Vísir - 11.04.1980, Síða 16

Vísir - 11.04.1980, Síða 16
VÍSIR Föstudagur IX. aprll 1980 Umsjón: Ulugi Jökulsson FÆREYSK KYNNING I NORRÆNA HÚSINU 1 tilefni norræna málaársins hefur Norræna félagiö beitt sér fyrir kynningu á granntungum okkar. Hjörtur Pálsson er formaöur islensku málaársnefndarinnar. Nú á laugardag 12. þ.m. er efnt til kynningar á færeysku i Nor- ræna húsinu kl. 16.00. Þar flytur Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri ávarp, en hann er starfandi for- maður Islensku málaársnefndar- innar. Þá flytur Stefán Karlsson, handritafræöingur stutt erindi um færeyskt mál, Vésteinn Ólaf- son, lektor fjallar um færeyska sagnadansa. Rubek Rubeksen, færeyskur háskólanemi talar um upphaf færeyskra nútímabók- mennta. Þá veröur stiginn fær- eyskur dans. Allir eru velkomnir á þennan fund meöan húsrúm leyfir. Norræna húsiö efnir til sýning- ar á færeyskum bókum I bóka- safni slnu og veröur hún öllum op- in. (Fréttatilkynning) Fræbbblarnir eru ein þeirra hljómsveita sem spila á hljómleikum I Félagsheimili Kópavogs. HEILBRIGB ÆSKR A TÚNLEIKUM (KðPAVOBI „Heilbrigö æska” er yfirskrift hljómleika sem haldnir veröa á morgun klukkan tvö í Felags- heimili Kópavogs. Þar koma fram fjórar hljómsveitir, skipaö- ar ungum tónlistarmönnum. Fyrst spila Dordinglar, þá Judah, siöan Bubbi Morthens og loks Fræbbblarnir. Þarna eru ungir og vafalítiö efnilegir tón- listarmenn á feröinni og aögöngu- miöaveröi er mjög stillt I hóf, 1500 krónur. TÚHLEIKAR Arnesingakórinn I Reykjavik og Samkór Selfoss halda tónleika i Bústaöakirkju kl. 5 á morgun, stjórnandi Samkórsins er Björg- vin Þ. Valdimarsson og einleikari Geirþrúöur Bogadóttir, en Arnes- ingakórsins Helga Gunnarsdóttir. Föstudaginn næsta veröa svo tón- leikar i Röst Hellissandi á sama tima. Lýkur þar meö vetrarstarf- inu. Viveca Lindfors, Nina van Pallandt, Dennis Christopher og Amy Stryker I hlutverkum sinum I „Brúö- kaupsveislu”. Veisla unflir vandamálahing Nýja bió: Brúökaupsveisla. Leikstjóri: Robert Altman Handrit: John Considine, Patricia Resnic, Allan Nochols og Robert Altman. Myndataka: Charles Rosher Aöaihiutverk; Carol Burnett, Geraidine Chaplin, Mia Farrow, Vittorio Gassman, Lillian Gish o.fl. Ýmislegt getur gerst i brúö- kaupi þar sem gestirnir hafa mislitt mjög f pokahorninu. Mynd Roberts Altmans, „Brúö- kaupsveisla”, fjallar um brúö- kaup Dinós Corelli, af gömlum bandariskum suöurríkjaættum og Muffin Brenner, dóttur vöru- bílstóra, sem auögast hefur mjög á vöruflutningum. Ekkert er til sparað svo brúökaupiö megi veröa sem eftirminnileg- ast og glæsilegast. Unga fólkiö er gefiö saman af gömlum bisk- up, en hann reynist nærri elliær og tæpast þess umkominn aö framkvæma hjónavigslu. Mikl- um fjölda gesta hefur veriö boö- iö til brúökaupsins, en fáir láta sjá sig. Fjölskyldur brúöhjón- anna eru þó nógu stórar til aö allfjölmennt veröur í veislunni. Fljótlega eru margar blikur á lofti þegar önnur fjölskyldumál veröa ofar á baugi en brúökaup- iö. Undir glæstu yfirboröi brúö- kaupsveislunnar kemur sitt af hverju I ljós. Llf flestra meö- lima Corelli og Brenner fjöl- skyldnanna er lltiö annaö en leiksýning þar sem lífiö aö tjaldabaki er jafn aumlegt og sýningin sjálf er glæsileg. Læknir Corellifjölskyldunnar er t.d.kallaöurtil aö lita á ýmsa af veislugestum en þaö eina sem hann gerir er aö gefa róandi eöa örvandi lyf meö þeim árangri aö Reglna móöir brúögumans og Ingrid matselja svífa um veislu- Sólveig