Morgunblaðið - 14.04.2002, Qupperneq 42
KIRKJUSTARF
42 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000
OPIÐ HÚS Í DAG
GRETTISGATA 27 - MIÐBÆR
MÖGULEIKI AÐ ÚTBÚA AUKAÍBÚÐ!
Í sölu mikið endurnýjað 153,2
fm einbýlishús með stórum
garði. Nýtt járn og nýtt raf-
magn. Sex svefnherbergi.
Verð 17,9 millj. Áhv. 8,3 millj.
LAUST FLJÓTLEGA!
Frank og Margrét verða með heitt á könnunni
og bjóða ykkur velkomin í dag á milli kl. 13 og 16.
SÍÐUMÚLA 8 SÍMI 525 8800
WWW.ODAL.IS
Helgi M. Hermannsson
Lögg. fasteignasali
HLÍÐARSMÁRI TIL LEIGU
MEISTARAVELLIR - 130 FM
Nýkomin í sölu, björt og vel skipulögð 130
fm endaíbúð á 1. hæð í vönduðu og vel við-
höldnu húsi. Íbúðin skiptist í 3-4 svefnherb.
baðherb., stórar, bjartar stofur, eldhús og
hol. Vestursvalir úr stofu. Sam. þvottahús,
hjólageymsla og sérgeymsla í kj. Innrétting-
ar upphaflegar, ný gólfefni á svh. og baði.
Verð aðeins 14,9 millj. Laus í maílok.
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði á 4-5 hæðum til
leigu í þessu vandaða húsi. Á 1. hæð er um
að ræða verslunarrými ca. 173 fm., á 2. hæð
ca. 760 fm., á 3. hæð ca. 910 fm. og á 4-5
hæðum samtals ca. 520 fm. Húsnæðið er
glæsilega búið, m.a. tölvulagnir um allt,
vandaðir linoleum dúkar á gólfum, parket á
4-5 hæð, álrimlatjöld í öllum gluggum, eikar-
innréttingar og góð lýsing. Hæðirnar skiptast í mismunandi stór skrifstofuherbergi
auk stærri opnari herbergja. Allt húsnæðið er mjög bjart og einstaklega vistlegt.
Allar nánari uppl. og teikn. á skrifstofu. Húsnæðið er laust. Myndir á netinu.
VANTAR - VANTAR
GÓÐUR SÖLUTÍMI FRAMUNDAN. VANTAR ALLAR GERÐIR ÍBÚÐA Á SÖLU-
SKRÁ. SKOÐUM OG VERÐMETUM STRAX - EKKERT SKOÐUNARGJALD.
Opið hús í dag milli kl. 14 og 17
Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050
www.hofdi.is
Í dag býðst þér og þinni fjölskyldu að skoða þessa glæsilegu 4-5
herb. íbúð sem er í þessu fallega fjölbýli. Fallegar innréttingar og
parket á gólfum. Suðursvalir með fallegu útsýni. Stutt í alla þjón-
ustu. Verð 11,9 millj. Áhv. 4,5 millj.
Björn og Lilja bjóða ykkur velkomin.
Vorum að fá í sölu gott atvinnuhúsn., 546 fm á þremur hæðum, í
bakhúsi við miðbæinn. Húsnæðið skiptist að mestu í stóra sali en
jafnframt eru skrifstofur og geymslur. Skemmtilegir franskir glugg-
ar eru að mestu í húsinu. Húsnæðið hefur verið notað undir sýn-
ingar og hentar því mjög vel fyrir listamenn og listastarfsemi enda
nátengt Nýlistasafninu. Þetta er eign sem gefur mikla möguleika
fyrir hugmyndaríkan aðila. Verð 34,5 millj.
Vorum að fá í sölu þetta vel
staðsetta verslunar- og þjón-
ustuhús á Höfn. Í hluta af hús-
næðinu er rekin hárgreiðslu-
stofa og er möguleiki að kaupa
reksturinn sér. Hluti af eigninni
er í traustri útleigu.
Áhugasamir hafi samband við
Ásmund á Höfða í s. 533 6050.
Hafnarbraut Hornafirði
Vatnsstígur
Suðurhólar 8, 2. hæð
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg-
ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheim-
ilis mánudag kl. 13. TTT-klúbburinn kl.
17. Lifandi og fjölbreytt starf fyrir börn
úr 4.–6. bekk í umsjón Andra, Gunn-
fríðar, Guðrúnar Þóru og Jóhönnu. Öll
börn velkomin og alltaf hægt að bætast
í hópinn.
Laugarneskirkja. 12 spora hópar koma
saman mánudag kl. 20 í kirkjunni. Mar-
grét Scheving sálgæsluþjónn leiðir
starfið. (Sjá síðu 650 í textavarpi).
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14.
Öll börn í 1. bekk velkomin. TTT-starf
(10–12 ára) mánudag kl. 16.30. Öll
börn í 4. og 5. bekk velkomin. „Litli kór-
inn“ kór eldri borgara þriðjudag kl.
16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir
félagar velkomnir. Foreldramorgunn mið-
vikudag kl. 10–12. Kaffi og spjall. Um-
sjón Elínborg Lárusdóttir.
