Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.03.2002, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 C 31HeimiliFasteignir skoðana var afar stirt á milli þess- arra tveggja heiðursmanna. Brugðið var á það ráð að séra Jens Pálsson í Görðum keypti jörðina á sínu nafni árið 1897. Sagt er að prestur hafi haft mikið samviskubit yfir því að fara á bak við Tryggva bankastjóra. Jörðin var síðan leigð þar til Skúli gat flutt að vestan. Prentsmiðjuvélarnar voru með í för suður og þeim komið fyrir á Bessastöðum á meðan fjölskyldan bjó þar. Heimilisbragur Skúli og Theodóra fluttu í nýja húsið í Vonarstræti 12 haustið 1908. Húsið var mjög veglegt á þeirra tíma vísu. Theódóra hafði ekki unað hag sínum á Bessastöðum og var um- skiptunum fegin. Segir sagan að hún hafi orðið vör við reimleika á staðn- um eins og margir fleiri sem þar hafa búið. Prentsmiðjan var flutt frá Bessastöðum í Vonarstrætið í út- byggingu sem hafði verið reist þar í þeim tilgangi. Í ævisögu Skúla Thor- oddsen kemur fram að sumir hátt- settir borgarar höfðu miklar áhyggj- ur af frjálsræði barnahóps Thoroddsenhjónanna, sem var mun meira en flestra jafnaldra þeirra. En stefna hjónanna var sú að gera börn- in að sjálfstæðum einstaklingum. Þó að miklar hrakspár væru í gangi með uppeldi systkinhópsins og ýmsum of- byði frjálsræðið, sýndi sig fljótlega að þær rættust ekki. Fastar venjur voru á heimilinu eins og matmáls- tímar og að enginn fór út að leika sér fyrr en hann eða hún hafði lokið við heimalærdóminn, það sá frú Theo- dóra um. Mikill gestagangur var í Vonar- stræti 12, fólk kom að hitta hjónin og börnin áttu marga vini. Húsbóndinn á heimilinu sat við skriftir daglangt. Hann reis snemma úr rekkju að morgni dags og gekk til náða um tíuleytið á kvöld- in. Skúli notaði nef- tóbak og sagt var að hann hefði blandað það með koníaki, en ekki notað áfengi á annan máta. Tóbakið hafði hann einnig til þess að þerra blek, dreifði því yfir ný- skrifaða örkina. Skrif hans birtust aðallega í Þjóðviljanum sem var prentaður í prentsmiðjunni í útbyggingunni norðan við húsið. Í kjallaranum var prentvélin og pappírsgeymsla sem einnig var notuð fyrir ljósmyndaher- bergi þar sem ljósmyndarar fram- kölluðu myndir sínar. Gólfið í kjall- aranum var steypt og styrkt með 15 cm þykkri ásteypu undir prentvél- inni. Setjarasalurinn var á hæðinni og var lyfta á milli hæðar og kjallara sem hífð var með handafli. Skúli Thoroddsen sat á Alþingi í aldarfjórðung, ásamt erilsömum þingstörfum rak hann verslun á Ísa- firði. Eins og gefur auga leið hafði hann gott starfsfólk til þess að sjá um reksturinn. Áður en Skúli lést, aðfaranótt 21. maí 1916, hafði hann selt prentsmiðjuna sem var flutt á Laugaveg 32 A og einnig verslunar- reksturinn á Ísafirði. Skúli Thorodd- sen varð aðeins 57 ára. Ekkjan seldi húsið ári eftir en bjó þar áfram með börnum sínum sem þá voru ekki far- in að heiman, til ársins 1930. Húsið keypti frændi hjónanna, Þórður Bjarnason kaupmaður, fæddur 2. febrúar 1871 að Reykhólum. Húsið að Vonarstræti 12 var lengst af notað til íbúðar. Nokkru eftir að prentsmiðjan flutti úr út- byggingunni var gerð þar íbúð. Í íbúaskrá frá árinu 1910 er þar að finna sautján manns á tveimur heim- ilum. Á heimili Skúla og Theodóru eru talin tíu af börnum þeirra, tvær vinnukonur og ein vetrarstúlka, tveir prentarar, Þórhallur Bjarnason og Haraldur Einarsson, einnig Guð- björg Jafetsdóttir, fædd 1856. Hún var oftast kölluð Bauja og var