Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 1
Senn líður að skilum á skatta- skýrslum. Þriðjudagur 19. mars 2002 Prentsmiðja Morgunblaðsinsblað C Verð við allra hæfi Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Guðshús íKópavogi Rætt við Benjamín Magnússon arkitekt um hönnun Digra- neskirkju26 Geisladiska- safnarar Tónlistin skipar stór- an sess í lífi þeirra og tekur mikið pláss á heimilinu29 Þeim þykir gott að búa í mið- bænum þótt þar geti stundum ver- ið ónæðissamt2 TÖLUVERÐ hreyfing hefur verið á fasteignamarkaðnum á Austur- Héraði og gott fasteignaverð. Mest er eftirspurnin eftir meðalstórum einbýlishúsum, en parhúsaíbúðir eru einnig vinsælar og þær haldast vel í verði. Þessi eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði gerir það að verk- um að þörfin fyrir nýbyggingar á markaðnum hefur verið mikil og ásókn í íbúðalóðir á Austur-Héraði í hlutfalli við það. Hálft annað ár er liðið frá því 27 íbúðarlóðir, fyrir einbýlishús, parhús og raðhús, voru teknar í notkun á nýju íbúð- arsvæði við Litluskóga og Keldu- skóga á Egilsstöðum. Öllum þess- um lóðum var strax úthlutað til byggingaraðila, en nokkrar skiluðu sér þó inn aftur. Fyrsta húsið við Litluskóga reis fyrir nokkru síðan og framkvæmdir standa yfir á fleiri lóðum innan þessa nýja svæð- is. Björn Hafþór Guðmundsson, bæjarstjóri Austur-Héraðs, segir að eftirspurnin eftir íbúðarlóðum undanfarnar vikur hafi verið tals- vert meiri en skipulagsyfirvöld á Austur-Héraði áttu von á og stað- an geti því breyst mikið á stuttum tíma. Hann segir að stór bygginga- fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu hafi sýnt áhuga á að byggja ný íbúðarsvæði frá grunni, en enn hafi ekki verið tekin ákvörðun þar að lútandi. Björn Hafþór segir að svo virðist sem fólk sé almennt bjart- sýnt og hafi töluverðar væntingar í sambandi við fyrirhugaða stóriðju og virkjanir á Austurlandi. Það megi líta á Egilsstaði sem eins- konar miðstöð samgangna fyrir byggðakjarnana á Austfjörðum, og fólk bindur einnig vonir við jákvæð áhrif ákvörðunar um beint flug á milli Egilsstaða og Þýskalands á sumri komanda. Í dag eru 16 lóðir lausar til byggingar einbýlis- eða raðhúsa í sveitarfélaginu og fyrir liggja um- sóknir um tæplega þriðjung þeirra. Þá eru ekki hafnar framkvæmdir á 11 lóðum sem úthlutað var tvö síð- astliðin ár og þar á meðal er ein fjölbýlishúsalóð. Verið er að leggja lokahönd á gerð nýs aðalskipulags fyrir Aust- ur-Hérað og vinna við deiliskipulag nýrra íbúarsvæða hefst á þessu ári. Fasteignamarkaðurinn líflegur á Egilsstöðum Framkvæmdir á nýju íbúðarsvæði við Litluskóga á Egilsstöðum. Ljósmynd/Mats Wibe Lund Mikill uppgangur er í fasteignasölu á Egilsstöðum og eftirspurn eftir íbúðarlóðum hefur verið meiri en skipulagsyfirvöld á Austur-Héraði áttu von á. FASTEIGNAMATI ríkisins bár- ust um 13.000 athugasemdir á síðasta ári vegna endurmats brunabóta- eða fast- eignamats. Ekki er séð fyrir endann á afgreiðslu allra þeirra athugasemda, en nú hafa um 2.500 þeirra hlotið fullnaðarafgreiðslu, segir Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins. Um 9.000 mál eru í vinnslu í formi upplýsingasöfnunar, en þegar nægjanlegar upplýsingar liggja fyrir verður felldur úrskurður. Hjá þeim sem sendu inn form- legar athugasemdir fyrir 15. september gildir gamla matið þar til úrskurður liggur fyrir. Gamla matið gildir Skattframtal                                                    )'"(&!"( & & '* %&( '*"            ! "##" +%,*-* %-""%& &$%&. /01   2$"$-3  4. 5%&&&6( !&  7!(*(8 %7!(*(8        (   $     2%'!'#9 &%'"!*'&'"& :%&-$&%'"9;;;($!('&                 :&' -"<=>>? !"( !"( !"( !"(    @     (       (> ( %     "##   "##" -<=?    ( ( (   &    "##  "##"          A<&( ""   '( ! ! ! !  # ") !) "*      >>               Búsetuval

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.