Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 10

Morgunblaðið - 23.01.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ FORMAÐUR Samfylkingarinnar segir að stóru verslunarkeðjurnar í landinu hafi í skjóli einokunar keyrt upp matarverð. Hreðjatak þeirra á markaðnum hafi kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur og ríkisstjórn- inni beri skylda til þess að feta í fót- spor verkalýðshreyfingarinnar og fara í viðræður við þessa aðila, krefjast þess í nafni þjóðarheillar að þeir sýni ábyrgð og lækki matar- verð. Forsætisráðherra segir að auðvitað eigi að fylgja því eftir að stórir aðilar séu ekki að misnota sína aðstöðu og 60% eignaraðild á verslunarfyrirtækjum í matvælaiðn- aði sé allt of há hlutdeild og auðvit- að komi til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eignum séu þær misnotaðar. Horfur í efnahagsmálum voru til umræðu utan dagskrár á Alþingi í gær á fyrsta þingfundi eftir jóla- leyfi. Málshefjandi var Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, en til andsvara Davíð Oddsson forsætisráðherra. Verð- bólgan, hækkun vísitölu neyslu- verðs og verðþróun í þjóðfélaginu komu þar mjög til umræðu og lýstu bæði Össur og Davíð yfir ánægju með framlag þeirra fyrirtækja sem þegar hefðu gripið til þess ráðs að lækka sitt vöruverð. Ríkisstjórnin sögð hafa farið í jólaköttinn Það væri hins vegar synd að segja að formaður Samfylkingarinn- ar og forsætisráðherra hafi verið sammála um stöðuna í efnahags- málum þjóðarinnar nú um stundir, þótt í máli beggja hafi mátt greina að bjartara væri framundan. Sá fyrrnefndi sagði ríkisstjórnina hafa „farið í jólaköttinn“ og benti á að verðbólga hafi milli desember og janúar hækkað tvöfalt meira en ráð var fyrir gert. Verðbólga síðustu 12 mánaða sé 9,4% hér á landi en ekki nema 2% í samkeppnislöndunum. „Munurinn er fjór- eða fimmfald- ur. Þetta eru ákaflega uggvænleg tíðindi fyrir samkeppnisstöðu okkar Íslendinga og það er mjög erfitt líka að við þessar aðstæður er ekk- ert svigrúm til þess að lækka vexti sem var þó bjargráðið sem mörg fyrirtæki biðu eftir, einkum hin smærri fyrirtæki sem ekki geta sótt sér ódýrt fjármagn á evrusvæðið,“ sagði Össur Skarphéðinsson. Hann benti á að við slíkar að- stæður geti gamall vítahringur orð- ið til að nýju þar sem verðbólgan með aðstoð vaxtaokurs leggi til eldi- við á sitt eigið bál. Hægt sé að grípa inn í þessa þróun, en til þess þurfi agaða efnahagsstjórn, til þess þurfi agaða stjórn á ríkisfjármálum og ekki síður þurfi að læra af mistök- um síðustu ára. 1998 og 1999 að verða klassísk ár fyrir hagstjórnarmistök „Árin 1998 og 1999 eru að verða klassísk í hagfræðinni sem dæmi um hvernig afskiptaleysi og rangur skilningur stjórnvalda á frelsi í efnahagsmálum leiddi til ófara. Frelsi þýðir nefnilega ekki að stjórnvöld eigi að láta efnahagsmál- in afskiptalaus. Í dag erum við öll sammála um að það voru slæm mis- tök, ákaflega slæm mistök, að grípa ekki í tíma til aðgerða gegn við- skiptahallanum. Við skulum læra af þessu,“ sagði Össur ennfremur og gat þess að verkalýðshreyfingin hafi sýnt ábyrgð með því að kveðja rík- isstjórnina með sér til baráttu gegn verðbólgunni og frestun á uppsögn kjarasamninga. Hann bætti því einnig við að hann segði það „hik- laust“ að „ákaflega jákvætt“ hafi verið hvernig ríkisstjórnin brást við því. Vonbrigði hafi hins vegar orðið þess meiri þegar komið hafi í ljós að stærsti liðurinn í hækkun vísitöl- unnar voru verðhækkanir á opin- berri þjónustu. Sagði hann að slíkt hafi alls ekki átt að koma á óvart, enda hafi fulltrúar Samfylkingar- innar ítrekað varað við slíku og m.a. stuðst þar við útreikninga Þjóð- hagsstofnunar þar sem sýnt hafi verið svart á hvítu að hækkanir rík- isins hefðu umtalsverð verðbólgu- áhrif. „Því var hafnað, enda lifa menn í stjórnarráðinu eftir því