Vísir - 17.05.1980, Page 31
Laugardagur 17. mal 1980
31
Verölaunahafarnir viö athöfnina I Höföa. Frá vinstri: Arni Blandon, GuBbjörg Þórisdóttir og Páll H.
Jónsson. (Visism BG).
VERBLAUN ANNAÐ ARIfi f RÖÐ
FYRIR RESTU RARNARÖKINA
I gær var úthlutaö verölaun-
um Fræösluráös Reykjavikur-
borgar fyrir bestu frumsömdu
og þýddu barnabækur ársins
1979. Fyrir bestu frumsömdu
skáldsöguna hlaut verölaunin
Páll H. Jónsson fyrir bók sina
Agnarögn. Þetta er annaö áriö I
röð, sem Páll fær þessi verö-
laun. Fyrir bestu þýddu barna-
bókina fengu verölaun hjónin
Arni Blandon og Guöbjörg Þór-
isdóttir, en þau þýddu bókina —I
föðurleit — eftir hollenska rit-
höfundinn Jan Terlouw. Báöar
þessar bækur voru gefnar út af
Bókaútgáfunni Iöunni.
Ms
BLÚMARðSIR
A AKUREYRI
Næstkomandi sunnudag, 18.
maf, frumsýnir Leikklúbburinn
Saga á Akureyri leikrit Ólafs
Hauks Simonarsonar, „Blóma-
rósir”. Leikstjóri erSólveig
Halldórsdóttir, en búningana
geröi Valgeröur Bergsdóttir.
Höfundurinn endurskrifaöi
verulegan hluta leiksins sér-
staklega fyrir klúbbinn. Leik-
klúbburinn Saga er áhugaleik-
hús ungs fólks á Akureyri og var
stofnaöur I ársbyrjun 1976. Hef-
ur hann aö jafnaöi tekiö fyrir
eitt verk árlega siöan. Sýningin
veröur í Samkomuhúsinu á
Akureyri og hefst klukkan 20.30.
A myndinni eru þær Guörún
Guömundsdóttir og Helga Sig-
riöur Þórsdóttir i hlutverkum
sihnum.
HMB, — Akureyri
Hawaii-stúlka
í Víslsbíói
Ha wai-stúlkan heitir kvik-
myndin, sem sýnd veröur i VIsis-
bió i dag, laugardag. Þetta er
gamanmynd i litum og meö is-
lenskum texta. Sýningin hefst kl.
15 f Hafnarbió.
Afmæli
Slglufjarðar
Siglfiröingar halda aö venju
hátfölegt afmæli kaupátaöarins
þann 20. mal. Fjölbreytt dagskrá
verður um kvöldiö I Bfóhúsinu f
tilefni dagsins. Þar koma fram,
meðal annarra, Jóhann Hannes-
son, menntaskólakennari, og
Þórarinn Eldjárn, skáld. Auk
þess veröur þar kórsöngur, lúðra-
sveit og fleira. 1 sambandi viö af-
mæliö veröur opnuö málverka-
sýning Gylfa Ægissonar f dag,
laugardag, og veröur hún opin
fram yfir afmæliö.
RJ-Siglufiröi/ATA
Vigdís með
kynnlngarfund
á Hótel Sðgu
Stuöningsmenn Vigdisar Finn-
bogadóttur héldu almennan
kynningarfund á Hótel Sögu aö
kvöldi uppstigningardags og var
hiisfyllir á fundinum.
Jónas Jónsson búnaöarmála-
stjóri stýröi fundinum en Þór
MagnUsson þjóöminjavöröur
greindi frá undirbúningsstarfi á
vegum stuöningsmanna Vigdfsar.
Kom þar fram aö I undirbúningi
er aö gefa Ut blaö stuönings-
manna Vigdlsar sem nefnist
„Þjóöin kýs”. Kemur fyrsta tölu-
blaö Ut eftir fáeina daga.
Þá.flutti Vigdfs Finnbogadóttir
ávarp og lýsti ástæöum þess aö
hún gaf kost á sér, sem og viö-
horfi slnu til forsetaembættisins.
Einnig svaraöi hún fyrirspurnum
fundargesta.
