrlandi og Venezúela — að til-
hlutan Kurts Waldheim
framkvæmdastjóra. Nefndar-
skipunin er liöur i milligöngu S.Þ.
til þess að koma á sáttum milli
Irans og USA I viðleitni til þess
að fá gislana I bandariska sendi-
ráöinu I Teheran látna lausa.
Hinn nýkjörni forseti lrans,
Bani-Sadr, var i gær hylltur af
tugum þúsunda manna, sem
marséruðu framhjá sendiráðinu,
en þar stóð forsetinn uppi á
múrnum. Avarpaði Bani-Sadr
fjöldann, en vék ekki orði að
gislunum.
Khomeini æðstiprestur hefur
falið þingi trans að semja um
skilmála fyrir lausn gislanna, en
Bani-Sadr, forseti trans, ó múrnum vib bandariska sendiráðið f
Veheran, þar sem hann var hylltur af tugum þúsunda Irana I gær.
kosningar til þingsins eru fyrir- aö vænta að þingiö komi saman
hugaðar I næsta mánuöi, og ekki fyrr en fyrstu vikuna i april.
stjórnarinnar
Könnun meðal
staliðnaöar-
manna
Forsvarsmenn bresku rikis-
stáliðjuveranna hafa ákveöið að
gera könnun meðal starfsmanna
verksmiöjanna, sem eru I verk-
falli, hvort til atkvæöagreiðslu
skuli koma um sfðasta sáttatilboð
atvinnurekenda, en stéttarfélags-
forystan haföi hafnaö tilboðinu.
Bill Sirs, leiötogi eins
stærsta stéttarfélagins, sem að
verkfallinu stendur, kallaði þessa
fyrirhuguðu skoðanakönnun
„lúmska” og skoraði á félagana
að leiða hana hjá sér.
Verkfalliö hefur staðiö i 55
daga, en ýmissa merkja andstöðu
við afstööu stéttarfélagaforyst-
unnar er nú farið að gæta.
Starfsmenn tveggja stáliðjuvera i
einkaeign hættu I gær samúðar-
verkfalli sfnu og hefja vinnu að
nýju I dag. Kolanámumenn, sem
herskáastir hafa verið á vinnu-
markaönum i Bretlandi -greiddu
þvi atkvæði á laugardaginn að
leggja ekki niöur vinnu til stuðn-
ings stáliðnaðarmönnum. -Þó
þykir fyrirsjáanlegt, aö fyrir-
hugaður samdráttur i stáliönað-
inum muni kosta 7.500 kolanámu-
menn vinnu vegna minni eftir-
spurnar eftir kolum.
ðiymoíuiið usa í
noði hjá Carter
Carter Bandarfkjaforseti fagn-
aði bandarfska ólympluliöinu eins
og hetjumiHvita húsinu f gær. —
Mebal Iþróttafólks virðist þó fara
vaxandi andstaöa við áskorun
hans um að sniðganga sumarleik-
ana I Moskvu.
Eftir á sagði Eric Heiden,
skautahlauparinn, sem hreppti
fimm gullverölaun á leikunum i
Lake Placid, viö blaðamenn, að
nær allir i landsliðinu hefðu skrif-
aö undir plagg, sem lýsti and-
stööu við hugmyndina um að
sniðganga Moskvuleikana.
„Ég held ekki, að hundsun sé
rétta aðferöin,” sagöi Heiden.
„Mér lfkar ekki við pólitik i
Iþróttum. Það kemur grimmi-
lega niöur á fólkinu, sem hefur
veriö aö þjálfa sig allt sitt lif.
Carter áréttaði i gær áskorun
sina til íþróttafólks um að snið-
ganga Moskvuleikana vegna inn-
arásar Rússa f Afganistan.
Dustin Hoffman og átta ára
dóttir hans, Jenna.
1 fjórba sinn hefur Dustin
Hoffman verib tilnefndur sem
verðugur Óskarskvikmynda-
verðlaunanna, en hann og Sally
Field sem nú er tilnefnd I fyrsta
sinn, þykja við fyrstu sýn öðrum
liklegri til þess að hreppa
hnossiö.
Hoffman er tilnefndur vegna
túlkunar sinnar á fráskilda
fööurnum I myndinni „Kramer
gegn Kramer”. Hann hefur
þrfvegis áður verið tilnefndur,
án þess þó nokkurn tima aö
hljóta viðurkenninguna, en það
var fyrir leik hans i myndunum
„The Graduate”, „Lenny” og
„Midnight Cowboy”.
Sally Field er tilnefnd vegna
hlutverks suöurrikjastúlkunnar
I myndinni „Norma Rae”, sem
byggð er á sannri sögu um
verkalýðsbaráttuna.
Karlhlutverkin
Kvikmynda-, lista- og vis-
indaakademian I Hollywood
hefur nú lagt fram lista sinn yfir
þá, sem til greina þykja koma
til Óskarsverðlauna, en verð-
laununum verður ekki úthlutað
fyrr en 14. april. Sem fyrr þykir
mikill viöurkenningarvottur aö
hafa komið til greina til Óskar-
verðlauna, hverjum sem þau
siðan falla svo i skaut.
Aðrir, sem nefndir eru i sömu
andránni og þessi frægustu
verölaun kvikmyndanna, eru
Roy Scheider fyrir leik sinn i
„All That Jazz”, sem að nokkru
er byggö á ævi leikstjóra
myndarinnar, Bob Fosse,
...Peter Sellers fyrir hlutverk
garöyrkjumannsins I „Being
There”... Jack Lemmon fyrir
„The China Syndrome” og A1
Pacino fyrir túlkunina á
lögfræðingnum i „... and Justice
For All”.
Jane Fonda og
barnastjðrnur
Fyrir kvenhlutverkin eru
tilnefndar auk Sally Field, Jane
Fonda fyrir „The China
Syndrome”, en hún fékk
Óskarinn I fyrra.... Jill
Clayburgh fyrir „Starting
Over”... Bette Midler fyrir leik
hennar I „The Rose” og Marsha
Mason fyrir ,, Chapter Two”.
Fyrir aukahlutverk eru til-
nefndir hinn 8 ára gamli Justin
Henry, sem leikur barnið I
„Kramer gegn Kramer”,
Mickey Rooney og Melvyn
Douglas. Tvær leikkonur úr
„Kramer gegn Kramer” eru til-
nefndar, en þær eru Jane
Alexander og Neryl Streep.
Þær kvikmyndir, sem helstar
þykja koma til greina til
Óskarsverðlauna sem „ besta
myndin”, eru „All That Jazz”,
„ Apocalypse Now”, „Kramer
gegn Kramer”, „ Norma Rae”
og „ Breaking Away”.
Jane Fonda ásamt föður slnum, Henry Fonda, en hún er tilnefnd til óskarsverðlauna þetta árið og fékk
þau í fyrra.
„Kramer gegn Kramer”
liklegust til ðskars-
verðlauna petta árið