Morgunblaðið - 19.03.2002, Page 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
www.lyngvik.is Sími 588 9490 • fax 568 4790
Sigrún Gissurardóttir, lögg. fasteignasali
Steinar S. Jónsson, sölustjóri, GSM 898 5254
Daníel Björnsson, sölufulltrúi GSM 897 2593
Félag Fasteignasala
OPIÐ mánudaga-fimmtudaga frá kl. 9-18,
föstudaga frá kl. 9-16. Svo er GSM-inn alltaf opinn.
NÝBYGGINGAR
SÓLARSALIR - AFHENDING Í
MARS Það er ein íbúð eftir í þessu
glæsilega fimm íbúða húsi við Sólarsali.
Íbúðin sem er 137 fm fimm herbergja.
Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna fyrir utan
baðherbergi sem skilast flísalagt. Að utan
skilast húsið fullbúið, lóð tyrfð og bílaplan
malbikað, að innan skilast sameign fullfrá-
gengin. Öll þjónusta, þ.a.s. verslun, heilsu-
gæsla, skóli, leikskóli, sundlaug ásamt
íþróttasvæði verður í göngufæri. Allar nán-
ari upplýsingar og teikningar á Lyngvík.
SKJÓLSALIR - RAÐHÚS Nú
styttist í afhendingu á þessum þremur rað-
húsum við Skjólsali 12-16. Húsin eru 183
fm með innbyggðum 30 fm bílskúr, skilast
fullbúin að utan til málningar og lóð gróf-
jöfnuð, að innan skilast húsin fokheld. V.
13,5 m. (1228)
BLÁSALIR - MEÐ BÍLSKÚR
Vorum að fá til sölu 207 fm parhús á tveim
hæðum með innbyggðum bílskúr. Í húsinu
eru 5 svefnherbergi, stofa og sjónvarpshol.
Á efri hæðinni er hátt til lofts og búið er að
setja klæðningu í loftið. Húsið er til afhend-
ingar strax tilbúið til innréttinga. Verð 21,9
M. Áhv. 7,2 M Húsbréf.
LANDSBYGGÐIN
TRYGGVAGATA Á SELFOSSI
Vorum að fá til sölumeðferðar glæsilegt
138 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 27
fm bílskúr. Þrjú svefnherbergi, glæsilegt
eldhús með ALNO innréttingu, stór stofa,
gegnheilt parket og flísar. Húsið er til af-
hendingar strax. V. 13,9 m.
2JA HERBERGJA
ENGIHJALLI Vorum að fá í sölu 62 fm
2ja herbergja íbúð í lyftuhúsi við Engihjalla.
(1562)
GRUNDARSTÍGUR Vorum að fá í
sölu 2ja herbergja íbúð á þessum eftirsótta
stað. Íbúðin er til afhendingar strax. Verð
5,9 M. Áhv 3,3 M.
VÍÐIMELUR Vel staðsett 2ja herbergja
47,2 fm kjallara íbúð á þessum sívinsæla
stað. Verð 5.9 M. Áhv. 2. 5 M húsbr. (1591)
3JA HERBERGJA
SKÓGARÁS Vorum að fá í sölu góða
81 fm 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í góðu
litlu fjölbýli. Stórar suðursvalir. V. 11,2 m
VESTURBRÚN - LAUGARÁS
Vorum að fá í sölu mjög góða og mikið
endurnýjaða 87 fm jarðhæð með sér inn-
gangi í virðulegu steinhúsi við Vesturbrún.
Íbúð og sameign í mjög góðu standi. Sér
suðvestur verönd út frá stofu. Topp eign á
góðum stað. (1567)
NAUSTABRYGGJA Vorum að fá í
sölu mjög fallega 98 fm 3-4ra herbergja
íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Íbúðin er
með vönduðum innréttingum og gólfefnum
ásamt sér hannaðri halogen lýsingu. Bað-
herbergi með horn nuddkari. Sér suður
verönd. Íbúðin er laus og lyklar á Lyngvík.
ASPARFELL Vorum að fá í sölu 94,4
fm 3ja herbergja góða íbúð á 6. hæð mikið
útsýni. Í húsinu er húsvörður. Verð: 9,9 M.
