Morgunblaðið - 14.04.2002, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIRTÆKI í heilbrigðis-iðnaði hafa verið töluvertáberandi undanfarin miss-eri. Þeirra stærst er lík-lega Íslensk erfðagreining
en fyrirtækið hefur verið mikið í um-
ræðunni undanfarið. Fyrirtækið
Össur hefur hlotið margvíslegar við-
urkenningar fyrir frumkvöðlastarf í
stoðtækjaframleiðslu og Flaga fyrir
framleiðslu tækja til svefnrann-
sókna. Þá hafa lyfjafyrirtæki eins og
Delta og Pharmaco vaxið á ótrúleg-
um hraða og lengi mætti áfram telja.
Fyrir nokkrum árum mátti telja
fyrirtæki sem störfuðu á sviði heil-
brigðis-, lyfja- og líftækni á fingrum
annarrar handar en á undanförnum
árum hefur þeim fjölgað stöðugt. Nú
er svo komið að skilgreint hefur ver-
ið sérstakt svið sem á við fyrirtæki
sem starfa á þessu sviði og hefur
starfssvið þeirra verið kallað einu
nafni heilbrigðisiðnaður.
Hingað til hefur ekki verið ljóst
hvert framlag fyrirtækja á sviði heil-
brigðisiðnaðar til íslenska hagkerf-
isins hafa verið.
Staða heilbrigðisiðnaðar metin
Í marsmánuði kom út skýrslan
„Efnahagsleg áhrif heilbrigðis- og
líftækni á íslenska hagkerfið“, unnin
af Ólafi Sigurðssyni hjá Talentu fyr-
ir Heilbrigðistæknivettvang. Í
skýrslunni leynast margvíslegar vís-
bendingar um stöðu og vöxt þess-
arar nýju atvinnugreinar sem og
framlag hennar til hagkerfisins.
Heilbrigðistæknivettvangur
(HTV) stóð að gerð skýrslunnar en
að honum standa Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytið, iðnaðarráðu-
neytið, Rannsóknarráð Íslands,
Samtök iðnaðarins og Heilbrigðis-
tæknifélag Íslands.
HTV var stofnaður í mars 2000 og
er meginhlutverk hans að hvetja fyr-
irtæki, stofnanir og einstaklinga til
aukins innlends og erlends sam-
starfs á sviði heilbrigðistækni, að
sögn Halldórs Péturs Þorsteinsson-
ar, verkefnisstjóra HTV. Hann segir
að tilkoma vettvangsins hafi auð-
veldað fyrrnefndum aðilum að koma
á samstarfi með formlegum hætti.
Þá hafi verið lögð sérstök áhersla á
erlent samstarf.
„Nýlega var stofnaður, að frum-
kvæði HTV, norrænn hópur, með
fulltrúum allra Norðurlandanna,
sem hefur það að markmiði að auð-
velda fyrirtækjum á sviðinu að finna
samstarfsaðila og ekki síst söluleiðir
fyrir vörur sínar,“ segir Halldór.
Hann segir að á því einu og hálfa
ári sem HTV hafi verið starfræktur,
hafi ekki mikið verið sóst eftir fjár-
styrkjum til vettvangsins þrátt fyrir
að eitt af hlutverkum hans sé að
veita einstaklingum, fyrirtækjum og
stofnunum fjárstyrki í nýjar verk-
efnahugmyndir á þessu sviði. Skýr-
ingin sé e.t.v. sú að ekki séu stórar
fjárhæðir í boði og fyrirtækin séu til-
tölulega vel stæð. „Það eru þó
örugglega einstaklingar sem eru að
vinna í heilbrigðiskerfinu og hafa
góðar hugmyndir sem eiga erindi til
okkar og eru upphaf að einhverju
stærra,“ segir Halldór.
Ótvíræð jákvæð áhrif á
vinnumarkað
Í fyrrnefndri skýrslu segir að
markaðsverðmæti skráðra fyrir-
tækja í heilbrigðisiðnaði á Íslandi sé
um 92 milljarðar króna og óskráðra
fyrirtækja um 15 milljarðar. Heild-
arverðmæti fyrirtækja sem starfa á
þessu sviði sé því u.þ.b. 107 millj-
arðar króna. (Þau fyrirtæki sem
skýrsluhöfundur fjallar um má sjá á
meðfylgjandi lista).
Fullyrt er í skýrslunni að nýsköp-
un í heilbrigðisiðnaði hafi haft mjög
jákvæð áhrif á íslenskan vinnumark-
að. Því til stuðnings er bent á að alls
hafi um 1.500 manns starfað beint
við heilbrigðisiðnaði hérlendis árið
2000, í tæplega 60 einkafyrirtækj-
um, og 150 að auki hjá opinberum
stofnunum. Fjöldi starfsmanna á
þessu sviði var 484 árið 1997 og hef-
ur því þrefaldast á þremur árum.