fóstra barnanna, ráðskona á heimilinu og mikil vinkona Theodóru. Á hinu heimilinu bjuggu fjórar konur, tvær þeirra voru kennslukonur, Ingibjörg Brands og frænka Theodóru Elín Matthíasdóttir (dóttir Matthíasar Jochumssonar) þar var einnig Helga Thorlacius forstöðukona og vinnu- konan Guðrún Snjólfsdóttir. Theodóra Thoroddsen lést 23. febrúar 1954. Hún bjó þá hjá Sigurði syni sínum. Árið 1966 kaupir ríkis- sjóður eignina, eftir það voru í hús- inu skrifstofur. Árið 1979 voru all- miklar framkvæmdir við húsið. Að utan var skipt um járn, bæði á veggj- um og þaki. Brandveggurinn var kominn með sprungur og talsverð vinna að gera við hann. Gluggar sem eru upphaflegir voru kíttaðir og við- gerðir þar sem þurfti og málaðir. Að innan var pappír og strigi á veggjum endurnýjaður og síðan veggfóðrað með pappírsveggfóðri. Hurðir í hús- inu voru gerðar upp og lakkaðar. Húsið er byggt áður en vatns- og raf- magnsveitan komu. Það er eftirtekt- arverð sú mikla framsýni Skúla að hann lét leggja raflagnir í húsið og frárennslisrör við byggingu þess. Fyrstu árin voru útikamrar við hús- ið. Upphaflegu raflagnirnar voru notaðar fyrir lagnir frá bruna- og öðrum viðvörunarkerfum sem sett voru í húsið þegar ný raflögn var sett. Fyrir embætti húsameistara rík- isins sá Björn Kristleifsson arkitekt um framkvæmdir við húsið. Húsið er með reisulegustu húsum í borginni frá þessum tíma. Það er mjög upp- runalegt. Gluggar eru margra faga og mikil prýði að kvisti á þaki og gluggakvisti við hliðina. Í þessu húsi skrifaði Theodóra sögur, ljóð og þul- ur sem hún er þekkt fyrir og hafa lif- að með þjóðinni fram á þennan dag. Fyrir nokkrum árum komu upp raddir um að flytja húsið en af því varð ekki. Vonandi fær það að standa í friði á sínum stað um ókomin ár. Heimildir: B-skjöl varðveitt á Borg- arskjalasafni, brunavirðingar, íbúaskrár, ævisaga Skúla Thoroddsen, ævisaga Sig- urðar Thoroddsen og viðtöl við afkom- endur Theodóru og Skúla Thoroddsen. Theodora ThoroddsenSkúli Thoroddsen Thoroddsen-systkinin: Sigurður verkfræðingur og alþingismaður, Kristín yf- irhjúkrunarkona og skólastjóri Hjúkrunarkvennaskólans, Sverrir bankafulltrúi, María kona Haraldar Jónssonar læknis, Katrín læknir og alþingismaður, Guð- mundur læknir og prófessor, skólastjóri Ljósmæðraskólans, rektor Háskóla Ís- lands, Bolli borgarverkfræðingur, Unnur kona Halldórs Georgs Stefánssonar læknis, Ragnhildur kona Pálma Hannessonar rekstors Menntaskólans í Reykja- vík, Þorvaldur iðnverkamaður í Ameríku. Skúli yfirdómslögmaður og alþing- ismaður og Jón lögfræðingur og skáld, voru báðir látnir er mynd þessi var tekin. Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fast- eignasali Úlfar Þ. Davíðsson sölustjóri Börkur Hrafnsson lögmaður HATÚN 6A SÍMI 5 12 12 12 www.foss.is Netfang: foss@foss.is FASTEIGNASALA ATVINNUHÚSNÆÐI HAFNARFJÖRÐUR – GLÆSILEGT Til sölu eða leigu í miðbæ Hafnarfjarðar stórglæsi- legt húsnæði með frábæru útsýni yfir höfnina í góðu lyftuhúsi. Lyklar og allar nánari upplýs- ingar á skrifstofu. NÝBYGGINGAR KIRKJUSTÉTT - GRAFARHOLT Falleg raðhús alls 193,3 fm á tveimur hæðum á góðum stað í Grafarholtinu. Stutt verður í alla þjónustu og skóla. Húsin afhent fullbúin að utan en fok- held að innan og lóð grófjöfnuð. Húsin eru tilbú- in til afhendingar. Verð. 15,5–15,8 m. Nánari uppl. og teikn. á skrifstofu. EINBÝLISHÚS ELLIÐAVATN – STÓRGLÆSILEGT Erum með á sölu einbýlishús í algerum sérflokki við Elliðavatn. Húsið er 278,4 fm á