K. Jónsdóttir skrifar salina og taka lftiö tillit til þess sem fram fer. Þaö er táknrænt fyrir llf þess fólks sem myndin fjallar um aö á meöan veislan varir liggur llk I einu herbergi hússins, amma brúögúmans deyr um þaö leyti, sem veislan er aö hefjast. I „Brúökaupsveislu” koma tugir persóna viö sögu og nær allir byggja llf sitt á lygi eöa misskilningi. Þessi fjöldi persóna gæti virst óþarfur, en hann getur líka fengið áhorfend- ur til aö ihuga hvort þeir tilheyri þeim stóra hóp sem líkt er ástatt um og gesti „Brúökaupsveislu”. „Brúökaupsveisla” er skemmtileg, skörp og vel gerö ádeila þar sem öllu gamni fylgir nokkur alvara. Altman tekst vel aö minna á aö jöröin er hótel og lifið þvl miöur oft einna likast brúökaupsveislu. Chætt er að hvetja til þess aö sem fæstir láti „Brúökaupsveislu” framhjá sér fara. — SKJ NORRÆNN VEFNAÐUR TIL SÝNIS AÐ KJARVALSSTÖDUM Sýningin Norræn vefjarlist II verður opnuö að Kjarvalsstöðum á laugardaginn kemur. Þetta er i annaö sinn sem siik sýning er sett upp hér á landi, fyrri sýningin var einnig aö Kjarvalsstööum fyrir þremur árum. Sýningin er ávöxtur samstarfs vefara og textllhönnuöa á Noröurlöndum og má rekja upp- haf hennar til ársins 1974 þegar sett var upp umfangsmikil sýning i Danmörku. Kom hún m.a. til Is- lands. Ákveðiö var aö hafa hana á þriggja ára fresti og er nú sýning númer tvö á feröinni, en hún var fyrst sett upp I Gautaborg í fyrra- sumar. Sá háttur var á hafður aö dómnefnd frá hverju landi valdi þau verk sem fóru á þessa sýn- ingu og I Islensku dómnefndinni eiga sæti Hrafnhildur Schram, Höröur Agústsson og Magnús Pálsson. Alls eru á sýningunni 93 verk eftir 87 listamenn og kennir ýmissa grasa. Fjöldi sjóöa og stofnana styrkir sýninguna og er stærsti styrkur- inn frá Norræna menningarsjóðn- um rúmar 14 milljónir. Sýningin veröur opnuö kl. 2 á morgun og flytur Arni Gunnars- son formaöur Menningarmála- nefndar Noröurlanda ávarp og Ingvar Gislason opnar siöan sýn- inguna en hann er menntamála- ráöherra. Tungi njói sói alit nema nema staðar - hellir llóðabók eft- ír Martin Götuskeggja Þar kom aö þvi! Ut er komin ljóöabók eftir Martin Götu- skeggja og heitir hún Tungl hjól sói allt nema nema staöar. Eftirfarandi upplýsingar má finna um höfundinn á kápu bókar- innar: „Höfundur er fæddur og uppalinn, auk þess menntaður og hefur komiö vföa viö, en hvergi fest rætur, Hann les enn gler- augnalaust og er sæmilega vel brenglaöur.” Bókin er myndskreitt af Guö- rúnu Eddu og R. Crumb en höf- undur geröi kápuskreytingu. A saurblaöi segir aö bók þessi sé til- einkuö A. Baader og S. Ciesielski. Ekkert Islenskt leikrit hefur veriö sýnt jafnoft i Þjóöleikhúsinu og Stundarfriöur eftir Guömund Steins- son. m STUNDARFRIBUR L0KS UTI... Þá er Stundarfriöur úti. SIÖ- asta sýning á þessu geysivin- sæla leikriti Guömundar Steins- sonar verður annaö kvöld og hefur verkiö slegiö öll aösóknar- met I Þjóöleikhúsinu. Ekki einasta Islendingar virö- ast hrifnir: Júgóslavar hafa boöiö hópnum sem leikritiö leik- ur á hina frægu BITEF-leik- listarhátlö sem fer fram i haust. Leikstjóri verksins er Stefán Baldursson en leikmynd geröi Þórunn Sigríöur Þorgrímsdótt- ir. I helstu hlutverkum eru Kristbjörg Kjeld, Helgi Skúla- son, Siguröur Sigurjónsson, Guörún Glsladóttir Lilja Þor- valdsdóttir, Guöbjörg Þor- bjarnardóttir og Þorsteinn 0 Stephensen. Þaö er því eins og venjulega: nú fer hver aö veröa síöastur..

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.