Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.03.2002, Blaðsíða 42
FRÉTTIR 42 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Auglýsing um sveinspróf í matvælagreinum Sveinspróf verða haldin í bakaraiðn, framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu 21.-24. maí 2002 í Hótel - og matvælaskólanum í Kópavogi. Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Upplýsingar um umsóknir eru veittar hjá Fræðsluráði hótel- og matvælagreina, Stórhöfða 31, 110 Reykjavík. Sími 580 5254. Fax 580 5255. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð hjá Fræðsluráðinu, Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og á heimasíðu Fræðsluráðs http://www.fhm.is Með umsókn skal fylgja afrit af námssamningi og brautskráningarskírteini eða námsferilsblað iðnmenntaskóla. Fræðsluráð hótel- og matvælagreina. PÁLL Agnar Þórarinsson hefur tekið forystuna í áskorendaflokki á Skákþingi Íslands eftir sigur gegn Sigurbirni Björnssyni í fimmtu um- ferð. Páll Agnar er með 4 vinninga. Í opnum flokki eru þeir Kristján Hreinsson og Björn Kafka efstir með 4½ vinning. Staða efstu manna í áskorendaflokki er þessi: 1. Páll Agnar Þórarinsson 4 v. 2.–4. Sigurbjörn J. Björnsson, Sævar Bjarnason, Snorri G. Bergs- son 3½ v. 5.–10. Róbert Harðarson, Davíð Kjartansson, Ingvar Þór Jóhannes- son, Sigurður Páll Steindórsson, Jón Árni Halldórsson, Einar Kr. Einars- son 3 v. 11.–12. Sigurður G. Daníelsson, Birgir Berndsen 2½ v. o.s.frv. Tuttugu skákmenn tefla í áskorendaflokki. Eins og sjá má er baráttan um efsta sætið hörð, línur eiga ekki eftir að skýrarst fyrr en í lokaumferðunum. Í opnum flokki er staðan þessi: 1.–2. Kristján Hreinsson, Björn Kafka 4½ v. 3. Anna Björg Þorgrímsdóttir 4 v. 4.–5. Viðar Másson, Aron Ingi Sig- urðsson 3½ v. 6.–9. Arnljótur Sigurðsson, Karl Steingrímsson, Sindri Guðjónsson, Aðalsteinn Thorarensen 3 v. 10.–11. Stefán Daníel Jónsson, Hjalti Andrason 2½ v. o.s.frv. Alls tefla 22 skákmenn í opnum flokki. Tefldar eru 9 umferðir í áskor- enda- og opnum flokki. Sjötta um- ferð var tefld í gærkvöldi, en loka- umferðirnar verða tefldar 27.–29. mars og hefjast klukkan 14. Teflt er í húsnæði Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12. Áhorfendur eru vel- komnir. Spennandi lokaumferðir á Melody Amber-mótinu Þegar tvær umferðir eru eftir á Melody Amber-skákmótinu eiga sex af tólf keppendum enn möguleika á að hreppa efsta sætið. Það er því ljóst, að lokaumferðirnar verða spennandi. Shirov stendur best að vígi með 12 vinninga og hefur hálfum vinningi meira en næstu fjórir kepp- endur. Sérstaka athygli vekur að Braingames-heimsmeistarinn Kramnik er í áttunda sæti af 12 keppendum með 9 vinninga. Röð keppenda: 1. Shirov 12 v., 2.–5. Bar- eev, Ivanchuk Leko, Morozevich 11½ v., 6. Gelfand 11 v., 7. Topalov 9½ v., 8. Kramnik 9 v., 9. Piket 7 v., 10. Almasi 6 v., 11. Ljubojevic 4 v., 12. Van Wely 3½ v. Melody Amber- mótið er einstakt að því leyti, að í hverri umferð eru tefldar tvær skák- ir, atskák og blindskák. Gulko grátt leikinn af tölvunum Stórmeistarinn Boris Gulko, tvö- faldur Bandaríkjameistari og skák- meistari Sovétríkjanna 1975 atti kappi við fjögur skákforrit í keppni sem lauk nú í vikunni. Gulko tefldi tvær skákir gegn hverju forriti, en andstæðingarnir voru skákforritin Junior, Shredder, Fritz og Hiarcs. Gulko tapaði einvíginu 3–5. Sérstaka athygli vakti tap Gulko gegn Shredder í fjórðu skákinni þar sem óverjandi mát blasti við Gulko eftir 25 leiki í kjölfar glæsilegrar sóknar Shredder. Gulko náði reyndar að koma fram hefndum í áttundu og síð- ustu skákinni þegar hann sigraði Shredder í 56 leikjum. Það var eina sigurskák Gulko í keppninni. Um- hugsunartíminn var 60 mínútur, en 10 sekúndur bættust við eftir hvern leik. Mig hættir hjá Kasparov