Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN7/4 –13/4
ERLENT
INNLENT
DAVÍÐ Oddsson for-
sætisráðherra hitti Kjell
Magne Bondevik, norskan
starfsbróður sinn, í Osló á
föstudag þar sem þeir
gerðu hvor öðrum grein
fyrir stöðunni í Evrópu-
málum í heimalöndum sín-
um. Þeir voru sammála um
að aðild að Evrópusam-
bandinu væri ekki ekki á
dagskrá hjá löndunum
tveimur.
HÆSTIRÉTTUR telur,
ólíkt dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur, að innflutn-
ingur, varsla og sala am-
fetamíns hafi verið refsi-
verð á átta mánaða
tímabili í fyrra og aðeins
heimil lyfsölum.Vegna
mistaka var ekki merkt við
amfetamín sem fíkniefni á
bannlista, þetta var leið-
rétt í nýrri reglugerð í
mars sl.
ÍSLENSK stjórnvöld
sendu harðorða yfirlýs-
ingu til ísraelskra stjórn-
valda á miðvikudag þar
sem skorað var á Ísraela að
draga herlið sitt án tafar á
brott af sjálfstjórn-
arsvæðum Palest-
ínumanna.
RÚMLEGA eitt þúsund
manns sótti útifund á Aust-
urvelli á þriðjudag þar sem
hernaðaraðgerðum Ísraela
í garð Palestínu var mót-
mælt.
SÁÁ hefur að beiðni
Landlæknis látið embætt-
inu í té nöfn fimm lækna
sem eru sagðir hafa ávísað
miklu magni af morfíni til
fíkla sem leitað hafa með-
ferðar. Yfirlæknir SÁÁ
segir misnotkun á morfíni
hafa færst í vöxt síðustu ár.
ÍE fái allt að 20 millj-
arða króna ríkisábyrgð
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fram
frumvarp á Alþingi sem heimilar fjár-
málaráðherra að ábyrgjast útgáfu
skuldabréfa að fjárhæð allt að 20 millj-
örðum íslenskra króna vegna fjár-
mögnunar Íslenskrar erfðagreiningar
ehf. á lyfjaþróunarfyrirtæki sem stefnt
er að að verði á Íslandi.
Gert er ráð fyrir að 250–300 ný störf
geti skapast hér á landi innan tveggja
til þriggja ára ef fyrirætlanir fyrirtæk-
isins ganga eftir.
Ýmis fjármálafyrirtæki og aðilar
vinnumarkaðarins hafa gagnrýnt þess-
ar fyrirætlanir, segja áhættuna mikla
og að aðgerðin feli í sér mismunun
gagnvart öðrum fyrirtækjum.
Lyfjaþróun hefur farið fram á hlið-
stæða ríkisábyrgð og hafa Norðurljós
einnig óskað eftir ríkisábyrgð.
Þjóðhagsstofnun
verði lögð niður
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fram
frumvarp sem miðast að því að Þjóð-
hagsstofnun verði lögð niður og verkefni
hennar flytjist til skyldra sviða í fjár-
málaráðuneytinu og Hagstofu Íslands.
ASÍ er ætlað aukið hlutverk á sviði efna-
hagsmála í kjölfar breytinganna og segir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, mikilvægt að jafn-
ræðis verði gætt, njóti hagræn starfsemi
ASÍ opinberra styrkja.
Bygging tónlistar-
og ráðstefnuhúss
SAMNINGUR um byggingu tónlistar-
húss og ráðstefnumiðstöðvar var und-
irritaður af fulltrúum ríkisins og
Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Áætl-
aður kostnaður við byggingu hússins er
tæpir 6 milljarðar. Miðað við áætlaðan
byggingartíma verður húsið í fyrsta
lagi tekið í notkun í lok ársins 2006.
Fundi Powells og
Arafats frestað
SEX Ísraelar biðu bana og meira en
áttatíu særðust þegar ung palestínsk
kona fyrirfór sér með sprengju í mið-
borg Jerúsalem á föstudag. Atburður-
inn varð til þess að Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, frestaði
fyrirhuguðum fundi sínum með Yasser
Arafat, leiðtoga Pal-
estínumanna, sem
halda átti í gær,
laugardag. Banda-
ríkjamenn munu
hafa gefið Arafat
sólarhrings frest til
að fordæma árásina.
