Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Kannast einhver við
Siv og Friðrik
í Finnlandi ?
KONA hafði samband við
Velvakanda vegna pakka
sem sendur var frá Finn-
landi fyrir skömmu. Pakk-
inn er merktur Árna Pétri
Árnasyni, Þverbrekku 2,
íbúð 302. Sendendur pakk-
ans eru Siv og Friðrik í
Finnlandi. Í pakkanum er
dót til ungbarns. Foreldrar
barnsins eru Kolbrún og
Árni. Pakkinn var sendur á
rangt heimilisfang og vill
konan endilega koma hon-
um á réttan stað. Kolbrún
og Árni geta haft samband í
síma 588-6838.
Tapað/fundið
Nokia 5110 tapaðist
NOKIA 5110 með Talkorti
tapaðist fyrir páska, sennil.
í Kringlunni. Finnandi vin-
saml. hafi samb. í s. 893-
5702.
Jeppadekk úr
Grafarvogi
ÞÚ, sem sóttir jeppadekk í
Hverafold 128, Reykjavík,
um páskana, vinsamlegast
hafðu samband í síma 822-
0557.
Gleraugu
töpuðust
GLERAUGU í sifurlitaðri
hálskeðju töpuðust mánu-
dagskvöldið 8. apríl sl. við
Skipholt 33 (Tónlistarskól-
inn) eða Laugardalssund-
laug. Upplýsingar í síma
699-7292.
Alpahúfa
í óskilum
SVÖRT alpahúfa með deri
fannst rétt hjá Blómavali.
Uppl. í s. 553-3312 á kvöld-
in.
Poki tapaðist
POKI gleymdist í eða við
Kolaportið laugardaginn 6.
apríl sl. Pokinn gæti hafa
gleymst á rauða bekknum
við útidyrnar eða á leið yfir
götuna og út í bíl. Í pok-
anum var útskorin fána-
stöng og brauðfat á fæti.
Upplýsingar gefur Mar-
grét í síma 553-8237.
Kvengleraugu
í óskilum
KVENGLERAUGU í
gylltri umgjörð hafa verið í
óskilum í Lífstykkjabúð-
inni, Laugavegi 4, undan-
farnar vikur. Eigandi getur
haft samband í síma 551-
4473.
Sérsmíðað silfur-
armband tapaðist
SÉRSMIÐAÐ silfurarm-
band, alsett rauðum gran-
atsteinum, tapaðist annan í
páskum á gönguferð í
kringum Tjörnina. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma
552-6752 eða 861-7963.
Dýrahald
Fúsi
er týndur
FÚSI er 2 ára geldur fress,
grár með hvíta fætur og
kvið og hvarf frá Berg-
staðastræti laugardaginn 6.
apríl. Hann er með hvíta
hálsól með tunnu með
helstu upplýsingum um sig
og sína. Fúsi er líka eyrna-
merkur með tölunni 206.
Hann er gæfur og svarar
næstum hverjum sem er,
sérstaklega ef sá hinn sami
er nálægt mat.
Ef þið hafið rekist á Fúsa
einhvers staðar í Þingholt-
unum eða hann er búinn að
mjálma sig inn á ykkur, eða
einhvern sem þið þekkið,
hafið þá samband í síma
552-5319. Hans er sárt
saknað.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI brosti út í annað þeg-ar hann las fréttatilkynningu
frá Sölufélagi garðyrkjumanna í vik-
unni.
Tilkynningin hófst með þessum
orðum: „Hér er frétt sem örugglega
enginn fjölmiðill hefur áhuga á.“
Nú, nú. Líklega best að lesa ekki
lengra! En forvitnin rak Víkverja
áfram.
Síðan sagði: „Meðfylgjandi eru
upplýsingar sem SFG telur næsta
öruggt að enginn fjölmiðill hafi
áhuga á að birta. Þetta er dæmigerð
„ekki-frétt“ og ráðleggur SFG hand-
hafa þessa skeytis að lesa ekki
lengra.“
Hvað er er um að vera, hugsaði
Víkverji og las lengra: „Ef viðtakandi
skyldi nú samt sem áður halda áfram
að lesa, þá er tilefni þessarar „ekki-
fréttar“ að upplýsa að aðgerðir til að
lækka grænmetisverð virðast farnar
að virka. Eins og það sé nú eitthvað
merkilegt!
Og þar sem sumir fjölmiðlar virð-
ast fyrst og fremst hafa áhuga á
fréttum um að grænmetisverð sé að
HÆKKA, þá eigum við ekki von á að
nokkur sála vilji heyra meira. En ef
svo skyldi vera, þá skal hér upplýst
að verð á agúrkum var LÆGST á Ís-
landi í sjö löndum beggja vegna Atl-
antshafsins í könnun sem SFG lét
gera í gærdag.“
Eftir að verð hafði verið tilgreint,
þar sem m.a. kom fram að verð á ag-
úrkum hafði verið langlægst á Ís-
landi daginn áður, sagði:
„Því miður fyrir suma fjölmiðla,
sérstaklega fréttastofu ríkisútvarps-
ins, bendir verðkönnunin til þess að
beingreiðslur og niðurfelling vernd-
artolla séu að svínvirka.
