Morgunblaðið - 14.04.2002, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 17
John Barsby, forseti breska blaða-mannasambandsins (NUJ),starfaði sem fréttamaður hjábreska ríkisútvarpinu, BBC, í
27 ár, bæði í útvarpi og sjón-
varpi. Barsby, sem er einlægur tals-
maður útvarps í almenningseigu,
hyggst ræða um þýðingu þjóðarút-
varps í almenningseign og mikilvægi
þess í nútíma samfélagi, á málþinginu
sem verður í Þjóðmenningarhúsinu
og hefst kl. 14.
Hann telur að með fjölmiðli í eigu
almennings sé öllum tryggður að-
gangur að gæðaefni.
Auk þess að sinna forsetastarfi
NUJ er Barsby annar tveggja sem
veita forystu herferð sem Alþjóða-
samband blaðamanna gengst fyrir, og
hefur gert í tæpt ár, til varnar og
stuðnings útvarpi í almenningseigu.
„Við okkur blasa ýmis áhyggjuefni,
sérstaklega í löndum sem gengið hafa
í gegnum miklar breytingar upp á síð-
kastið, til dæmis í fyrrverandi Sov-
étríkjum. Þar hafa breytingar orðið í
lýðræðisátt, en valdamenn eru samt
sem áður ófúsir að sleppa hendinni af
fjölmiðlunum. Mér er sagt að þetta sé
ekki vandamálið á Íslandi, hér sé
frekar um að ræða ágreining um fjár-
mögnun og svo sé nokkur áhugi á að
einkavæða ríkisútvarpið, en slíkt tel
ég geta haft alvarlegar afleiðingar
fyrir almenningsþjónustuna; vissu-
lega er mjög dýrt að reka ríkisútvarp
en það er ljóst í mínum huga að það
verður almenningi ekki til framdrátt-
ar ef slík þjónusta leggst af og ein-
ungis verður útvarpað á fjárhagsleg-
um forsendum. Í mínum huga er
tilgangur þjóðarútvarps í almenn-
ingseign sá að fræða og upplýsa og
fjölmiðill sem sinnir slíku hlutverki
verður að vera algjörlega óvilhallur;
má ekki styðja stjórnmálaflokk eða
lúta stjórn peningaafla.“
Barsby segir ýmis einkafyrirtæki í
Bretlandi framleiða prýðilegt sjón-
varpsefni og ánægjuleg tengsl séu á
milli þeirra og ríkisfyrirtækisins.
Einkafyrirtækin taki í sumum tilfell-
um að sér almenningsþjónustu, til að
mynda í fréttaflutningi, en hann nefn-
ir að þegar gervihnattasjónvarp á í
hlut þyki honum allt of mikið af að-
keyptu, ódýru efni – til dæmis frá
Ameríku – í dagskránni.
„Þegar ódýrt, aðkeypt efni er farið
að skipa svo veglegan sess í dag-
skránni, hvar er þá skuldbindingin við
fólkið? Þá er ekki lengur fyrst og
fremst hugsað um að fræða og upp-
lýsa og reyna að bæta líf fólksins.“
Breska ríkisútvarpið er þekkt af
mjög vandaðri dagskrá og framleiðslu
gæðaefnis en Barsby segir suma
breska stjórnmálamenn á þeirri skoð-
un, eins og starfsbræður þeirra ann-
ars staðar, að ekki ætti að skylda fólk
til greiðslu afnotagjalda. „Þá kæmu
fleiri einkafyrirtæki inn á markaðinn
og margir stjórnmálamenn álíta það
ætíð best. Þeir vilja ekki að almenn-
ingur sé skattlagður óbeint með af-
notagjöldum; vilji fólk nota slíka þjón-
ustu kaupi það sér einfaldlega aðgang
að henni.“ Hann segir það hins vegar
öruggt mál að slíkt yrði ekki til bóta
og óttast að menntun og fræðsla af
því tagi sem t.d. er boðið upp á í ríkum
mæli hjá BBC yrði nær eingöngu fyr-
ir þá ríku ef dregið yrði úr fræðsluefni
og það sett á gervihnattastöðvarnar
því sumir hefðu einfaldlega ekki efni á
aðgangi að þeim.