Áhv 4.0 M Byggsj. (1590)
KRUMMAHÓLAR + BÍLAKÚR
Vorum að fá í sölu 90 fm 3ja herbergja
íbúð á 1.hæð ásamt 26 fm bílskúr. V. 10,7
m. (1563)
ENGJASEL + BÍLGEYMSLA
Vorum að fá í sölu góða og bjarta 90 fm
3ja herbergja íbúð íbúð á 3. hæð í litlu fjöl-
býli. Tvennar svalir með góðu útsýni. Íbúð-
inni fylgir stæði í bílgeymslu. V. 10,9 (1573)
FROSTAFOLD - MEÐ BÍL-
SKÚR Vorum að fá í sölu góða og vel
staðsetta 105 fm 3ja herbergja íbúð með
stórum suður svölum. Parket og flísar á
gólfum. Íbúðinni fylgir 23,6 fm bílskúr. Hús
og sameign í góðu standi. V. 13,9 m.
GRENIMELUR Vorum að fá í sölu
mjög vel staðsetta 83 fm 3ja herbergja
íbúð í kjallara í góðu húsi við Grenimel. Bú-
ið er að endurnýja gler og rafmagn að
mestu. V. 9,6m. (1531)
HRÍSRIMI - SÉRINNGANGUR
Um er að ræða vel staðsetta 94 fm 3-4
herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi
Stutt í skóla. V. 11,7m (1493)
4RA HERBERGJA
SÓLTÚN - GLÆSIEIGN Vorum að
fá í sölu glæsilega 134,8 fm 3-4 herbergja
íbúð á jarðhæð með sérinngang og stæði í
bílsgeymslu. Vandað er til allra innréttinga
og gólfefna.
LAUTASMÁRI - PENTHOUSE
Vorum að fá í sölu mjög vel staðsetta 145
fm penthouse íbúð á tveimur hæðum í
góðu lyftuhúsi við Lautrasmára. Stórar
suðursvalir með góðu útsýni. Vönduð gólf-
efni og innréttingar. (1534)
FELLSMÚLI - LAUS VIÐ
KAUPSAMNING Vorum að fá í sölu
127 fm fimm herbergja endaíbúð á 1.hæð í
fjölbýlishúsi við Fellsmúla. Þvottahús í
íbúð. Ákveðin sala afhending við kaup-
samning. (1506)
ÆSUFELL Góð 4-5 herbergja 105 fm
íbúð í góðu lyftuhúsi. Parket á gólfum,
endurnýjuð eldhúsinnrétting suður svalir.
Verð 10,9 m. (1549)
HÆÐIR
LANGHOLTSVEGUR - HÆÐ
OG RIS Vorum að fá í sölu mjög glæsi-
lega ca 140 fm sérhæð ásamt ca 35 fm
risi. Hæðin er öll endurnýjuð á vandaðan
og glæsilegan hátt og má þar nefna öll
gólfefni, baðherbergi, eldhús, allir veggir
einangraðir og klæddir með gipsi, allt raf-
magn og hitalagnir. Allt sér ásamt garði
með suður verönd og heitum potti. Vönd-
uð eign á góðum stað.
LYNGBREKKA MEÐ BÍLSKÚR
Mjög góð neðri sérhæð 149. fm ásamt sér-
stæðum 25 fm bílskúr í grónu hverfi. Íbúðin
hefur þrjú góð herbergi og mjög stóra
stofu. Suðurgarður með góðri verönd.
Þessi eign fæst í skiptum fyrir tveggja
íbúða eign í sama hverfi.Verð. Kr. 18,3 M.
Áhv. 5,8 M (1587)
RAÐHÚS-EINBÝLI
KRÓKABYGGÐ - ENDA-RAÐ-
HÚS Vorum að fá í sölu mjög gott og vel
staðsett 100 fm endaraðhús við Króka-
byggð í Mosfellsbæ. Mjög góður garður.
