Vísir - 03.03.1980, Síða 20
Umsjón: Katrin
Pálsdóttir
VÍSIR
Mánudagur 3. mars 1980
Lauren Bacall og Humphrey Bogart
Þrlár mynflír fornar
Háskólabió: The Big Sleep
Leikstjóri: Howard Hawks
Handrit byggt á sögu Raymond
Chandler
Aðalhlutverk: Humphrey Bog-
art og Lauren Bacall
Bandarisk, árgerð 1946.
Háskólabió hefur nú hafið
endursýningar á myndum
Humphrey Bogarts. Þær virðast
bera aldurinn nokkuö vel,
a.m.k. sú fyrsta, sem tekin hef-
ur verið til sýningar, „The Big
Sleep”. Leikstjórinn er heldur
ekki af lakari endanum, Ho-
ward heitinn Hawks.
Hawks varö aldrei jafn þekkt-
ur og t.d. Hitchcock og DeMille.
Hann hlaut ekki Óskarsverð-
laun fyrir myndir sinar fyrr en
1975, fimm árum eftir aö hann
gerði þá siðustu. Hawsk vakti
ekki neina umtalsverða athygli i
heimalandi sinu, Bandarikjun-
um, fyrr en á sjötta áratugnum,
þegar franskir kvikmynda-
gagnrýnendur kváöu upp úr um
kvikmyndir
afburða hæfileika hans til leik-
stjórnar. Hawks gerði einar
fjörutiu kvikmyndir á löngum
og starfssömum ferli. Af þeim
má nefna „Red River”, „Rio
Bravo”, „Scarface”, „Gentle-
men Prefer Blondes” og
„Twentieth Century”. „The Big
Sleep” var gerö 1946, en Howard
Hawkes leikstýrði fyrstu mynd
sinni 1926 og þeirri siðustu 1970.
1 „The Big Sleep” fer Hump-
hrey Bogart með hlutverk
einkaspæjarans Philip Mar-
lowe. Spæjarinn hefur i mörg
horn aö lita, enda umkringdur
friðu liði kvenna, sem ýmsu
leynir undir fögru skinni. Karl-
persónur myndarinnar eru upp
til hópa hið mesta illþýði og
skotglaðir með afbrigðum.
„The Big Sleep” ber öll merki
framleiðslutima sins, hvað
varðar meðferð efnis og per-
sónusköpun, en hefur þaö fram
yfir margar jafnöldrur sinar, að
samtölin eru bráðfyndin. Leikur
Bogarts stendur svo auðvitað
alltaf fyrir sinu.
Auk „The Big Sleep” hyggst
Háskólabió sýna „The Big
Shot” frá 1951, leikstjórar Win-
dust og Walsh, en Bogart leikur
aöalhlutverkiö i myndunum
báðum. Háskólabió gefur aðdá-
endum Bogarts nú kost á að
rifja upp gömul kynni. Þeir,
sem ekki hafa séð þennan
nafntogaða leikara á hvita
tjaldinu áður, ættu ekki að
sleppa þessu einstæöa tækifæri.
—SKJ
NIu nemendur Menntaskólans á Akureyri fara með hlutverk I Týndu teskeiöinni. Með þeim á myndinni
er Steinunn Jóhannesdóttir leikstjóri.
Týnfla teskeiðin á Akureyri
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri frumsýnir leikrit Kjart-
ans Ragnarssonar Týndu teskeið-
ina i kvöld i Samkomuhúsinu á
Danskt tríð i
Norræna húsinu
Den Fynske Trio heldur tón-
leika i Norræna húsinu I kvöld
klukkan 20.30. Trióiö skipa klari-
nettleikarinn Jens Schou, selló-
leikarinn Svend Winslöv og
pianóleikarinn Rosalind Bevan.
Trióið var stofnaö 1973 og gerðu
það þrir ungir tónlistarmenn,
sem voru kennarar viö Tónlistar-
háskólann i Odense og hljóðfæra-
leikarar I sinfóniuhljómsveitinni I
Odense. Trióið hefur leikið víða i
Danmörku, á listahátiðum, I út-
varpi og sjónvarpi, einnig hefur
það leikið inn á hljómplötur.