Semsagt góð frétt um íslenska
garðyrkju og þar með dæmigerð
„ekki-frétt“. Vissulega hefði það ver-
ið miklu betri og æsilegri frétt ef
verð á agúrkum hefði verið hæst á Ís-
landi.
Væntanlega þarf fréttastofa ríkis-
útvarpsins þá ekki lengur að halda
úti sérstakri aukavakt sinna bestu
fréttamanna, sem sólarhringum
saman hafa leitað haukfránum aug-
um að einhverju tortryggilegu í
framkvæmd á beingreiðslunum.
Sleitulaust hafa þeir staðið vaktina
rauðeygðir og svefnlitlir og hvergi
unnt sér hvíldar í leit að þeim. En nú
eru beingreiðslurnar sem sagt
fundnar – á diski neytenda.
Við biðjum þá sem hafa lesið alla
leið hingað innilega afsökunar á
ónæðinu. Vinsamlega látið þetta ekki
trufla ykkur frekar.“
Svo mörg voru þau orð.
x x x
EIN ER sú íþrótt sem virðist eigavaxandi vinsældum að fagna
hérlendis. Hún er kölluð snocross, og
sérstaklega skal tekið fram að hér er
ekki um prentvillu að ræða.
Snocross! Hvað þýðir þetta?
Víkverji veit að það sem um ræðir
eru snjósleðamenn sem þeysa um
sérútbúna braut og hefur velt því
fyrir sér hvort geti verið að íþróttin
kallist snowcross á útlensku, og nafn-
ið sem hér er notað sé því erlent orð
með prentvillu eða hvort hugmynda-
flug þeirra sem þarna ráða ferð hafi
ekki verið nógu mikið til að finna eitt-
hvert gott íslenskt orð.
Eða er einhver önnur sáraeinföld
skýring á þessu?
Hvernig líst snocross-fólki á að
tala um vélsleðarall, snjósleðarall eða
sleðarall? Eða kannski bara snjórall?
Á DÖGUNUM barst svo-
hljóðandi óundirritað
bréf í póstkassa íbúanna
í Eskihlíð 16:
„Íbúar Eskihlíð 16 –
athugið.
Þar sem við íbúar í
næstu götum hér erum
með stóra bíla, s.s. frá
Orkuveitunni, G. Jón-
assyni, GG og pláss er
fyrir okkur þarna á lóð-
inni frá tunnum að götu
eruð þið beðin um að
leggja ykkar bílum næst
húsinu.“
Það hlýtur að teljast
með ólíkindum ef fyr-
irtæki úti í bæ ætla að
fara að leggja undir sig
bílastæði sem íbúar
húsanna hafa einkarétt á
og skammta þeim pláss
fyrir sína bíla. Fróðlegt
væri að fá að vita hvar
þessi skrif eru sprottin
og hvort bréfin eru send
með vitund stjórnenda
ofangreindra fyrirtækja.
Íbúar í Eskihlíð 16, 16a
og 16b hafa einkaafnot
af lóðinni og atvinnutæki
og bifreiðar þeim óvið-
komandi eiga þar engan
rétt.
Ragnheiður
Jónsdóttir,
Eskihlíð 16.
Íbúar í Eskihlíð 16 – athugið
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 samningar, 8 fataefni, 9
hugrekki, 10 litla tunnu,
11 tignarbragur, 13
fugl,15 niðja, 18 örlaga-
gyðja, 21 kvendýr, 22
mannsnafns, 23 tortímdi,
24 illmennið.
LÓÐRÉTT:
2 aukagjöf, 3 tákn, 4 sam-
mála, 5 borðar allt, 6
bjartur, 7 varma, 12 fyr-
irburður, 14 auðug, 15
flói, 16 sól, 17 vinna, 18
strítt hár, 19 furðu, 20
rök.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fýlda, 4 frísk, 7 rjóls, 8 notar, 9 agg, 11 ilin, 13
hani, 14 æðina, 15 sver, 17 mjór, 20 kal, 22 ásinn, 23 eir-
um, 24 molar, 25 tuska.
Lóðrétt: 1 ferli, 2 ljómi, 3 ansa, 4 fang, 5 ístra, 6 kerfi, 10
geiga, 12 nær, 13 ham,15 skálm, 16 erill, 18 jarls, 19
romsa, 20 knýr, 21 lekt.
K r o s s g á t a
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ak-
ureyrin og Selfoss koma
í dag. Þerney fer í dag.
Dettifoss kemur á
morgun, Selfoss fer á
morgun.
Hafnarfjarðarhöfn: Sel-
foss og Polar Amaroq
koma á morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 vinnustofa og
leikfimi, kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Búnaðarbankinn verður
á þriðjud. kl. 10.15.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 10–17 fóta-
aðgerð, kl. 10 samveru-
stund, kl. 13.30–14.30
söngur við píanóið, kl.
13–16 bútasaumur.
Eldri borgarar, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið á Hlaðhömr-
um er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Lesklúbbur kl. 15.30 á
fimmtud. Jóga á föstud.
kl. 11. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum, fimmtud.
kl. 17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnud. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, framhald.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun og hárgreiðslu-
stofan opin.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Þriðjud. 16.
apríl kl. 13.30 spilað í
Kirkjuhvoli og vinnu-
stofurnar opnar, tré-
skurður, málun, ker-
amik og postulín.
Félagsvist í Kirkjuhvoli
23. apríl kl. 19.30. Upp-
skerudagar – sýningar á
tómstundastarfi vetr-
arins 22.– 24. apríl kl.
14–18. Fjölbreyttar sýn-
ingar og skemmti-
dagskrá. Kaffiveitingar.
Garðaberg, ný fé-
lagsmiðstöð á Garða-
torgi, opið kl. 13–17.
Kaffiveitingar.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un félagsvist kl 13.30,
púttæfingar í Bæjar-
útgerð kl 10–11.30.
Þriðjud. brids nýir spil-
arar velkomnir. Saumur
undir leiðsögn og frjáls
handavinna kl. 13.30.
Spænskukennsla kl
16.30. Skoðunarferð að
Kleifarvatni miðvikud.
17. apríl, lagt af stað frá
Hraunseli kl. 13, kaffi í
Kænunni í lok ferðar.
Skráning í Hraunseli, s.
555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Sunnud.
Félagsvist kl. 13. Dans-
leikur kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánud: Brids kl. 13,
Danskennsla kl. 19 fyrir
framhald og byrjendur
kl. 20.30. Þriðjud: Skák
kl. 13 og alkort spilað
kl. 13.30. Miðvikud:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Söngvaka kl.
20.45, umsjón Sig-
urbjörg Hólmgríms-
dóttir. Farin verður
skoðunarferð um
Reykjavík á vegum
Fræðslunefndar FEB
miðvikud. 17. apríl,
brottför frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 13.30.
Skráning á skrifstofu
FEB. Ferðakynning á
innanlandsferðum fé-
lagsins sumarið 2002
ásamt myndasýningu úr
eldri ferðum verður í
Ásgarði, Glæsibæ,
föstud. 19. apríl kl. 16.
Kynnir Sigurður Krist-
insson ásamt öðrum
leiðsögumönnum fyr-
irhugaðra ferða. Sögu-
slóðir á Snæfellsnesi og
þjóðgarðurinn Snæ-
fellsjökull, 3 daga ferð
6.–8. maí, gisting á
Snjófelli á Arnarstapa,
leiðsögn Valgarð Run-
ólfsson. Skráning hafin
á skrifstofu FEB. Silf-
urlínan er opin á mánu-
dögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
fh. í síma 588-2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt að Faxafeni 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið alla
sunnud. frá kl. 14–16
blöðin og kaffi. Á morg-
un kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, handavinna
og föndur, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Á morgun kl. 9
aðstoð við böðun, alm.
handavinna og bók-
band, kl. 10.15 leikfimi
kl. 14 sagan.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 13–16 mynda-
listarsýning Braga Þórs
Guðjónssonar opin,
listamaðurinn á staðn-
um. Veitingar í „Kaffi
Bergi“. Á morgun kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar
frá hádegi, spilasalur
opinn, kl. 14 kóræfing,
kl. 15.30 dans. Fimmtud.
20. apríl kl. 13. fé-
lagsvist í samstarfi við
Hólabrekkuskóla. Allir
velkomnir. Laugard. 20.
apríl kl. 16 tónleikar
Gerðubergskórsins í
Fella- og Hólakirkju.
Nánar kynnt síðar.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl. 11
hæg leikfimi, kl. 13 lom-
ber og skák, kl. 17.15
kórinn, kl. 20 skapandi
skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55 ró-
leg stólaleikfimi, kl. 13
brids, kl. 20.30 fé-
lagsvist.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13.30 gönguferð.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Félagsstarf-
ið er opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9–16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing. Tískusýning
verður föstud. 19. apríl
kl. 14. Sýndur verður
dömufatnaður í vor- og
sumarlínunni. Að lokinni
sýningu verður dansað
við lagaval Sigvalda,
kaffiveitingar, allir vel-
komnir.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 fótaaðgerð-
ir og sund, kl. 13 hand-
mennt, glerbræðsla,
leikfimi og spilað.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjud. kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids
íGullsmára 13 alla
mánu- og fimmtud.
Skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánud. fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kristniboðsfélag karla.
Fundur í kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut
58-60, mánud. 15. apríl
kl. 20. Kristín Bjarna-
dóttir sér um fund-
arefni. Allir velkomnir.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður miðviku-
d. 17. apríl kl. 20 á Ás-
völlum. Fjölmennið.
Í dag er sunnudagur 14. apríl, 104.
dagur ársins 2002. Tíbúrtíusmessa
Orð dagsins: Deiglan er fyrir silfrið
og bræðsluofninn fyrir gullið, en
Drottinn prófar hjörtun.
(Orðskv. 17, 3.)