Morgunblaðið - 14.04.2002, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Í BRÉFI til blaðsins 4. apríl sl. gagn-
rýnir Ægir Ágústsson kjallaragrein
mína í DV 26. mars sl., en þar hvatti
ég til þess að efla baráttuna gegn inn-
göngu í ESB, sérstaklega í ljósi ný-
legrar skoðanakönnunar Gallup sem
bendir til að meiri hluti Íslendinga sé
hlynntur aðild. Furðar hann sig á að
Ragnar (ég) tali „af miklu harðfylgi
um andstöðu sína gagnvart samn-
ingsviðræðum um inngöngu í ESB“.
„Við hvað er maðurinn hræddur?“
spyr Ægir. Málið er einfalt. „Samn-
ingaviðræður“ sem Ægir talar um
fara ekki fram nema Ísland sæki um
inngöngu. Og auðvitað berjumst við
andstæðingar inngöngunnar gegn því
að Ísland sæki um inngöngu. Um slíkt
sækir engin þjóð í hálfkæringi eða án
þess að ótvíræður hugur fylgi máli.
Þar fyrir utan mundi slík umsókn fela
í sér stefnuyfirlýsingu sem leiddi til
þess að viðskipti og efnahagslíf tækju
í enn ríkara mæli mið að því að við
værum að fara þarna inn. Þjóðin gæti
þannig staðið frammi fyrir gerðum
hlut í ýmsum málum, og erfiðara að
snúa til baka.
Vissulega er sá möguleiki fyrir
hendi að fella samninginn í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, eins og Norðmenn
hafa gert í tvígang, þvert oní samn-
inga sem valdhafar í Noregi stóðu að.
Við andstæðingar inngöngu erum
ekki hræddir við þá baráttu. Við telj-
um bara öruggast að efla hana, sem
mest við megum, og sem fyrst.
Einhliða áróður fyrir innlimun
Áróðurinn fyrir inngöngunni hefur
lævíslega byggður upp af ESB-sinn-
um. Þjóðin á að græða svo óskaplega
mikið á þessu, í beinhörðum pening-
um. Stuðningsmönnum hefur þó ekki
tekist að sýna fram á þetta í opinni
umræðu. Og þegar þeim er bent á að
greiðslurnar sem við munum þurfa að
borga inn í ESB verði hærri en styrk-
irnir sem við fáum þaðan, verða þeir
orðlausir. Við munum fá góðar tilskip-
anir um gagnlegar lagasetningar,
segja ESB-menn. En þegar þeir eru
spurðir af hverju við getum ekki bara
sett þessi lög sjálf hér og nú, vefst
þeim tunga um tönn. Ægir telur að
það væri miklu „gróðavænlegra“ að
taka upp evruna, stöðugleiki mundi
aukast. Við bendum á að óstöðugleiki
í efnahagsmálum sé fyrst og fremst
heimatilbúinn, og við þurfum að
breyta stjórnarstefnunni. Við höfum
hins vegar engin tæki til að bregðast
við óstöðugleika ESB sjálfs eða til-
skipunum frá ESB, eftir inngöngu í
það.
Röksemdir ESB-manna fyrir inn-
göngu standast hvergi gagnrýni and-
stæðinganna. Þess vegna er áróður
ESB-manna fyrst og fremst slagorð.
Þeir reyna að hræða fólk með tali um
einangrun. Af hverju gerum við ekki
eins og allir hinir, segja þeir. Eða, það
er bara íhaldsstefna og torfkofastefna
að vera á móti inngöngunni eins og
kemur fram hjá Ægi. Málflutningur
um raunveruleg áhrif innlimunar og
skuldbindingar sem henni fylgja
kemur nánast aldrei fyrir hjá ESB-
sinnum. Baráttumenn fyrir inngöngu,
eins og Össur Skarphéðinsson og
Halldór Ásgrímsson, vonast til að
með stöðugu nuddi og slagorðum eins
og þessum hér að framan, bresti þjóð-
ina smám saman sjálfstraust til að
trúa á eigið sjálfræði. Hins vegar þora
þeir aldrei að segja það beint, að þeir
vilji inn. Slíkt mundi nefnilega gera
umræðuna skýrari um meginatriði
málsins. Slíka umræðu þola þeir ekki.
