Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SJÖ ÁR eru liðin síðan Jean-Jacques Cadet, sem kallarsig J-Live, var getið sem efni-legs rappara og skömmu eftir
það kom út fyrsta smáskífa hans,
Longevity, sem sannaði að hann var
meira en efnilegur, en J-Live var þá
nítján ára. Skífan var aðeins gefin
út á vínyl en seldist þó í ríflega
13.000 eintökum sem þykir harla
gott.
Ári síðar kom út næsta smáskífa,
Braggin’ Writes, sem seldist enn
betur og kom honum á útgáfusamn-
ing en það sem gerðist í framhaldi
af því hefði líkastil sett flesta út af
sporinu. 1997 var J-Live nánast
tilbúinn með fyrstu breiðskífuna
sem RawShack hugðist gefa út og
átti að heita Timeless. Áður en af
því varð lenti honum svo saman við
útgefandann að hætt var við útgáf-
una og honum neitað um að fá upp-
tökurnar til að reyna að koma plöt-
unni út hjá öðru fyrirtæki. Hann
þurfti því að taka plötuna upp á
nýtt, nú fyrir fyrirtækið Pay Day,
og nýtt nafn á skífunni var The Best
Part. Að þessu sinni náði hann að
ljúka við plötuna en daginn eftir að
kynningareintök voru send til blaða-
manna fór Pay Day á hausinn.
Sjóræningjaplatínuplata
Við tók stríð J-Live við að fá upp-
tökurnar í hendurnar og á meðan
því stóð bárust einhver af kynning-
areintökunum til óprúttinna og ekki
leið á löngu að fleiri en ein sjóræn-
ingjaútgáfa var komin á markað.
Svo rammt kvað að útgáfunni að
menn herma að hundruð þúsunda
eintaka hafi selst af henni um heim
allan þótt sú tala verði aldrei að
fullu ljós og flækir málið að margar
af útgáfunum eru með lögum hans
endurunnum að einhverju eða öllu
leyti. Í viðtali fyrir skemmstu sagði
J-Live frá því að sjóræningjaútgáf-
urnar hefðu náð platínusölu á neð-
anjarðarmarkaði, en sagðist ekki
viss um hvaða viðurkenningu hann
fengi fyrir.
The Best Part kom á endanum út
fyrir skemmstu og J-Live segist
vonast til þess að einhverjir sem
keyptu sjóræningjaútgáfu plöt-
unnar eigi eftir að fá sér löglegt ein-
tak enda sé hún nokkuð breytt og
mun betri. Hann hefur reyndar
forðast að gagnrýna þá sem dreifðu
plötunni ólöglega og einnig þá sem
keyptu hana, bendir á að flestir hafi
gert það í góðri trú. „Ef fólk kunni
svo að meta það sem ég er að gera
að það var til í að brjóta lögin til að
komast yfir plötu sem var ófáanleg
annars þá er það hið besta mál, ég
er þakklátur fyrir það.“
Ort um 11.9. 2001
Þegar útgáfa af The Best Part
komst í uppnám hætti J-Live í tón-
listinni um tíma og sneri sér að
kennslu, en hann var einmitt nýbú-
inn með kennaranám þegar hann
byrjaði tónlistarferilinn. Hann hætti
þó ekki að semja tónlist og á síðasta
ári tók hann upp þráðinn, samdi við
nýja útgáfu og byrjaði að leggja
drög að nýrri plötu, All of the
Above, sem kom út í byrjun mán-
aðarins og hefur þegar fengið frá-
bæra dóma.
Lögin á plötunni eru flest fyrirtak
og einna sterkast lagið Satisfied
sem tekur fyrir atburðina 11. sept-
ember síðastliðinn. Ólíkt svo mörg-
um öðrum veltir J-Live sér ekki upp
úr tilfinningasemi og þjóðern-
isrembu á skífunni heldur bendir
hann á að þrátt fyrir allt tal um
breyttan heim séu menn enn að
glíma við sömu vandamálin heima
fyrir. „Það kom vitanlega ekki á
óvart að mönnum skyldi verða tíð-
trætt um 9/11 í tónlist eftir atburð-
inn, en ef menn ætla að nota hann
sem rímnaskraut eða til að berja sér
á brjóst í innihaldslausu monti er
verið að sóa tækifæri til að fá fólk til
að hugsa um veruleikann sem blasir
við okkur á hverjum degi. Þrátt fyr-
ir hörmungarnar í New York erum
við enn svartir, þrátt fyrir stríðs-
átök erum við enn fátækir og
ómenntaðir, við megum ekki gleyma
því hvað gerir okkur lífið óbæri-
legt.“
Lært af verkum annarra
J-Live nýtur mikillar virðingar
fyrir rímnasnilld sína, en hann seg-
ist hafa lært mikið af því að rýna í
annarra verk, að greina texta ann-
arra rímnamanna, leysa lyklaðar
setningar og finna tilvísunum stað.
