Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 28
28 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Kári Fanndal Guðbrandsson,
Sigrún Sigurpálsdóttir,
lögg. fasteignasali.
Raðhús - einbýlishús
Holtsbúð - Gbæ
Vorum að fá í einkasölu einbýlishús,
steinhús, 134,7 fm og mjög stór tvö-
faldur bílskúr. Húsið skiptist í stofu,
sjónvarpshol, 4 svefnherbergi, eldhús,
baðherbergi, þvottaherbergi o.fl. Mikið
endurnýjað hús, m.a. loftaklæðningar
og gólfefni, fallegt parket og náttúru-
steinn. Arinn. Mjög góður garður. Frá-
bær staður. Draumahús unga fólksins.
Verð: 20 millj.
Hörgslundur
Mjög gott og fallegt einbýlishús á fínum
stað! Húsið er 219,4 fm auk tvöfalds
bílskúrs, 50,2 fm, og undir honum er
jafnstór kjallari. Stór garðskáli. Mjög
skemmtilega hannað og vandað hús.
Góð lán. Verð: 23,8 millj.
Eyktarsmári Gullfallegt og vand-
að raðhús á þessum góða stað. Húsið
er 140 fm með innbyggðum bílskúr. Ar-
inn í stofu. Garður er ekki stór en allur
afgirtur með skjólveggjum, fín útiað-
staða. Þetta er aldeilis freistandi hús
fyrir t.d. þá er vilja minnka við sig en
samt vera í sérbýli. Verð: 21,3 millj.
Hvassaberg
14229_1_1.jpg Einbýlishús, timburhús,
149 fm ásamt 43,8 fm bílskúr. Húsið er
mjög gott og notalegt. 4 svefnherbergi.
Sérlega rólegur staður. Möguleg skipti
á t.d. 3ja-4ra herb. íbúð í Hafnarfirði,
gjarnan með bílskúr.
Atvinnuhúsnæði
Snorrabraut
Mjög gott 67 fm verslunarhúsnæði í ný-
legu húsi. Laust á næstunni. Gott verð.
S. 562 1200 F. 562 1251
2 herbergja
3 herbergja
Álftamýri 3ja herbergja íbúð á 3.
hæð í góðu húsi. Bílskúr. Suðursvalir.
Verð: 11,3 millj.
4 herbergja og stærra
Kvíholt - Hf. - laus
Til sölu efri hæðin í þessu fallega húsi.
Hæðin er 140 fm og 23 fm bílskúr.
Skiptist í stofu, gott hol, svefnálmu með
4 svefnherbergjum og baðherbergi, eld-
hús og innaf því þvottaherbergi, forstofu
og snyrtingu. Björt, falleg íbúð. Frábært
útsýni. Veðbandalaus. Verð: 15,5 millj.
Hlíðar - ris
5-6 herbergja, 101,9 fm, risíbúð í 4-býl-
ishúsi miðsvæðis í Hlíðunum. Íbúðin er 2
saml. stofur, 3 svefnherbergi í íbúðinni
og 1 frammi á stigapallinum, eldhús,
baðherbergi og gangur. Suðursvalir.
Sérhiti. Góð íbúð.
Víkurás 3ja herb. 85,2 fm íbúð á
2. hæð. Íbúðin er stofa, 2 góð
svefnherb., eldhús, baðherb., hol og
geymsla. Góðar suðursvalir. Stæði í
bílageymslu fylgir. Góð íbúð. Húsið
klætt. Góð lán. Verð: 11 millj.
Hraunbær 2ja herb. 57,3 fm
íbúð á 1. hæð í 3ja hæða blokk.
Íbúðin er stofa, svefnherbergi, eld-
hús, baðherbergi og gangur. Nýleg
eldhúsinnrétting. Suðursvalir. Góð
íbúð á mjög góðum stað. Öll þjón-
usta, versl. og skóli í nágrenninu.
Verð: 8,5 millj.
SELJENDUR ATHUGIÐ!
Okkur vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á söluskrá.
Ef þið eruð í söluhugleiðingum þá vinsamlega
hafið samband.
Reykjavík - Tröð, fasteignasala,
er með til sölu eða leigu frá næstu
áramótum timburhúsið Skólabrú 1,
sem byggt var 1907 og er það 439
fermetrar að flatarmáli. Þetta er
atvinnuhúsnæði nú en var byggt
sem einbýlishús. Húsið er á þrem-
ur hæðum, kjallari, hæð og ris.
„Húsið er stórglæsilegt hvað
varðar innréttingar og allir við-
haldsþættir til fyrirmyndar. Húsið
er í B-friðun,“ sagði Böðvar Reyn-
isson hjá Tröð.
„Kjallarinn og 1. hæðin er 158,3
fermetrar og risið er 122,4 fer-
metrar, en það er undir súð. Þrír
inngangar eru í húsið, tveir á 1.
hæð og einn í kjallara. Inngang-
urinn í kjallarann er á bakhlið
hússins. Kjallarinn skiptist í opið
rými, eldhús, bar og þrjú salerni,
eitt fyrir starfsmenn og hin fyrir
gesti. Keramikflísar eru á gólfum
salarins, hvítar flísar á salernum
en dúkur á eldhúsi. Lofthæð er um
2,3 m. Gluggar eu litlir en með
opnanlegum fögum. Tröppur liggja
inn af salnum upp á 1. hæð hússins
en þar er veitingasalurinn, aðal
eldhúsið, stór góð forstofa og
Kristjánsstofa sem er gamla augn-
læknastofa Kristjáns Sveinssonar
augnlæknis, heiðursborgara
Reykjavíkur á sinni tíð.
Aðal inngangur hússins er á
þessari hæð og snýr hann út að
Skólabrúnni eða í suður, einnig er
inngangur norðan megin inn í eld-
hús. Fallegt mahogny mosaik
parket er á allri hæðinni nema á
eldhúsinu, þar er dúkur á gólfi,
það er ekki mjög stórt en nýtist
vel. Allar „græjur“ eru til staðar
þar. Lofthæð er um þrír metrar.
Gluggar eru allan hringinn. Frá
forstofunni liggja tröppur upp á
þriðju hæð, þar er „koníakstofan“.
Þar eru dökkar viðarfjalir á gólf-
um, góð lofthæð er upp í mæni en
hluti hæðarinnar er undir súð,
þakhallinn er þó nokkur þannig að
hæðin nýtist mjög vel þrátt fyrir
að vera undir súð. Hæðin er skráð
122,4 fm. Hæðin er rétt eins og
hinar hæðirnar, mjög opin, skiptist
í sal með bar, lítið starfsmanna-
rými og þrjú salerni, eitt fyrir
starfsmenn og tvö fyrir gesti,“
sagði Böðvar.
Að sögn Bjarna Marteinssonar
arkitekts, sem er eigandi hússins
ásamt eiginkonu sinni Guðborgu
Kristjánsdóttur, hefur húsinu
Skólabrú 1 verið breytt nokkuð.
„Risið var áður stúkað niður í 9 lít-
il herbergi og geymslur. En við
opnuðum þetta allt saman og inn-
réttuðum þarna teiknistofu í til-
tölulega opnu rými,“ segir Bjarni.
Við fórum svo í að innrétta kjall-
arann 1988, þar sem áður hafði
verið lítt nothæft geymslupláss.
Við dýpkuðum kjallarann að hluta
til og þar var innréttuð veitingaað-
staða sem var síðan opnuð 1. mars
1989 er bjórinn var leyfður. Sam-
fara þessu var farið í að lagfæra
miðhæðina. Segja má að hún hafi
verið öllu endurnýjuð en í þeim stíl
sem hún var upphaflega. Opnað
var þó á milli herbergja og rými
sameinuð en byggingarefni voru
þau sömu og þau sem notuð voru
upphaflega.
Steyptar voru upp nýjar tröppur
sunnanmegin og inngangi breytt.
Teiknistofan er nú flutt á Háteigs-
veg 3 en rýmið í risinu var sam-
einað veitingarekstri á Skólabrú 1.
Þá var settur nýr stigi á milli
hæða til að tengja saman veit-
ingastofuna og risið. Gjörbylt hef-
ur verið öllu umhverfi í kringum
húsið og nýlega hefur verið sam-
einað allt undir einn hatt í rekstri í
húsinu og í framhaldi af því var
settur stigi niður í veitingaaðstöð-
una þannig að innangengt er bæði
í kjallara og ris. Sömu rekstrarað-
ilar hafa verið frá upphafi með
veitingarekstur í húsinu.“
Í bókinni Kvosin segir um
Skólabrú 1:
„Lóðin var áður hluti af lóðinni
Pósthússtræti 13–15, sem Jónas
Jónassen landlæknir keypti árið
1887. Hann seldi mestan hluta lóð-
arinnar aftur en hélt eftir vestasta
hluta hennar. Þar lét hann reisa
hús árið 1907 handa dóttur sinni
Soffíu og manni hennar, Eggerti
Claessen málflutningsmanni.
Húsið, sem enn stendur, er ein-
lyft timburhús á hlöðnum kjallara,
portbyggt og með háu risi. Það er
byggt eftir teikningum Einars Er-
lendssonar húsameistara. Það er
járnklætt grindarhús og ber nokk-
urn keim af sveitserhúsunum svo-
kölluðu, byggt sem einbýlishús. Á
suðvesturhorni og á suðurhlið eru
útskot, karnapar, en norðvestur-
og suðausturhorn eru sneidd. Á
vesturgafli eru svalir. Húsiðnu
hefur verið lítið breytt frá upphafi
en þó var settur kvistur á suð-
urhlið þess árið 1925. Kristján
Sveinsson keypti húsið 1943. Hann
hafði þar læknastofu frá 1933 til
dauðadags árið 1985.
Í æviminningum Kristjáns
Sveinssonar segir frá tildrögum
þess að hann hóf starfsemi og
keypti þetta hús af Soffíu dóttur
Jóanssens. Þau skildu hún og Egg-
ert Claessen og bjó hún áfram í
húsinu en leigði út hluta þess. Hún
leigði Kristjáni Sveinssyni.
„Hinn 1. desember árið 1932
opna ég síðan auglækningastofu
mína í þessu húsi. Og þar hefur
hún verið síðan – í fimmtíu ár.
Hinn 28. nóvember 1943 deyr
Soffía, og þá á að selja húsið. Ég
kunni vel við mig þarna og hafði
farnast þar vel. Svo það verður úr
að við Jónas bróðir (Sveinsson
læknir) ákveðum að kaupa húsið.
Við bjóðum 300 þúsund krónur í
það – en því tilboði er hafnað og
húsið sett á uppboð.
Tómas Jónsson bæjarritari bauð
í það fyrir hönd bæjarins. En þeg-
ar hann var kominn upp í 85 þús-
und, ja, þá komu ekki fleiri boð.
Menn hugsuðu sem svo, að gagns-
laust væri að bjóða í á móti bæn-
um.
Litlu seinna hitti ég Kristjáns
Kristjánsson bæjarfógeta og minn-
ist á það við hann, að mér þyki sal-
an á húsinu ætla að verða allein-
kennileg. Þá segir hann: „Ja,
ykkar tilboð getur staðið enn, ef
þið viljið.“
Svo útkoman varð sú, að við
Jónas bróðir fengum húsið. Litlu
seinna keypti ég hlut Jónasar – og
hef átt húsið einn síðan.
Það leið ekki að löngu, þar til
margt manna leitaði til mín. Já,
biðstofan var oft sneisafull.“ Ki-
stján hafði fyrir sið að hleypa fólki
inn til sín í hópum og það voru orð
að sönnu að mikil aðsókn væri að
læknastofu hans. Gunnlaugur
Briem segir svo frá: „ Eitt sinn
var faðir minn að ganga framhjá
Dómkirkjunni. Þá hittir hann
kunningja sinn, sem segir: „Hvern
ætli sé verið að jarða þarna?“ og
bendir á lækningstofu Kristjáns.
Þá var biðstofan orðin svo full, að
fólkið stóð í hnapp úti á tröpp-
unum.“ Þess má geta að í um-
ræðunni er að koma fyrir minn-
ismerki um Kristján Sveinsson
augnlækni og heiðursborgara
Reykjavíkurborgar.
Skólabrú 1
Kristján Sveinsson á augnlæknastofu sinni.
Skólabrú 1 er timburhús sem byggt var árið 1907. Húsið er 439 fermetrar að
flatarmáli , á þremur hæðum, kjallari, hæð og ris.
KETILL úr stáli frá Eva Trio,
kostar 7.080 kr. með 20% af-
slætti.
Úr stáli
FLÓRENZ-SÓFARNIR eru framleiddir af Öndvegi og hægt að fá þá eftir máli og í
ýmsum útfærslum og með mörgum gerðum áklæðis.
Flórenz