Morgunblaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fyrirlestur um íslenska vita Enn er talin þörf fyrir ljós- merki vitanna EINHVER dulúð ogleyndardómur hef-ur lengi sveipað vita hjúp sínum. Þessir út- verðir á ströndum vekja hvarvetna athygli, en ástæður umræddrar dulúð- ar kunna að vera af ýmsum toga og eiga jafnvel rætur að rekja til kvikmynda, en í þeim hafa mörg myrkra- verkin verið framin og vof- ur dansað í vitum. Kristján Sveinsson sagnfræðingur hjá Siglingastofnun heldur fyrirlestur í Sjóminjasafni Íslands, Vesturgötu 8, í Hafnarfirði í kvöld klukkan 20.30. Fyrirlesturinn nefn- ir Kristján „Vitar og vita- rekstur á Íslandi“ og er hann í boði Rannsóknar- seturs í sjávarútvegssögu og Sjó- minjasafns Íslands. Öllum er heimill aðgangur sem auk þess er öllum að kostnaðarlausu. Morgun- blaðið ræddi í vikunni við Kristján, sem starfar nú við rannsóknir á sögu vitamála á Íslandi á vegum Siglingastofnunar. Segðu okkur nánar frá efni fyr- irlestursins? „Ég mun fjalla nokkuð vítt og breitt um uppbyggingu og þróun íslenska vitakerfisins. Ég ætla að segja dálítið frá byggingu fyrsta vitans á Íslandi sem byggður var á Reykjanesi árið 1878. Þeim vita var einkum ætlað að leiðbeina millilandaskipum, ekki síst póst- skipinu, en fiskimenn við Faxaflóa komust fljótt upp á lag með að not- færa sér vitann og smám saman efldist vitund þeirra um að þarna væri komið mikilvægt öryggis- tæki. Það leiddi til þess að útgerð- armenn og sjómenn við Faxaflóa komu upp smávitum á eigin vegum og úr þessari viðleitni spratt svo opinber vitastofnun síðar meir. Ég mun svo greina frá því helsta sem hún hefur fengið áorkað og einnig minnast á mismunandi gerðir vita og vitatækja.“ Hvenær fórst þú að garfa í vita- málum og hvers vegna? „Ég er búinn að vera að fást við sögu íslenskra vitamála í tæp tvö ár ásamt Guðmundi L. Hafsteins- syni arkitekt, en hann fjallar um byggingarlist í vitum og ýmislegt sem snertir vitatækni. Ástæðan er sú að Siglingastofnun Íslands, sem nú hefur með vitareksturinn að gera, áformar að gefa út bók um vitana. Hún er nú langt komin.“ Hvað eru margir vitar við Ís- landsstrendur? „Siglingastofnun Íslands á og rekur 104 vita. Því til viðbótar eiga sveitarfélög einhvers staðar á milli 20 og 30 innsiglingarvita.“ Hvað veldur þeirri dulúð sem vitum fylgir? „Jú, sumum vitum að minnsta kosti fylgir einhver dulúð og sama má segja um vitavarðarstarfið. Mér finnst líklegast að það stafi af því hve afskekktir margir vitar eru og dul- úðin birtist bæði í nei- kvæðum og jákvæðum myndum. Til eru sögur erlendis frá um drama- tíska atburði á vitastöðum og ýms- ar sögur ganga um vitaverði sem hálfbrjálaða sérvitringa sem hvergi þrífast nema úti í auðninni. En ekki kannast ég nú við það hér á landi. Geðfelldari dulúðarhjúpur er sá sem tengist leiðsöguhlutverki vitanna. Þeir eru leiðarljós, eðli málsins samkvæmt og ætli vita- verðirnir birtist þá ekki sem heim- spekilega og trúarlega þenkjandi ljósberar og mannvinir og vitinn í hlutverki þess er vísar rétta leið.“ Erlendis eru víða gefnar út heilu ritraðirnar um vita. Stefnir í eitt- hvað slíkt hér á landi? „Það veit ég nú ekki. Við ætlum að koma út þessari bók sem ég nefndi áðan og hugsum ekki til annars. En það er tvímælalaust hægt að búa til og gefa út margs- konar efni um íslenska vita og miklu meira en gert hefur verið fram til þessa.