Að mati skýrsluhöfundar hafa um
1.700 óbein störf myndast í tengslum
við fyrirtæki í heilbrigðisiðnaði svo
alls er reiknað með að 3.300 ný störf
hafi skapast vegna nýsköpunar á
sviðinu. Það þýðir að tæplega 2% af
vinnuafli þjóðarinnar starfa beint
eða óbeint við heilbrigðisiðnað.
Skýrsluhöfundur telur að heil-
brigðisiðnaður hafi greitt 7,9 millj-
arða króna í formi launagreiðslna ár-
ið 2000 og er þar miðað við 2,4
milljónir króna í meðaltekjur. Þá
hafi skatttekjur ríkis og sveitarfé-
laga af þessum launþegum numið
um 3 milljörðum króna á sama ári og
aukist töluvert frá ári til árs. Tekjur
ríkisins hafi verið 2 milljarðar en
sveitarfélaga 1 milljarður.
Veltan vaxið um 6 milljarða
á þremur árum
Heildarvelta fyrirtækja án virðis-
aukaskatts í heilbrigðisiðnaði var
10,9 milljarðar króna árið 2000 og
hafði þá vaxið um tæpa sex milljarða
króna á þremur árum. Nákvæmar
tölur um stöðu greinarinnar árið
1997 liggja ekki fyrir en samkvæmt
samantekt sem unnin var það ár var
velta fyrirtækja í heilbrigðisiðnaði
um 5 milljarðar króna það árið, segir
í skýrslunni.
Meðalvöxtur heilbrigðisiðnaðar
var 35,5% á árunum 1998 til 2000 en
til samanburðar var vöxtur fiskveiða
á sama tímabili neikvæður um rúm
7% (sjá töflu). Tölur fyrir fyrstu tíu
mánuði ársins 2001 gefa til kynna að
lítið hafi dregið úr þeim vexti sem
einkenndi greinina á árunum 1998 til
2000. „Að því gefnu að sambærilegur
vöxtur einkenni þessi fyrirtæki
áfram má færa rök fyrir því að heild-
arvelta fyrirtækja sem starfa í heil-
brigðisiðnaði verði um 73 milljarðar
árið 2005,“ segir í skýrslunni.
Skýrsluhöfundur telur margt
Heilbrigðisiðnaður
í stöðugri sókn
Fyrir 20 árum var varla talað um heilbrigðisiðnað
sem atvinnugrein. Í dag er sú atvinnugrein einhver
blómlegasti sproti íslensks atvinnulífs, ef marka
má niðurstöður nýrrar samantektar um stöðu
hennar. Ragna Sara Jónsdóttir gluggaði í nýút-
komna skýrslu um efnahagsleg áhrif heilbrigð-
isiðnaðar á íslenskt hagkerfi.
Morgunblaðið/Kristinn
!
"
#$ %
!
"
!
& '
#()*%
+,
- ./)/
0& #
&
$
& &
- &
123
.!
- &
'
&,
*,
4
5
*
!
!
6
7,
678
, 678
,
1&
,
1&
,
1&
,
1&
,
1
3
123
123
*,1&
,
*,1&
,
(''
9
(''
9
6 &
:
;
7,
;
,/ *9
< & =>>=/
!"
$* ?@
)
&
1A,& 3
, &
,
&;
&
6
7,
A
A
213
3&/< &
/
2//
!8&&
'
/&
/
,
,
,
8
#$
##$%
%$&
'$
%$
$
'$
#$
$# $
%$ %$
$# $%
..................
Ú t f l u t n i n g s t e k j u r
f y r i r t æ k j a í h e i l -
b r i g ð i s i ð n a ð i á r i ð
2 0 0 0 v o r u 5 , 2
m i l l j a r ð a r k r ó n a .
..................
..................
F j ö l d i s t a r f s m a n n a
í h e i l b r i g ð i s i ð n a ð i
h e f u r þ r e f a l d a s t á
þ r e m u r á r u m
..................
..................
M e ð a l v ö x t u r h e i l -
b r i g ð i s i ð n a ð a r v a r
3 5 , 5 % á á r u n u m
1 9 9 8 t i l 2 0 0 0
..................
()
$* ?@ (
1
,
,
&
/
&
1
3
23
6
A
* *
B/CB>
B/BD>
B/BE>
DEC
D/>?C
&
13
& 3
=/DFF
B/=>E
B/BE>
@=>
@/CFC
C/=BF
B/FCD
B/DE@
@E=
F/G?E
D/FEB
=/DBE
C/B@C
FC>
B>/GEB
*
@/FG=
=/=@B
C/F@F
FC>
B=/=B?
+,
#
DB/EG?
G/?ED
=B/FDB
B/>BD
EC/DBG