Mörg þekkt tónskáld hafa sam-
ið sérstaklega fyrir tríóið t.d. hef-
ur Atli Heimir Sveinsson samið
verk, sem frumflutt verður á öðr-
um tónleikum triósins, sem
haldnir verða I Tónlistarskóla
Kópavogs á fimmtudaginn,
klukkan 20.30.
Akureyri.
Týnda teskeiðin var sýnd i
Þjóðleikhúsinu við mjög góðar
undirtektir áhorfenda og gagn-
rýnenda.
Æfingar hjá menntaskólanem-
um hafa staðið I um mánuð, en
leikstjóri er Steinunn Jóhannes-
dóttir.
Leikendur eru niu, en alls hafa
um 25 manns starfað við uppsetn-
ingu verksins. Leikmyndina hef-
ur einn nemenda skólans gert
Þorvaldur Þorsteinsson, og
Sverrir Páll Erlendsson kennari.
Um þessar mundir eru liðin 40
ár frá stofnun Leikfélags MA, en
nær 100 ár eru liðin frá þvi fyrst
var leikið i Möðruvallaskóla.
Týnda teskeiðin verður sýnd
þessa viku, en óráðið er um fleiri
sýningar, en þaö fer að sjálfsögðu
eftir aðsókn.
—TLV.
START
- ný hllómsveit stofnuð
„Við ætlum að vona, að með til-
komu meiri samkeppni hefjist
nýtt timabil uppgangs I flutningi
lifandi tónlistar á skemmtistöð-
um. Við höfðum þetta i huga, þeg-
ar við gáfum hljómsveitinni okk-
ar nafniö START”, sagði Pétur
Kristjánsson, sem allir kannast
við úr hljómsveitabransanum á
undanförnum árum.
START leikur framvegis á
föstudags- og laugardagskvöld-
um I Sigtúni.
„Ég hef trú á þvi, að diskóið
fari að dala hér eins og erlendis,
en þar er rokkið nú mjög vinsælt.
Við munum flytja rokk og new
wafe tónlist ásamt annarri dans-
tónlist. Diskóið verður kannski
eitthvað i bland fyrst um sinn”.
Pétur sagöi að flutningur á lif-
andi tónlist hafi átt erfitt upp-
dráttar undanfarið og ástandið I
þessum málum bágborið.
Meðlimir START eru sex tals-
ins. Þrir þeirra eru gamlir I hett-
unni, en þeir eru Jón ólafsson,
sem leikur á bassa, Nikulás
Róbertsson, sem sér um hljóm-
boröið og saxófón og Pétur Krist-
jánsson, sem syngur.
1 „nýrri helmingi” hljómsveit-
arinnar eru þeir Sigurgeir Sig-
mundsson (gitar), Eirikur
Hauksson (hljómborð og söngur)
og Gústaf Guðmundsson (tromm-
ur).
—KP.
Pétur Kristjánsson er einn meö-
lima nýju hljóms.veitarinnar
START, sem leikur I Sigtúni um
helgar.
Baltazar hefur opnaö sina niundu einkasýningu að Kjarvalsstöðum.
Þar sýnir hann 44 myndir, sem málaðar eru á siðustu þrem árum.
Siðast hélt Baltazar sýningu á grafikmyndum i Norræna húsinu.
A sýningunni eru m.a. átta myndir, sem Fákar Einar Benediktsson-
ar urðu kveikjan að.
Sýningin er opin frá klukkan 14 til 22 og stendur til 16. mars.
Visismynd BG.
Pétur Behrens heldur sýningu á verkum sinum á vesturgangi Kjarvals-
staða. Þar sýnir hann 45 verk, teikningar, grafik og vantslita- og oliu-
myndir. Verkin eru unnin á sl. tveim árum. Þetta er önnur einkasýning
Péturs, og verður hún opin til 16. tnars.
Visismynd 3G.