Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 26
Morgunblaðið/Golli Bylgjurnar í lofti kirkjuskipsins eiga að minna á öldur hafsins. D IGRANESKIRKJA er ein þriggja kirkna í Kópa- vogi. Hún stendur mót suðri í hlíðum Kópavogs og er umhverfisprýði. Benjamín Magnússon arkitekt hannaði kirkj- una en hann sótti hugmyndirnar í sinn eigin trúarlega reynsluheim. Þegar hann var við nám hafði hann skoðað margar kirkjubyggingar víðs vegar um Evrópu, bæði miðalda- kirkjur og kirkjur með nútímalegra sniði og smám saman mótaðist hjá honum ákveðið viðhorf til kirkjunn- ar; sambland af ímynd íslenskrar kirkju og hvernig hún hefur þróast, og ímynd erlenda kirkna. „Þegar ég stóð frammi fyrir því verkefni að hanna Digraneskirkju hafði ég enga fyrirfram mótaða hug- mynd um hvernig hún ætti að vera. En þegar ég skoðaði í huga mér fann ég að ég vildi nálgast verkefnið út frá mínum eigin reynsluheimi og út frá minni lífssýn til kirkjunnar, eins og ég hef upplifað hana allt frá gyð- ingdómi til þess trúarlega reynslu- heims sem við eigum í dag. Kirkju- legar tilvitnanir, bæði í bókmenntum og listum, hafa iðulega verið sóttar til Gamla og Nýja testamentisins og lífssýn mín til kirkjunnar hefur mót- ast að einhverju leyti af því. Kirkjur geta verið margvíslegar, t.d. geta þær bara verið kirkjuskip, en þær geta einnig verið með þjónustubygg- ingum, eins og tíðkast sérstaklega í stærri söfnuðum í dag. Ég skoðaði verkefnið með hliðsjón af því hlut- verki sem það átti að þjóna. Smám saman mótaðist ákveðið líkingamál hjá mér sem ég sótti í Biblíuna. Ég vildi hafa tvenns konar hús, annars vegar kirkjuskipið sjálft, en hins vegar þjónustubyggingarnar utan um líkt og kirkjuskipið væri umvafið lægri byggingum.“ Tveir heimar sameinaðir Benjamín segir að hann hafi séð kirkjur fyrri alda fyrir sér sem griðastað og skjól þar sem fólk leit- aði hælis þegar hætta steðjaði að. „Gömlu kirkjubyggingarnar og klaustrin stóðu hátt þar sem þær sæjust víða að, gjarna á kletti sem var góð undirstaða fyrir öfluga mið- aldabyggingu. Önnur byggð dreifð- ist síðan út frá þessum voldugu byggingum. Kirkjurnar voru háar og áberandi, en klaustrin voru aftur á móti lágar en traustar byggingar með litlum og mjóum gluggum sem hleyptu lítilli birtu inn. Ég vildi flétta þetta tvennt saman, traust- vekjandi lága umgjörð sem túlka mátti sem hið ytra og sýnilega, en þar fyrir innan væri fíngerðari bygging, kirkjuskipið sjálft. Þessi hugmynd þróaðist svo hjá mér í þá átt að ég sá fyrir mér bát á hvolfi – Örkina hans Nóa. Þá vildi ég sjá upp í böndin og þannig var hugmyndin að þakinu komin. Skip, fiskur og veiðimaður eru þekkt tákn í krist- inni trú og ég nota þau sem þak yfir kirkjuna. Bylgjurnar í þakinu eiga að tákna öldur hafsins og þær mynda klæðningu neðan í kirkjuloft- inu. Ég risti upp kjölinn, sýni böndin áfram í gegnum gluggann og bjó til þakglugga eftir endilögnum kilinum til að kalla niður birtu. Grunnlögun kirkjuskipsins varð því eins og báts- skel í laginu með gleri í mæni og stafni. Þjónustubyggingar sá ég fyr- ir mér eins og varnarmúr utan um kirkjuskipið sjálft og höfðaði til gömlu íslensku kirknanna með sín- um þykku torfveggjum, en þar fyrir innan kom nett og fíngert þak kirkj- unnar. Með þessu fannst mér ég tvinna saman tvo heima, þann gamla og hinn nýja.“ Þegar þessar hugmyndir voru mótaðar fór Benjamín að velta fyrir sér innviðum kirkjunnar. Hann sá fyrir sér súlnagöng, sem minntu á súlur í evrópskum miðaldakirkju- byggingum og fyrst yrði gengið gegnum súlnapar og síðan komið að stórum og voldugum dyrum í and- dyrinu. Þaðan yrði gengið í gegnum annað súlnapar sem héldi uppi svöl- um. Til að magna upp áhrifin við inn- komu í sjálfa kirkjuna lækkaði hann loftið vísvitandi niður við inngang- inn, en þegar inn í sjálft kirkjuskipið kemur opnast kirkjan í öllum sínum mikilfengleik. Kórinn hluti af athöfninni Innra skipulagið var auðveldur eftirleikur eftir að Benjamín hafði mótað kirkjubygginguna. Að hafa kórinn á svölum fyrir aftan söfnuð- inn fannst honum arfur frá gömlum tíma þegar kórinn átti að syngja í gegnum söfnuðinn í átt að altarinu til að fá söfnuðinn til að taka undir. Við kaþólskar guðsþjónustur syngur söfnuðurinn með kórnum eða sér jafnvel alveg um sönginn, en sú er ekki raunin við íslenskar guðsþjón- ustur. Því vildi Benjamín hafa kór- inn til hliðar svo söfnuðurinn gæti séð kórinn, orgelið og allt annað sem fram fer í kirkjunni við guðsþjón- ustur og aðrar athafnir. „Mér fannst mikilvægt að mynda þessa umgjörð um kórinn og annað starf í kirkjunni því allt er þetta hluti af athöfninni sem fer þarna fram. Stundum koma fram barnakórar eða annað tónlist- arfólk sem kirkjugestir vilja sjá. Ég vildi líka að vel rúmt yrði í kringum altarið og gráturnar til að gefa meira svigrúm til athafna. Þá fannst mér nauðsynlegt að í kirkjunni væri röð og regla. Ég vildi að það yrði ákveð- inn aðdragandi að innkomu í kirkj- una, en síðan yrði gengið beint að altarinu. Fyrst ég hafði tök á því að raða allri starfseminni umhverfis kirkjuskipið sjálft gat ég ráðið hvar presturinn, og t.d. fermingarbörnin, koma inn. Mér fannst að presturinn ætti ekki að þurfa að ganga sömu leið inn og kirkjugestirnir, ég vildi að hann gæti komið beint frá skrúð- húsinu og sem næst altarinu.“ Benjamín bar það undir safnaðar- Digraneskirkja – hönnuð úr táknmáli kristninnar Digraneskirkja uppljómuð. Einfalt og glæsilegt. Ítölsku stólarnir eru þægilegir og fallegir. Orgelið er mikil listasmíð, en Björgvin Tómasson hannaði það og smíðaði. Táknmál trúarinnar getur birst í ótal myndum. Guðlaug Sigurðardóttir ræddi við Benjamín Magnússon arkitekt um hönnun Digraneskirkju, en hugmyndirnar sótti hann í trúarlegan reynsluheim sinn. 26 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.