Morgunblaðið - 23.01.2002, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.01.2002, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sími 525 3000 • www.husa.is 4.495kr. Bita- og borasett 112 stk Verð áður 6.337 kr. Verkfæra dagar Sólarkaffi Ísfirðinga Fagna endur- komu sólarinnar SÓLARKAFFI Ís-firðinga á sér langahefð, margra ára- tuga hefð ef grannt er skoðað. Hefðin fyrir vest- an tengist „komu sólarinn- ar“ en ekki sér til hennar í nokkrar vikur um hávet- urinn vegna fjallaum- gjarðar bæjarins. Vest- firðingar, og þá ekki síst Ísfirðingar, eru og fjöl- mennir á höfuðborgar- svæðinu og þeir láta sitt ekki eftir liggja, halda úti öflugu félagsstarfi og hafa árlegar uppákomur, m.a. Sólarkaffi Ísfirðinga, sem haldið verður á Hótel Sögu nk. föstudag. Kol- brún Sveinbjarnardóttir, stjórnarmaður í Ísfirð- ingafélaginu, hefur haft veg og vanda af skipulagningu Sólarkaffisins að þessu sinni og hún svaraði nokkrum spurning- um Morgunblaðsins. Hvernig er þetta með sólar- ganginn á Ísafirði? „Hún hverfur okkur sjónum í nóvember, það fer reyndar eftir veðurfari hvaða dag hún kveður, en bærinn er svo hömrum girtur, að í svartasta skammdeginu nær hún ekki upp fyrir fjallsbrúnir. Þetta eru alveg átta vikur sem ekki sér til sólar, en 25. janúar gægist hún hins vegar aftur upp ef veður leyfir og þann dag hafa Ísfirðingar haldið upp á. Fyrstu sólargeislarnir sjást fyrst á Gleið- arhjalla í Eyrarfjalli. Gleiðarhjalli heitir eftir tröllskessu sem hét Gleiða. Í bænum koma fyrstu geislarnir í Sólgötuna, sem áður hét Steypuhúsgata því þar voru fyrstu steinhúsin í bænum reist snemma á síðustu öld. Þegar sólin sendir fyrstu geisla hvers árs má finna pönnukökuilminn um allan bæ, en þó fer það nokkuð eftir hverfum hvar ilmurinn er. Það er til í dæminu að fólk kíki í kaffi til fólks neðarlega í bænum, t.d. á Sólgötunni, og síðan getur það mætt í kaffi ofar í bænum þegar frá líður og fleiri hverfi sjá sól- argeislana!“ En hvernig er þetta með Sólar- kaffið í Reykjavík? „Það er mikil og gömul hefð fyrir þessu og Sólarkaffið núna, sem við höldum á Hótel Sögu, verður hið fimmtugasta og sjö- unda í röðinni. Í upphafi var þetta gert til að hittast og gleðjast sam- an og það má segja að það sé enn það sem heldur þessu gangandi. Hins vegar varð þessu fólki ljóst að ein samkoma á ári var alls ekki nóg. Við bættum við Kirkjukaffi á vorin, þar sem kór brottfluttra Ís- firðinga tekur jafnan lagið, og á haustin hittumst við einnig til að kveðja sólina. Það höfum við gert í seinni tíð í Eden í Hveragerði.“ Hvað er þetta stór félagsskap- ur og hvað mæta margir í Sólar- kaffið? „Það eru milli 800 og 900 fé- lagar í Ísfirðingafélaginu í Reykjavík og mest hafa komið um 900 manns í Sólar- kaffið. Þá var það hald- ið á Broadway og var mikið stuð. Við færðum okkur út á Hótel Sögu núna vegna þess að í fyrra komu aðeins um 500 manns í kaffið og staður eins og Broad- way gleypir þann fjölda. Okkur þykir leitt að það skuli hafa fækk- að aðeins hjá okkur og við leitum leiða til að hressa við mætinguna á ný. Það er aðallega yngra fólkið sem lætur sig vanta og við þurf- um að fitja upp á einhverju til að laða það að aftur. Hins vegar verður að segja, að það er gífur- leg stemming fyrir Sólarkaffinu og ég veit mörg dæmi um fólk sem ætlar að keyra suður til að taka þátt í samkomunni.“ Er þetta bara kaffiþamb? „Nei, ekki aldeilis, þetta er alls- herjar gleðskapur. Það er kaffi, rjómapönnukökur, snittur og fleira. Ólafur Hannibalsson, for- maður okkar, heldur setningar- ávarp og Önundur Jónsson löggu- stjóri er veislustjóri. Þjóðsöngur Ísfirðinga, Í faðmi blárra fjalla, verður fluttur og síðan flytur Magnús Reynir Guðmundsson hátíðarræðu. Þórarinn Gíslason verður með píanóleik undir borð- um og síðan verða Halli og Laddi með skemmtidagskrá. Geir Ólafs- son kynnir tvö lög af nýjum diski og síðan leika hljómsveitirnar Heiðursmenn Kollu, Rúnar Þór og félagar og Pönnukökur með rjóma fyrir dansleik sem stendur langt fram á nótt.“ Ekki eru Halli og Laddi að vestan? „Nei, okkur finnst allt í lagi að hafa eitthvað að sunnan með í dagskránni!