mottói að hafa beri það sem rangt reynist fremur en fylgja útreikn- ingum Þjóðhagsstofnunar,“ bætti formaður Samfylkingarinnar við. Yfirgnæfandi líkur á að samningar haldi Davíð Oddsson forsætisráðherra (D) sagði ljóst að ríkisstjórnin muni standa við það sem hún hafi þegar tilkynnt verkalýðshreyfingunni að hún muni gera varðandi hækkun á útgjöldum. Sagði hann verulegar líkur á því, „jafnvel yfirgnæfandi líkur“ á því að það mark sem menn hafi sett sér gagnvart uppsögn kjarasamninga standist. Vísaði hann til jákvæðrar þróunar á ýms- um sviðum efnahagsmála, t.d. styrkingar krónunnar og hækkunar á verði hlutabréfa auk þess sem at- vinnuleysi væri lítið og hefði verið lengi. „Þess vegna segi ég að það eru miklar líkur á að þetta muni allt saman ganga eftir en við verðum að sjá mjög jákvæða hluti ganga fram hvarvetna. Og þegar þetta gengur eftir, þá mun það einnig ganga eftir að verðbólgan á árinu verði kring- um 3,5% sem er mjög viðunandi ár- angur,“ sagði forsætisráðherra. Með skírskotan til annarra landa velti Davíð því einnig fyrir sér hvað í efnahagsmálum væri rætt hér á landi ef atvinnuleysi væri hér það sama og í Evrópulöndunum, þetta 9–10%. Hér á landi væri atvinnu- leysi ríflega 1% og miðað við stöð- una í evrulöndum að því er atvinnu- leysi áhrærir væri slíkt líklega stærsti vandinn sem við væri að glíma, enda „hörmung öll og mikil“. Aðalatriðið sagði forsætisráð- herra vera það að trúin á mark- aðnum færi vaxandi og það væri enn eitt dæmið um það að efnahags- ástandið hér á landi sé að komast í mjög gott horf og allar ástæður væru til þess að fyllast bjartsýni. „Ég tel að vaxtalækkanir séu ekki langt undan heldur skammt undan. Ég tel að við munum sjá fram á vaxtalækkanir þegar í næsta mánuði. Þegar eftir næstu mælingu á vísitölunni munum við sjá fram á vaxtalækkanir til viðbótar öðrum hlutum,“ sagði Davíð Oddsson og bætti við: „Skattalækkanir, vaxta- lækkanir, styrking á gengi, lækk- andi verðbólga, lítið atvinnuleysi, traustur kaupmáttur. Hver myndi ekki vera ánægður með þess háttar efnahagsástand í sínu landi?“ Kemur til greina að skipta fyrirtækjum upp Guðni Ágústsson (B) landbúnað- arráðherra lýsti því yfir að hann myndi kynna ríkisstjórninni tillögur og niðurstöður s.k. grænmetis- nefndar í næstu viku og það myndi hafa í för með sér jákvæð áhrif á markaðinn ásamt öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þeir sem þátt tóku í umræðunni lýstu flestir yfir áhyggjum af sam- þjöppun á sviði matvöruverslunar og sagði formaður Samfylkingarinn- ar að stóru matvörukeðjurnar hafi í skjóli einokunar keyrt upp matar- verð. „Hreðjatak þeirra á markaðn- um hefur kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur,“ sagði hann og bætti við að ríkisstjórninni beri skylda til þess að feta í fótspor verkalýðs- hreyfingarinnar og fara í viðræður við stærstu verslunarrisana og krefjast þess í nafni þjóðarheillar að þeir sýni ábyrgð og lækki matar- verð. Sagðist hann telja að þar ættu að vera hæg heimatökin, þar sem formaður einkavæðingarnefndar, Hreinn Loftsson lögmaður, væri stjórnarformaður Baugs. „Ef fortölur duga ekki til þá er það skoðun okkar í Samfylkingunni að Samkeppnisstofnun eigi að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að skipa fyrir um breytingar, þar á meðal að skipta upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda,“ sagði Össur. Fleiri þingmenn tóku í sama streng, t.d. Ögmundur Jónasson (Vg) sem sagði þróun í átt til einok- unar hafa átt sér stað í skjóli rík- isstjórnarinnar og Kristinn H. Gunnarsson (B) taldi rétt og skylt að berjast gegn hvers kyns einokun á markaði. Vilhjálmur Egilsson (D) gagnrýndi hins vegar allt tal um að styrkja Samkeppnisstofnun í þessu skyni og reyna með því að rífa niður þann árangur sem hefði náðst í hag- ræðingu í viðskiptalífinu. Lokaorðin átti forsætisráðherra: „Auðvitað á að fylgja því eftir að stórir aðilar séu ekki að misnota sína aðstöðu. Auðvitað er það þann- ig að 60% eignaraðild á verslunar- fyrirtækjum í matvælaiðnaði er allt of há hlutdeild. Auðvitað er það uggvænlegt og sérstaklega þegar menn hafa á tilfinningunni að menn taki ekki því mikla valdi sem þeir hafa þar af skynsemi. Auðvitað hlýtur að koma til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eignum ef þær eru misnot- aðar.