Áhv byggingarsj. V. 15,6 m. (1427)
FJARÐARSEL - ENDARAÐ-
HÚS MEÐ AUKAÍBÚÐ Vorum að
fá í sölu 235 fm endaraðhús með 3ja her-
bergja aukaíbúð með sérinngangi. Húsinu
fylgir sérstæður bílskúr. (1564)
ESJUGRUND - EINBÝLISHÚS
Á EINNI HÆÐ Vorum að fá í sölu
mjög vel staðsett 195,4 fm einbýlishús
með innbyggðum 43,7 fm bílskúr. Parket
og flísar á gólfum. Kamína í stofu. Stór af-
girt sólarverönd með heitum potti. Áhv. 6,0
m V. 16,5 m (1559)
HRAFNSHÖFÐI - MOSFELLS-
BÆ Vorum að fá í sölu nýlegt 175 fm rað-
hús með innbyggðum 30 fm bílskúr. Vand-
aðar innréttingar og gólfefni. (1563)
STAÐARBAKKI - RAÐHÚS Vor-
um að fá í sölu mjög gott og vel innréttað
210 fm pallaraðhús með innbyggðum bíl-
skúr. Glæsilegt eldhús, 3-4 svefnherbergi.
Gufubað. Tvennar stórar svalir. Stutt í alla
þjónustu. (1561)
HAUKALIND - RAÐHÚS Glæsi-
legt 207 fm raðhús á tveim hæðum með
innbyggðum bílskúr. Góðar stofur, mikið
útsýni, góð herbergi. Húsið er klætt með
viðhaldsfrírri klæðningu að utan og hiti
stétt, garður ræktaður. Ákveðin sala Verð
21,9 m. Áhv. 8,7. (1548)
STAÐARHVAMMUR - HAFN-
ARFIRÐI Um er að ræða mjög vel stað-
sett 254 fm raðhús með 36 fm innbyggð-
um bílskúr. Möguleiki að útbúa sér íbúð í
kjallara. Ákveðin sala. Skipti ath. á minni
eign.
HRAUNHÓLAR - 2JA ÍBÚÐA-
HÚS Í GARÐABÆ Mjög gott og
mikið endurnýjað einbýlishús með samþ.
aukaíbúð í kjallara. Húsið skiptist í aðal-
hæð sem er 132 fm með 45 fm bílskúr,
góðar suðvestur valir, ásamt 72 fm 2ja her-
bergja íbúð í kjallara með sérinngangi.
Íbúðirnar eru báðar í mjög góðu standi.
SKIPTI Á MINNI EIGN MÖGULEG
ATVINNUHÚSNÆÐI
SALARVEGUR - PENTHOUSE
Vorum að fá í sölu glæsilega 312 fm skrif-
stofu hæð í nýju verslunar og skrifstofu-
húsnæði með lyftu við Salarveg í Kópa-
vogi. Húsnæðið býður upp á mikla mögu-
leika þar sem hæðinni fylgir 260 fm hellu-
lagðar svalir með glæsilegu útsýni. Af-
hending við kaupsamning. Allar nánari
upplýsingar og teikningar á Lyngvík.
TRÖNUHRAUN - HAFNAR-
FIRÐI Vorum að fá í sölu 411 fm skrif-
stofuhæð. Húsnæðið er í útleigu og er
góður fjárfestingarkostur. V. 24,0 m
SKEMMUVEGUR - VERSL-
UNAR- OG IÐAÐARHÚSNÆÐI
Vorum að fá í sölu mjög gott og vel stað-
sett 630 fm verslunar- og iðnaðarhúsnæði
við Skemmuveg ( beint á móti BYKO ).
Húsnæðið skiptist í 280 fm iðnaðarhús-
næði með góðri lofthæð og innkeyrsludyr-
um að austanverðu og 350 fm verslunar-
og skrifstofuhúsnæði að vestanverðu. Allar
nánari upplýsingar veittar á Lyngvík.
ELDSHÖFÐI - MEÐ ÍBÚÐ Um er
að ræða mjög gott ca 50 fm iðnaðarhús-
næði með innkeyrsludyrum ásamt ca 50
fm 2-3ja herbergja íbúð á efrihæð með sér
inngangi. Gott steypt bílaplan fyrir framan
húsið. Möguleiki á stuttum afhendingar-
tíma. Áhv. 3,9 m. V. 8,5m (1415)
- Sími 588 9490
Útreikn-
ingar í nýju
greiðslu-
mati
Greiðslumatið sýnir hámarksfjár-
mögnunarmöguleika með lánum
Íbúðalánasjóðs miðað við eigið fé
og greiðslugetu umsækjenda. For-
ritið gerir ráð fyrir að eignir að
viðbættum nýjum lánum s.s. lífeyr-
issjóðslánum eða bankalánum til
fjármögnunar útborgunar séu eigið
fé umsækjenda og séu 10, 30 eða
35% heildarkaupanna. Síðan eru
hámarksfjármögnunarmöguleikar
hjá Íbúðalánasjóði reiknaðir út
miðað við eigið fé, hámarks-
greiðslugetu til að greiða af íbúða-
lánum og vaxtabætur.