Vopnuð samtök,
sem tengjast Fatah-
hreyfingu Arafats,
lýstu árásinni á hendur sér.
Ísraelsher sagði á föstudag að mikið
mannfall hefði orðið í árás Ísraelshers
á bæinn Jenín á Vesturbakkanum. Á
annað hundrað Palestínumanna hefði
fallið og hundruð særst. Ísraelsher vís-
aði hins vegar á bug fullyrðingum um
að herinn hefði varpað líkum fallinna
Palestínumanna í fjöldagrafir.
Palestínskir embættismenn saka
einnig Ísraelsher um að hafa tekið Pal-
estínumenn af lífi án dóms og laga í
flóttamannabúðum í Jenín og óskuðu
eftir því að Sameinuðu þjóðirnar hæfu
rannsókn á málinu. Óháðir aðilar hafa
ekki staðfest þessar ásakanir.
Ísraelar segjast hafa handtekið um
4.200 Palestínumenn á sjálfstjórnar-
svæðunum frá því að hernaðurinn
hófst 29. mars og gert þúsundir vopna
upptækar. 28 ísraelskir hermenn hafa
fallið í hernaðinum.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði á föstudag
að ástandið á sjálfstjórnarsvæðum Pal-
estínumanna væri svo alvarlegt að ekki
væri lengur hægt að fresta því að
senda þangað alþjóðlegt herlið til að
stilla til friðar og skapa svigrúm fyrir
friðarviðræður.
Colin Powell
HUGO Chavez, forseti
Venesúela, lét af embætti
á föstudag vegna þrýst-
ings frá hernum eftir
götuóeirðir í Caracas þar
sem a.m.k. ellefu manns
létu lífið. Pedro Carmona,
sem tók við embættinu til
bráðabirgða, sagði að boð-
að yrði til forsetakosninga
innan árs.
ALÞJÓÐLEGUR og
varanlegur glæpadómstóll
varð að veruleika á föstu-
dag þegar tíu ríki stað-
festu sáttmála Sameinuðu
þjóðanna um stofnun dóm-
stólsins. Þar með hafði til-
skilinn fjöldi ríkja staðfest
sáttmálann. Mannréttinda-
samtök fögnuðu tíðind-
unum og lýstu þeim sem
stærsta skrefinu fram á
við í mannréttindamálum
síðan mannréttinda-
yfirlýsing SÞ var staðfest
fyrir meira en 50 árum.
A.M.K. fjórir menn
biðu bana í sprengju-
tilræði í Afganistan á
mánudag þegar reynt var
að myrða varnarmálaráð-
herra landsins, Moham-
med Fahim. Dagblað, sem
gefið er út á arabísku í
Bretlandi, sagði að
hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda hefðu lýst tilræðinu
á hendur sér.
AFTÖKUR til fullnæg-
ingar dauðadómum ríf-
lega tvöfölduðust í heim-
inum í fyrra og er
meginástæðan mikil fjölg-
un líflátsdóma í Kína, að
sögn Amnesty Int-
ernational á þriðjudag.
A.m.k. 3.048 manns voru
teknir af lífi, þar af 2.468
í Kína.
ÞEIR brjóta gangstéttarhellur á
líkama sínum, teygja sig og toga
á alla kanta, standa á tveimur
fingrum og berjast af mikilli fimi.
Þeir eru hópur kínverskra munka
sem kallast Shaolin og eru vænt-
anlegir til Íslands 11. maí. Hóp-
urinn mun halda tvær sýningar á
sjónleik sínum, sem hvarvetna
hefur hlotið mikla hylli, í Laug-
ardalshöllinni.
Í 1500 ár hafa Shaolin munk-
arnir ræktað líkama og sál í
klaustri sínu í Henan héraði í
Kína. Þar hafa þeir lagt stund á
bardagalist og sérhæfðir her-
menn þeirra einbeitt sér að vörn-
um klaustursins fyrir þeim sem
vildu koma munkunum fyrir katt-
arnef og sölsa undir sig glæsilegt
klaustrið. Þar hafa þeir lagt
stund á hugleiðslu í anda Búdda
auk þess sem þeir hafa þróað
Kung Fu-bardagalistina til hins
ýtrasta sem varð til þess að þeir
komust af í hundruð ára. Nú hafa
sumir þeirra hins vegar hafið
hringför um heiminn með sýn-
ingu þar sem kunnátta þeirra í
bardagalistinni fær að njóta sín
til fullnustu.
