Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 32
32 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
GARÐATORG
Garðatorg 7 - Garðabæwww.gardatorg.is
Guðmundína Ragnarsdóttir
hdl. og lögg. fast.sali
Þórhallur Guðjónsson sölumaður
Sigurður Tyrfingsson sölumaður
EIGNAMIÐLUN
545 0800
Hörgslundur - GBÆ.
Mjög gott samt. 241 fm einbýli m/tvöf. bílsk. á ró-
legum og góðum stað í neðri lundum. Húsið sem er
teiknað af Kjartani Svenssyni er mjög skemmtilega
hannað. Stórar stofur, 4 svefnherb. blómaskáli. Stór
og fallegur garður. Gott hús.
SÚLUNES - GBÆ.
Nýk. í sölu mjög glæsilegt um 200 fm einbýli m.
43,5 fm bílskúr. Sérlega vandað og rúmgott hús
með fallegum innréttingum og tækkjum. 1500 fm
eingarlóð. Stór verönd og hellulagt upphitað plan.
TJALDANES - GBÆ - LAUST
Glæsilegt um 300 fm einb. með tvöf. bílsk. á frá-
bærum stað á Arnarnesinu. Gott útsýni og fallegur
og vel hirtur garður. Húsið er laust. Gott tækifæri
fyri vandláta
ÞRASTARNES - GBÆ.
Nýkomið í sölu gott samtals um 450 fm einbýli á
frábærri 2000 fm lóð yst á Arnarnesinu. Húsið er að
grunnfleti 200 fm og er ein íb á efri hæð og tvær á
þeirri neðri. 55 fm bílskúr. Húsið stendur innst í
botlanga.
SPÓAÁS - Hfj.
Stórglæsilegt 215,2 fm með 47,7 fm innb. bílsk.
Sérsmíðaðar iinnréttingar og allt einstaklega vand-
að. Frábær staðsetning. Um er að ræða einstaklega
glæsilegt og tæknilegt hús. Sjón er sögu ríkari.
HOLTÁS-GBÆ.
Mjög glæsilegt 155,8 fm auk 49 fm tvöfalds bíl-
skúrs. Stórt eldhús með fallegum innréttingum. Frá-
bær staðsetning rétt við hraunjaðarinn og útsýni yf-
ir allt frá Keili til Esju.
Rað- og parhús
BREKKUBYGGÐ - GBÆ
Nýkomið í einkas. lítið raðhús (75,8 fm) á mjög
góðum og eftirsóttum stað í Garðabænum. Mjög
gott aðgengi, lítill garður. Laus strax.
KJARRMÓAR - GBÆ. M/bílsk.
Vorum að fá í sölu snoturt ítið raðhús. 2-3 svefn-
herb. Verönd í garði. Mjög góður 30 fm bílsk. há
hurð. Verð 14.6 milj.
KRÓKAMÝRI - GBÆ
Nýk. í sölu 106 fm tíl. parhús. 3 svefnherb. Hús á
skólsælum stað í nálægð við alla þjónustu. Stutt í
skóla og þíróttir. Verð 15 milj.
KLAUSTURHVAMMUR - HFJ.
m/auka íb. Mjö gott 306 fm raðh. með innb.
bílkskúr. Um er að ræða mjög gott hús á frábærum
stað, mikið útsýni (Keilir, Snæfellsjökull). Möguleiki
á aukaíb. á neðstu hæð með sérinngang.
KLETTABERG - HFJ.
Mjög glæsilegt 219,6 fm parhús með innb. stórum
bílskúr. Sérsmíðaðar maghony innréttingar og hurð-
ir. Flísar á gólfum neðri hæðar. Stórar suður svalir og
frábært útsýni til suðurs. Stutt í þjónustu og skóli í
stuttu göngufæri. Glæsliegt hús í alla staði.
4ra herb
FÍFULIND - KÓP.
Glæsileg íbúð á tveimur hæðum. Íbúðin er með
tveimur rúmgóðum herbergjum. Uppi er falleg stofa
með gengheilu olíubornu parketti. Glæsilegt eldhús
með fallegri hvítri innréttingu. Verð kr. 15.5 milj.
3ja herb.
FURUGRUND - KÓP.
3-4 herbergja 87,7 fm íbúð með aukaherbergi.
