Morgunblaðið - 14.11.2001, Side 10

Morgunblaðið - 14.11.2001, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ PÁLL Pétursson (B) félagsmálaráð- herra upplýsti á Alþingi í gær að sama fyrirtækið hefði orðið uppvíst að því að hafa ólöglega erlenda starfsmenn við byggingu fjölbýlis- húss í Kópavogi í síðustu viku og varð uppvíst að því að hafa erlent verka- fólk án atvinnuleyfis sl. vor í Gufu- nesi. Sagði Páll að verkamennirnir, allir frá Eystrasaltslöndunum, hefðu komið hingað sem ferðamenn á veg- um fyrirtækisins en það síðan leigt þá út til verktaka við byggingu húss- ins. Bætti hann því við að fyrirtækið sætti nú rannsókn lögreglu. Þetta kom fram í umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær um erlent vinnuafl. Málshefjandi í umræðunni var Guðrún Ögmundsdóttir (S). Hún sagði aðeins einn anga þessa máls snúa að atvinnuleyfum útlendinga, miklu fremur væri ber sú staðreynd að umrætt fólk hefði unnið baki brotnu fyrir sultarlaun og greinilegt væri að hluti launanna færi til und- irverktakans. „Kerfið virðist vera þetta,“ sagði Guðrún, „undirverktaki leigir þá út, sér þeim fyrir húsnæði, skammtar þeim laun sem leigutakinn greiðir útleigjandanum en ekki fólk- inu sjálfu og þá veltir maður því fyrir sér hvort þeir nái 50% af þeim laun- um sem þeir eiga að fá,“ sagði Guð- rún. Endurskoða reglur um atvinnuleyfi Hún sagði að hér væri um háalvar- legt mál að ræða sem ekki gæti geng- ið. Mörg dæmi væru þess að fólk væri ekki sjúkratryggt og hefði ekki getað notið læknisaðstoðar þegar þurfti. Velti Guðrún því upp hvort endur- skoða bæri þær reglur að atvinnu- leyfi væri í höndum vinnuveitenda sjálfra og lyti fremur miðlægri vinnumiðlun sem starfi í nánu sam- starfi við slíkar miðlanir í nálægum löndum. Þá benti hún á að mjög væri til vansa í þessum málaflokki að at- vinnuleyfi útlendinga heyrði undir tvö ráðuneyti, þ.e. dómsmála- og fé- lagsmálaráðuneyti, og ótal undir- stofnana. Með því skorti á heildarsýn og allt yrði þyngra í vöfum. Páll Pétursson sagði að með til- komu Schengen-samstarfsins væri ekkert eftirlit lengur með komu fólks innan svæðisins og því væri litlum vandkvæðum bundið fyrir útlend- inga að koma hér og hefja störf án at- vinnuleyfis. Með því hætti þeir þó á brottvísun af öllu Schengen-svæðinu. Óréttlát samkeppnis- staða fyrirtækja Almennt má segja að innflutning- ur ólöglegs vinnuafls erlendis frá hafi verið fordæmdur af þeim þingmönn- um sem tóku þátt í umræðunni, eink- um þó þáttur þeirra atvinnurekenda sem hefðu bágindi fólks með þeim hætti að féþúfu. Steingrímur J. Sigfússon (Vg) sagði þannig brýnt að auka eftirlit með aðbúnaði erlendra starfsmanna þar sem litlar líkur væru til þess að Íslendingar, fremur en aðrir, slyppu við tilraunir til svartrar atvinnustarf- semi. Arnbjörg Sveinsdóttir (D) sagði óþolandi fyrir erlent vinnuafl að það nyti ekki leikreglna íslensks sam- félags, varðandi launa- og trygginga- mál. Þá væri óviðunandi sú óréttláta samkeppnisstaða fyrirtækja sem stunduðu það að ráða til sín vinnuafl sem ekki nyti fullra réttinda á ís- lenskum vinnumarkaði gagnvart þeim fyrirtækjum sem ræktu skyld- ur sínar. Umræða á Alþingi um erlent vinnuafl án atvinnuleyfis á Íslandi Ekki sjúkra- tryggt og á sultarlaunum Morgunblaðið/Þorkell Karl Matthíasson, Svanfríður Jónasdóttir og Katrín Fjeldsted fylgdust með umræðum á Alþingi. GUNNAR Smári Egilsson hefur tekið við ritstjórn Fréttablaðsins af Einari Karli Haraldssyni sem hyggst að eigin sögn snúa sér að öðrum verkefnum. Fréttastjórar