Morgunblaðið - 14.11.2001, Qupperneq 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STRÍÐSREKSTURINN í Afg-
anistan, menntunarmál, að-
gengi fatlaðra, málefni fjöl-
skyldunnar, frammistaða
fjölmiðla og hvernig venju-
legur dagur í lífi forsetans
gengur fyrir sig var meðal
þess sem brann á framhalds-
skólanemum í Borgarholts-
skóla þegar Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands
heimsótti þá í gær. Í heim-
sókn sinni kynnti hann sér
mismunandi námsbrautir í
skólanum auk þess sem hann
opnaði nýja vefsíðu skólans
og veitti verðlaun í sam-
keppni um slagorð og auglýs-
ingu gegn reykingum.
Að loknu innliti á mismun-
andi námsbrautir skólans var
samkomustund á sal með fjöl-
breyttri dagskrá. Að loknu
tónlistaratriði nemenda bauð
skólameistari forseta velkom-
inn, nemendur lásu ljóð og
Sigursteinn Sigurðsson, for-
maður nemendafélags Borg-
arholtsskóla, tók til máls.
Ólafur Ragnar ávarpaði sal-
inn þar sem hann þakkaði
fyrir að hafa fengið að koma í
heimsókn á almennum starfs-
degi í skólanum. Meðal ann-
ars kom hann inn á forvarnir
í máli sínu og sagði sígarettur
líklega einu vöruna sem seld
væri á Íslandi sem beinlínis
dræpi fólk væri hennar neytt
eins og til væri ætlast. Fjöldi
þeirra sem létust vegna reyk-
inga árlega á Íslandi væri
svipaður og ef tvær flugvélar
færust þó að líklega myndu
óöruggar flugvélar vera
teknar úr umferð um leið og
upp um þær kæmust.
Þá opnaði Ólafur Ragnar
nýja heimasíðu skólans sem
nemendur á margmiðlunar-
braut eiga veg og vanda af og
að því loknu veitti hann verð-
laun fyrir samkeppni um
slagorð og auglýsingu gegn
reykingum. Það var Róbert
G. Jónsson sem hlaut verð-
laun fyrir besta slagorðið en
höfundur bestu auglýsing-
arinnar var Sóley Björk Stef-
ánsdóttir. Verðlaunin voru
stafrænar myndavélar sem
eflaust eiga eftir að koma
slíkum hugmyndasmiðum að
góðum notum.
Sendiráðið í Japan
of dýrt?
Í lok dagskrárinnar svaraði
Ólafur Ragnar spurningum
nemenda úr sal og voru þau
fjölbreytt og viðamikil mál-
efnin sem á þeim brunnu.
Fyrsta spurningin laut að
stríðinu í Afganistan og var
spurt um skoðun forsetans á
því hvort Bandaríkjamenn
væru fórnarlömb miðað við
fyrri aðgerðir þeirra í þess-
um löndum og hvort forsetinn
teldi rétt af Íslendingum sem
hlutlausri þjóð að styðja
stríðsaðgerðirnar í Afganist-
an.
Ólafur Ragnar svaraði því
til að óhjákvæmilegt væri að
reyna að koma í veg fyrir að
saklaust fólk léti lífið á sama
hátt og raunin varð hinn 11.
september. Stjórnvöldum í
Afganistan hefði verið gefið
tækifæri til að vinna með
Bandaríkjamönnum að því að
ná í hryðjuverkamennina.
Það hefðu þau ekki gert og
því hefði verið óhjákvæmilegt
að láta verkin tala. Ólafur
Ragnar sagði að þó að 5.
grein NATO-sáttmálans hefði
verið gerð virk hefði NATO
ekki tekið þátt í stríðsaðgerð-
unum hingað til. Því væri
ekki hægt að segja að Ísland
væri aðili að átökunum.
Nemandi á félagsfræða-
braut spurði forsetann hvort
ekki hefði mátt eyða minni
fjármagni í sendiráðið í Japan
og veita því frekar í mennta-
kerfið. Sagði Ólafur Ragnar
að Japan væri mjög dýrt land
og því væri óhjákvæmilegt að
sendiráð þar væri dýrt í upp-
byggingu. Hann teldi mik-
ilvægt að stuðla að sambandi
milli Íslands og Asíu en
treysti sér ekki til að dæma
um hvort hægt hefði verið að
byggja sendiráðið á ódýrari
hátt. Hann sagði mikilvægt
að menntamál hefðu forgang
því menntun væri besta fjár-
festingin sem Íslendingar
gætu lagt í og í því sambandi
sagðist hann ósáttur við að
menntun væri alltaf flokkuð
sem útgjöld og eyðsla en ekki
fjárfesting.
Einum nemandanum lék
forvitni á að vita hvernig
venjulegur dagur í lífi forset-
ans væri. Svaraði Ólafur
Ragnar því til að enginn dag-
ur væri venjulegur hjá sér
þar sem forsetaembættið
hefði margbreytilegum
skyldum að sinna. Annars
færi hann venjulega í svokall-
aða kraftgöngu úti við að
loknu morguntei og gerði æf-
ingar á eftir á meðan hann
hlustaði á fréttir í útvarpinu.
Hann notaði morgnana til að
semja ræður og færi á skrif-
stofuna síðdegis eða tæki á
móti fólki á Bessastöðum.
Stundum, þegar starfsdag-
urinn væri langur, færi hann í
ræktina eða sund síðdegis.
Oft lyki vinnudeginum ekki
fyrr en kl. 23–24 um kvöldið
en kosturinn væri að starfið
væri skemmtilegt og ögrandi
þar sem hann fengi tækifæri
til að hitta marga og fræðast
um fjölbreytileg málefni.