Einkafyrirtæki verði ætíð að hugsa
fyrst og fremst um fjárhaginn og þá
sé hætta á að gæðin minnki.
„Ýmsir stjórnmálamenn telja það
leiðina fram á veginn að fá sem flestar
stöðvar og mikið framboð verði af bíó-
myndum en ég spyr: Hvar eru þá
gæðin? Í mínum huga er eitt hið mik-
ilvægasta við þessa almenningsþjón-
ustu að ekki þarf að hafa áhyggjur af
áhorfi; hve margir horfa eða hlusta.“
En má þá ekki spyrja á móti hvers
vegna ætti að bjóða upp á slíka
„gæðadagskrá“ ef meirihluti fólks
hefur ekki áhuga á henni?
„Það er einmitt dæmigerður mál-
flutningur þeirra sem ekki vilja leggja
nægilega mikla vinnu, hæfileika og
peninga í að reka góða almennings-
þjónustu og vilja heldur einkavæða
starfsemina.“
Barsby segir þrýsting frá einkafyr-
irtækjum sífellt aukast um að sjá um
fjölmiðlunina og annað sem hann hafi
áhyggjur af, t.d. hjá BBC, sé að jafn-
framt því að notast sé við nýjustu
tækni aukist það að blaðamaðurinn
fari sjálfur á vettvang með myndavél-
ina; „hann á að mynda og ritstýra efn-
inu þegar heim er komið, auk þess að
sinna starfi sínu sem blaðamaður. Í
mínum huga er ljóst að blaðamennsk-
an verður ekki eins góð þegar við-
komandi þarf að einbeita sér að svo
mörgum hlutum í einu. Mér sem
blaðamanni er blaðamennskan efst í
huga; okkar hlutverk er að spyrja,
rannsaka. En þegar sami maður þarf
að hafa áhyggjur af myndatökunni,
hljóðinu og hvernig efninu er raðað
saman minnka gæði allra þessara
þátta. Blaðamaðurinn er fulltrúi al-
mennings og spyr spurninga fyrir
hann, og ef viðkomandi getur ekki
fylgst vel með, hlustað, spurt réttu
spurninganna og sinnt rannsóknum,
þá bitnar það á okkur öllum.“
Hvað um Bandaríkin? þar eru
einkareknar stöðvar í miklum mæli.
„Já, og líttu bara á gæði mikils
hluta þess efnis sem sent er út... Stóru
stöðvarnar, CNN og fleiri, bjóða vita-
skuld upp á góðar fréttir að mörgu
leyti en mér finnst gæðin engu að síð-
ur ekki þau sömu og hjá þjóðarút-
varpi í almenningseigu. Sú hætta er
alltaf fyrir hendi þegar einkarekstur
er annars vegar – ég tek fram að ég
hefur engar sannanir fyrir neinu slíku
– en óhjákvæmilegt er að sú hætta er
ætíð fyrir hendi að á einhverjum
tímapunkti komi þrýstingur á frétta-
stofu frá auglýsendum eða styrktar-
aðilum; líki þeim ekki einhver sér-
stakur blaðamaður eða hafi þeir gert
eitthvað sem telst fréttnæmt en þeir
eru ekki ánægðir með.“
Barsby segir lykilatriði að venju-
legt fólk skynji ekki hættuna af því að
missa almenningsútvarp. „Miðillinn
er alltaf fyrir hendi og fólk áttar sig
ekki á því fyrr en svo er ekki lengur.
Þá verður spurt: Hvers vegna? Fólk
er hins vegar ekki endilega að sýna
tilfinningar sínar áður.“
Og þegar einu sinni verði búið að
leggja niður almenningsþjónustu á
þessu sviði, hræðist hann að ómögu-
legt verði að snúa til baka. Enginn viti
hvað átt hafi fyrr en misst hafi.
Enginn veit hvað
átt hefur fyrr en
misst hefur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
John Barsby, forseti breska blaðamannasambandsins.
Bandalag íslenskra listamanna stendur fyrir mál-
þingi um menningarhlutverk Ríkisútvarpsins í
dag. Skapti Hallgrímsson ræddi við John Barsby,
forseta breska blaðamannasambandsins, einn
þeirra sem tala í dag í Þjóðmenningarhúsinu.