Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 40

Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 40
DAGBÓK 40 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Barn yfir á rauðu ljósi FYRIR stuttu var ég að fylgja dóttur minni í skóla. Á gangbraut á móts við Hlíðarskóla við Hamrahlíð- ina var á undan okkur 10–11 ára gömul stúlka sem var að koma að gangbrautinni þeg- ar strætisvagn kemur, flaut- ar á hana og þegar hún lítur upp bendir bílstjórinn henni á að fara yfir á rauðu ljósi. Það undrar mig að bíl- stjórinn skuli hafa gert þetta og finnst mér þetta mjög ámælisvert, þ.e. að hvetja barn til að fara yfir á rauðu ljósi. Vala Björg. Bubbi og Esso MIG langar að koma á framfæri þakklæti til Esso fyrir að hafa fengið Bubba Morthens til að koma í heimsókn í Austurbæjar- skólann 6. nóv. sl. og fræða nemendur um fíkniefna- vandann og afleiðingar hans. Bubbi talaði við nem- endur á þeirra tungumáli og var frábær. Vil ég þakka Bubba fyrir gott erindi. Katrín íþróttakennari. Kraftlýsi fáanlegt VEGNA skrifa sem hafa verið að undanförnu um Kraftlýsi á Djúpavogi, þá vil ég koma því á framfæri að búið er að endurskipuleggja rekstur Kraftlýsis og er starfsemin nú komin aftur í fullan gang, og verður há- karlalýsið áfram selt undir sömu vörumerkjum og áð- ur. Hákarlalýsið fæst nú í flestum heilsubúðum, þar á meðal öllum búðum Heilsu- hússins, ásamt fiskbúðum og matvöruverslunum víða um land. Jóhann Hjaltason. Fyrirspurn MIG langar til að spyrja í tilefni af nýlega gengnum dómi um kynþáttamál hér í Reykjavík hvort ekki væri rétt að lögmætir aðilar stöðvuðu sýningar á Töfra- flautunni eftir Mozart vegna kynþáttafordóma. Þar er persóna sem heitir Monos- tats sem alla tíð hefur verið hafður svartur. Ég ætla að benda þeim á sem áhuga hafa á að kæra kynþáttamál að láta loka þessari sýningu. Sr. Kolbeinn Þorleifsson, Ljósvallagötu 16. Tapað/fundið Sérsmíðuð skóinnlegg týndust SÉRSMÍÐUÐ skóinnlegg frá Stoðtækni týndust í Kringlunni föstudaginn 9. nóv. milli kl. 13 og 13.30. Þau hafa gleymst í kerru uppi á 2. hæð við útgang hjá Hagkaup. Þessi innlegg hafa mikið notagildi fyrir eiganda og er þeirra sárt saknað. Þeir sem hafa séð þessi innlegg eða vita hvar þau eru eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Guðrúnu í síma 697 3765. Kerrusvunta í óskilum BLÁ kerrusvunta með gul- köflóttum köntum er í óskil- um hjá Tex Mex, Langholts- vegi 89. Uppl. á staðnum eða í síma 588 7999. Svört handtaska týndist SÍÐDEGIS mánudaginn 5. nóv. sl. týndist svört hand- taska í miðbæ Reykjavíkur. Á henni var lítið merki þar sem stendur Icelandair. Í töskunni er snyrtidót af ýmsu tagi, drappleit skyrta og þverröndótt vesti. Þeir sem kunna að búa yfir upp- lýsingum um hvar umrædd taska er niðurkomin eru beðnir að hafa samband í síma 461 1601 á daginn en 462 1100 á kvöldin. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... ALLTAF er það hvimleitt þegarmenn vilja ekki kannast við gerðir sínar eða mistök sín. Þetta kemur m.a. fram í því að menn sem verða fyrir því að aka á kyrrstæðan bíl, t.d. á bílastæði, stinga af og kom- ast upp með það. Nýverið varð dóttir Víkverja fyrir því að væn dæld og rispur komu á bíl hennar þar sem hún stóð á stæði við hina nýju Smáralind. Annaðhvort hefur bílhurð verið opnuð þetta harkalega eða horn á bíl rekist í með þessum afleiðingum. Í það minnsta er skemmdin slík að ómögulegt er annað en að sá sem henni olli hafi orðið var við hana. Þegar dóttirin varð beyglunnar vör kannaði hún hvort bíll við hlið hennar