Morgunblaðið - 14.04.2002, Side 28
LISTIR
28 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NORÐLENSKIR tónlistarmenn
leggja land undir fót um helgina og
halda tónleika í Háskólabíói í dag
kl. 16. Þar verða á ferðinni Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands, Karla-
kórinn Heimir undir stjórn Stefáns
Gíslasonar og Óskar Pétursson,
ásamt bræðrum sínum frá Álfta-
gerði, alls liðlega 120 manns. Í
Mosfellsbænum bætist Diddú í
hópinn og öll hersingin ætlar síðan
að storma í Háskólabíó og halda
þar sannkallaðan vorfögnuð. Að-
alstjórnandi er Guðmundur Óli
Gunnarsson, en Sigrún Eðvalds-
dóttir verður konsertmeistari.
Á skírdag var haldin „tónaveisla“
í Íþróttahöllinni á Akureyri, þar
sem þessir sömu listamenn komu
fram. Höllin var þétt setin, en
meðal gesta voru forseti Íslands,
ráðherrar og ráðamenn. Tónleik-
arnir lukkuðust vel, og að áeggjan
þeirra sem heyrðu og annarra sem
misstu af tónleikunum var ákveðið
að gefa íbúum höfuðborgarsvæð-
isins einnig tækifæri til að sitja
slíka veislu.
Óskar Pétursson segir að full
ástæða hafi verið að leyfa höf-
uðborgarbúum að njóta líka, enda
hafi komið margar fyrirspurnir um
það til þeirra. „Við erum bjartsýnir
Norðlendingar, þannig að við
ákváðum strax að láta slag standa.
Þetta er heilmikið fyrirtæki með
þennan fjölda tónlistarmanna, en
það mun vonandi ganga allt vel.“
Á efnisskránni eru íslensk og er-
lend lög. Í upphafi flytja hljóm-
sveitin og karlakórinn Finlandiu
eftir Sibelius. Kórinn tekur einnig
undir með Óskari í Ökuljóðinu
kunna, sem Stefán Íslandi gerði
vinsælt á sínum tíma. Lög við ljóð
Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi fylgja og þá Hamraborgin.
Diddú syngur kossavísur, Il Bacio,
eða kossinn eftir Arditi og síðan
Mein Herr Marquis úr Leðurblök-
unni eftir Lehár. Heimismenn
syngja með hljómsveitinni Píla-
grímakórinn úr Tannhäuser eftir
Wagner og Óskar lýkur fyrri hluta
tónleikanna með Napólíljóðinu Co-
re’ngrato, sem Cardillo samdi fyrir
Caruso á sínum tíma. Giuseppe
Verdi á flest verkin í síðari hluta
tónleikanna, þar sem Diddú og
Óskar syngja aríur og dúetta úr
óperunum Rigoletto og La Trav-
iata. Hljómsveitin leikur forleikinn
að óperunni Nabucco og Heim-
ismenn syngja með hljómsveitinni
Steðjakórinn úr Il trovatore Fleiri
tónskáld koma reyndar við sögu,
því Diddú syngur Mattinata eftir
Leoncavallo og Óskar Una furtiva
lagrima úr Ástardrykknum eftir
Donizetti. Tónleikunum lýkur með
Mansöng eftir Sigmund Romberg,
í flutningi Óskars, Heimismanna og
hljómsveitarinnar.
Mikið að gera
Álftagerðisbræður og karlakór-
inn Heimir njóta mikilla vinsælda,
og segir Óskar að það sé stans-
laust verið að biðja þá bræður að
syngja hér og þar. „Í vetur hefur
þetta verið ansi mikið og stundum
oftar en tvisvar á dag að fólk er að
bera víurnar í okkur. Það er getur
þó verið erfitt að koma því við að
syngja svona mikið og satt að
segja er það umdeilanlegt hvort
maður hafi tíma til að sinna ann-
arri vinnu. Þetta verður æ tíma-
frekara; og ég er alveg á kafi upp
fyrir haus. Ég þykist þó vera vél-
virki ennþá.“
Óskar segir velgengnina þó
ánægjulega en gerir ekki mikið úr
spurningunni um það hverju vel-
gengnin sæti. „Ég hef nú svosum
oft spekúlerað í því. Ætli þetta sé
ekki bara það að við tökum okkur
ekkert of hátíðlega, reynum að
vera frekar léttir á bárunni og allt-
af við sjálfir. Ætli við hljótum ekki
líka að vera bara nokkuð skemmti-
legir, en annars er það ekki mitt
að segja til um þetta. Við erum al-
þýðumenn og ómenntaðir svosum,
og kannski finnur fólk sjálft sig í
okkur þess vegna. Annars veit ég
ekkert um þetta, ja, nema við
syngjum kannski svona vel. Ég
hallast nú að því að við hljótum að
gera það, úr því alltaf er verið að
biðja okkur um það.“ Það verða
ekki fleiri svo ósanngjarnar spurn-
ingar lagðar fyrir Óskar Pétursson.