Aukið lýðræði í staðinn
fyrir ESB-skrifræði
Aðalatriði málsins er ekki samning-
ar við ESB um nokkrar krónur til eða
frá. Slíkir samningar mega sín lítils
þegar við erum búin að afsala okkur
sjálfstæðum rétti til að gera alþjóð-
lega viðskipta- eða fiskveiðistjórnun-
arsamninga. Það er heldur ekkert
lýðræði innan ESB. Stóru ríkin móta
stefnuna í innbyrðis átökum og
makki. Smæð íslensku þjóðarinnar er
ekki röksemd fyrir inngöngu, eins og
Ægir virðist telja. Einmitt vegna
smæðarinnar og sérstöðunnar er
mikilvægt að Íslendingar fari sjálfir
með stjórn hagsmunamála sinna.
Eflum ákvörðunarrétt íslensku
þjóðarinnar í eigin málum, eflum lýð-
ræðið. Ekki bara til að verjast er-
lendri ásælni. Ekki síður til að verjast
því að íslenskir fjármála- og stjórn-
málamenn framselji réttindi almenn-
ings fyrir eigin hagsmuni.
RAGNAR STEFÁNSSON,
jarðskjálftafræðingur.
ESB – Eflum
andstöðuna
Frá Ragnari Stefánsyni:
ÖÐRU hverju stilli ég á Omega sjón-
varpsstöðina til þess að hlusta á við-
horf þeirra sem þar ráða ríkjum.
Margt gott og uppbyggilegt má þar
stundum heyra en eitt er það sem
hefur vakið með mér hrylling og það
er umfjöllun þessara manna um Ísr-
aelsríki og ráðamenn þar. Ef ég skil
þá rétt þá eiga kristnir menn að
standa fast við bakið á Sharon stríðs-
herra Ísraelsríkis vegna þess að
hann sé leiðtogi útvalinnar þjóðar.
Það er óhugnanlegt að sjónvarpsstöð
sem segist starfa á kristnum for-
sendum skuli lýsa yfir stuðningi við
baráttu þessa manns sem eins og all-
ir vita stóð á bak við hin óhugnanlegu
ódæðisverk í flóttamannabúðunum í
Líbanon á sínum tíma þar sem konur
og börn voru myrt með köldu blóði.
Og óhugnanlegt er það að réttlæta
stríðglæpi vegna þess að þeir eru
framdir af þessari þjóð en ekki ein-
hverri annarri. Sú grimmd sem Ísr-
aelsmenn hafa sýnt óbreyttum borg-
urum í hinum sorglegu átökum
verður ekki réttlætt með því að verið
sé að verjast hryðjuverkamönnum.
Saklaust fólk á ekki að líða fyrir slíkt.
Hin merka saga Ísraelsþjóðarinnar
gefur þeim að sjálfssögðu engin rétt-
indi umfram aðrar þjóðir. Allt sem
Kristur kenndi og boðaði beinist jú
gegn þeirri mannfyrirlitningu sem
felst í slíkum viðhorfum um yfirburði
einnar þjóðar á kostnað annarrar.
Það er ástæða til þess að hvetja
þessa predikara Omegasjónvarpsins
til þess að snúa sér að einhverju öðru
en umfjöllun um málefni Miðaustur-
landa. Þeirra framlag er ekki til þess
fallið að laða fram hugarfar friðar og
réttlætis, þvert á móti kalla slík við-
horf sem þessi á meira blóð og hatur.
Faðir fyrirgef þeim… ( Lúkas 23:34).
EINAR EYJÓLFSSON,
fríkirkjuprestur í Hafnarfirði.
Omegasjónvarpið
og Sharon
Frá Einari Eyjólfssyni: