Vísir - 11.04.1980, Blaðsíða 2

Vísir - 11.04.1980, Blaðsíða 2
2 vísm Föstudagur IX. aprll 1980 tJtvarp Reykjavík hyggst hefja stereóút- sendingar á dagskrá sinni i árslok. — Telur þú að það verði til mik- illa bóta? Páll ólafsson, kennari: Já, eflaust og þá sérstaklega upp á tónlistina. Hallgrimur Sæmundsson, yfir- kennari: Já, þaö vona ég fastlega. Maöur hefur oft meiri áhuga á að spila plötur, af þvi útvarpið getur ekki sent út i stereó. Áslaug Grétarsdöttir, hjúkrunar- kona: Abyggilega, ég er fylgjandi öllum framförum. Jósafat Sigurðsson, fisksaii á Siglufirði: Ég er ekki dómbær á þetta mál, ég held samt að það verði til nokkurra bóta — það er ekkert að marka mig ég er oröinn svo gam- all. Rúni Busi, eilifðarstúdent i M.H.: Égtelþað „selvfölgelig” til feiki- lega mikilla úrbóta fyrir allan landslýö, hvort heldur það er.... Æ. skrifaðu bara eitthvaö fyrir mig. Selnes er eign tsskips hf. og er þetta stærsta skip flotans, 3.645 brúttólestir að stærð. VIKURINN GETUR FÆRT OKKUR ÓFÁA MILLJARDA Flutningaskipið Selnes, stærsta skip islenska flotans, hefur að undanförnulestað vikur i Sunda- höfn i Reykjavik. Þessir flutningar eru á vegum N BM Vallá og fer vikurinn til Danmerkur. „Skipið er i flutningum fyrir Járnblendifélagið á Grundartanga, en kom hingað til Reykjavikur til að taka vikur frá Hekluhafi svokölluðu fyrir Steypustöðina og flytja hann yfir til Álaborgar. | Selnes lestaði 6650 rúmmetrum af vikri, sem er i| eins mikið og skipið getur tekið’’, sagði Viglundur Þorsteinsson forstjóri steypustöðvarinnar BM I Vallá hf. i samtali við Visi. Hvaö fáið þiö fyrir tonnið af vikri? „Viö fáum eitthvaö rúmlega 40 dollara fyrir tonniö, sem eru svona um 17.000 islenskar krón- ur. Við byrjuöum vikurútflutning áriö 1978 og höfum aöallega flutt vikurinn út til Danmerkur, Svi- þjóðar og Noregs, en þar höfum við fasta viöskiptavini”, sagði Viglundur. „Vikurútflutningur- inn er I haröri samkeppni. Viö erum ekki þeir einu sem hafa vikur. Helstu keppinautar okkar eru Italir, Grikkir og Portúgal- ir”. Er mikil eftirspurn eftir vikri? „Já, það er mikil eftirspurn eftir vikri á réttu verði, en okk- ar vikur er töluvert dýrari en vikur frá Italiu, Grikklandi og Asóreyjum. Vikurinn okkar er langt upp I landi og það er dýrt að koma honum til hafnar. Það er þvi ekki hægt aö lækka þenn- an kostnaö nema fá eldgos ein- hvers staöar á ströndinni. Vikurinn sem við flyt jum út er eingöngu notaöur I skorsteins- einingar. Þessi vikur okkar hefur betri gæði en vlöa annars staðar og I vissa framleiöslu hentar hann betur. Þaö er þvl réttlætanlegt, aö hærra verö sé borgað fyrir hann. En á heims- markaðnum erum við ekki sam- keppnisfærir. — Meiningin er nú samt aö flutningaskipiö Selnes fari nokkrar ferðir út i ár með vikur fyrir okkur”, sagði Vig- lundur. —H.S. Vikrinum dælt um borð I skipið. (Vísism. BG.). Fyrsta ralí-cross keppnl sumarslns veröur á morpun A morgun kl. 14.00 gengst Bif- reiðaiþróttaklúbbur Reykjavik- ur fyrir fyrstu rali-cross keppni sumarsins. Siðastliðið sumar hélt klúbburinn fimm keppnir af þessu tagi við frá- bærar undirtektir áhugamanna um bifreiðaiþróttir, og má nú segja að rall-cross hafi unnið sinn sess meðal hefðbundinna keppnisgreina bifreiðaiþrótta hér á landi. Rall-cross raenn sátu ekki auðum höndum 1 vet- ur, frekar en aðrir bifreiða- áhugamenn, þeir kepptu tvisvar I svokölluðu is-crossi á Leirtjörn viö tHfarsfell, viö góðar undir- tektir. Ástæðan fyrir þvi hve rall-cross nýtur mikilla vin- sælda áhorfenda er væntanlega hversu auðvelt er aö fylgjast meö keppninni, áhorfandinn hefur yfirsýn yfir alla brautina meðan keppni fer fram. Rall-cross er eins konar kappakstur á lokaöri, hringlaga braut og meö hólum og beygjum I brautinni er reynt aö draga úr hraðanum, auk þess sem akst- urinn veröur erfiðari og meira reynir á hæfni ökumannsins. Brautin sem nú er keppt á er 860 m löng og fara fjórir bllar I brautina I senn. Eknir eru fimm hringir og komast tveir fyrstu bilarnlr i úrslitariðla. Bilar þeir sem keppt er á I rall-cross eru óskráðir og er búið að breyta þeim eftir ákveðnum reglum. Oryggiskröfur eru mjög strang- ar, m.a. öryggisbúr, 4 p. belti, hjálmar, andlitshlifar og eld- fastur búningur. Meöfram brautinni eru slökkvitæki með ákveönu millibili og menn þar hjá, sem með sérstökum merkj- um geta stöövað keppnina ef þörf krefur. Þaö sýndi sig slö- astliðið sumar, að þessi ör- yggisbúnaður er ekki út I bláinn, þvl þrátt fyrir pústra og veltur hlaut enginn ökumaður skrámu I keppni. Bifreiðaiþróttaklúbbur Reykjavlkur mun á þessu sumri halda fimm til sex rall-cross keppnir, og óskar klúbburinn keppendum og áhorfendum góðrar skemmtunar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.