blaðsins eru áfram Pétur Gunnars- son og Sigurjón M. Egilsson. Gunn- ar Smári vann að undirbúningi Fréttablaðsins sem kom fyrst út 23. apríl sl. og hefur síðan þá starf- að sem fulltrúi útgefanda. Einar Karl var spurður hvernig starfslok hans hjá Fréttablaðinu hefði borið að. „Þegar útgáfa Fréttablaðsins kom til var ég að vinna sem ráðgjafi í almannatengslum. Kom ég sem slíkur að því að undirbúa útgáfu Fréttablaðsins. Síðan fannst mér það áhugavert þegar það stóð til boða að taka að mér ritstjórn og reyna að framkvæma þessa tilraun. Ég réð mig til sex mánaða í upphafi og kom þar aðallega til áhuginn á að reyna að koma þessu á legg fremur en sannfæringin fyrir því að þetta væri minn framtíðarvett- vangur. Síðan, eins og komið hefur fram, leiddist mér að fá ekki launin mín um tíma en það verður vænt- anlega leyst með góðum friði.“ Gunnar Smári rit- stýrir Fréttablaðinu Gunnar Smári Egilsson STURLA Böðvarsson (D) sam- gönguráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um loftferðir, en með því er brugð- ist við þeirri gagnrýni og umræðu sem spannst í kjölfar flugslyssins í Skerjafirði fyrir rúmu ári. Ráðherra gat þess að í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar flug- slysa um flugslysið sem varð í Skerjafirði 7. ágúst 2000, hefði hafist víðtæk umræða hérlendis um flugöryggismál og stöðu þeirra og ástand. „Ein af niðurstöðum rannsóknarnefndarinnar laut að því að brestir hefðu verið í skipu- lagi þess flugrekstrar sem flug- vélin sem fórst tilheyrði. Fram kom að Flugmálastjórn teldi sig ekki hafa yfir nægum úrræðum að ráða til að eftirlit stofnunarinnar bæri tilætlaðan árangur,“ sagði hann og gat þess að bent hefði verið á að stofnunin hefði í nokkr- um tilfellum verið gerð afturreka af dómstólum þegar fyrirsvars- menn hennar hefðu leitast við að koma í veg fyrir það sem þeim virtist fífldirfska og glannaskapur í flugi. Verið að efla eftirlitsstarf stofnunarinnar „Með frumvarpi þessu er ætl- unin að fjölga þvingunarúrræðum stofnunarinnar og efla hana þann- ig til eftirlitsstarfsins með það að markmiði að auka flugöryggi,“ sagði ráðherrann ennfremur. Hann lét þess getið að nýleg hryðjuverk í fluginu ýti undir að ákvæði laganna um flugvernd séu styrkt, auk þess sem með frum- varpinu sé lagt til að lögfest verði ýmis ákvæði sem horfi til aukins öryggis flugfarþega og almennings á jörðu. Í frumvarpinu er það nýmæli að allir flugvellir og flugstöðvar á Ís- landi verði leyfisskyld og sett und- ir opinbert eftirlit Flugmálastjórn- ar. Varla afgreitt fyrir áramótin Í stuttri umræðu um frumvarp samgönguráðherra kom m.a. fram í máli Kristjáns L. Möller (S), að barátta tvímenninganna Jóns Ólafs Skarphéðinssonar og Frið- riks Þórs Guðmundssonar, sem misst hefðu ættingja sína í hinu hörmulega slysi, hefði án nokkurs vafa skilað sér í auknu öryggi ís- lenskra flugfarþega og leitt til þess að ýmir þættir í flugöryggi hafi verið teknir til endurskoðun- ar. Gat hann þess að frumvarp ráðherra væri afar víðtækt og því tæki tíma að afgreiða það í sam- göngunefnd, ekki síst vegna þess að gefa yrði fjölda aðila kost á því að koma með athugasemdir við frumvarpið eða einstakar greinar þess. Hann taldi því ekki líklegt að tækist að afgreiða það úr nefnd- inni fyrir jólafrí eða áramótin. Samgönguráðherra sagði af þessu tilefni að þetta væru „ekki góð skilaboð“ frá samgöngunefnd. Þvert á móti sagðist hann leggja mjög ríka áherslu á að frumvarpið næðist að afgreiða fyrir jólin og rannsókn erlendra aðila og