Sýna tvisvar
í Laugardalshöll
„Sýningin er magnað samspil
ljósa og ótrúlegrar fimi þessara
munka,“ segir Helgi Björnsson,
sem tekið hefur að sér kynningu
sýningarinnar hér á landi. „Sýn-
ingin er í senn leiksýning með
söguþræði þar sem munkarnir
berjast við ill öfl og sýning á
ótrúlegri fimi þeirra í bardaga-
listum og ýmsum fjöllistar-
atriðum.“
Með samspili tónlistar, ljósa og
úthugsaðra bardagaatriða er í
sýningunni sögð saga klausturs
Shaolin munkanna í gegnum
hundruð ára.
Tvær sýningar verða í Laug-
ardalshöllinni 11. maí næstkom-
andi og fer forsala miða fram í
verslunum Símans. Nánari upp-
lýsingar um Shaolin munkana og
sýninguna er að finna á slóðinni
www.wheeloflife.co.uk.
Hópur kínverskra munka heldur fjöllistasýningu hér
Leika listir með líkamanum
OLÍUVERÐ lækkaði almennt um
10 dollara á tonnið á föstudag en
framan af degi hafði hráolían lækkað
um einn og hálfan til tvo dollara
tonnið. Miklar sveiflur hafa verið á
verðinu alla vikuna og þær héldu
áfram á föstudag, en þá fór verðið
mjög hratt niður vegna mikilla
væntinga um að útskipun verði kom-
in í eðlilegt horf í Venezuela strax
eftir helgi.
Magnús Ásgeirsson, yfirmaður
innkaupadeildar Olíufélagsins/
ESSO, segir að verðið sé á niðurleið
vegna þess að menn séu að vonast til
þess að 40 olíuskip, sem bíði lestunar
við Venezuela, fái lestun, en haft sé
eftir ráðandi mönnum þar að allt
verði komið í eðlilegt horf á mánu-
dag og þá verði byrjað að skipa út.
Þegar verðið fer hratt niður fer
það gjarnan venjulega eitthvað
uppávið aftur, þegar til lengri tíma
er litið. Magnús segir að nú sé horft
fram á stöðugra olíuverð og nægi-
legt framboð, en mjög miklu máli
skipti að nægilegt framboð sé frá
Venezuela inn á Bandaríkjamarkað
vegna þess að Venezuelamenn séu
stærstu birgjar Bandaríkjanna og
fjórðu stærstu olíuframleiðendur
heims. Allar truflanir á Bandaríkja-
markaði hafi strax áhrif á Evrópu-
markað, því þá verði farið að flytja
olíu frá Evrópu til Bandaríkjanna.
Viss léttir
Hráolíuverðið fór upp í um 28 doll-
ara tonnið í byrjun mánaðarins, en
hefur lækkað síðan niður í um 25
dollara. OPEC-löndin framleiða um
21,7 milljónir tunna af olíu á dag og
að sögn Magnúsar má gera ráð fyrir
að hráolíuverðið verði 23 til 25 doll-
arar fyrir tunnuna, þegar til lengri
tíma sé litið, og í kjölfarið lækki verð
á öðrum olíutegundum, en bensín og
gasolía lækkuðu um 10 dollara á
tímabili í gær. Spurður um áhrif
þessa á olíuverð hér á landi segir
hann að miklar hækkanir að und-
anförnu hafi skaðað en gera megi því
skóna að þessar lækkanir skili sér
með tímanum. Ástandið nú sé viss
léttir því framan af viku hafi verið
óttast að olíukreppa væri í aðsigi.
Líkja mætti stöðunni á olíumörkuð-
um í vikunni við það að vera í rússí-
bana en nú sé mönnum létt, því talið
sé að betri tímar séu framundan.
„Venezuela hefur verið eins og suðu-
pottur en það er eins og það sé að
losna um einhverja stíflu,“ segir
hann.
Heimsmarkaðsverð
á olíu lækkar á ný