Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 41
DAGBÓK
Lagersala á Fiskislóð 73
(úti á Granda), 101 Reykjavík.
Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00
Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00
Föstudaga kl. 14:00 til 18:00
Laugardaga kl. 12:00 til 16:00
Outlet
Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!!
Opnunartími:
www.ef.is
Láttu eftir þér að fá þér
þessa frábæru pönnu
Verð: 24 sm 4.480
26 sm 5.390
28 sm 5.780
Glerlok frá kr. 1.110
3 viðurk
enningar
„Frábær“
hjá þýsk
um
neytenda
samtöku
m
Besta steikarapannan
í Evrópu....
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddur ríkri athygl-
isgáfu og fólk leitar oft til
þín því það veit að fátt fer
framhjá þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú verður að leggja þig allan
fram, ef þú ætlar að vinna
einhverja á þitt band. Það
dugar engin moðsuða, heldur
verður þú að tala skýrt og
skorinort.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ákveðni, einbeitni og kraftur
eru það sem þú þarft til þess
að ná takmarki þínu. Þú hef-
ur þetta allt, það er bara að
virkja hæfileikana.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það hefst fátt með hæga-
ganginum. Þú þarft aldeilis
að taka þér tak, ef þú vilt
ekki missa allt út úr hönd-
unum. Vinnusemi er nauð-
synleg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu það ekki aftra þér frá
því að gera vini þínum greiða
þótt þér lítist ekki alls kostar
á málavexti, bara ef óheiðar-
leikinn er fjarri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leitaðu þér að samstarfs-
mönnum og vertu vandlátur,
því öllu skiptir að þú getir
treyst þeim til góðra verka
jafnvel og sjálfum þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það hefur hlaðist svo margt
upp á skrifborðinu þínu að þú
átt ekki annarra kosta völ en
bretta upp ermarnar og
vinna sleitulaust fram úr öllu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Settu þér það takmark að
vera öðrum góð fyrirmynd.
Taktu það ekki nærri þér,
þótt einhverjir fetti fingur út
í verk þín. Brostu bara.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Nú kemstu ekki lengur hjá
því að taka til hendinni heima
við. Þú hefur of lengi ýtt öllu
á undan þér og nú verður þú
að standa við loforðin.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft að setjast niður með
félaga þínum og fara í gegn-
um málin. Það gengur ekki
lengur að öll ábyrgð falli á
þig og öll störfin líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki hugfallast þótt
þér finnist umbun erfiðis
þíns láta á sér standa. Fyrr
eða síðar kemur þinn tími,
það er bara að bíða þolinmóð-
ur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dragðu hvergi af þér við
vinnuna og þá mun þér tak-
ast að hreinsa borðið svo að
þú getir haldið í horfinu. Svo
er bara að halda hlutunum
þannig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hlustaðu vel á það sem þér
eldri menn hafa fram að
færa. Reynsla þeirra getur
sparað þér bæði tíma og fyr-
irhöfn og þú náð lengra fyrir
vikið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
HRAUN Í ÖXNADAL
„Þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla,“
lék í ljósi sólar,
lærði hörpu að stilla
hann, sem kveða kunni
kvæðin ljúfu, þýðu,
skáld í muna og munni,
mögur sveita-blíðu.
Rétt við háa hóla
hraunastalli undir,
þar sem fögur fjóla
fegrar sléttar grundir,
blasir bær við hvammi,
bjargaskriðum háður.
Þar til fjalla frammi
fæddist Jónas áður.
Brosir laut og leiti,
ljómar fjall og hjalli,
lækur vætu veitir,
vökvast bakka halli,
geislar sumarsólar
silungsána gylla,
þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla.
Hannes Hafstein.
„ÆTLARÐU ekki að fara
að ræsa toppavélina?“
Hrólfur Hjaltason er
mættur á svæðið, í þetta
sinn í hlutverki áhorfand-
ans til að fylgjast með síð-
ustu umferðum Íslands-
mótsins í tvímenningi.
Toppavél dálkahöfundar
liggur eins og fótanudd-
tæki, ónotuð inni í
geymslu, en Hermann
Lárusson og Erlendur
Jónsson settu sína vél í
fjórða gír í síðustu umferð-
unum og skófluðu inn
toppum.
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ ÁD432
♥ DG83
♦ ÁK97
♣ --
Vestur Austur
♠ -- ♠ 865
♥ Á7652 ♥ 94
♦ DG103 ♦ 42
♣Á1098 ♣D76432
Suður
♠ KG1097
♥ K10
♦ 865
♣KG5
Þetta er spil númer 110
úr þriðju síðustu umferð.