Erfitt að breyta
Bessastöðum
Spurt var um aðgengi fatl-
aðra á Bessastöðum og hvort
forsetinn beitti sér fyrir
bættu aðgengi fatlaðra í sam-
félaginu almennt. Sagði Ólaf-
ur Ragnar að hann hefði
reynt að hveta til þess að fatl-
aðir fengju tækifæri í sam-
félaginu á við aðra. Hins veg-
ar væri erfitt að koma því í
kring að breyta Bessastöðum
til að auðvelda aðgengi fatl-
aðra þar sem flest hús þar
væru friðuð. Þó hefði verið
reynt að haga málum þannig
að þegar fatlaðir heimsæktu
Bessastaði gætu þeir komist
um allt húsið hjálparlaust.
Nemandi, sem sagðist hafa
sérstakan áhuga á fjölskyldu-
málum, óskaði eftir að vita
hvort forsetinn hygðist beita
sér fyrir þeim málaflokki.
Ólafur Ragnar sagðist hafa
reynt að koma þeim boðskap
áleiðis að fjölskyldan væri
einn mikilvægasti vettvang-
urinn í samfélaginu og að í
henni væru fólgnar bestu for-
varnirnar. Ekkert eitt hefði
reynst jafn árangursríkt í
baráttunni gegn fíkniefnum
og samvera með fjölskyld-
unni.
Að lokum innti nemandi á
margmiðlunarbraut eftir
skoðun forsetans á því hvern-
ig fjölmiðlar nútímans stæðu
sig. Sagði Ólafur Ragnar að
hann teldi fjölmiðla að mörgu
leyti standa sig vel en þó hefði
skort á að þeir sinntu skyldu
sinni sem umræðuvettvangur
á undanförnum árum. Þannig
ættu fjölmiðlar að vera um-
ræðutorg sem stuðlaði að lýð-
ræðislegri umræðu í sam-
félaginu.
Forseti Íslands kynnti sér nám í Borgarholtsskóla og svaraði fyrirspurnum nemenda
Stundar kraftgöngu
daglega og skrifar
ræðurnar á morgnana
Morgunblaðið/Ásdís
Ólafur Ragnar afhendir Róberti G. Jónssyni verðlaun fyrir
besta slagorðið gegn reykingum en á milli þeirra stendur
Sóley Björk Stefánsdóttir sem gerði bestu auglýsinguna.
Forsetinn heimsótti meðal annars nemendur í bíl- og
málmskálum og kynnti sér námið sem þar fer fram.
Grafarvogur
BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar
hefur falið bæjarstjóra að rita yf-
irdýralækni bréf vegna málefna
minkabúsins Dalsbús í Helgadal en
að sögn bæjarstjóra telja nágrann-
ar búsins að fjölda lausra minka á
svæðinu megi rekja til þess að dýr
sleppi þaðan. Í eftirlitsferð héraðs-
dýralæknis í búið í gær kom fram
að unnið er að því að gera búið dýr-
helt.
Morgunblaðið greindi frá því á
sunnudag að tæplega 100 minkar
hefðu veiðst í Mosfellsbæ og ná-
grenni í ár og er það met að sögn
minkabanans þar. Að sögn Jó-
hanns Sigurjónssonar bæjarstjóra
telja nágrannar Dalbús að mink-
arnir komi þaðan. Hann segir það
sem snýr að frágangi búsins, s.s.
fráveitumál, umhverfisþætti og
reksturinn vera undir umsjón bæj-
aryfirvalda og heilbrigðiseftirlits
en það sem snúi að dýrahaldi, þ.e.
aðbúnaði og umgjörð dýranna, sé á
hendi héraðsdýralæknis og þar
með yfirdýralæknis. Því hafi hon-
um verið falið að skrifa yfirdýra-
lækni vegna málsins þar sem óskað
væri eftir því að tekið yrði á þess-
um málum.
Aðspurður segir hann bæjaryf-
irvöld hafa reynt að þrýsta á um
bætur. „Það sem við höfum verið
að horfa á eru þessi girðingamál
því menn vilja meina að minkurinn
geti sloppið út og það sé eitthvað
sem þurfi að laga.“
Fellst ekki á að
hafa tapað dýrunum
Gunnar Örn Guðmundsson, hér-
aðsdýralækir í Gullbringu- og
Kjósarsýslu, fór í eftirlitsferð í
minkabúið í gær en slík eftirlits-
ferð var síðast farin í fyrra. Hann
segir málin hafa verið rædd en ver-
ið sé að vinna í því að gera búið
dýrhelt. Búið sé að óska eftir
skýrslu frá minkabananum í Mos-
fellsbæ um málið en hún hafi ekki
borist. „Þetta vill nú reyndar víða
koma fyrir þrátt fyrir að maður
telji að búrin séu dýrheld því það
eru kannski einhver mannleg mis-
tök eða eitthvað slíkt sem gerir það
að verkum að dýrin sleppa út,“
segir Gunnar.
Hann segir eiganda búsins ekki
fallast á að hafa tapað eins mörg-
um dýrum og haldið sé fram og erf-
itt geti verið að sanna að dýrin séu
frá honum komin. Aðspurður segir
hann að erfitt geti verið að knýja á
um úrbætur því ekki séu til ákvæði
í reglugerðum sem heimili beitingu
dagsekta í slíkum tilfellum. Hins
vegar telji hann að þau úrræði sem
gripið hefur verið til eigi að nægja
til að halda dýrunum í skefjum.
Héraðsdýralæknir í eftirlitsferð í
minkabúið í Helgadal í gær
Unnið að úrbótum
Mosfellsbær