Útreikningur á greiðslugetu:
Heildartekjur
-skattar
-lífeyrissjóður og félagsgjöld
-framfærslukostnaður
-kostnaður við rekstur bifreiðar
-afborganir annarra lána
-kostnaður við rekstur fasteign-
ar
=Ráðstöfunartekjur/hámarks-
geta til að greiða af íbúðalánum
Á greiðslumatsskýrslu kemur
fram hámarksgreiðslugeta um-
sækjenda til að greiða af íbúða-
lánum og eigið fé umsækjenda.
Þegar umsóknin kemur til Íbúða-
lánasjóðs fylgir henni yfirlit yfir
greiðslubyrði af yfirteknum og nýj-
um lánum í kauptilboði. Hámarks-
greiðslugeta skv. greiðslumats-
skýrslunni er þá borin saman við
raun greiðslubyrði á kauptilboði og
eigið fé í greiðslumatsskýrslu borið
saman við útborgun skv. kauptil-
boði. Eftir atvikum getur þurft að
reikna vaxtabætur m.v. raunveru-
legt kauptilboð aftur þegar um-
sókn er skilað til Íbúðalánasjóðs.
Verð eignarinnar og samsetning
fjármögnunar getur svo verið önn-
ur en gert er ráð fyrir í greiðslu-
mati eftir því hvaða mögulega
skuldasamsetningu hin keypta eign
býður upp á. Ekki er gert ráð fyrir
að umsækjendur endurtaki
greiðslumatið ef aðrar fjármögn-
unarleiðir eru farnar en gengið er
út frá í greiðslumati.
Tökum dæmi:
Umsækjandi sem er að kaupa
sína fyrstu eign gæti t.d. fengið
greiðslumat sem sýnir hámarks-
verð til viðmiðunar 7.000.000 kr.
miðað við 2.100.000 í eigið fé og há-
marksgreiðslugeta hans væri
40.000 kr. þegar allir kostnaðarlið-
ir hafa verið dregnir frá tekjunum.
Þessi umsækjandi gæti svo
keypt íbúð fyrir 8.000.000 án þess
að fara í nýtt greiðslumat ef for-
sendur hans um eignir og greiðslu-
getu ganga upp miðað við nýja
lánasamsetningu.
Dæmi:
Kaupverð 8.000.000
Útborgun 2.080.000
Fasteignaveðbréf 5.600.000
(70%, greiðslubyrði m.v. 25 ára lán
= 33.000 á mánuði)
Bankalán 320.000 (greiðslubyrði
t.d. 10.000 á mánuði)
Það er ljóst ef kauptilboð, yfirlit
yfir greiðslubyrði yfirtekinna og
nýrra lána í kauptilboði og
greiðslumatsskýrsla er borin sam-
an án þess að farið sé í nýtt
greiðslumat að þessi kaup eru inn-
an ramma greiðslumatsins þrátt
fyrir að stungið hafi verið upp á
7.000.000 íbúðarverði m.v. upphaf-
legar forsendur. Útborgunin er
innan marka eigin fjár hans og
greiðslubyrði lánanna innan marka
greiðslugetunnar.
Fyrsta greiðsla er að jafnaði
talsvert hærri en síðari greiðslur,
hún er á þriðja reglulega gjalddaga
frá útgáfu fasteignaveðbréfsins (sé
um mánaðarlega gjalddaga að
ræða) og samanstendur af einnar
mánaðar afborgun, vöxtum frá
fyrsta vaxtadegi (a.m.k. þrír mán-
uðir) og vísitölu frá grunnvísitölu-
mánuði (a.m.k. þrír mánuðir).
Gjalddagar húsbréfalána Íbúða-
lánasjóðs geta verið mánaðarlega
eða ársfjórðungslega. Hægt er að
breyta gjalddögum lánanna eftir
útgáfu þeirra.
Alltaf á þriðjudögum