Vísir - 03.03.1980, Síða 4
Mánudagur 3. mars 1980
4
DEN FYNSKE TRIO
heldur tónleika í Norræna húsinu
MÁNUDAGINN 3. MARS KL. 20.30
Á efnisskrá veröa m.a. verk eftir
Hartmann, Holmboe, Beethoven og
Schumann.
Aðgöngumiðar seldir í kaffistofu hússins og
við innganginn.
Verið velkomin
NCRRÆNA RÚSID
IS 17030 REYKJAVIK
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 106 og 109. tbl. Lögbirtingablaðsins 1979
og 2. tbi. Lögbirtingablaðsins 1980 á fasteigninni Máva-
braut 11 b, 3. hæð i Keflavik, þinglýstri eign Sigurbjargar
Gisladóttur, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Ólafs '
Axelssonar hdl., fimmtudaginn 6. mars 1980 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn I Keflavík |
Nauðungaruppboð
s?m auglýst var i 106. og 109. tbl. Lögbirtingablaðsins 1979
og 2. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 á fasteigninni Noröur-
garður 1 i Keflavik, þingiýstri eign Guðmundar Kagnars-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Lifeyrissjóðs
verslunarmanna, — fimmtudaginn 6. mars 1980 kl. 13.00.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á fasteigninni Hafnargata 91, (fiski- i
mjölsverksmiðja), þinglýstri eign Fiskiðjunnar hf„ fer
fram á eigninni sjálfri, að kröfu Einars Viðars hrl„ I
fimmtudaginn 6. mars 1980 kl. 11.00 I
Bæjarfógetinn i Keflavik. í
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 106. og 109. tbl. Lögbirtingablaösins 1979
og 2. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 á fasteigninni Nýibær
(jarðeign) Vogum, Vatnsleysustrandarhreppi, þinglýstri
eign Guðlaugs Aðalsteinssonar, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Garöars Garðarssonar hdl„ miövikudaginn 5.
mars 1980 kl. 15.00.
Sýslumaöurinn f Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýstvar I 100., 103. og 108. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1979 á eigninni Trönuhraun 2, Hafnarfiröi, þingl. :
eign Vélsmiðjunnar Kára h.f. fer fram eftir kröfu Inn- I
heimtu rikissjóðs og Axels Kristjánssonar, hrl„ á eigninni j
| sjálfri fimmtudaginn 6. mars 1980 kl. 4.00 eh.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. ;
{ :
l_______________________________________:-----!
Nauðungaruppboð
sem auglýst vari 100., 103. og 108 tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins 1979 á eigninni Hellisgata 35, jarðhæð, Hafnar-
firði, þingl. eign Ævars Lúövíkssonar fer fram eftir kröfu i
Innheimtu rikissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6.
mars 1980 kl. 2.00 eh. ,
Bæjarfógetinn f Hafnarfirði. j
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 100., 103. og 108. tölublaöi Lögbirtinga-
blaðsins 1979 á eigninni Norðurbraut 29, kjallara, Hafnar-
firði, þingl. eign Jónasar A. Simonarsonar, fer fram eftir
kröfu Innheimtu rikissjóðs, á eigninni sjálfri fimmtudag-
inn 6. mars 1980 kl. 3.00 eh.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
14. febrúar hófst stórbrotin vikingasýning I London, þar sem sýndar eru minjar frá vikingaöld, en meðal
annars eru þar gripir úr Þjóðminjasafninu héðan.
Helstu viObupðlp febrúar
„Hitinn i alþjóðamálum hefur
færst nær oliusvæðunum og
mikill hiti of nærri oliu getur
oröið hættulegur,” sagði Ahmed
Zaki Yamani, oliuráöherra
Saudb-Arabiu, um innrás Sovét-
manna i Afganistan.
Eins og i janúar bar
Afganistanmálið hæst i febrúar
og hvarf aldrei af fréttasiöum
blaðanna, þótt ýmsir viðburðir,
eins og ólympiuleikarnir i Lake
Placid dagana 14. til 24. febrúar
tækju kannski meira rúm um
hrið.