HR
Johanns Hafsiein
minnsl ð Aihingi
Jón Helgason forseti sameinabs
þings minntist á þingfundi f gær
andláts Jóhanns Hafsteins fyrr-
verandi alþingismanns og ráö-
herra, en hann andaðist aöfara-
mótt uppstigningadags, 64 ára aö
aldri.
1 ræöu sinni vék Jón Helgason
aö störfum Jóhanns Hafsteins.
Kom þar fram aö hann var fyrst
kosinn á þing 1946 sem þingmaöur
Reykvfkinga og sat hann óslitiö á
Alþingi til vors 1978 er hann dró
sig I hlé eöa alls 35 þing. Þá varö
hann fyrst ráöherra 1961 og slðan
forsætisráöherra 1970-71. -HR
Franskir tónieikar
Frönsk tónlist, franskur stjórn-
andi og franskur einleikari — þaö
má meö sanni segja aö franskur
andi svifi yfir Háskólablói I dag!
Sinfónluhljómsveit islands heldur
tónleika þar kl. 14 og eru þetta
áskriftartónleikar þeir, sem féllu
niöur þ. 11. okt. 1979.
Hljómsveitarstjórinn Jean-
Pierre Jacquillat hefur stjórnaö
fjölda hljómsveita I Bandarlkjun-
um og Evrópu og hefur m.a. verið
einn af aöalstjórnendum
Orchestre de Paris. Hann hefur
veriö ráöinn aöalstjórnandi
Sinfónfuhljómsveitarinnar næstu
3 árin.
Einleikarinn Pascal Rogé er
fæddur áriö 1951 og hann hefur
veriö aö læra og spila á planó
siöan hann var 4 ára gamall.
Hann hefur leikiö inn á fjöldann
allan af hljómpltöum, spilaö meö
mörgum helztu hljómsveitum
heims og haidiö einleikstónleika.
Rogé vann fyrstu verðlaun I
Marquerite Jong-Jacques
Thibaud keppninni I Parfs og
einnig I Georges Enescu keppn-
inni I Bukarest.
Verkin sem flutt veröa eru
þessi: Tombeau de Couperin,
Sonatina, Pavane, Planókonsert
fyrir vinstri hönd og Bolero — öll
eftir Ravel.
MS
SLYS A SIGLUFIRfll
Mjög haröur árekstur varö á
Siglufiröi á uppstigningardag.
Tveir bilar rákust saman á horni
Túngötu og Eyrargötu um klukk-
an 18. Ein stúlka slasaöist, svo aö
flytja varö hana á sjúkrahús.
Báöir bilarnir eru mikiö
skemmdir og töldu sjónarvottar
merkilegt aö ekki skyldu veröa
frekari slys á mönnum. Annar
bfllinn var frá Siglufiröi en hinn
frá Akureyri.
RJ-Siglufriöi/—ATA
Verðlaunamynd á 3-bíóí
Krakkar sem ætla á 3-bIó á
sunnudag, geta notiö góös af
tékknesku kvikmyndadögunum,
sem nú standa yfir I Háskólabfó,
þvl þar veröur sýnd teiknimyndin
KRABAT frá Tékkóslóvakfu.
Myndin segir frá Krabat, fátæk-
um strák, sem á flakki sfnu kem-
ur aö dularfullri myllu. Þar lærir
hann galdra, veröur skotinn I
stelpu og lendir I bardaga viö
galdrameistarann. Myndin fékk
verölaun sem bezta barnamyndin
áriö 1978 I Teheran — af öllum
stööum! Sýningin hefst eins og
fyrr sagöi kl. 3 og tekur 74 mlnút-
ur.
Ms
Lykur sludents-
próli í llðlulelk
Unnur Pálsdóttir fyrsti nem-
andinn sem lýkur burtfaraprófi
frá Tónlistarskólanum I Keflavik
á tónlistarbraut til stúdentsprófs,
heldur burtfararprófstónleika I
dag kl. 18 I Keflavlkurkirkju.
Unnur lýkur áttunda stigi I
fiöluleik jafnframt stúdentsprófi
frá Fjölbrautarskóla Suöurnesja,
en kennari hennar hefur verið
'Arni Arinbjarnarson.
A tónleikunum I dag annast
Ragnheiöur Skúladóttir undir-
leik, en öllum er heimill aögangur
aö tónleikunum.
-HR
Unnur Páisdóttir
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI178 REYKJAVIK