Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 27
nefnd hvort hún gæti hugsað sér að hafa þægilega stóla, líkt og bíóstóla, í staðinn fyrir kirkjubekki. Þetta þótti nokkuð róttæk hugmynd og töluvert langt frá hinum hefðbundnu kirkjubekkjum sem á sínum tíma voru hannaðir með það í huga að spara pláss og ekki síður til að halda kirkjugestum vakandi. En Benjamín hafði eldra fólk m.a. í huga, en það er sá hópur sem mest sækir kirkju, og hann vildi ekki að það þyrfti að standa upp til að hleypa fólki framhjá. Einnig vildi hann að rúmt aðgengi yrði fyrir hjólastóla. „Fólki á að líða vel í sætunum og þeir eiga ekki að fæla fólk frá því að koma í kirkjuna. Það er hlutverk prestsins að halda því vakandi.“ Sóknarnefnd féllst á hugmyndir Benjamíns um stóla og niðurstaðan varð sú að pant- aðir voru stólar frá Ítalíu. Fyrirtæk- ið sem framleiddi stólana tók stólana síðar sem dæmi um hvað þeir hefðu best gert, í kynningarbæklingi fyrir fyrirtækið. Benjamín segir að ánægjulegt hafi verið að vinna með sóknarnefnd og bygginganefnd, því þau voru sátt við að fara ekki endi- lega troðnar slóðir og tilbúin að hlusta á allt sem gæti orðið til góðs. „Við ræddum m.a. um hljómburð, en ég hafði miðað við að lögun kirkju- skipsins yrði þannig að hljómburður yrði sæmilegur. Hátalari var síðan settur undir annan hvern stól og hljóðkerfið stillt mjög lágt með örlít- illi seinkun þannig að myndaði eins konar bakhljóð. Hámarksómtími fyrir talað orð er u.þ.b. ein og hálf sekúnda, en við vildum hafa lengri ómtíma fyrir orgelið, eða tvær sek- úndur. Sé ómtíminn lengri verður óþægilegt að hlusta á talað orð og eru þess dæmi í kirkjum hér í Reykjavík að ómtíminn sé hafður allt að fjórar sekúndur, en þá heyrist hið talað orð mjög illa. En við vildum sem sagt að bæði tónlist og talað orð fengju notið sín og því var ákveðið að fara þessa millileið og þetta tókst vel.“ Heildarsvipur Til að ná heildarsvip á innviði kirkjunnar var ákveðið að Benjamín hannaði einnig altarið, ræðupúltið og uppistöður fyrir skírnarfontinn. Altarið var hannað úr sams konar viði og orgelið og rimlarnir í þakinu. Útkoman varð nett og einfalt fríst- andandi altari. Benjamín bar það undir séra Þorberg Kristjánsson, sem þá var sóknarprestur Digrnaes- sóknar, hvort færa mætti altarið að- eins fram á gólfið, en samkvæmt gamalli hefð átti altarið að vera upp að vegg tengsl milli kórs og altaris yrðu ekki rofin með því að ganga þar á milli. Yngri menn hafa ýtt þessum hugmyndum til hliðar og sögðu að Guð væri alls staðar og því væri ekk- ert að óttast þótt þetta samband væri rofið. Séra Þorbergur Krist- jánsson aðhylltist gömlu kenninguna sjálfur, en sagði að hann hefði skiln- ing á túlkun yngri manna og þar sem hann ætti ekki mörg ár eftir sem sóknarprestur vildi hann að altarið yrði gert eftir hugmyndum þeirra sem taka ættu við, og varð það úr. Kirkja með reisn Kirkjan stendur í halla og því fannst Benjamín nauðsynlegt að hafa bygginguna háa og öfluga svo hún hefði til að bera reisn og yrði sýnilegri. Efnisval utanhúss dregur athyglina að kirkjuskipinu og skerp- ir andstæður bygginganna tveggja. Veggir kirkjuskipsins eru klæddir með áberandi lituðum; gljáfægðum steinflögum, þakið úr kopar, en þjónustubyggingarnar eru múrhúð- aðar. Aðaldyrnar snúa í norður og eru í skjóli fyrir vestanátt, en kirkj- an snýr í norður og suður. Digra- neskirkja tekur 340 manns í sæti, en í hliðarbyggingunum eru m.a. safn- aðarsalur, kennslustofur, skrif- stofur, búningsherbergi, geymslur og fleira. Herra Sigurbjörn Einarsson bisk- up tók fyrstu skóflustunguna að Digraneskirkju 27. mars 1993 og var kirkjan vígð 25. september 1994. Frá fyrsta degi hefur Digranes- kirkja verið söfnuði sínum gott skjól, bæði til trúariðkana og til fé- lagsstarfs, og er traustur fulltrúi þeirra trúarlegu tákna sem hún er ofin úr. gudlaug@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 C 27HeimiliFasteignir              ! ! " # $ %                   & ! %''( ) $!    !   " #    $     %&  '       ( "( $     )*   "    *&&& + " # +         #, ( -&     %,-( &%$ ! ! !.& # " #.   '       / - 01'   !  2& .  &  /( .& 0 1 $. # ! /       ' #  %.& & &# !    3 (. , 4'0  1    %! & , &%$ !.& , (  !+ 2$.$ /   5 6       1'     "7     0    3* 4 $ +   6   &            # ! + 35  +   %%       ' 0  (-8   (    9 !  :& .  & ! % 6(7 ! !)$ ;.'  ,       '  /   5 1' .  8 &$$ # ! '    +     &   7( ( (.'      " 1'     6'   ( "( 6' '  <        & #( -     ' 56( 0, 1   $ 6  (0   . ,  =  '  " ' '        & !& & +    #     "      9:&;&4  %           4.   !    5       % (-0  &%$ ! ! $* >     ?@@ 8*A/   5 1'  0  %,-( &%$ ! ! 1#&%$ # " #.   '       /  5 1'   !  2& .  %'6 &%$ ! ! +! #/ (.'     %! & ! !4 & !   ,    ,     /   '  % ! &% !07         # "  ' '   &$ )%  &    %2  ,      (    ) '  B    0 '  7 .& ( 7 *  .& 4<$+ $ =  # "    #.     #. '   ( "(    1  '  $<& + !.& +         .     !!# !  1* ' !   .    C   D -2&%  1'        %  1>)         !   (" *E-& . 3?@A: BBC8" DB" & ?<.  $&/ 1#&%$ ' / + ,-00'' $&.) Stálborð og stólar sem eru til sölu hjá Fríðu frænku og kostar allt saman 20 þúsund kr. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stálborð Alltaf á þriðjudögum Þetta er Kosmosvog, bresk að ætt- erni og vegur hún allt að tíu kíló- grömmum. Diskarnir eru úr kopar og kostar gripurinn 7.500 kr. í Fríðu frænku. Gamla vogin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.