Rúmgóð stofa og 2 svenherbergi bað flísar í hólf
og gólf. Verð 11,9 milj.
2ja herb.
FURUGRUND - KÓP
2-3 herbergja íbúð með aukaherb. Góð staðsett-
ing, stutt í alla þjónustu. Verð 9.8 mill.
Penthouse
FUNALIND - KÓP.
Glæsileg 151 fm íbúð á 2 hæðum. Stórar stofur
með útgengi á suður svalir. Efri hæð er með sjón-
varps og húsbóndaherbergi. Eldhús er með maha-
gony innréttingum . Gólfefni: Mahagony parket er
á öllum gólfum nema eldhúsi . Glæsileg eign. Verð
16.9 milj.
Einbýli
ÁSBÚÐ - GBÆ
Mjög gott einbýli samt. 202.8 fm með 43 fm bílsk.
4 svefnherb., rúmgóð sólstofa, sauna og góður bíl-
skúr. Góður og vel ræktaður garður. Verð 19.7 milj.
FAXATÚN - GBÆ.
Gott samttals 192,7 fm einbýli. 4 svefnherb, 3 stof-
ur góður bílskúr og fallegur og vel ræktaður garð-
ur. Hús með mikla möguleika.
HOLTSBÚÐ - GBÆ. m/aukaíb.
Mjög gott 253,9 fm tvílyft einbýli á góðum stað. Á
neðri hæð er m.a. aukaíbúð. Stór og fallegur garð-
ur.
LINDARFLÖT - GBÆ
Mjög gott um 140 fm hús auk bílskúrs á allra besta
stað á Flötunum. Mikið endurnýjað. Fallegt hús á
friðsælum stað. Stutt í skóla.
ÞRASTARLUNDUR - GBÆ.
Mjög gott samtals 199,6 fm einbýli á góðum stað í
Garðabænum. 4 svefnherb., parket á gólfum og
fallegar innréttngar. Gott og vel umgengið hús.
Fallegur ræktaður garður. Verð 22. mij.
Atvinnuhúsnæði
FJÁRFESTINGARTÆKIFÆRI
Atvinnuhúsnæði með 4 íbúðum og um 300 fm
samtals um 570 fm Gott tækifæri til fjáfestingar.
SUÐURHRAUN - TIL LEIGU.
Mjög gottt 404 fm iðnaðarhúsn. á frábærum stað
í Hrauninu í Garðabæ. (Hafnarfirði) 4. m. inn-
keyrsludyr. Mjög bjart og gott húsn. Gott hellu-
lagt plan og greið aðkoma. Miklir mögul. hér.
Mjög gott leiguverð.
KRÓKHÁLS - 105 fm
Mjög gott 105 fm atvinnuhúsnæði á þessum
góða stað. Innkeyrsluhurð og 5 metra lofthæð.
ASKALIND - KÓP.
Vorum að fá til sölu mjög vel staðsett samtals 902
fm á tveimur hæðum auk möguleika á millilofti á
efri hæð. Skiptanlegt í smærri einingar. Að-
keyrsla að báðum hæðum. Mjög traustbyggt hús.
VAGNHÖFÐI - 165 fm
Mjög gott 165 fm húsnæði á einni hæð með
góðri innkeyrsludyr. Vinnusalur, kaffistofa og
skrifstofa. Gott útipláss og mögul. á viðbyggingu.
GARÐABÆR SALA / LEIGA
Stórglæsilegt 532 fm verslunar og skrifstofuhús-
næði. Grunnflötur 425,4 og efri hæð 106,6 fm
Þetta er hús í algjörum sérflokki. Mikið gler bæði í
þaki og í sólstofum. Skiptanlegt í smærri eingar.
Miklir möguleikar hér.
Nýbyggingar
TUNGUÁS - GBÆ. 2. aukaíb.
Fallegt 220,7 fm einb, auk 38,7 fm bílskúr. Húsið er
á tveimur hæðum og er mögulegt að hafa tvær íb.
á neðri hæð. Húsið skilast rúmlega fokhelt að inn-
an (einagrað o.f.) og tilb. að utan.
SKJÓLSALIR - KÓP
Glæsileg 182,6 fm raðhús með innb. 29 fm bílsk. 4
svefnherb, gott þvottah og geymsla. Mjög vel
skipul. hús. Húsin eru á tveimur hæðum og skilast
fullbúin að utan en fokheld að innan.