Kasparov hefur verið sterkasti skákmaður heims í langan tíma, en hefur ekki gengið eins vel utan skák- borðsins. Vefsetur hans hefur nú verið starfrækt um nokkurra ára skeið. Fyrst var það rekið af löndum Kasparovs og þótti aldrei glæsilegt, en þó var það rekið af einlægni og áhuga þeirra sem að því stóðu. Kasp- arov þótt vegur þess ekki nógu mikill og greip því til þess ráðs að fá til liðs við sig starfsmenn undir forystu Michael Greengard, sem reyndar er þekktari undir nafninu Mig. Mig varð fyrst þekktur sem pistlahöfund- ur hjá Mark Crowther í The Week in Chess. Rekstur síðunnar var fluttur til Ísrael. Á tímabili var heimasíða Kasparovs mikið sótt af skákmönn- um, en upp á síðkastið hafa gæðin minnkað og áhugi skákmanna einnig í kjölfarið. Nú hefur Mig verið sagt upp störfum og því óljóst hvað verð- ur um vefinn í framhaldinu, en hann hefur ávallt verið fjárhagslegur baggi á Kasparov. Tveir Íslendingar á unglinga- meistaramóti Noregs Tveir af okkar efnilegustu skák- mönnum, Dagur Arngrímsson og Guðmundur Kjartansson taka þátt í unglingameistaramóti Noregs í skák sem haldið er í Ósló. Báðir hafa stað- ið sig vel. Dagur Arngrímsson hefur hlotið 4 vinninga í 6 skákum og er í 6.–12. sæti, hálfum vinningi á eftir þeim fimm skákmönnum sem efstir eru. Guðmundur Kjartansson er í 13.–18. sæti með 3½ vinning. Tefldar verða sjö umferðir. Íslandsmót grunnskólasveita – stúlknaflokkur Íslandsmót grunnskólasveita, stúlknaflokkur, verður haldinn sunnudaginn 7. apríl nk. í húsakynn- um Skáksambands Íslands í Faxa- feni 12, Reykjavík. Hver skóli má senda margar sveitir. Sveitirnar verða skipaðar fjórum keppendum (auk varamanna). Mótið hefst kl. 13 og tefldar verða 7 umferðir, 2 x 15 mín. eftir Monrad-kerfi. Skráning fer fram á skrifstofu Skáksambands Íslands, sími 568 9141 kl. 10–13 virka daga, og með tölvupósti: siks@simnet.is. Íslandsmót grunnskólasveita Íslandsmót grunnskólasveita í skák 2002 fer fram dagana 12.–14. apríl n.k. í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12, Reykja- vík. Sigurvegari í þessari keppni mun öðlast rétt til að tefla í Norð- urlandamóti grunnskólasveita, sem haldið verður í Finnlandi í haust. Skáksamband Íslands mun veita aðstoð við skipulagningu vegna Norðurlandamótsins og greiða fyrir einn fararstjóra, en fjármögnun er að öðru leyti á ábyrgð viðkomandi skóla. Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Skáksambands Ís- lands alla virka daga kl. 10–13 í síma 568 9141. Skráning fer fram í sama síma og með tölvupósti: siks@sim- net.is. Íslandsmót stúlkna 2002 – einstaklingskeppni Íslandsmót stúlkna (grunnskóla- mót) fyrir árið 2002 verður haldið sunnudaginn 20. apríl nk. í húsnæði Skáksambands Íslands, Faxafeni 12, Reykjavík. Mótið hefst kl. 13 og verða tefldar 10 mínútna skákir. Keppt verður í tveimur aldursflokk- um, 12 ára og eldri og 11 ára og yngri. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki. Skráning fer fram hjá Skáksam- bandi Íslands í síma 568 9141 og með tölvupósti: siks@simnet.is. Páll Agnar efstur í áskorendaflokki SKÁK Taflfélag Reykjavíkur SKÁKÞING ÍSLANDS 23.–31. mars 2002 Daði Örn Jónsson SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um náttúruvernd efna til páskagöngu laugardaginn 30. mars. Lagt verður af stað frá strætisvagnaskýlinu í Mjódd kl. 11. Gangan tekur 3–4 tíma og eru allir velkomnir. Páskaganga FYRIRLESTUR verður á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi mið- vikudaginn 3. apríl kl. 17.30 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn held- ur Emily Lyle frá Edinborgarhá- skóla. Í fyrirlestrinum segir hún frá hugmyndum sínum um forn tíma- kerfi og árshátíðir. Emily Lyle hefur kennt þjóðfræði við Edinborgarhá- skóla síðan 1970. Hún er sérfræð- ingur um skoskar ballöður