Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 14

Morgunblaðið - 14.11.2001, Síða 14
Féll niður í kjallara Keflavík - Slys varð við Myllu- bakkaskóla í Keflavík síðastliðinn föstudag. Tíu ára drengur hlaut höfuðmeiðsl. Lögreglunni var tilkynnt um óhappið klukkan rúmlega hálftólf. Þarna hafði 10 ára drengur fallið aftur fyrir sig, 1,30 metra fall, yfir steyptan kant við kjallaratröppur og kom niður á andlitið. Hann var fluttur á Sjúkrahús Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja og var lagður inn að skoðun lokinni, en hann var með stóra kúlu á enni og mun hafa hlotið heilahristing. AKUREYRI 14 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SUÐURNES HVÍTT duft hrundi í gær úr um- slagi sem fylgdi kaffibaunasend- ingu frá Rúanda. Bréfið var opnað í gámi í vörugeymslu í Keflavík. Starfsmaður kaffibrennslunnar komst í snertingu við duftið og gekkst hann undir læknisskoðun í Reykjavík vegna möguleika þess að um miltisbrandsgró væri að ræða. Gámurinn var í vörugeymslu á vegum Flutningaþjónustu Gunn- ars. Starfsmaður Kaffitárs ehf. í Njarðvík sem átti vörusendinguna fleygði frá sér bréfinu þegar hann varð var við duftið og lét yfirvöld vita. Það var rétt fyrir klukkan hálfellefu í gærmorgun. Eiturefna- sveit Brunavarna Suðurnesja kom á staðinn ásamt lögreglu. Bréfið var sett í loftþéttan plast- poka og samkvæmt ósk smitsjúk- dómalæknis var síðan farið með það til rannsóknar á sýkladeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík. Samkvæmt upplýsing- um lögreglunnar í Keflavík tekur það um það bil sólarhring að fá niðurstöðu um það hvort þarna er um miltisbrand að ræða. Gámurinn var innsiglaður og svæðið hreinsað. Fyrirtækinu var lokað það sem eft- ir lifði dags þótt vörur úr gámnum hefðu ekki verið fluttar þangað. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Slökkviliðsmaður fer með poka með umslaginu og hvíta duftinu í lög- reglubíl. Duftið er nú til rannsóknar. Viðbúnaður vegna hvíts dufts frá Rúanda Keflavík/Njarðvík UNGUR maður var fluttur á sjúkra- hús eftir bílveltu út af Sandgerðis- vegi um kl. hálfátta í gærmorgun. Ökumaðurinn, sem var einn á ferð, kastaðist út úr bílnum við veltuna. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala – háskólasjúkrahús en meiðsli hans voru ekki talin lífs- hættuleg. Hann var lagður inn á sjúkrahúsið. Hálka var á veginum, að sögn lög- reglunnar í Keflavík. Kastaðist út úr bíl Sandgerði Vogar - Traktorsgrafa og fólks- bifreið lentu í árekstri í Vogum að morgni síðastliðins mánudags. Óhappið varð á gatnamótum Tjarnargötu og Stapavegar. Fólks- bifreiðin var talsvert mikið skemmd og var tekin af vettvangi með drátt- arbíl. Engin slys urðu á fólki. Grafa í árekstri Stofnað Sam- fylkingarfélag Sandgerði - Stofnað hefur verið Samfylkingarfélag í Sandgerði. Sigurbjörg Eiríksdóttir bæj- arfulltrúi var kosin formaður. Stofnfundur Samfylkingar- félagsins í Sandgerði var vel sótt- ur, samkvæmt upplýsingum for- manns. Gestir fundarins voru alþingismennirnir Rannveig Guð- mundsdóttir og Sigríður Jóhann- esdóttir. Með Sigurbjörgu í stjórn eru Sturla Þórðarson tannlæknir og Ólína Ólafsdóttir, starfsmaður íþróttahúss. Í varastjórn eru Ólaf- ur Gunnlaugsson trésmíðameistari og Hannes Jóhannsson vélvirki. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Keflavík - Hljómsveitirnar Rými, Vei og Gismo leika á Musterisfestiv- alinu á sal Fjölbrautaskóla Suður- nesja í kvöld klukkan 20. Nemenda- félag FS er að endurvekja Must- erisfestivalið og stendur til að halda reglulega tónleika undir þessu nafni í vetur. Musterisfestiv- al endurvakið ATVINNULAUSUM á Akureyri hefur fjölgað nokkuð að undan- förnu. Um síðustu mánaðamót voru 279 manns á atvinnuleysisskrá í bænum samkvæmt yfirliti frá Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra, 147 konur og 132 karlar. At- vinnulausum fjölgaði um 18 frá mánuðinum á undan en þá voru 137 konur og 124 karlar á skrá. Um mánaðamótin október-nóv- ember í fyrra voru hins vegar 75 karlar og 42 konur án atvinnu á Ak- ureyri, eða rúmlega 160 færri en á sama tíma í ár. Í Ólafsfirði hefur atvinnulausum einnig fjölgað á milli mánaða. Um síðustu mánaðamót voru 38 á skrá, 28 konur og 10 karlar. Mánuði fyrr voru 32 á skrá, 26 konur og 6 karl- ar. Fyrir ári voru atvinnulausir í Ólafsfirði 31, 23 konur og 8 karlar. Atvinnulausum fækkaði í Dalvíkurbyggð Atvinnuástandið í Dalvíkurbyggð er nokkuð gott um þessar mundir en þar fækkaði um einn á atvinnu- leysisskrá á milli mánaða. Um síð- ustu mánaðamót voru þar 8 á skrá, 5 karlar og 3 konur. Í mánuðinum á undan voru jafn margir karlar á skrá og 4 konur. Um mánaðamótin október-nóvember í fyrra voru 6 manns á atvinnuleysisskrá í Dalvík- urbyggð, 1 karl og 5 konur. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á laugardag voru 411 manns á atvinnuleysisskrá á öllu Norðurlandi eystra um síðustu mánaðamót 178 karlar og 233 kon- ur. Mánuði fyrr voru 371 á skrá, 152 karlar og 233 konur. Fjölgunin á milli mánaða er því 40 manns og er um helmingur fjölgunarinnar á Akureyri. Um mánaðamótin októ- ber-nóvember í fyrra voru 227 manns á atvinnuleysisskrá í kjör- dæminu, 157 konur og 70 karlar og er fjölgunin á milli ára því tæplega 200 manns. Atvinnulausum fjölgar á Akureyri Fjölgunin á milli ára yfir 160 manns NÚ styttist í að bílaumferð verði hleypt á göngugötuna á Akureyri en eins og kunnugt er hefur bæj- arstjórn Akureyrar samþykkt að breyta göngugötunni í vistgötu og opna hana fyrir bílaumferð alla virka daga frá kl. 8-22. Í vistgötu eiga gangandi vegfar- endur réttinn gagnvart bílaum- ferð. Ráðist var í bráðabirgða- framkvæmdir í götunni, búið er að mála línur fyrir bílaumferðina, mála bílastæði sem verða 17 í götunni og setja upp staura fyrir stöðumæla. Í kjölfarið hefur bílaumferð í götunni aukist nokkuð, þótt breytingin hafi enn ekki tekið gildi. Í byrjun næsta árs er svo hug- myndin að bjóða út framkvæmdir við umfangsmiklar breytingar á götunni. Morgunblaðið/Kristján Starfsmenn Símans unnu að því í gær að losa upp festingar fyrir síma- klefa sem staðsettur var í göngugötunni. Þótt bílaumferð hafi enn ekki verið hleypt á götuna með formlegum hætti er þar nokkur umferð yfir daginn og eins og sést á myndinni eru bíleigendur þegar farnir að prófa nýju bílastæðin. Styttist í bílaumferð um göngugötuna ferða- og atvinnumálafulltrúi taki til starfa 1. janúar nk. Umsækjendur um stöðuna eru: Annette Mönster, Akureyri, Arnþór Guðjón Benedikts- son, Dalvík, Auður Herdís Sigurðar- dóttir, Reykjavík, Björn Björnsson, Reykjavík, Björn Sigurður Lárus- son, Akranesi, Grímur Halldórsson Laxdal, Mosfellsbæ, Gunnþóra Kristín Ingvadóttir, Akureyri, Guð- rún Gunnsteinsdóttir, Stavanger í Noregi, Heiðar Ingi Svansson, Kópa- MIKILL áhugi er fyrir starfi ferða- og atvinnumálafulltrúa Dalvíkur- byggðar, ef marka má fjölda um- sókna um stöðuna. Alls barst 21 um- sókn frá fólki víðs vegar af landinu og alla leið frá Noregi. Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, bæjarritari í Dalvík- urbyggð, sagði að umsóknirværu mun fleiri en gert hefði verið ráð fyr- ir. Hér er um nýtt starf að ræða í sveitarfélaginu og er gert ráð fyrir að vogi, Jóhann Jónsson, Hrísey, Krist- rún Ásgeirsdóttir, Selfossi, Kormák- ur Bragason, Kópavogi, Kristján J. Kristjánsson, Akureyri, Lárus Páll Pálsson, Borgarnesi, Soffía Michiko Gústafsdóttir, Selfossi, Sveinn Arn- dal Torfason, Dalvík, Sveinn Rúnar Traustason, Akureyri, Valdimar Thor Hrafnkelsson, Dalvík, Þórður Kristleifsson, Reykjavík, Þorvaldur Guðmundsson, Selfossi, Ægir Þor- mar Dagsson, Akureyri. Ferða- og atvinnumálafulltrúi Dalvíkurbyggðar Tuttugu og ein um- sókn um stöðuna HEIMAMAÐURINN Halldór Brynjar Halldórsson sigraði með glæsibrag á Unglingameistara- mótinu í skák, sem fram fór á Ak- ureyri um síðustu helgi. Halldór Brynjar fann sig vel á heimavelli, hlaut 6,5 vinninga af 7 mögulegum en þetta var í fyrsta skipti sem mótið er haldið á Akureyri. Björn Ívar Karlsson frá Vest- mannaeyjum hafnaði í öðru sæti með 5,5 vinninga en þeir Stefán Bergs- son, Akureyri, og Birkir Örn Hreins- son, Kópavogi, urðu jafnir í þriðja til fjórða sæti með 5 vinninga. Unglingameistaramót Íslands í skák Heimamað- urinn sigraði örugglega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.