Hann segist reyna að hafa sína
texta jafn fjölsnærða og merking-
arríka og þeirra listamanna sem
hann hélt upp á til þess að víkka
sjóndeildarhring þeirra sem á hann
hlusta. Hann segist hafa fengið
ágætan tíma til að semja rímur eftir
að útgáfa á The Best Part fór í vask-
inn, því hann réð sig sem kennari í
unglingaskóla í Brooklyn eins og áð-
ur er getið. „Ég lærði ekki síður af
því en krakkarnir,“ segir hann, „því
ég kynntist væntanlegum áheyr-
endum einkar vel af því að sitja með
þeim í kennslustofu, grínast við þá
og reyna að kenna þeim ensku og
sögu. Það hjálpaði mér síðan ekki
síður til að vera ferskur í anda,
missa ekki samband við barnið í
sjálfum mér.“
J-Live segist hafa kynnst því
meðal nemenda sinna að rappið sé
orðið miklu meira mál fyrir ung-
menni en það var fyrir hann og fé-
laga hans þegar hann var unglingur
sjálfur. „Þegar við vorum að byrja
að kveðast á var það til gamans gert
og þótt menn hafi keppt sín á milli
var það góðlátleg keppni. Núorðið
eru menn varla byrjaðir að klambra
saman rímum að þeir telja að þeir
séu klárir í plötugerð. Fyrir vikið
geta fæstir af þeim sem mest ber á í
rappheiminum í dag skrifað al-
mennilegar rímur, rímur sem fela í
sér einhvern boðskap og einhverja
hugsun.“
Breytt vinnubrögð
J-Live gerði samning við smáfyr-
irtæki, Coup d’État, sem stofnað
var fyrir skemmstu af forðum
starfsmönnum og eigendum Raw-
kus, Asphodel, 75 Ark, Polygram og
K7, en Coup d’État gefur einmitt
All of the Above út. Hann segir tím-
ana breytta frá því er menn gerðu
þá aðeins samning við smáfyrirtæki
að þeir áttu ekki séns á að komast
að hjá þeim stóru. „Nú byrja menn
á því að semja við smáfyrirtæki því
þar er þekking og skilningur fyrir
hendi á starfi listamannsins. Stór-
fyrirtækin eru öll að leita að popp-
urum og eina markmiðið er að skila
sem mestum arði, en smáfyrirtækin
vilja vinna með listamönnum. Mögu-
leikarnir til að kynna tónlistina eru
líka margfalt meiri eftir að Netið
kom til sögunnar og segja má að það
sé orðinn aðalvettvangur umræðu
og kynninga á hiphoptónlist. Fyrir
vikið skiptir ekki eins miklu máli að
semja við risafyrirtæki sem á millj-
ónir til að eyða í markaðssetningu.“
J-Live segir að reynslan af The
Best Part hafi orðið til þess að hann
breytti til í vinnslu plötunnar, und-
irbjó sig vel en byrjaði ekki að taka
upp fyrr en seint á síðasta ári til að
tryggja að ekkert læki út.
Þeir sem handfjatla All of the
Above taka strax eftir því að ekki er
bara að J-Live semji lög og texta,
heldur er hann líka liðtækur í plötu-
skrámi og reyndar hóf hann ferilinn
sem plötusnúður og þótti ekki síðri
á því sviði en í textaspunanum. „Ég
valdi aftur á móti að halda mig við
rappið því það er svo dýrt að vera
plötusnúður, en til þess að semja
rímur þarf ekkert nema blað og
blýant.“
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Fórnarlamb
sjóræningja
Sem betur fer er fátítt að menn séu eins óheppnir í
útgáfumálum og bandaríski rímnasnillingurinn
J-Live. Hann sendi frá sér breiðskífuna All of the
Above í byrjun mánaðarins.