Morgunblaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 39 Laugavegi 24 Pantanir í síma 552 0624 Barnamyndatökur                                 M O N S O O N M A K E U P lifandi litir LILJA Hilmarsdóttir fararstjóri hjá Samvinnuferðum-Landsýn af- hendir Stefaníu Guðmundsdóttur starfsmanni Hreyfils gjafabréf með ferð til Kúbu. Á myndinni eru líka Sæmundur Kr. Sig- urlaugsson forstjóri Hreyfils og Elías Höskuldsson frá flugfélag- inu Atlanta. Stefanía lét þess getið í viðtali við VR-blaðið vegna fimmtíu ára starfsafmælis síns hjá bifreiða- stöðinni Hreyfli að hún ætti þá ósk heitasta að komast til Kúbu. Af því tilefni ákváðu Sam- vinnuferðir-Landsýn, Hreyfill og flugfélagið Atlanta að gefa henni ferð sem farin verður til Kúbu 14.-21. nóvember. Morgunblaðið/Kristinn Boðið til Kúbu NORICE er sameignarfélag Íslend- inga í Noregi og Danmörku. Starf- semi NorIce felst í aðstoð við Íslend- inga er óska að flytja til Norðurlandana vegna skóla eða at- vinnu. NorIce var stofnað haustið 1999. „Atvinnuástandið er sérstaklega gott í Noregi og er atvinnuöryggið þar mun betra en Íslendingar eru vanir. Í Danmörku og Svíþjóð er at- vinnuástandið ágætt en mikið at- vinnuleysi ríkir í Finnlandi,“ segir í fréttatilkynningu. „Þar sem gengi íslensku krónunar hefur lækkað mjög mikið gagnvart öðrum gjaldmiðlum á Norðurlöndum er mjög hagstætt flytja út núna. Norska krónan hefur einnig styrkst og hefur ekki verið sterkari í langan tíma. Miðað við Íslendinga sem fluttu til Noregs fyrir ári má segja að þeir hafi fengið um 30% launahækk- un vegna gengisbreytinga sem er mikil kjarabót. Á nýrri heimasíðu NorIce, www.hallonordem.org gefst Íslend- ingum kostur á að skrá umsóknir um störf hjá 11 atvinnumiðlunum á Norðurlöndum. Þetta eru 5 stærstu atvinnumiðlanir Noregs, 4 atvinnu- miðlanir í Danmörku og 2 atvinnu- miðlanir í Svíþjóð. Af þeim umsókn- um sem nú þegar eru skráðar hafa 40% umsækjenda fengið tilboð um starf eftir 3 vikur og 20% eftir 5 vik- ur,“ segir þar ennfremur. Aðstoða Ís- lendinga sem vilja flytja til Norðurlanda SIGRÚN Aðalbjarnardóttir prófess- or heldur fyrirlestur föstudaginn 16. nóvember í málstofu uppeldis- og menntunarfræðiskorar undir heitinu „Í ljósi breyttrar heimsmyndar: Sam- félagsvitund og samkennd.“ Fyrirlesturinn verður kl. 12.05 – 13, í stofu 101 Odda, Háskóla Íslands. Fjallað verður um virðingu sem brýnan þátt í gefandi samskiptum og undirtón þess að móta réttlát sam- félög, hvort sem þau eru stór eða smá: Heimili, skóli, vinnustaður, ríki eða samfélög þjóða. Sigrún Aðalbjarnardóttir er pró- fessor í uppeldis- og menntunarfræði við félagsvísindadeild Háskóla Ís- lands. Rannsóknir hennar eru á sviði félagsþroska og samskiptahæfni, áhættuhegðunar ungs fólks – lang- tímarannsókn og fagmennsku kenn- ara. Hún er þátttakandi í evrópska samvinnuverkefninu Children’s Iden- tity and Citizenship in Europe, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis Fyrirlestur um samfélagsvitund og samkennd FERMINGARBÖRN í 33 sóknum um allt land gengu í hús mánudaginn 5. nóvember og söfnuðu 3 milljónum króna til verkefna í Afríku. Þau höfðu fengið fræðslu um helstu erf- iðleika sem við er að etja í löndum þriðja heimsins. Hjálparstarf kirkjunnar þakkar landsmönnum góðar viðtökur og stuðning. Þetta er í þriðja sinn sem þessi fræðsla og söfnun fer fram og söfnunarfé rennur óskert til verk- efna í Mósambík og Eþíópíu. Þrjár milljónir söfnuðust

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.