SVÖLUHRAUN - HFJ.
Mjög skemmtilegt 190 fm einbýli á einni hæð með
tvöf. bílskúr. Frábærlega hannað hús í grónu og
góðu hverfi. Fokhelt að inann og fullbúið að utan.
LERKIÁS - GBÆ. / eitt hús eftir
Mjög vel staðsett raðhús í nýja hverfinu í Garða-
bænum. Um að ræða 141.1 fm hús. m/innb. bílsk.
Húsið er á einni hæð og er tilbúið til afhendingar,
fullbúið að utan og fokhelt að innan. Gott verð.
KLETTÁS - GBÆ. Tvöf. bíls
Frábær 190 fm raðhús á tveimur hæðum með tvö-
földum bílskúr. 4 svefnherb. góðar stofur ofl. Góð-
ur tvöf. jeppaskúr. Um er að ræða tvö endahús og
tvö miðju hús. Skilast í vor fullbúin að utan og fok-
held að innan.
KRÍUÁS - HFJ.
Mjög skemmtileg tvö 217,3 fm milliraðhús ásamt
29,3 fm bílsk. samt. 246,6 fm Mjög gott skipulag.
Húsin skilast fullbúin að utan og fokheld að innan.
Verð 13,3 milj.
LERKIÁS - GB.
Vorum að fá til sölu 180 fm raðhús á tveimur hæð-
um. Vel skipulögð hús og gott útsýni. 4 svefnherb.
og góðar svalir. Skilast fokheld í vor eða lengra
komin.
GBÆ - LÓÐ M/SÖKLUM
Til sölu lóð, sökklar og teiknngar af glæsilegu ein-
býli á mjög góðum stað í Ásahverfi í Garðabæ.
Teikningar á skrifstofu Garðatorgs.
GRENIÁS - GBÆ.
Nýkomið í sölu 192 fm parhús í nýja hverfinu í
Garðabæ. 4 svefnherb. mikið útsýni yfir Reykjanes
og Álftanes. Falleg hús með mikla möguleika í
hverfi sem á eftir að verða það eftirsóttasta á höf-
uðborgarsvæðinu.
MIKIL SALA Í GARÐABÆ
VANTAR ALLAR
TEGUNDIR EIGNA Á SKRÁ
gardatorg@gardatorg.is
ÞAÐ voru mikil viðbrigði aðkoma úr kuldanum á gamlahólmanum og í vorið á Ítal-íu, þó lítill tími gæfist til að
njóta þess.
Þekktasta kennileiti stórborg-
arinnar Mílanó, sem er í norð-
anverðum Pódalnum, er frægasta
ópera heims, Scala. En borgin er ekki
síður ein helsta stoð ítalsks atvinni-
lífs, þar er geysiöflugur iðnaður sem
og víða á Norður-Ítalíu.
Á tveggja ára fresti safnast til Míl-
anó lagnamenn til að skoða eina
stærstu lagnasýningu Evrópu, sem á
máli þarlendra nefnist „Mostra Conv-
egno Expocomfort“og að þessi sinni
stóð hún opin fyrir gesti og gangandi
5. – 9. mars.
Þó gengið væri um sýninguna í tvo
daga frá morgni til kvölds tókst ekki
að komast um hana alla, svo nauðsyn-
legt var að velja og hafna.
Langflestir sýnendur voru frá Ítal-
íu,. en þó voru mörg fyrirtæki frá ná-
lægum löndum svo sem Sviss, Aust-
urríki og Þýskalandi mætt á staðinn,
einnig frá fjarlægari löndum svo sem
Kína, en þar er gífurleg þróun í fram-
leiðslu á hverskonar iðnaðarvarningi.
Í því stóra landi er augljóslega ekki
verið að þróa nýjar vörur, engin
ástæða til að finna upp hjólið, ventl-
arnir og tengin eru nákvæmlega eins
og framleidd hafa verið lengi í Evr-
ópu. Þetta minnir svolítið á Japani
fyrir nokkrum áratugum, en þeir létu
ekki sjá sig á þessari sýningu.
Mikið í lagt
Ítalir hafa verið í stöðugri framþró-
un í framleiðslu á lagnavörum, sem
hafa batnað mikið á síðustu tuttugu
árum. Þar áður þótti það ekki par fínt
að bjóða ítalska renniloka, en nú er
öldin önnur, það er gæðavara í boði.