Þegar litiðer yfir febrúar rifj-
ast fyrst upp frá mánaöamótun-
um, þegar Júliana Hollands-
drottning tilkynnti, að hún ætl-
aði aö leggja niður völd og rýma
hásætiö fyrir dóttur sinni, Beat-
rix krónprinsessu. Formlega
mun það gerast 30. april á 71 árs
afmæli Júliönu, sem rikt hefur I
31 ár.
I byrjun mánaðarins kynnti
landstjórn Grænlands kröfur
um 200 milna fiskvei.ðilögsögu
til handa Grænlandi, sem snert-
ir hagsmuni tslendinga og
Norömenn. Landhelgismál
Grænlendinga bar aftur á
góma, þegar leiö á febrúar.
1 Bretlandi vakti mikið
hneyksli, þegar uppvist varð, að
breska stjórnin haföi haldið
uppi i fjölda ára simahlerunum
og njósnum um verkalýðsleiö-
toga landsins, og hugsanlega
einnig hlerað sima erlendra
sendiráða i London.
2. febrúar samþykkti italska
þingiö lög, sem veita lögregl-
unni frjálsari hendur i barátt-
unni gegn hryöjuverkaöflunum
meö heimild til tveggja sóla-
hringa varöhalds án dómsúr-
skuröar, og um leið voru einnig
þyngdar refsingar við hryðju-
verkum.
4. febrúar bárust fréttir af
þvi, að Sakharov-hjónin sættu
áreitni, þarsem þau dvelja i út-
legö i Gorky, og hafði Skaharov
verið hótað með skammbyssu.
— Aftur bárust svo fréttir af þvi
18. febrúar, aö Sakharov heföi
veriö fluttur á lögreglustööina i
Gorky og sætt þar hrottalegri
barsmið.
1 fyrstu viku mánaðarins
komu fyrst fram fréttir af
mútugildru, sem bandariska al-
rikislögreglan (FBI) hafði egnt
fyrir opinbera embættismenn,
og ollu þær miklu fjaðrafoki. I
hartnær 2 ár hafði FBI gildr-
una spennta og gerði út Libana
einn i gervi oliufursta með
gnægð gulls. 6 þingmenn og
nokkrir minniháttar embættis-
menn létu egnast.
5. febrúar bárust loks fréttir
af grimmilegum fjöldamorðum
stjórnarhers Afganistans og
sovéskra hernaðarráögjafa frá
þvi 20. april I fyrra. Allir karl-
menn bæjarins Kerala (5000
ibúar) höföu verið teknir af lifi.
Þar þykir Afganistan hafa eign-
ast sitt My Lai.
Óvenju mildur vetur á megin-
landi Evrópu olli miklum flóð-
um i Rin i byrjun annarrar viku
febrúar, og tepptust skipaferðir
um ána, enda komst vatnsborð-
iö fimm metra yfir eðlileg flóða-
mörk. Tjón varð gifurlegt. —
Um miðjan mánuð gekk mikiö
óveöur yfir Kaliforniu með úr-
hellisrigningum, sem ollu flóð-
um. Varð að flytja fólk brott úr
heilum borgarhlutum og mikið
tjón varð á mannvirkjum.
aðutan
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
Stálverkfallið i Bretlandi virt-
ist nú um mánaðamótin enn
ekki ætla að taka neinn endi.
Þvert á móti fór það harðnandi,
eftir þvi sem leið á mánuðinn og
kom til átaka milli lögreglu og
aðkomuverkfallsvarða, sem
vildu aftra starfsfólki stáliöju-
vera i einkaeigu aö mæta til
starfa. Samúð með verkfalls-
mönnum virtist fara þverrandi.
8. febrúar var ákærður fyrr-
verandi húskarl Joy Adamson
þeirrar, sem skrifaði „Borin
frjáls” um ljónynjuna sina,
Elsu. Adamson hafði fundist i
janúar látin af áverkum, sem i
fyrstu voru ætlaðir af ljónavöld-
um, en sönnuðust svo vera af
mannavöldum. Hinn grunaði
hafði verið rekinn úr starfi hjá
frú Adamson.
