Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 B 17
bíó
MYNDIN var ekki síst sýning-
argluggi fyrir enn einn rembings-
leikinn hjá Tom Cruise, þessari sjálfs-
uppteknu, yfirspenntu stjörnu sem
ævinlega gengur út frá því að meira
en ekki minna sé best; ef Cruise getur
notað fallbyssu til að skjóta þúfutitt-
ling þá gerir hann það. Handan við
hamaganginn í Cruise í hlutverki til-
vistarkreppts umboðsmanns
íþróttafólks voru tveir kyrrlátari
leikarar að vinna vinnuna sína og
gerðu það með einlægari, trúverð-
ugri hætti. Þetta voru Renee Zellweger,
sem tókst að gera alvöru úr klisju-
kenndu hlutverki einstæðrar móður,
og Cuba Gooding, sem skein skærar en
upplýstur Cruise-inn í hlutverki erfiðs
en trygglynds ruðningsboltakappa.
Þarna stigu fram tveir prýðis leik-
arar, sem síðan hefur vegnað vel,
Zellweger þó heldur betur en Gooding.
Hann gerir allt vel sem hann gerir
en hefur ekki fengið mikið af veru-
lega bitastæðum hlutverkum og flest
hafa þau verið grínhlutverk. Ekki
hafa honum boðist mörg aðal-
hlutverk, en nú um helgina má sjá
hann í einu slíku í myndinni Snow
Dogs. Þar leikur hann tannlækni
einn á Miami, sem fær í arf hóp af
sleðahundum í Alaska. Hann er ekki
hrifinn af hundum yfirleitt en þarf
að læra að meta arfinn svo hann
komist ekki í hendur gamals fjalla-
kappa (James Coburn).
Cuba Gooding jr. var lengi að vinna
sig upp í aðalhlutverk eða bara hlut-
verk. Hann er núna 34 ára að aldri,
fæddur í Bronxhverfinu í New York,
en fluttist fjögurra ára til Los Angel-
es. Faðir hans var tónlistarmaður og
fjölskyldulífið sviptingasamt. Gooding
hinn ungi varð þó snemma efnis-
piltur og lét það ekki á sig fá að
skipta fjórum sinnum um gagn-
fræðaskóla; í þremur þeirra varð
hann forseti bekkjarráðs.
Fyrsta hlutverk hans var ekki í
leiklist, heldur sem breikdansari í
sýningu Lionels Ritchie á Ólympíu-
leikunum árið 1984, þá sextán ára að
aldri. En þegar umboðsmaður einn
sá hann leika í gaggóleikriti fékk
Gooding samning og byrjaði að leika í
auglýsingum. Það leiddi til smáhlut-
verks í einum þáttanna úr Hill
Street Blues-syrpunni. Eftir það hóf
hann að sækja leiklistarnámskeið og
smám saman fjölgaði tækifærum í
sjónvarpi og kvikmyndum. Fyrsta
bíóhlutverkið var „strákur á rakara-
stofu“ í Coming to America árið 1988
með Eddie Murphy, en fyrsta alvöru-
hlutverkið var í frumraun Johns
Singleton Boyz N the Hood árið 1990,
sem fjallaði um uppvöxt ungra
blökkumanna í ofbeldisfullu um-
hverfi í Los Angeles. Þótt sæmileg
hlutverk fylgdu í kjölfarið, t.d. í A
Few Good Men (1992), náði Gooding
ekki verulegri athygli fyrr en með
Jerry Maguire. Árið eftir, 1997,
mætti Gooding aftur sterkur til leiks í
As Good As It Gets með Jack Nichol-
son en vandaður leikur hans í hinni
vemmilegu What Dreams May
Come (1998) með Robin Williams fór
fyrir lítið. Síðan hefur hann verið
heldur óheppinn með verkefni, þótt
Pearl Harbor (2001) hafi svosem far-
ið víða og grínmyndin Rat Race
(2001) átt sína góðu spretti. Næsta
mynd hans er líka gamanmynd, Boat
Trip, sem væntanleg er á árinu. Þess
má geta að gamli Bond-inn Roger
Moore hafði húmor fyrir því að leggja
til að Cuba Gooding jr. verði arftaki
Pierce Brosnan í hlutverki njósnara
hennar hátignar! En svo mælti hann
líka með Ewan McGregor. Hvers konar
húmor er það?
Svartur senuþjófur
Í raun hafði Cuba Gooding jr. ekki vakið
verulega athygli hins almenna bíógests
fyrr en hann fékk allt í einu Óskars-
verðlaunin. Það var árið 1996 og fyrir
besta leik í aukahlutverki karla. Myndin
var hin stórlega ofmetna Jerry Maguire
eftir Christopher Crowe.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
er sonur Cuba Gooding sr., sem
var aðalsöngvari poppsveit-
arinnar The Main Ingredient á
8. áratugnum, en hún átti
smellinn Everybody Plays the
Fool árið 1972. Tveimur árum
eftir þann smell yfirgaf Gooding
eldri fjölskyldu sína. Hann er nú
flestum gleymdur, en sonurinn
heldur Gooding-nafninu á lofti.
Reuters
Cuba Gooding jr.
Aðalfundur 2002
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður
haldinn þriðjudaginn 19. mars 2002 í Sunnusal,
Radisson SAS Saga Hótel, Reykjavík og hefst kl. 16:00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um að auka hlutafé félagsins um
kr. 699.297.126 með útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um heimild til kaupa á eigin
hlutabréfum.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á
aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis en verða síðan
afhentir ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað.
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF