Morgunblaðið - 14.04.2002, Síða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 39
!
" !#!
$% $&''
(
!"
"# !$%
!"
! " #$ ! % %
#$ % &
!%' !(&& # ) *#+
,## !(&+ -'! . / 0&
!(& "!(&+
'1 &
# % !(&&
# '! !(&+
% %+
2+2"
!! "#
"# "$$%
$% !& ' ( )!*)
!& +!, !*)
%& !& ,-! $% )*)
. ! *) ! &! )&&
!)!%)* !) !!%)/
! " #$
!""
!!" ##$ %"# #%&&
'!! !!" ##$ ! (" ) #%&&
*+!! !!" ##$
, , $ ! ),-
!
"#
$ !# %!
& "
' '(!' ' '(
!"
! "
# $%%
%% "
!" !" "#$$%
!"
!"#$% & #
✝ Hulda S. Fjeld-sted fæddist í
Reykjavík 8. júní
1919. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skjóli 23. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sturlaugur Lárus-
son Fjeldsted, f. að
Berserkseyri í Eyr-
arsveit 10. maí
1890, d. 6. ágúst
1973, og kona hans
Guðrún Símonar-
dóttir, f. að Sigríð-
arstöðum í Fljótum
í Skagafirði 13. apríl 1894, d. á
sjúkrahúsi í Winnipeg í Kanada
1927. Systkini Huldu eru: Jónína
Sigrún, f. 24. okt. 1920, Kristján,
f. 4. feb. 1922, Lárus, f. 23. jan.
1924, Sóley Ester, f. 1925, og
Salbjörg Thomson, f. 4. des.
1924. Seinni kona Sturlaugs var
Jónas og Láru Guðrúnu. Faðir
Sigurðar var Jónas Sigurðsson, f.
13. mars 1911, d. 7. mars 2002.
Seinni maður Huldu er Guðjón
Guðmundsson f. 21. feb. 1928,
þau gengu í hjónaband 25. okt.
1959. Sonur þeirra er Gunnar
Þór, f. 25. nóv. 1959, kona hans
er Elínborg Magnúsdóttir og
eiga þau þrjár dætur; Huldu Rós,
Ester Rós og Lindu Björk.
Hulda og Kristján fóru með
foreldrum sínum til Kanada árið
1923 og áttu þau heima að Lund-
ar í Manitoba til ársins 1927 er
Guðrún lést. Kom Sturlaugur þá
aftur til Íslands með Huldu og
Kristján en þrjú yngstu börnin
urðu eftir í Kanada. Hulda bjó í
Hafnarfirði á sínum æskuárum.
Hún starfaði mikið við fram-
reiðslustörf, þar á meðal var hún
þjónn á ms. Heklu í nokkur ár.
Seinna starfaði hún við aðhlynn-
ingu aldraðra. Þegar hún var 67
ára fékk hún áfall og lamaðist og
var hún á Hjúkrunarheimilinu
Skjóli eftir það.
Útförin Huldu fór fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 11.
mars.
Sigríður Gunnlaugs-
dóttir, f. 6. des. 1906,
d. 2. feb. 1983. Þau
áttu saman börnin
Gunnar, f. 1930, Inga
Sigurð, f. 1931, d.
1950, Sigurlaugu, f.
1933, Magnús, f.
1934, og Sóleyju, f.
1936. Hulda giftist
árið 1942 Böðvari
Ámundasyni, f. 1.
jan. 1917, d. 24. jan.
2000, dóttir þeirra er
Bára, f. 11. okt. 1942,
gift Friðrik Hró-
bjartssyni og eiga
þau tvo syni: Böðvar, kvæntur Ír-
isi Aðalsteinsdóttur, hann á fjög-
ur börn og Friðrik Ingi, kvæntur
Lindu Rán Úlfsdóttur, hann á
þrjú börn. Áður átti Hulda son-
inn Sigurð Rúnar, f. 6. feb. 1939,
sambýliskona Hulda Böðvars-
dóttir, hann á tvö börn; Ásgeir
Ég vil í fáum orðum minnast
ömmu minnar Huldu Fjeldsted.
Minningarnar eru margar um
þessa dugnaðarkonu. Þær fyrstu
tengjast barnæsku minni þar sem
hún með ástúð sinni og umhyggju
var alltaf til staðar ef á þurfti að
halda.
Seinna, þegar ég varð eldri, varð
amma í mínum huga eitthvað
meira en bara amma. Hún reynd-
ist mér sem besti vinur. Víðsýni
hennar, fordómaleysi og jákvæðni
gerði það að verkum að öllum sem
kynntust henni þótti vænt um
hana.
Hún átti auðvelt með að setja
sig inn í hugarheim barna og sýndi
þeim mikinn skilning. Síðustu árin
hafa eflaust verið ömmu erfið þar
sem hún var þá orðin bundin við
hjólastól. Aldrei heyrðist hún þó
kvarta heldur sýndi þakklæti sitt
ef eitthvað var gert fyrir hana með
gjöfum sem hún bjó sjálf til með
sínum bækluðu höndum.
Guð blessi minningu Huldu
Fjeldsted.
Ingi.
Hulda tengdamóðir mín er dáin.
Hún var búin að vera sjúklingur í
nær 15 ár eftir áfall sem hún fékk
aðeins 67 ára. Hulda var ótrúlega
þrautseig á sínum sjúkdómsferli,
kvartaði aldrei um sína líðan og öll
árin var hún að föndra eitthvað
eftir sinni bestu getu til þess að
geta gefið börnum sínum og
barnabörnum eitthvað frá sjálfri
sér. En það var ekki aðeins eftir
að hún missti heilsuna heldur var
hún alla sína ævi sérstaklega gjaf-
mild og hjálpsöm, ekki síst við lít-
ilmagna.
Ég minnist þess þegar við Bára
fórum að vera saman árið 1959 og
ég kom í fyrsta sinn heim til
Huldu, hvað mér fannst heimilið
glæsilegt og framandi, enda hafði
hún verið í siglingum sem þjónn á
Heklunni í nokkur ár og eignaðist
hún þá ýmsa fallega hluti sem ekki
fengust þá hér á landi. Ekki síst er
mér minnisstætt hvað Hulda var
falleg og glæsileg kona og einnig
var matargerð Huldu alveg sér-
stök. Þar fékk ég í fyrsta sinn að
bragða ýmsa fugla og svínakjöts-
rétti sem ég hafði aldrei fengið áð-
ur. Hulda var mjög félagslynd og
hafði yndi af því að kalla saman
fjölskyldu sína og vini og halda
veislur. Hulda var virkur félagi í
Húsmæðrafélagi Reykjavíkur til
margra ára.
Hulda var mér alla tíð dásamleg
tengdamóðir. Hún var alltaf
reiðubúin til að aðstoða okkur
hjónin bæði við barnapössun og
annað sem við þurftum á að halda
og ekki má gleyma marengstert-
unum hennar sem hún bakaði fyrir
okkur þegar einhver í fjölskyld-
unni átti afmæli, þær voru ómiss-
andi í hverja veislu.
Hulda hafði mjög gaman af að
ferðast og fór m.a. tvisvar til Kan-
ada til að hitta systkini sín þar og
aðra ættingja.
Oft fórum við fjölskyldan vestur
á Mýrar þar sem Guðjón hafði
byggt sumarhús við Álftá og vor-
um þar við veiðar, útivist og nutum
samverunnar saman í náttúrunni.
Ég minnist Huldu sem glað-
værrar og duglegrar konu sem
hugsaði alltaf fyrst um aðra og var
sérlega þægileg að hafa nálægt sér
ef eitthvað bjátaði á.
Ég þakka þér, Hulda, allar góð-
ar minningar sem ég geymi um
þig. Ég votta eiginmanni hennar,
börnum, systkinum og nánasta
skyldfólki dýpstu samúð mína.
Friðrik.
HULDA S.
FJELDSTED