og einn tveggja ritstjóra Greig-Duncan Folk Song Collection á Skotlandi. Hún er einnig ritstjóri tímaritsins Cosmos, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um forn tíma- kerfi og árshátíðir NÁMSKEIÐ um samskipti við fjöl- miðla verður haldið hjá Endur- menntun Háskóla Íslands, Dunhaga 7, mánudaginn 11. og þriðjudaginn 12. apríl kl. 16-20. Námskeiðið er ætlað öllum sem þurfa að eiga samskipti við fólk hjá fjölmiðlum og koma efni á framfæri til umfjöllunar. Farið verður yfir starfshætti á fjölmiðlum, fjölmiðlatengsl og grundvallaratriði við smíði fréttatil- kynninga og skipulag á blaða- mannafundum. Einnig um framkomu í sjónvarpi og hvernig undirbúa skal viðtöl í ljósvakamiðlum, dagblöðum og tímaritum. Umræður og verklegar æfingar verða fyrir framan sjón- varpsvél. Kennari verður Sigrún Stefáns- dóttir, forstöðumaður upplýsinga- skrifstofu Norðurlandaráðs og Nor- rænu ráðherranefndarinnar. Verð er kr. 17.900. Frekari upp- lýsingar eru á vefsetrinu www.end- urmenntun.is. Skráning hjá Endur- menntun HÍ í síma eða á netfangi: endurmenntun@hi.is, segir í frétta- tilkynningu. Námskeið um sam- skipti við fjölmiðla KEPPNI framhaldsskólanemenda í eðlisfræði lauk í 19. sinn um síðustu helgi. Í forkeppninni 19. febrúar kepptu samtals 135 nemendur í 10 skólum um allt land. 14 nemendur voru svo boðaðir í úrslitakeppni í Háskóla Íslands 16. og 17. mars. Fimm þessara keppenda munu keppa fyrir hönd Íslands á Ólymp- íuleikunum í eðlisfræði sem fram fara í Indónesíu 19.-30. júlí. Eðlisfræðifélag Íslands og Félag raungreinakennara standa að Landskeppni í eðlisfræði sem fram fer árlega til að efla raungreina- áhuga framhaldsskólanemenda. Félagar í Stigli, félagi eðlis- og stærðfræðinema við Háskóla Ís- lands, sem margir hafa keppt fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í eðlisfræði, sömdu verkefnin og fóru yfir úrlausnirnar. Tíu framhaldsskólar óskuðu að fá að taka þátt og skiluðu þeir sam- tals 135 úrlausnum. Að teknu tilliti til árangurs í forkeppninni og ald- urs keppenda voru 14 nemendur boðaðir í úrslitakeppnina sem fram fór í tveimur hlutum. Félagar í Stigli sömdu fræðilega hlutann þar sem glímt var við að setja upp jöfn- ur í 6 dæmum úr aflfræði og rafseg- ulfræði. Ari Ólafsson dósent og nokkrir nemendur hans sömdu tvö verkleg verkefni sem fjölluðu um kastlengd kúlu og breytilega spólu. Yngsti keppandinn í úr- slitakeppninni kom frá Mennta- skólanum í Hamrahlíð, Wing Wa Yu, 17 ára nemandi í IB-námi (Int- ernational Bachalaurum) og hefur hann aðeins stundað nám á fram- haldsskólastigi í þrjár annir. Af keppendunum 14 í úrslitakeppninni voru aðeins tvær stúlkur og er það svipað og áður hefur verið og sama hlutfall og raunin er á Ólympíu- leikunum í eðlisfræði. Nemend- urnir fjórir frá Menntaskólanum á Akureyri stóðu sig frábærlega því þeir náðu tveimur efstu sætunum í úrslitakeppninni og komust allir í 5 manna lið Íslendinga til 33. Ólympíuleikanna í eðlisfræði sem haldnir verða í Bali í Indónesíu síð- ari hluta júlímánaðar. Þeir munu njóta þjálfunar í Háskóla Íslands um fjögurra vikna skeið fyrir keppnina. Það er Morgunblaðið sem veitir bóka- og peningaverð- laun fyrir góðan árangur í Lands- keppni í eðlisfræði en mennta- málaráðuneytið greiðir farar- kostnað til Ólympíuleikanna. 19. landskeppnin í eðlisfræði Menntaskólinn á Ak- ureyri í efstu sætum Í úrslitakeppninni tóku þátt sex nemendur frá Menntaskólanum í Reykjavík, fjórir nemendur frá Menntaskólanum á Akureyri, tveir nem- endur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og tveir nemendur frá Versl- unarskóla Íslands. Þeir fengu allir bókagjöf fyrir góðan árangur í for- keppninni en að auki fengu 5 efstu í úrslitakeppninni peningaverðlaun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.