lög- reglunnar á flugslysinu í Skerja- firði ætti ekki að þurfa að hafa áhrif þar á. Taldi hann afgreiðslu frumvarpsins ekki geta beðið og hvatti samgöngunefnd til að hraða vinnu sinni eftir kostum. Stjórnarfrumvarp um loftferðir Þvingunarúrræð- um Flugmála- stjórnar fjölgað SIV Friðleifsdóttir (B) umhverf- isráðherra sagði á Alþingi á mánu- dag að íslenska ákvæðið í tengslum við Kyoto-bókunina um losun gróð- urhúsalofttegunda feli í sér 1,6 millj- ónir tonna af koldíóxíði á ári í fimm ár og ekkert vit hafi verið í öðru en að samþykkja það. Gagnrýni kom fram á undanþágu íslenskra stjórn- valda og íslenska ákvæðið í máli Kolbrúnar Halldórsdóttur (Vg). Umhverfisráðherra sagði að „all- ar þjóðir heims nema Vinstri grænir og Samfylkingin“ hafi séð skynsemi ákvæðisins og fallist á að það væri umhverfisvænt með því að draga hnattrænt úr losun gróðurhúsa- lofttegunda. Upplýsti ráðherrann að í framtíð- inni muni tonnið verða selt á 1–2 þúsund krónur, þannig að íslenska ákvæðið gefi svigrúm upp á 8–16 milljarða kr. á fimm ára tímabili. „Við getum ekki selt það, en við getum nýtt það í ákveðin verkefni með ákveðnum takmörkunum,“ sagði Siv og og benti á að íslenska ákvæðið væri ákaflega mikilvægt, því heimsbyggðin kallaði nú á endurnýjanlega orku sem við byggj- um nú yfir. Íslenska ákvæðið við Kyoto-bókunina Svigrúm upp á 8–16 milljarða Þverpólitísk tillaga til þingsályktunar Hjólreiðar verði raunhæfur kostur TÍU þingmenn úr öllum þingflokk- um á Alþingi – allir þeir sem skipa umhverfisnefnd Alþingis – hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um skipan nefndar um hönnun og merkingar hjólreiðabrauta. Nefnd- inni er ætlað að marka opinbera stefnu í málefnum hjólreiðamanna og hönnun og merkingar hjólreiða- brauta í þéttbýli og dreifbýli. Tekið verði tillit til hjólreiðamanna við hönnun nýrra mannvirkja og stefnt að því að hjólreiðar verði raunhæf- ur kostur í samgöngumálum á Ís- landi. Ísólfur Gylfi Pálmason (B) er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Í greinargerð með henni kemur fram það markmið, að vekja athygli á hjólreiðamönnum í umferðinni, en einnig að auka öryggi þeirra og fækka slysum. „Hjólreiðar eru ódýr, skemmti- legur og heilsusamlegur ferðamáti og vinsæl fjölskylduíþrótt. Fjöl- mörg dæmi eru um að fólk í þétt- býli noti reiðhjól til þess að ferðast milli áfangastaða og ef aðstæður til hjólreiða væru betri væru þær mun vinsælli,“ segir ennfremur í grein- argerð með tillögunni. Þar kemur einnig fram að um 16 þúsund reið- hjól hafi verið flutt inn árlega til landsins á síðustu ellefu árum, eða um 176 þúsund reiðhjól til viðbótar við þau sem fyrir voru. Tekið er fram að of sjaldgæft sé að fyrirtæki og stofnanir hafi sérstakar reið- hjólagrindur við fyrirtæki sín þó að það hafi batnað nokkuð á síðustu árum. Sérstök athygli er vakin á því að slíkar grindur séu ekki við Alþingishúsið eða skrifstofur Al- þingis. Yfirlýsing frá forseta Alþingis MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Halldóri Blöndal forseta Alþingis: Að gefnu tilefni skal tekið fram að það er misskilningur að forsæt- isnefnd Alþingis hafi beðið um stjórnsýsluendurskoðun á Flug- málastjórn. Hið rétta er að þing- flokkur Samfylkingarinnar sendi forsætisnefnd beiðni um slíka stjórnsýsluendurskoðun í maí sl. Forsætisnefnd tók erindi Samfylk- ingarinnar fyrir á fundi sínum 20. ágúst sl. og framsendi það Ríkis- endurskoðun skv. 3. gr. laga nr. 86, 1997, um Ríkisendurskoðun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.