11. febrúar bar kjarnorkuna
enn á góma, þegar Bretar lok-
uöu kjamorkuveri i grennd við
London, en fundist höföu
sprungur I kjarnaofni þess. Er
þaö annað kjarnorkuverið á
Englandi, sem lokað er af sömu
ástæðu. — Samtimis bárust
fréttir af nýjum leka geisla-
virkra efna úr kjarnorkuverinu
i Harrisburg, þar sem slysiö
varö I fyrra.
11. febrúar voru forkosningar
hjá demókrötum I Maine og
sigraöi Carter þar Ted Kennedy
með litlum mun,en i forkosning-
unum i New Hampshire 26.
febrúar var sigur hans hinsveg-
ar meiri. — Þau úrslit þykja
hafa gert aö engu vonir
Kennedys um að hljóta útnefn-
ingu demókrata til forsetafram-
boös, þótt hann hafi sjálfur ekki
gefist upp enn.
13. febrúar samþykkti alþjóö-
lega ólympiunefndin, að sumar-
leikarnir 1980 skyldu fara fram i
Moskvu, eins og gert haföi verið
ráð fyrir. Þar með var haínað
tilmælum Carters Bandarikja-
forseta um að flytja leikana frá
Moskvu vegna innrásarinnar i
Afganistan. Bandarikjastjórn
gerir sér þó vonir um,aö 50 lönd
fylgi fordæmi þeirra, og snið-
gangi Moskvuleikana.
Flokkur Ian Smith, fyrrum
forsætisráðherra Ródesiu, vann
öll 20 þingsæti hvitra i kosning-
um 15. febrúar, en þá var um
leiö að komast i algleyming
undirbúningur kosninganna um
þingsæti 80 blökkumanna. Bar á
ofbeldis- og ógnunaraðgerðum
til þess aö hræða blökkumenn til
fylgis við flokk Mugabes, leið-
toga kæruliða þjóðernissinna. —
Kosningarnar fóru siöan fram
dagana 27.-29. febrúar með góö-
um friði og mikilli kjörsókn.
Pierre Trudeau, leiðtogi
frjálslyndra i Kanada, vann
mikinn kosningasigur, þegar
flokkur hans fékk 146 þingsæti
af 281 i kosningunum 19. febrú-
ar. Voru úrslitin túlkuð sem
mikill persónulegur sigur
Trudeaus.
21. febrúar viðruöu Danir
hugmynd um að leggja fram til-
lögu um aðild Færeyja og Græn-
lands aö Norðurlandaráði. Til-
lagan er enri i smiðum, og verö-
ur ekki lögð fram á þingi
Norðurlandaráðs, sem hefst i
Reykjavik i dag.
22. febrúar var send á vegum
Sameinuðu þjóðanna nefnd til
íran til þess að rannsaka meint-
ar misgjörðir keisarastjórnar-
innar fyrrverandi. Meginmark-
mið nefndarskipanarinnar var
þó að undirbúa samninga um
lausn gislanna 49 i bandariska
sendiráðinu i Teheran, en febrú-
ar rann siðan út, án þess að
nokkuð örlaði á endi prisundar
þeirra.
Allan mánuðinn fylgdust
menn með þvi, hvernig liöan
Titós Júgóslaviuforseta hrakaði
stöðugt og er honum ekki lengur
ætluö lifsvon, þegar lungna-
bólga lagðist ofan á önnur veik-
indi hans upp úr miðjum mán-
uðinum og læknar fóru að finna
bilun hjartans. Siðustu vikurnar
hefur Titó verið tengdur við
nýrnavél, sem treint hefur I
honum lifið.
Æ ofan i æ bárust fréttir af
hertöku sendiráða i ýmsum
löndum S-Ameriku. I byrjun
mánaðarins tóku smábændur i
Guatemala sendiráð Spánar, en
áhlaupi lögreglunnar lyktaöi
sorglega og kostaði á fjórða tug
mannslifa. Spndiráð Danmerk-
ur og Belgiu voru hertekin I
Mexikó 18. febrúar, en þvi máli
lyktaði farsællega eftir mein-
leysislega hert(8cu. 27. febrúar
var sendiráö Dóminikanska lýö-
veldisins hertekiö af 124 skæru-
liðum i Kólombia, og hafa þeir
enn á valdi sinu 50 gisla, þar af
15 sendiherra.