Árbæjarkirkja. Sunnudagur: Æskulýðs-
fundur kl. 20. Mánudagur: TTT klúbb-
urinn frá kl. 17–18.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur.: For-
eldramorgnar kl. 10–12 í umsjón Lilju
djákna. Útivist, samvera, kaffi og djús.
Opið hús fyrir fullorðna kl. 13.30 – 16.
Spjallað, spilað og fræðst. Helgistund
og kaffiveitingar í lokin. Umsjón hefur
Lilja G. Hallgrímsdóttir. Þeir sem vilja fá
akstur til og frá kirkjunni láti vita fyrir
hádegi á mánudag í síma 557-3280.
Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 17–18.
Starf fyrir 9–10 ára drengi kl. 17–18.
Unglingastarf á mánudagskvöldum kl.
20.30.
Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bæna-
hópur kl. 20. Tekið við bænarefndum
alla virka daga frá kl. 9–17 í síma 587-
9070. Mánudagur: KFUK fyrir stúlkur 9–
12 ára, kl. 17.30–18.30. KFUM yngri
deild í Borgarskóla, kl. 17–18. Kirkju-
krakkar fyrir 7–9 ára í Korpuskóla, kl.
17.30–18.30. TTT (10–12 ára) í Korpu-
skóla kl. 18.30–19.30.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðs-
félag fyrir unglinga 13–15 ára kl. 20.
Þriðjudagur: Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er í
Hjallakirkju kl. 9.15–10.30. Umsjón: Sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur
fyrir stelpur á aldrinum 9–12 ára kl.
17.15 í kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni.
Allar stelpur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9–12 ára drengi í Kirkjuhvoli á
mánudögum kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld
kl. 20–22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Al-Anon
fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl.
20. Kirkjukrakkafundur í Varmárskóla kl.
13.15–14.30. TTT-fundir í safnaðar-
heimili kl. 16–17. Fundir í æskulýðs-
félaginu Sánd kl. 17–18.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu-
dag kl. 19.30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf
kirkjunnar í Hrakhólum mánudag kl.
17.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Keflavíkurkirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11, 5 ára börn boðin velkomin
til kirkju. Þeim verður gefin bókin Kata
og Óli fara til kirkju. Prestur: Sigfús
Baldvin Ingvason ásamt starfsfólki
sunnudagaskólans. Undirleikari: Helgi
Már Hannesson. Sjá sumaráætlun í Vef-
riti Keflavíkurkirkju: Keflavikurkirkja.is
Landakirkja Vestmannaeyjum. Mánu-
dagur: Kl. 17.30. Æskulýðsstarf fatl-
aðra, eldri hópur. Undirbúningur fyrir
hæfileikakeppni.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Samkoma
sunnudag kl. 16.30. Ræðumaður Sig-
rún Einarsdóttir. Bænastund fyrir sam-
komu kl. 16. Lofgjörð og fyrirbænir. Tví-
skipt barnastarf fyrir börn frá eins árs
aldri. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30.
Miðvikud.: Samverustund unga fólksins
kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð Guðs
rætt. Allir velkomnir.
Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11,
skipt í deildir eftir aldri, létt máltíð og
samfélag á eftir. Bænastund kl. 19.30.
Samkoma kl. 20, predikun orðsins, lof-
gjörð, fyrirbænir og samfélag á eftir. All-
ir hjartanlega velkomnir.
Kristskirkja í Landakoti.
Næsti biblíulestur sr. Halldórs Gröndal
er mánudaginn 15. apríl og hefst kl.
20 í safnaðarheimilinu í Landakoti.
Allir sem hafa áhuga eru hjartanlega
velkomnir.
Safnaðarstarf
Kvöldmessa í
Laugarneskirkju
ENN BÝÐUR söfnuður Laug-
arneskirkju til sinnar mán-
aðarlegu kvöldmessu þar sem ljúf-
ir djasstónar renna saman í
lofgjörð og bæn. Fjöldi fólks hef-
ur gert kvöldmessur Laugarnes-
kirkju að föstum punkti í tilveru
sinni og sótt þangað andlega nær-
ingu og styrk. Sunnudaginn 14.
apríl verður kvöldmessa mánaðar-
ins kl. 20:30 en djassinn hefst í
húsinu kl. 20:00. Þar eru á ferð
landsþekktir tónlistarmenn, þeir
Tómas R Einarsson á kontrabassa,
Matthías Hemstock á trommur,
Sigurður Flosason á saxófón og
Gunnar Gunnarsson á píanó. Kór
Laugarneskirkju syngur. Prestur
verður sr. María Ágústsdóttir en
Eygló Bjarnadóttir meðhjálpari
kirkjunnar, sem nú er að ljúka
guðfræðinámi, mun prédika.
Að messu lokinni er boðið til
fyrirbæna á kórlofti kirkjunnar,
en yfir í safnaðarheimilinu bíður
messukaffið allra sem vilja. Hvetj-
um við allt fólk til kirkjugöngu á
sunnudagskvöldið.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Laugarneskirkja.