bíls gæti hafa valdið tjóninu en það gat varla átt sér stað þar sem hann var lítill og beyglan nokkuð hátt á hlið bílsins. Viðkomandi hafði því laumast burtu. Heldur er það lágkúrulegt að stinga af frá svona. Það er hins vegar ódýrast fyrir tjónvaldinn. Dóttirin situr því uppi með viðgerð upp á nokkur þúsund krónur, kannski 10– 20 þúsund, því nokkra tíma hlýtur að taka að rétta og pússa og mála svona dæld. Menn hafa hins vegar enga af- sökun fyrir svona framkomu. Ef menn þykjast ekki geta skilið eftir skilaboð á viðkomandi bíl er eina vitið að hafa samband við lögreglu og fá uppgefinn eiganda til að gera málið upp. Sérlega einfalt og það eina rétta. x x x NÝLEGA gekk fyrsta alvarlegaóveðurshrina vetrarins yfir landið og var hún nokkuð óvægin. Skip lentu í erfiðleikum, hús skemmdust, bryggjur flutu af stað, bílar ultu og gámar fuku svo fátt eitt sé nefnt. Við kippum okkur svo sem ekki alvarlega upp við þessi tíðindi, setjum undir okkur hausinn, reynum að þola tjónið og fáum kannski bætur en greiðum svo úr vandanum og dag- lega lífið heldur áfram. Þetta er bara þáttur í því að búa á ísa köldu landinu og við stórborgarbörnin sem búum við birtu og yl breiðum bara betur yf- ir okkur við sjónvarpið og maulum meira nammi. Látum eins og þetta skipti okkur engu og bíðum betri tíð- ar með blóm í haga. Ef við höfum rænu á að líta upp úr þægindunum rifjast það upp fyrir okkur að ýmsir þurfa að leggja tals- vert á sig í lífsbaráttunni og ýmsir eru mjög svo háðir veðri og vindum í afkomu sinni, þessum hlutum sem við ráðum svo ósköp lítið við. Sjómenn róa ekki nema vel viðri nema á stóru skipunum og þar er ekki allt tekið út með sældinni, bændur eiga allt sitt undir heyfeng og vænum dilkum og ýmis önnur störf eru háð þessum ytri aðstæðum. Þetta vill kannski stund- um gleymast hjá okkur sem höldum að peningarnir verði til í bönkunum og að allur gróði og arður felist í verðbréfahöndli. Lífið er ekki alveg svo einfalt og flest þurfum við að leggja ýmislegt annað og meira á okkur en svo að geta lesið peningana nánast fyrirhafnarlaust af trjánum. Í þessu sambandi má kannski til gamans rifja upp eitt lögmál Murph- ys sem Víkverji vitnar gjarnan til. Þar segir nefnilega að það er ekkert eins einfalt og það sýnist. Þetta er mikil og gagnmerk speki eins og lesendur hljóta að sjá! Hve- nær eru hlutirnir eins einfaldir og þeir sýnast? Lífið er ekki bara svart eða hvítt. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 LÁRÉTT: 1 skjóta af byssu, 4 sigr- ar, 7 talaði um, 8 dulu, 9 spil, 11 duglega, 13 syrgi, 14 brotlegur, 15 vinna, 17 spil, 20 geymir, 22 yfir- hafnir, 23 mæti, 24 rás, 25 deila. LÓÐRÉTT: 1 viðburðarás, 2 fornrit- ið, 3 lengdareining, 4 höggva, 5 fuglar, 6 rödd, 10 núningshljóð, 12 ílát, 13 illgjörn, 15 þýðgeng- ur, 16 niðurgangurinn, 18 skerðum, 19 ráfa, 20 þroska, 21 hljómur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 skýrleiki, 8 totum, 9 rokið, 10 ann, 11 forað, 13 ausur, 15 moska, 18 sinna, 21 tóm, 22 græða, 23 andar, 24 aumingjar. Lóðrétt: 2 kætir, 3 rómað, 4 eyrna, 5 kokks, 6 stef, 7 úð- ar, 12 auk, 14 uxi, 15 magi, 16 skæru, 17 ataði, 18 smaug, 19 nudda, 20 aurs. K r o s s g á t a MIG langaði að forvitn- ast hvernig stæði á því hve Morgunblaðið kynn- ir illa sjónvarps- dagskrána í blaðinu hjá sér, það var sú tíð er Mbl. var með sérblað á fimmtudögum um sjón- varpsdagskrána og gerði því ítarleg skil en er hætt því, af hverju veit ég ekki, eins og þetta er í dag er sára- lítil umfjöllun um þætti, og bíómyndir um