Vísir - 11.04.1980, Blaðsíða 3

Vísir - 11.04.1980, Blaðsíða 3
vísnt Föstudagur 11. april 1980 Símaeinokun Ericson á enfla: NU ERU KEYPT MUN ÖDÝRARI SÍMTÓL „Viö höfum undanfarin ár gert verðsamanburð á ýmsum gerð- um talfæra og tilboð L.M.Ericson hafa verið hagstæðust til þessa”, sagði Þorvaröur Jónsson, yfir- verkfræðingur hjá Pósti og sima. „Að visu var nokkuð matsatriði i fyrra hvort við ættum aö taka tilboði frá Siemens eða Ericson, en þeir síðartöldu buöu nýja gerð talfæra. Viö völdum Ericson enda verðmunurinn ekki mikill og eru tækin að koma á markaðinn þessa dagana. 1 ár var tilboð Siemens hins vegar lang hagstæðast, og þvi keyptum við frá Siemens”. — ATA Póstur og simi hefur gert samning um kaup á fimm þúsund talfærum frá Siemens, en i 40 ár hefur Póstur og simi ekki lagt inn stórar pantanir á simum hjá öðrum fyrirtækjum en L.M.Ericson. Verðtil- boð þýska fyrirtækisins reyndist hagstæðast, verðið var aðeins um 56% af verði þvi sem L.M.Ericson bauð. Siemens-slmar, af sömu gerð og Póstur og slmi hefur nú pantað, eru til I nokkrum mæii á landinu nú þegar. Þeir eru meðal annars notaðir I Landsbankanum I Austurstræti. A myndinni er Anna ólafsdóttir, bankaritari, með einn slikan. — (Visismynd: JA) „Jú, það er rétt að það á að loka frystihúsinu 1. april 1981. Þetta hefur verið mikið rætt að undanförnu og þessi lokun hefur ávallt verið yfirvofandi, en nú er semsagt búið að dagsetja ákvörðunina um að rifa húsið”, sagði ólafur Gunnarsson verk- stjóri Sænsk-islenska frysti- hússins við Ingólfsstræti. „Ætlunin er aö Seölabankinn byggi á lóðinni, en húsiö er i eigu Reykjavlkurborgar. — Frystihúsið var reist árið 1927 og er þvi dálitið illa farið, en þaö er ein ástæða’.i fyrir þvi aö rifa á húsið. Hin ástæðan, sem er kannski enn veigameiri, er sú að Seölabankinn er aö byggja. Ekki er '.iægt að byggja hús á lóö þar se.n annaö hús er fyrir”, sagði Ólafur. óiafur Gunnarsson, verkstjóri „Starfsmenn frystihússins eru 4 til 5 aö jafnaði, nema á haustin, þá fjölgum við aðeins starfsmönnum. — Það er náttúrulega ekki gott að vita hvað verður um starfsfólkið. Einhverja vinnu veröur það að fá i staöinn. — Helsta starfsemi frystihússins hefur veriö Is- framleiösla, en hún hefur minnkað mjög mikið þar sem togararnir eru komnir með isvélar. Aöalstarfsemin hérna nú er geymsla á frosinni mat- vöru, fyrirverelanir, sláturhús, mötuneyti, hótel, fisksala og ýmis önnur fyrirtæki”, sagði ólafur. — H.S. Harmar hægagang Sambandsstjórnarfundur Alþýöusambands Vesturlands, sem haldinn var á Stykkishólmi nýlega, harmaöi aö ekki skyldi betur ganga að ieiðrétta kjör launafólks I landinu. Taldi fund- urinn, að ekki væri mikiu iengur hægt að una við óbreytt ástand. Stjórnin minnti á, að kröfur heildarsamtakanna miðuðust fyrst og fremst við að ná fram bættum kjörum til handa þeim sem lægst laun hafa. Það mætti gera með öðrum hætti en einungis með beinum krónutöluhækkun- um, þvi það er kaupmátturinn sem skiptir máli. Kaupmenn mðimæia Fundur i fulltrúaráði Kaup- mannasamtaka Is'lands, haldinn 9. april 1980, mótmælir harðlega siaukinni skattheimtu hins opin- bera, nú siöast með hækkun sölu- skatts. Fundarmenn telja að hagræði i rikisbúskap sé brýnt, nú þegar sé gengið á ystu nöf i skattheimtu. FJÖLVA ÚTGÁFA Klapparstig 16 U Sími 2-66-59 Göfugustu fermingargjafirnar Listaverkabækur sameina fegurð og menningargildi Fjölvi hefur mikið úval islenskra listaverkabóka -¥- Stóra alheimslistasagan í 3 bindum og gjafaöskju + Nútimalistasagan í einu stóru bindi Ævisaga Leonardós da Vinci 4- Ævisaga Rembrandts 4- Ævisaga Goya Ævisaga Manets 4- Ævisaga Van Goghs 4- Ævisaga Matisses 4- Ævisaga Duchamps, brautryðjanda nútímalistar Bækur og ritraðir eru varanlegar fermingargjafir. En listaverkabækur Fjölva eru i sérflokki, þar sem þegar er sýnt, að þær munu vaxa mjög i verði, er timar liða

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.