þremur pöll- um. Allar innréttingar einstaklega glæsilegar. Húsið er hannað af arkitektinum Steve Christer. ÞINGHOLT Glæsilegt 133 fm nýuppgert ein- býlishús á Lokastíg. Húsið er á þremur hæðum, furugólfborð eru á annarri og þriðju hæð, flísar á fyrstu hæð. Eignin er öll nýendurgerð. Eign sem vert er að skoða. Verð 17,9 millj. RAÐHÚS BÁSBRYGGJA – ÚTSÝNI Mjög gott ca 207 fm raðhús á þremur hæðum á frábærum stað í Bryggjuhverfi. Húsið stendur við sjávar- bakkann og er með glæsilegu útsýni. Rúmgóður innbyggður bílskúr. Tilboð óskast. SÉRHÆÐ SÓLHEIMAR – ÚTSÝNI Rúmgóð og björt sérhæð með miklu útsýni yfir Laugardalinn. Þrjú góð svefnherbergi, stofa og sólstofa. Rúmgott eldhús. Flísalagðar svalir. Verð 14,5 millj. 4RA-5 HERBERGJA VESTURBÆR – BRÁVALLAGATA Rúmgóð rúmlega 90 fm íbúð í góðu steinhúsi á vinsælum stað í Vesturbænum. Tvær samliggj- andi stofur og tvö góð svefnherbergi. Verð 11,5 millj. KÓPAVOGUR – LÆKJASMÁRI Mjög góð íbúð á tveimur hæðum á þessum vinsæla stað í Kópavoginum. Sérstæði í bílskýli fylgir eigninni. Sérinngangur. Verð 15,9 millj. LEIFSGATA – MIÐBÆR Björt og falleg fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð. Nýlegt og fallegt eldhús. Flísalagt baðherbergi. Nýtt park- et. Góður garður. Góð eign á góðum stað. Verð 10,5 m. 3JA HERBERGJA BÁRUGATA – HÆÐ Góð hæð í einstak- lega fallegu steinhúsi á þessum vinsæla stað. Hátt til lofts og björt. Nýlegt rafmagn og pípu- lögn. Parket og flísar á gólfum. Verð 12,9 millj. ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU EÐA SÖLU TIL LEIGU EÐA SÖLU HÚSNÆÐI Á HELSTU VERSLUNARSVÆÐUM BORGARINNAR KNARRARVOGUR Vorum að fá í sölu gott ca 670 fm verslunar- og skrifstofu- húsnæði við Knarrarvog í Reykjavík. GRAFARVOGUR Til sölu blandað glæsilegt skrifstofu- og lagerhúsnæði við Fossaleyni. Stærð húss er rúmlega 2.100 fm. FAXAFEN Til leigu við Faxafen um 700 fm, hagstæð leiga. HLÍÐARSMÁRI 2000 fm þar af 1000 á verslunarhæð. Verð 1200 og 1400 kr. pr. fm. VATNAGARÐAR Gott atvinnuhúsnæði 945,8 fm. Húsnæðið er á tveimur hæð- um. Húsið var tekið í gegn að innan fyrir u.þ.b. tveim árum. Mikið útsýni til Esjunn- ar. Gæti vel hentað sem lager- og skrifstofuhúsnæði. Tvennar aðkeyrsludyr eru á framhlið. Símkerfi ásamt tölvu- og raflögnum getur fylgt. Húsnæðið er laust nú þegar. Góð lán geta fylgt með. Tilboð. VIÐ LAUGAVEG 800 fm á 1. og 2. hæð og í kjallara. Hagstæð leiga. GRAFARVOGUR Skrifstofu- og þjónusturými 2150 fm. Meðalverð 1000 kr. pr. fm. SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR Til sölu glæsilegt rúmlega 300 fm atvinnuhúsnæði, miklir möguleikar. Frekari upplýsingar á skrifstofu. HVERAFOLD - ÁHV. BYGGSJ. CA 5,6 M. Góð ca 90 fm íbúð á 2. hæð í góðri vel staðsettri blokk, glæsilegt útsýni. Þvottahús í íbúð. Parket og flísar á gólfum. Verð 11,9 millj. 2JA HERBERGJA BREIÐHOLT – HÓLAR Óvenju rúmgóð og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð í góðu húsi í snyrtilegu hverfi. Verð 8,2 millj. MIÐBÆR – LAUGAVEGUR Mjög góð tveggja herbergja risíbúð í bakhúsi við Lauga- veginn. Spónaparket á gólfum. Íbúðinni er hag- anlega fyrir komið og hver fermetri nýttur til hins ýtrasta. Verð 6,8 millj. Magnús I. Erlingsson lögmaður Fasteignasalan Foss er flutt í nýtt húsnæði í Hátúni 6a (Fönix-húsið) VANTAR VEGNA MIKILLAR SÖLU VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ FASTEIGNASALAN FOSS ER FLUTT Í NÝTT HÚSNÆÐI Í HÁTÚNI 6A (FÖNIX-HÚSIÐ)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.