“ Það er svo fleira á dagskrá fé- lagsins eða hvað? „Ja, við eigum hús á Ísafirði, Sóltún heitir það. Það er mjög merkilegt hús og á sér sögu. Við leigjum það til félagsmanna og þegar það er ekki í leigu bjóðum við listamönnum að dvelja þar. Síðan gefum við út Vestanpóstinn einu sinni á ári. Þetta er vandað blað sem sent er til allra félaga í Ísfirðingafélaginu. Menn borga árgjald í félaginu og blaðið er innifalið. Þetta er vandað blað og byggist að mestu á viðtölum við þekkta Ísfirðinga og gömlum myndum sem Ísfirðingar eru dug- legir að senda okkur.“ Og hvað haldið þið með mæt- inguna í ár? „Hann Guðfinnur Kjartansson, miðasalinn okkar í Bolholti 6, seg- ir mikið að gera og því er ástæða til bjartsýni.“ Kolbrún Sveinbjarnardóttir  Kolbrún Sveinbjarnardóttir er fædd á Ísafirði árið 1947. Gekk þar í venjulega grunn- og fram- haldsskóla og útskrifaðist loks úr Húsmæðraskólanum Ósk vorið 1966. Hefur síðan verið söng- kona alla tíð, með vestfirskum hljómsveitum til ársins 1972 en síðan með ýmsum sveitum sunn- an heiða til dagsins í dag. Auk þess er hún starfsmaður Veit- ingaskipsins Þórs, gamla varð- skipsins sem liggur við Ingólfs- garð. Eiginmaður Kolbrúnar er Lúðvík Jóelsson bakarameistari og börnin eru fjögur, öll upp- komin. Síðan gefum við út Vest- anpóstinn Guði sé lof, það eru bara saltkringlur. Þeir eru hættir að senda hvíta duftið, hr. Bush. Nú þarftu bara að fara að ráðum mömmu. HAGSTOFA Íslands er með í und- irbúningi að taka upp útreikning á vísitölu framleiðsluverðs og standa vonir til að hægt verði að taka upp útreikning vísitölunnar síðar á þessu ári. Í framhaldinu er síðan gert ráð fyrir að tekin verði upp út- reikningur á vísitölu innflutnings- verðs. Rósmundur Guðnason, deildar- stjóri vísitöludeildar Hagstofu Ís- lands, segir að Hagstofan hafi feng- ið fjárveitingar til að undirbúa út- reikning á vísitölu innlends fram- leiðsluverðs sem mæli verðbreyting- ar í framleiðslunni án allra skatta. Undanfarna mánuði hafi verið farið yfir aðferðafræðina varðandi út- reikning slíkrar vísitölu og stefnt sé að því að hann komist í framkvæmd síðar á þessu ári. Talsvert hefur verið rætt um nauðsyn útreiknings á vísitölu heild- söluverðs í ljósi verðbreytinga á matvöruverði að undanförnu. Rós- mundur sagði að þessi vísitala mældi ekki verð á heildsölustigi, enda væru mörkin milli heildsölu- og smásölustigs í mörgum tilvikum mjög óljós og því miklum tæknileg- um vandkvæðum bundið að reikna út slíka vísitölu. Hins vegar væri stefnt að því að reikna út vísitölu innflutningsverðs í framhaldi af út- reikningi framleiðsluverðsvísitöl- unnar, en þá væri við það miðað að mæla verð vörunnar frá erlendum framleiðanda komið á hafnarbakk- ann hér á landi, þ.e.a.s. að meðtöld- um flutningskostnaði og trygging- um en án dreifingarkostnaðar hér á landi. Áhugaverð vísitala „Þetta finnst okkur frá sjónarmiði efnahagsstjórnunar og að ýmsu öðru leyti áhugaverð vísitala. Hins vegar er alveg ljóst að það flækir myndina verulega að reyna að meta heildsölustigið til viðbótar. Það væri mjög vandasamt sérstaklega vegna þess hversu erfitt er að greina á milli heildsölu- og smásölustigsins. Það er auðvitað ástæðan fyrir því að flestar þjóðir reikna nú vísitölu framleiðendaverðs og hafa horfið frá því að reyna að verðleggja vörur á heildsölustiginu yfir í það að verð- leggja þær á framleiðendastiginu, eins og Bandaríkjamenn til dæmis,“ sagði Rósmundur ennfremur. Hann bætti því við að Hagstofan hefði eins og önnur ríkisfyrirtæki orðið að draga saman seglin að und- anförnu og það hefði auðvitað áhrif á það hvað hægt væri að gera. Aðspurður hvort þessar nýju vísi- tölur yrðu reiknaðar út mánaðar- lega eins og þær sem fyrir eru, sagði Rósmundur að ákvörðun hefði ekki verið tekin í þeim efnum, en all- ar líkur væru á því að það yrði nið- urstaðan. Væntanlega yrði byrjað á innlendri matvöruframleiðslu í ljósi þeirrar umræðu sem orðið hefði um verðbreytingar á matvöru að und- anförnu og það væri auðvitað inn- legg í athugun á því hvar verðhækk- anirnar yrðu í þjóðfélaginu. Vísitala framleiðslu- verðs í undirbúningi Reiknað með vísi- tölu innflutnings- verðs í framhaldinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.