“ Að hvaða leyti hefur hlutverk vita breyst samfara breytingum á leiðsögutækni? „Árhundruðum saman voru vit- ar og sjómerki nánast einu leið- sögutækin. Það er gerbreytt nú á tímum. Nú hafa skipstjórnarmenn ratsjá, GPS, og ýmis önnur tæki. Vitarnir eru því að sjálfsögðu alls ekki eins mikilvægir og þeir eitt sinn voru.“ Er fyrirsjáanlegt að vitar verði óþarfir einn góðan veðurdag og standi áfram sem fortíðartákn, jafnvel sem söfn? „Einn góðan veðurdag kannski því vel má vera að radíó- og raf- eindatæknin sem nú er beitt geri vitana algerlega óþarfa. Enn er þó talin þörf fyrir ljósmerki þeirra og líklegt að það verði eitthvað áfram. Já, ég tel fulla ástæðu til að sýna vitunum sóma. Þeir eru hluti af menningararfi okkar og sumar vita- byggingarnar eru sér- stæðar og setja svip á umhverfi sitt. Vonandi verður fundin leið til að vernda þá frá eyðileggingu í framtíðinni. Það hefur gerst víða erlendis að vitum hefur verið breytt í söfn og vafa- laust væri hægt að gera það hér einnig. Ég er á því líka að það mætti laða ferðafólk að vitunum. Það er víða alveg upplagt að gera hlé á ferð sinni við vita, borða nest- ið sitt og skoða vitann og umhverfi hans.“ Kristján Sveinsson  Kristján Sveinsson fæddist á Blönduósi 21. apríl 1960 og ólst upp á Tjörn á Skaga. Kristján varð stúdent frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð vorið 1980 og lauk síðan B.A.-prófi í sagn- fræði við Háskóla Íslands 1990 og M.A.-prófi í sömu grein við HÍ 1996. Mag.art.-prófi lauk hann svo við Árósaháskóla 1999. Síðan 1990 hefur hann ýmist starfað við sagnfræði og ýmis ritstörf eða numið hana. Fyrir háskólanámið starfaði hann mest hjá Sjómæl- ingum Íslands. Eiginkona Krist- jáns er Anna Þórðardóttir, lög- giltur endurskoðandi, og börn þeirra tvö eru María og Eyvind- ur, fædd 1984 og 1986. Siglingastofn- unin á og rekur 104 vita Þú verður að hætta þessu jólaföndri, húsbændur vilja fá alvöru pappalöggur í hvern bát, góða. Á FUNDI umhverfis- og heilbrigð- isnefndar Reykjavíkur í síðustu viku lagði Guðlaugur Þór Þórðar- son fram fyrirspurn um framhald slátrunar í sláturhúsinu á Hellu í ljósi nýlegs úrskurðar Samkeppn- isstofnunar um málefni Móa og Reykjagarðs. Í bókun nefndarinnar, sam samþykkt var samhljóða, seg- ist nefndin lýsa furðu sinni á því að Samkeppnisstofnun úrskurði að slátrað skuli í húsi sem hafi verið lokað af heilbrigðisástæðum. Mikill árangur hafi náðst í bar- áttunni við sýkingu í kjöti á mark- aði. „Lokun sláturhússins á Hellu er liður í að tryggja þann árangur, sem náðst hefur enn frekar. Það að samkeppnisyfirvöld fari fram á að slátrun hefjist aftur í húsinu er vægast sagt sérkennileg ráðstöfun,“ segir í bókun nefndarinnar. Undrast úrskurð Samkeppnisstofnunar SJÓPRÓF vegna bilunarinnar í togaranum Örfirisey verða haldin í næstu viku. Skipverjar á Snorra Sturlusyni björguðu togaranum á síðustu stundu frá því að reka upp í stór- grýtta fjöru undir Grænuhlíð í mynni Jökulfjarða á laugardagsmorgun. Örfirisey liggur nú við bryggju í Reykjavík en Rúnar Þór Stefánsson, útgerðarstjóri Granda, bjóst við því að togarinn héldi til veiða í kvöld. Sjópróf í næstu viku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.