Íslandsmeistararnir Her-
mann og Erlendur sátu í
NS og voru snöggir í
slemmu eftir að Erlendur
kaus að vekja létt í suður:
Vestur Norður Austur Suður
Hermann Erlendur
-- -- Pass 1 spaði
Pass 4 lauf * Pass 4 spaðar
Pass 5 tíglar * Pass 5 hjörtu *
Pass 6 spaðar Pass Pass
Dobl Redobl Allir pass
Við opnun Erlendar á
einum spaða stökk Her-
mann strax í fjögur lauf til
að lýsa yfir slemmuáhuga
og stuttu laufi. Erlendur
hafði á því stigi málsins
engan áhuga, enda með
lágmarksopnun og KG í
laufinu. En þegar Her-
mann hélt áfram með fimm
tíglum taldi Erlendur sig
skuldbundinn til að sýna
hjartafyrirstöðuna og það
dugði Hermanni til að
segja sex spaða.
Vestur trúði eigin aug-
um betur en sögnum and-
stæðinganna og doblaði
með ásana tvo. Hermann
þóttist vita hvað byggi á
bak við doblið og redo-
blaði. Erlendur var fljótur
að taka tólf slagi – 1.620 í
dálkinn og tandurhreinn
toppur.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4.
Rf3 Rf6 5. Dc2 Ra6 6. a3 c5
7. e3 cxd4 8. exd4 dxc4 9.
Bxc4 O–O 10. O–O Rc7 11.
Bg5 b6 12. Had1 Bb7 13.
Re5 Rcd5 14. Hfe1 Hc8 15.
Db3 a6 16. Bxf6 Bxf6 17.
Bxd5 exd5 18. Ra4 Bxe5 19.
Hxe5 Bc6 20. Rc3 f6 21. He3
Hf7 22. Hde1 Hb8 23. He6
Dd7 24. h3 g6 25. Db4 Kg7
26. a4 Hb7 27. Hd6 a5 28.
Da3 Dc8 29. Hee6 Bd7 30.
He3 Bc6 31. Re2 Hfd7 32.
Rf4 Kf7 33. Hee6 Hxd6 34.
Dxd6 Bxa4 35. Hxf6+
Kg8 36. Dxd5+ Kg7 37.
De5 Kg8
Staðan kom upp í
minningarmóti Jóhanns
Þóris Jónssonar. Ivan
grimmi Sokolov (2.658)
hafði hvítt gegn hinum
prúða Dana Lars Schan-
dorff (2.551). 38. Rxg6!
Dc1+ 39. Kh2 hxg6 40.
Hxg6+ Kf8 41. Dh8+
Ke7 42. Dh7+ Kd8 43.
Dxb7 og svartur gafst
upp enda fátt sem gleð-
ur augað í stöðu hans. Síð-
asta umferð Evrópumóts
landsliða fer fram í dag í
Leon á Spáni. Mótið hefur
án efa verið mjög lærdóms-
ríkt fyrir hinar ungu sveitir
Íslands. Hægt verður að
fylgjast með gangi mála á
http://www.euro-
leon2001.com.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 14.
nóvember, er áttræð Lovísa
Jónsdóttir, Austurbrún 6,
Reykjavík. Lovísa tekur á
móti ættingjum og vinum í
dag frá kl. 16 á heimili dótt-
ur sinnar á Öldugötu 48,
Hafnarfirði.
Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP.
Gefin voru saman
6. október sl. í
Akraneskirkju af
sr. Eðvarði Ing-
ólfssyni Guðrún
Linda Ólafsdóttir
og Skúli Heimir
Sigurjónsson.
Heimili þeirra er í
Reykjavík.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 14.
nóvember, er fimmtugur
Sigurður Konráðsson. Eig-
inkona hans er Kristín J.
Harðardóttir. Þau taka á
móti vinum og vandamönn-
um í Stélinu, Síðumúla, milli
kl. 20 og 23 í kvöld.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað.
Samþykki afmæl-
isbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
RABB Á vegum Rannsóknastofu
í kvennafræðum verður fimmtu-
daginn 15. nóvember í Norræna
húsinu kl. 12. Páll Biering hjúkr-
unarfræðingur segir frá nokkr-
um niðurstöðum úr doktorsrann-
sókn sinni: „Kynjamunur á
skilningi og viðhorfum ofbeldis-
fullra unglinga til unglingaof-
beldis“.
Tilgangur hennar var að
greina skýringarlíkön unglinga-
ofbeldis á meðal unglinga, sem
vistaðir voru á meðferðarstofnun
vegna ofbeldis og annarra hegð-
unarvandamála, foreldra þeirra
og ummönnunaraðila. Í rabbinu
verður fjallað um kynjamun sem
fram kemur í skýringarlíkönum
unglinganna.
Rabb á vegum
Rannsóknastofu
í kvennafræðum