Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Borgarbúar eru ekki hátt skrifaðir hjá frambjóðendum R-listans
sem líkja þeim við mýs og hýbýlum þeirra við músarholur.
Ráðstefna um fjármál aldraðra
Vilja vekja til
umhugsunar
NK. ÞRIÐJUDAGverður haldin ráð-stefna um fjármál
eldri borgara sem er mál-
efni sem varðar æ fleiri,
enda fjölgar öldruðum og í
margri umræðunni hefur
mátt heyra að margir eft-
irlaunaþegar eigi erfitt
með að ná endum saman. Í
forsvari fyrir ráðstefnuna
er Ásgeir Jóhannesson,
fyrrum stofnandi og for-
maður Sunnuhlíðarsam-
takanna til áratuga. Hann
svaraði nokkrum spurn-
ingum Morgunblaðsins á
dögunum.
Hverjir standa fyrir ráð-
stefnunni, hvar verður hún
haldin og hvenær?
„Það er Búnaðarbanki
Íslands hf sem stendur fyr-
ir ráðstefnunni um fjármál
eldri borgara hér á landi á
Hótel Sögu, Súlnasal, þriðjudag-
inn 16. apríl og hefst ráðstefnan
klukkan 13.30 og henni lýkur
klukkan 17.“
Hverjar verða helstu áherslurn-
ar?
„Áhersla verður lögð á að ná til
sem flestra eldri borgara og fjalla
sérstaklega um fjármál þeirra
sem eru að komast á lífeyrisaldur
eða eru á þeim aldri nú þegar.
Gerð verður grein fyrir viðhorfum
stjórnvalda til þessa málaflokks og
fjallað um eignir og tekjur lífeyr-
isþega, skattlagningu þeirra og
tekjutengingar. Sagt verður frá
sérstakri þjónustu Búnaðarbank-
ans í formi svonefnds eignalífeyris
og horft til framtíðar varðandi
breytingu á aldursskiptingu þjóð-
arinnar sem og hvaða áhrif
snemmtekinn lífeyrir hefur á ráð-
stöfunarfé viðkokmandi fólks.
Loks verður fjallað um breytingar
á kerfi almannatrygginga og
hvaða áhrif þróun þess hefur á
fjármál eldri borgara. Einnig
verður birt niðurstaða af skoðana-
könnun meðal eldriborgara.“
Hver er tilurð ráðstefnunnar og
að hverju er stefnt með henni?
„Tilurð þessarar ráðstefnu er
sú, að alltof lítið hefur verið fjallað
í víðu samhengi um fjármál eldri
borgara og þeirra kynslóða sem
þau snerta. Á ári aldraðra 1999
komu mál þessi til nokkurrar um-
ræðu og þá gerði Búnaðarbanki
Íslands hf. sérstakt átak til að
auka þjónustu sína við þennan ald-
urshóp með því að bjóða upp á svo-
nefndan eignalífeyri fyrir lífeyris-
þega 65 ára og eldri, en þar er
annars vegar um að ræða að við-
komandi geti átt sparifé sitt á
óbundinni sparisjóðsbók með
hæstu vöxtum slíkra bóka á mark-
aði, og hins vegar að þeir sem ekki
eiga sparifé og þarfnast aukins
ráðstöfunarfjár sér til framfæris
geti breytt fasteign sinni í lífeyri,
svonefndan fasteignalífeyri, sem
greiðist út t.d. mánaðarlega eða í
einstökum stórum greiðslum ef
fólk þarf fé til viðhalds fasteign-
inni eða bílakaupa. Ekki þarf að
greiða vexti eða afborganir af slík-
um lánum fyrr en við
eigendaskipti að fast-
eigninni. Fyrir þetta
framtak fékk Búnaðar-
bankinn sérstaka við-
urkenningu fram-
kvæmdanefndar árs aldraðra og
heilbrigðis- og tryggingarráðu-
neytisins.
Með ráðstefnunni er stefnt að
því að vekja núverandi og verð-
andi lífeyrisþega til umhugsunar
um stöðu sína og fjármálalega
möguleika á efri árum jafnframt
því sem þeir eru upplýstir um
margskonar valmöguleika og
hvattir til sjálfsákvörðunar um að
njóta lífsins á efri árum eins og
hver og einn telur sér best henta
miðað við heilsu og afkomumögu-
leika.“
Er þetta málefni í einhvers kon-
ar lamasessi hér á landi?
„Það er nú ekki hægt að segja
að svo sé, en það hefur verið allt of
lítil umræða almennt um þessi mál
og þau hafa blandast of mikið sam-
an að mínu mati við margs konar
önnur hagsmunamál eldri borgara
svo sem þörf fyrir hjúkrunarrými,
húsnæðismál, lyfjamál og atvinnu-
mál. En ég held að ástæðan fyrir
lítilli umræðu sé að málið er býsna
flókið og margslungið vegna
margs konar tekjutenginga og
skattlagningar og því fáir sem
hafa þessi mál alveg á hreinu.“
Hvernig er fjárhagsstaða aldr-
aðra hér á landi?
„Fjárhagsstaðan er tvíþætt.
Annars vegar er um tekjur að
ræða og hins vegar eignir. Tekjur
hjá stórum hópi þessa fólks eru
mjög rýrar, sem stafar af því að al-
mennir lífeyrissjóðir tóku ekki til
starfa fyrr en eftir 1970 og á átt-
unda áratugnum brunnu þeir upp í
mikilli verðbólgu. Það er ekki fyrr
en eftir 1980 sem þeir fara að efl-
ast eftir að verðtryggingin kom til.
Um 40% allra lífeyrisþega virðast
hafa innan við 40 þúsund krónur í
lífeyrissjóðstekjur á mánuði og
sumir þeirra jafnvel innan við eitt
þúsund krónur.“
Hvernig hugsið þið
ykkur að koma efni ráð-
stefnunnar út til aldr-
aðra, þ.e.. þeirra sem
ekki sitja ráðstefnuna?
„Gert er ráð fyrir að birta frá-
sagnir af því helsta sem fram kem-
ur á ráðstefnunni í fjölmiðlum og í
prentuðu máli eða á annan að-
gengilegan hátt fyrir almenning.
Þess er vænst að sem flestir eldri
borgarar láti sjá sig á þessari ráð-
stefnu því hún er haldin þeim til
fróðleiks og stuðnings við val
þeirra á afkomumöguleikum á efri
árum.“
Ásgeir Jóhannesson
Ásgeir Jóhannesson er fæddur
á Húsavík 2. nóvember 1931.
Samvinnuskólapróf 1952. Starf-
aði hjá Kaupfélaginu Dagsbrún
Ólafsvík 1952–59 og hjá Inn-
kaupastofnun ríkisins 1952–
1993. Forstjóri hennar í 28 ár.
Einn stofnenda Sunnuhlíð-
arsamtakanna í Kópavogi og for-
maður þeirra fyrstu 20 árin. Eft-
ir að hafa komist á lífeyrisaldur
hefur hann unnið margskonar
ráðgjafastörf, m.a. varðandi mál-
efni aldraðra. Maki er Sæunn
Sveinsdóttir og börnin þrjú eru
Sigríður Berglind, Lárus Sig-
urður og Þór Heiðar.
Stór hópur
aldraðra með
rýrar tekjur