“ Horfur í efnahagsmálum ræddar utan dagskrár á Alþingi í gær Forsætisráðherra segir vaxtalækk- un skammt undan Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, var málshefjandi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Davíð Oddsson forsætisráðherra segir fulla ástæðu til bjartsýni. Félagsmálaráðherra, Páll Pét- ursson (B), mælti í gær fyrir frum- varpi til laga um breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga. Sagði hann frumvarpið hafa tví- þætt markmið, annars vegar verði sveitarfélögum veitt fullt vald til að ákveða rekstrarform vatnsveitu sem þau reka, en hins vegar verði eiganda vatnsveitu heimilað að áskilja sér arðgreiðslur sem numið geti allt að 7% af eigin fé vatnsveit- unnar. Fram kom í máli hans að með breytingunum sé m.a. ætlunin að tryggja samræmi við frumvarp til raforkulaga sem iðnaðarráðherra hyggst leggja fram á vorþingi, þar sem mælt er fyrir um að öll raf- orkufyrirtæki skuli vera sjálfstæð- ir lög- og skattaðilar. „Þess eru nokkur dæmi að sveitarfélög reki í einu fyrirtæki eða stofnun héraðs- rafmagnsveitu, hitaveitu og vatns- veitu. Ætla má að á næstu árum muni þessi fyrirtæki og stofnanir sveit- arfélaga taka þátt í samkeppnis- rekstri á sviði raforkuframleiðslu og verður þeim þá skylt að halda þeim hluta starfsemi sinnar að- skildum frá rekstri sem þau eiga einkarétt á, þar á meðal rekstri hitaveitu og vatnsveitu. Engu að síður kann að vera hagkvæmt að reka allar þessar veitur í einu fyr- irtæki eða stofnun,“ sagði hann. Í máli þeirra þingmanna sem tóku til máls um efni frumvarpsins kom almennt fram ánægja með efni þess. Þó lýsti Karl V. Matthíasson (S) yfir efasemdum um réttmæti þess að láta arðsem- issjónarmið ráða við jafn sjálfsagða þjónustu og rekstur vatnsveitu sem þar að auki væri ekki í sam- keppnisumhverfi. Miklu fremur ætti að líta til þess að halda rekstr- inum „við núllið“. Aðrir, t.d. Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, höfðu áhyggjur af því að einka- væða ætti nú vatnsveitur og réðu mjög frá slíkum fyrirætlunum. Sveitarfélög ákveði rekstrarform vatnsveitna HALLDÓR Blöndal (D) forseti Alþingis skýrði frá því við upphaf þingfundar í gær að við kosningar í nefndir og ráð á síðasta fundi Al- þingis fyrir jól, hinn 14. desember sl., hafi orðið sú vangá við kjör í út- varpsréttarnefnd að einu nafni var ofaukið á listunum svo að lýst var kjöri fleiri en kjósa skyldi. Þau mistök væri nauðsynlegt að leið- rétta í samræmi við þingstyrk að baki listunum hvorum um sig. Enginn hreyfði andmælum við þessu og því lýsti forseti Alþingis eftirfarandi rétt kjörin í útvarps- réttarnefnd til næstu fjögurra ára. Aðalmenn: Kjartan Gunnars- son framkvæmdastjóri, Bessí Jó- hannsdóttir sagnfræðingur, Magnús Bjarnfreðsson skrifstofu- stjóri, Kristín B. Pétursdóttir lög- fræðingur, Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri, Lára V. Júl- íusdóttir hæstaréttarlögmaður og Ástráður Haraldsson hæstarétt- arlögmaður. Varamenn: Stefanía Óskars- dóttir stjórnmálafræðingur, Andri Þór Guðmundsson við- skiptafræðingur, Kristján Einars- son slökkviliðsstjóri, Steinþór Gunnarsson viðskiptafræðingur, Einar Karl Haraldsson kynning- arráðgjafi, Ingimar Ingimarsson nemi og Álfheiður Ingadóttir lög- fræðingur. Ofaukið í út- varpsréttarnefnd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.