helgar er oft bara sagt hverjir eru í aðalhlutverki, það er varla að það sé 30% af einni blaðsíðu um- fjöllun um íslenskt sjón- varp, það mætti vera heil opna með mikla um- fjöllun, sérstaklega um bíómyndir með góðum myndum með til að auka áhorf. Mér finnst þetta bara svo skrítið þar sem sjónvarpið skipar stóran sess í lífi landsmanna og Mbl. er öflugasti fjöl- miðill landsins og lang- ítarlegastur á flestum sviðum. Þið mættuð taka Séð og heyrt ykkur til fyrirmyndar varðandi sjónvarpsdagskrá. Gísli Aðalsteinn Jónasson, Keflavík. Illa kynnt dagskrá Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur og fer í dag. Arnarfell kemur í dag, Goðafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Sel- foss fer í dag, Jóhann kom í gær. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Sól- vallagötu 48. Skrifstofa s. 551-4349, flóamark- aður, fataúthlutun og fatamóttaka, sími 552- 5277, eru opin miðvikud. kl. 14–17. Mannamót Aflagrandi 40, kl 9 og kl. 13 vinnUstofa og postulín, nýtt námskeið í jóga hefst í dag kl. 17 komum fleirum að í námskeiðið, skráning í afgreiðslu s. 562-2571. Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta og opin handavinnustofan, kl. 13 spilað, kl. 13–16.30 opin smíðastofan, kl. 10 pútt- völlurinn opinn. Allar uppl. í s. 535-2700. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8– 13 hárgreiðsla, kl. 8– 12.30 böðun, kl. 9–12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna og fótaað- gerð, kl. 10 banki, kl. 13 spiladagur, kl. 13–16 vefnaður. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13–16.30, spil og föndur. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9–12 aðstoð við böðun, kl. 9– 16.45 hárgreiðslu-og handavinnustofur opnar, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 14.30 banki. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15– 16. Skrifstofan í Gull- smára 9 opin í dag kl. 16.30–18. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Borgarleik- húsið 15. nóv. kl. 20. Miðapantanir sem fyrst í síma 820-8571 eftir há- degi. Rúta frá Kirkju- hvoli kl. 19.15. Stunda- skrá í hópastarfi er auglýst á töflu kjall- aranum í Kirkjuhvoli og á www.fag.is. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Línudans kl. 11, mynd- list kl. 13, pílukast kl. 13.30. Tölvunámskeið í Flensborg kl. 17. Á morgun verður pútt í Bæjarútgerðinni kl. 10 og glerskurður í Hraun- seli kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Miðvikud.: Göngu-Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði, Glæsibæ, kl. 10. Söng- félag FEB, kóræfing kl. 17. Línudanskennsla fellur niður. Brids- námskeið kl. 19.30. Fimmtud.: Brids kl. 13. Framsögn kl. 16.15. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum kl. 10– 12. Skrifstofan er flutt að Faxafeni 12, sama símanúmer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði, Glæsibæ. Uppl. á skrifstofu FEB. kl. 10– 16, s. 588-2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 fótaaðgerð, opin vinnu- stofa, postulín, mósaik og gifsafsteipur, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 9–16 böðun. Opið alla sunnu- daga frá kl. 14–16, blöðin og kaffi. Farið verður að sjá leikritið „Með vífið í lúkunum“, föstudaginn 16. nóvember, miða- pantanir fyrir 14. nóv. Hæðargarði s. 568-3132. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, frá há- degi spilasalur opinn. Föstudaginn 16. nóv- ember kl. 16 verður myndlistarsýning Krist- ínar Bryndísar Björns- dóttur opnuð. Sunnu- daginn 15. nóv. kl. 14. syngur Gerðubergskór- inn við guðsþjónustu í Kópavogskirkju, m.a. fjölbreytt söngdagskrá. Upplýsingar um starf- semina á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 10–17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb. Söngfuglarnir taka lagið kl. 15.15. Guð- rún Lilja mætir með gít- arinn. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 13 ker- amikmálun. Bún- aðarbankinn með þjón- ustu í Gullsmára kl. 10, boccia kl. 14. Hraunbær 105. Kl. 9 op- in vinnustofa, handa- vinna, bútasaumur, kl. 9–12 útskurður, kl. 9–17 hárgreiðsla og fótaað- gerðir, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 böðun, föndur- klippimyndir, kl. 13.30, gönguferð, kl. 15 teikn- un og málun. Fótsnyrt- ing, hársnyrting. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun fimmtud. 15. nóv. kl. 10 í keilu í Mjódd. Spiluð keila, spjallað og heitt er á könnunni. Allir vel- komnir. Upplýsingar veitir Þráinn Haf- steinsson í s. 5454-500 Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–16 fótaaðgerðir, kl. 9– 12 tréskurður, kl. 10 sögustund, kl. 13 banki, kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.25 sund, kl. 9–16 fótaaðgerð og hárgreiðsla, kl. 9.15– 16 postulínsmálun og myndmennt, kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13– 16 tréskurður. Fimmtu- daginn 15. nóvember verður fyrirbænastund í umsjón séra Hjálmars Jónssonar dóm- kirkjuprests, allir vel- komnir. Jólafagnaður verður fimmtudaginn 6. desember, jólahlaðborð, söngur, hljóðfæraleikur, danssýning og fleira, nánar auglýst síðar. Föstudaginn 16. nóv- ember dansað í kaffitím- anum við lagaval Hall- dóru, gott með kaffinu, allir velkomnir. Vitatorg. Kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 10 fóta- aðgerðir, morgunstund, bókband og bútasaum- ur, kl. 12.30 versl- unarferð, kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband, kl. 15.30 kóræfing. Félagsstarf aldraðra, Bústaðakirkju. Fé- lagsstarf aldraðra í Bú- staðakirkju. Helgistund í kirkju kl. 11, súpa, brauð, spjall og fl. Kl. 13–16.30 handavinna, spilað og föndrað og góður gestur í heimsókn. Þið sem viljið láta sækja ykkur, vinsamlega látið Sigrúnu vita í síma 864- 1448, eða kirkjuvörð í síma 553-8500. Álftanes. For- eldramorgna í Hauks- húsum kl. 10–12 í dag. Heitt á könnunni. ITC-deildin Melkorka heldur fund í Gerðu- bergi í kvöld, 14. nóv., kl. 20. Stef fundarins er „Æfingin skapar meist- arann“. Gestur fund- arins er dr. Zuilma Gabríela Sigurðardóttir lektor hjá félagsvís- indadeild Háskóla Ís- lands. Allir velkomnir Uppl. veitir Jóhanna Björnsdóttir s. 553-1762 og 552-4400, netfang: hannab@isl.is. Hana-nú, Kópavogi. Fundur í Bókmennta- klúbbi kl. 20 í kvöld á Lesstofu Bókasafns Kópavogs. Gestur kvöldsins er Matthías Johannessen skáld. Fjallað verður um verk Tómasar Guðmunds- sonar. Minnt er á dag ís- lenskrar tungu á Bóka- safni Kópavogs föstudaginn 16. nóv- ember en þar munu fé- lagar í Bókmennta- klúbbi Hana-nú taka þátt í „maraþon“- upplestri frá kl. 13–17 ásamt öllum þeim sem vilja taka þátt í lestr- inum. Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra, Skógarhlíð 8. Opið hús í kvöld frá kl. 20.30. Sig- urður Böðvarsson krabbameinslæknir flyt- ur erindi um húð- krabbamein. Allir vel- komnir. Í dag er miðvikudagur 14. nóv- ember, 318. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Enginn skapaður hlutur er honum hulinn, allt er bert og önd- vert augum hans. Honum eigum vér reikningsskil að gjöra. (Hebr. 3, 13.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.