Það er mikið lagt í slíkar sýningar
sem þessa „Mostra“, mismikið þó.
Sum fyrirtæki, eða þau stærstu,
ganga reyndar svo langt að jafnvel
fæla þau gesti frá með gauragangi og
látum. Dansflokkar fáklæddra meyja
þöndu sig á pöllum við ærandi músik
hjá tveimur sýnendum og ungar
stúlkur voru greinilega taldar hafa
aðdráttarafl á sýningarpöllum innan
um rör, krana og dælur. Flestar voru
þær barnungar og að holdafari, nán-
ast að falli komnar vegna ófeiti, þó
tókst þeim mörgum að hafa klæð-
isgopa sína svo naumt skorna að þeir
virtust vera að springa á saumum.
Búast má við ef þær hefðu verið borg-
firskar hefðu forðagæslumenn í
þeirri sveit látið málið til sín taka og
mætt á staðinn með mál og vikt og
kannað fóðrun og ásetning.
Ekki virðast Ítalir almennt leggja
hart að sér við tungumálanám, en
virðast kunna sína ítölsku svo að orð-
in streyma úr munni þeirra af mikilli
mælsku. Þatta var einnig hægt að
heyra þegar farið var um með rútum
eða leigubílum. Þvílík mælska. Óneit-
anlega varð manni hugsað til ýmissa
þeirra er stjórna hávaða- og kjafta-
þáttum í útvarpi hér heima.
Þar er oft erfitt að heyra hvort við-
komandi ætlar að takast að koma út
úr sér óbrenglaðri setningu og þá eft-
ir „sko“ „hérna“, ef ekki jafnvel „ha
og uss og pú og kannski og sei, sei“.
Oft varð uppi fótur og fit ef spurt
var hvort viðkomandi kynni ensku, þá
upphófst leit að honum eða henni sem
gæti bjargað sér á því máli og þeir
hinir sömu voru oft æði umsetnir.
Hver er þróunin í
lagnamálum?
Það er líklega kominn tími til að
snúa sér að efninu og því erindi sem
var ástæða þess að vera skyndilega
við Scala dyr, en sýningarsvæði er
nánast inn í miðri borginni.
Í stuttu máli er augljóst að það
lagnaefni sem er í mikilli sókn nú er
álplastið, eða álpexið sem það er oft-
ast kallað, þó ekki sé alltaf um pex-
plast að ræða við gerð þessara röra.
Plaströr úr margskonar efnum voru
að sjálfsögðu fyrirferðarmikil, fram-
leiðsla þeirra er geysilega fjölbreytt
bæði að efni og stærðum. Hinsvegar
virðist það kerfi sem margir bjuggust
við að yrði mjög ríkjandi, rör-í-rör
kerfið, á undanhaldi, það voru fáir
sem sýndu slík kerfi.
Þrykkt tengi eru mikið framleidd,
en þó er viss þróun í áttina að nota
skrúfaðar tengingar, þó á þunn-
veggja rörum sé.
Snittuðu tengin og rörin sáust
þarna þó þau hafi verið á hröðu und-
anhaldi og það fáránlegasta sem sást
á sýningunni er frá framleiðendum
slíkra röra. Tveir slíkir sýnendur
sýndu rör og tengi þannig breytt að í
tengjunum var ekki skrúfgangur
heldur tvær pakkningar, tengingu
einfaldlega smeygt upp á rörið og
þrykkt.
Rökræðum frá Íslendingi og
ábendingum um að ef slíkur tengi-
máti væri notaður gætu rör og tengi
verið miklu þynnri þegar ekki þyrfti
að snitta og sama efni notað í þrefalt
fleiri metra og tengihluta, var tekið
með þunga. Þegar hér var komið um-
ræðu misstu Ítalir yfirleitt síðustu
kunnáttu sína í öðrum málum en
móðurmálinu, hristu höfuðið og
mælskan hvarf.
En látum lokið í bili, en sagt verður
frá fleiru síðar meir.
Í Mílanó er fleira að sjá en Scala
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Rörin og tengin jafnefnismikil og þykk, aðeins pakkningar og þrykking í staðinn
fyrir snittun og skrúfun.
Þessi flúraði tyrkneski pottofn mundi
sóma sér vel víða í Þingholtunum.