Morgunblaðið - 14.04.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 14.04.2002, Qupperneq 23
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 23 Hverjum nýtist námið? MBA námið er ætlað stjórnendum og sérfræðingum með háskóla- próf sem vilja í framtíðinni takast á við krefjandi stjórnunarstörf. Um er að ræða viðskipta- og stjórnunarnám fyrir þá sem vilja bæta við sig þekkingu á rekstri, en um leið kynnast því sérstaklega hvernig standa ber að stjórnun mannauðs. Námið er hægt að stunda samhliða vinnu. Við bjóðum þér á opinn kynningarfund um MBA námið þriðjudaginn 16. apríl kl. 17:15 í Háskólanum í Reykjavík. Á fundinum verður fjallað um framtíðaráhrif mannauðsstjórnunar á íslenskt atvinnulíf, kynntar nýjar hugmyndir um stefnumiðaða mannauðsstjórnun og gerð nánari grein fyrir fyrirkomulagi námsins. Alþjóðlegur hópur sérfræðinga Meðal leiðbeinenda eru fremstu sérfræðingar á sviði viðskipta og stjórnunar með áralanga reynslu úr atvinnulífinu og hinu akademíska umhverfi. Þessi hópur sérfræðinga gerir Háskólanum í Reykjavík kleift að bjóða fræðslu sem stenst alþjóðlegan samanburð. www.ru.is/hrm Fólkið á bakvið námið er m.a.: Dr. Ásta Bjarnadóttir, forstöðumaður námsins og lektor við viðskiptadeild HR Kennslugrein: Mönnun og starfsmannaval Dr. Rich Arvey, prófessor við University of Minnesota Kennslugrein: Mannleg hegðun á vinnustöðum Bjarni Snæbjörn Jónsson, MBA, ráðgjafi hjá IMG og aðjúnkt við HR Kennslugrein: Stefnumótun fyrirtækja Dr. Joe Pons, fyrrverandi yfirmaður MBA náms við IESE í Barcelóna og ráðgjafi Kennslugrein: Markaðsfræði Ragnar Þórir Guðgeirsson, cand. oecon, framkvæmdastjóri KPMG ráðgjafar Kennslugrein: Reikningshald Dr. Finnur Oddsson, lektor við viðskiptadeild HR Kennslugrein: Frammistöðustjórnun Dr. Raymond Richardson, prófessor við London School of Economics Kennslugrein: Laun og umbun Halla Tómasdóttir, MIM, lektor við viðskiptadeild HR Kennslugrein: Breytingastjórnun Nánari upplýsingar veitir: María K. Gylfadóttir Verkefnastjóri MBA náms Gsm: 820 6262 Tölvupóstfang: maria@ru.is H á sk ó li n n í R e y k ja v ík • S S • 0 4 /2 0 0 2 MBA nám með áherslu á mannauðsstjórnun Dr. Ásta Bjarnadóttir Dr. Finnur Oddsson Halla Tómasdóttir, MIM „Lærðu af þeim sem eru fremst á sínu sviði“ „NORRÆNT LÝÐRÆÐI 2020“ er yfirskrift þemaráðstefnu Norð- urlandaráðs sem hefst á mánudag í Reykjavík. Þetta er í fyrsta skipti sem árlega þemaráðstefna Norð- urlandaráðs fer fram á Íslandi. Mun meiri þátttaka er á ráðstefnunni en skipuleggjendur hennar gerðu ráð fyrir, alls munu um 350 manns sækja ráðstefnuna, þar af um 300 erlendir gestir. Á ráðstefnunni, sem mun standa í tvo daga og fram fer á Grand Hótel í Reykjavík, verður einkum leitast við að varpa ljósi á framtíðarsýn norrænnar lýðræðisþróunar, en á þessu ári eru fimmtíu ár síðan Norðulandaráð var stofnað. Þema- ráðstefnan er stærsti viðburðurinn sem af er afmælisárinu og á blaða- mannafundi þar sem þemaráð- stefnan var kynnt í gær sagði Ísólf- ur Gylfi Pálmason, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, ráðstefnuna marka upphaf hátíð- arhalda vegna afmælisins. Carl Bildt meðal fyrirlesara Á ráðstefnunni verður fjallað um norræna velferðarríkið og lýðræði, norræn lýðræðisgildi í hnatt- væddum heimi, áhrif fjölmenningar á lýðræðið og hvernig aðkomu ný- búa að stjórnkerfi og stjórnsýslu á Norðurlöndum er háttað. Carl Bildt, fyrrum forsætisráðherra Sví- þjóðar og sérlegur erindreki Sam- einuðu þjóðanna í málefnum Kos- ovo-héraðs 1999–2001, mun halda erindi um hlutverk Norðurlandanna sem fyrirmynd nýrra lýðræðisríkja og Russel Johnston lávarður, for- maður Alþjóðalýðræðismálastofn- unarinnar og fráfarandi forseti Evrópuráðsþingsins, mun ræða mannréttindi og lýðræði. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, ræðir framtíðarsýn norrænnar lýð- ræðisþróunar, Guðmund Hernes, yfirmaður menntamálastofnunar UNESCO, fjallar um lýðræði og skipulag stofnana og Suvi-Anne Siimes, ráðherra í ríkisstjórn Finn- lands, mun halda erindi um virkt lýðræði. Þá mun Marianne Jelved, fyrrum efnahagsmálaráðherra í ríkisstjórn Danmerkur, ræða svæð- isbundið samstarf og lýðræði án landamæra. 350 manns koma, bjuggust við 150 Áætlað er að um 350 manns sæki ráðstefnuna, þar af um 130 þing- menn frá Íslandi, Danmörku, Nor- egi, Svíþjóð og Finnlandi, auk þing- manna frá Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Einnig munu þing- menn frá Eystrarsaltslöndunum sækja ráðstefnuna auk fulltrúa frá Rússlandi og víðar. Sigríður Jó- hannesdóttir, varaformaður Ís- landsdeildar Norðurlandaráðs, seg- ir þátttöku erlendra gesta koma mjög á óvart. „Það eru bara 87 þingmenn í Norðurlandaráði og við héldum að það kæmu kannski tveir til þrír tugir í viðbót, en að það kæmi allur þessi gríðarlegi hópur kemur okkur á óvart. Það kemur stór hópur t.d. frá Evrópusamband- inu sem við áttum ekki von á,“ segir Sigríður. Hún segir að þessa miklu þátttöku megi þakka því að efni ráðstefnunnar sé áríðandi og mik- ilvægt í dag, auk þess sem vel hafi tekist til með val á fyrirlesurum. „Þetta er áhugavert fólk og hefur verið tekið eftir því sem það segir svo það er kannski þess vegna sem er svona gríðarleg aðsókn. Við héld- um kannski að gestirnir yrðu um 150,“ segir Sigríður. Ísólfur Gylfi segist ekki telja að svo margir hafi sótt þemaráðstefnu Norðurlandaráðs til þessa þó oft hafi áhugaverð efni verið þar til umræðu. „Um leið og við kynnum svona spennandi mál er þetta mikil landkynning,“ segir Ísólfur Gylfi og segir Sigríður Stefánsdóttir sem sér um kynningarmál fyrir ráðstefnuna að á þriðja tug blaðamanna muni koma á ráðstefnuna. Þemaráðstefna Norðurlandaráðs Morgunblaðið/Sverrir Ísólfur Gylfi Pálmason, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, og Sigríður Jóhannesdóttir varaformaður ásamt Stígi Stefánssyni, ritara deildarinnar, og Andra Lútherssyni alþjóðaritara. Mun meiri þátttaka en gert var ráð fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.