Hann er á leið út úr dyrum að
syngja, og svo að syngja meir áður
en hann kemur í bæinn til að
syngja fyrir íbúa höfuðborgarinnar.
Tónleikarnir í Háskólabíói hefj-
ast sem fyrr segir í dag kl. 16.
Við erum
alþýðumenn
Morgunblaðið/Kristján
Álftagerðisbræður, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Karlakórinn Heimir og Diddú syngja í Háskólabíói.
Norðlensk tónaveisla í Háskólabíói
Bíósalur Mír, Vatnsstíg 10 Kvik-
mynd eftir Tarkovskís frá árinu 1966
verður sýnd kl. 15. Í myndinni er
sagt frá helgimyndamálara, sem
uppi var á sextándu öld. Þetta var
önnur kvikmynd hins kunna rúss-
neska kvikmyndaleikstjóra Andrei
Tarkovskís, en með henni hlaut hann
heimsfrægð og margvíslega við-
urkenningu, m.a. gullverðlaun á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Can-
nes í Frakklandi.
Myndin er með enskum texta. Að-
gangur er ókeypis.
Víðistaðakirkja, Hafnarfirði
Karlakórinn Lóuþrælar og Sönghóp-
urinn Sandlóur úr Húnaþingi vestra
halda tónleika kl. 16. Söngstjóri er
Ólöf Pálsdóttir og undirleikarar El-
inborg Sigurgeirsdóttir, Þorvaldur
Pálsson og Þorvarður Guðmunds-
son. Á efnisskránni eru innlend og
erlend lög. Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Kórarnir vinna nú að upptöku til út-
gáfu hljómdisks, sem væntanlegur
er á markaðinn á þessu ári.
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14
Vortónleikar Breiðfirðingakórsins
og Símakórsins verða kl. 17.
Í DAG
HLÖÐVER Sigurðsson tenórsöngv-
ari og Antonía Hevesi píanóleikari
halda tónleika í Salnum annað
kvöld, mánudags-
kvöld, kl. 20. Þau
munu flytja ís-
lensk sönglög eft-
ir Karl O. Run-
ólfsson, Sigfús
Halldórsson, Sig-
valda Kaldalóns
og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson
og óperuaríur og
sönglög eftir V.
Bellini, G. Donizetti, G. Fauré, U.
Giordano og F. Schubert.
Hlöðver hefur stundað nám hjá
Antoníu við Tónlistarskóla Siglu-
fjarðar síðan á haustmánuðum
1995.
Antonia býr á Siglufirði þar sem
hún er organisti og kórstjóri við
Siglufjarðarkirkju. Þá kennir hún á
píanó, söng, hljómfræðigreinar o.fl.
við Tónlistarskóla Siglufjarðar.
Tenórsöngv-
ari í Salnum
Hlöðver
Sigurðsson
blómum
bætt
Fjölgun útgáfudaga í apríl og maí
Pantið tímanlega! Sími: 569 1111. Netfang: augl@mbl.is
Ma›ur getur alltaf á sig
Nú fá auglýsendur fleiri tækifæri til að ná til lesenda Morgunblaðsins þar
sem útgáfudögum verður fjölgað í apríl og maí.
Dagarnir sem bætast við:
Apríl Maí
föstudagurinn 26. apríl, fimmtudagurinn 2. maí,
föstudagurinn 10. maí og þriðjudagurinn 21. maí.
26
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 27 28
29 30
M Þ M F F L S
2
10
21
1 3 4 5
6 7 8 9 11 12
13 14 15 16 17
24
31
18 19
20 22
29
23
30
25 26
27 28
M Þ M F F L S