Morgunblaðið - 14.04.2002, Qupperneq 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í MÍNUM huga eru ævintýri
venjulega hetjusögur þar sem lítil-
magninn sigrast á ofurefli og hlýtur
kóngsríkið í kjölfarið eða eitthvað í
þá áttina. Að sjálfsögðu er hér um
frekar þrönga tilraun til skilgrein-
ingar að ræða enda byggist hún ein-
göngu á þeirri tilfinningu sem ég hef
fyrir þessu söguformi. Ævintýri eru
mörg og mismunandi en samt er ein-
hver þráður sem tengir þau svo kirfi-
lega saman að oftast er auðvelt að
flokka sögur í ævintýri og ekki æv-
intýri. Skáldjöfrar fortíðarinnar hafa
gefið okkur ofgnótt af ævintýra- og
fantasíusögum sem hægt er að nota
sem viðmið um hvernig best sé að
hreyfa pennann innan þess ramma
sem ævintýraformið býður upp á.
Höfundar Rose, þeir Smith og
Vess, hafa sótt vel í klassísk stef
ævintýrisins. Takið efniviðinn;
dreka, myndarlega vígamenn, smá-
gerðar hetjur, sverðaglamur, galdra-
karla, ást, svik og draumráðningar
og blandið saman í potti (helst svona
stórum messingpotti á hlóðum), látið
malla og viti menn; útkoman er
splunkuný saga sem byggist á eld-
gömlum grunni. Rose er konungs-
dóttir í Vesturdal sem er heimur út
af fyrir sig, einhvers staðar austan
við sól og sunnan við mána. Í þessum
heimi hafa draumar mun meira vægi
en í þeim sem við byggjum og Rose
hefur sérstaka hæfileika á því sviði.
Draumauga hennar er mjög sterkt
eins og kennari hennar í fræðunum
segir. Rose mun þegar fram líða
stundir taka við stjórnartaumunum í
konungsríkinu þrátt fyrir að hún eigi
eldri systur sem á tilkall til tignar-
innar. Sú hefur hins vegar ekki þá til-
finningu fyrir draumum sem er
nauðsynleg fyrir stjórnendur í Vest-
urdal að hafa. Það fellur því í skaut
hinar ungu Rose að takast á við hinn
forna og illa engisprettuguð sem er
að losna úr læðingi eftir að hafa verið
í dvala frá upphafi vega. Vilji hans og
hlutverk felst í því að riðla jafnvægi
Draumsins en við það mun Vestur-
dalur farast.
Smith hefur getið sér gott orð fyr-
ir myndasöguseríuna Bone sem
hann hefur gefið út síðustu 10 árin og
Rose er eins konar inngangur að
þeirri sögu. Sú gríðarlega reynsla
sem hann hefur af þessum fantasíu-
heimi skín í gegn í Rose. Söguper-
sónurnar leika í höndum hans og
hann gefur þeim sterkari rödd og
persónuleika en maður á að venjast í
myndasögum. Á fáeinum blaðsíðum
skapar hann töfraheim sem erfitt
verður fyrir aðra höfunda að toppa.
Teikningar Charles Vess eru gríðar-
lega nákvæmar og skýrir það hvers
vegna myndasöguframleiðsla hans
er jafn lítil og raun ber vitni en það er
þess virði þegar hann loks gefur eitt-
hvað frá sér eins og í þessu tilfelli.
Bakgrunnar myndanna eru unnir af
mikilli alúð sem er sérlega mikilvægt
í sögum af þessari ævintýragerð.
Hann notar þá tækni að láta 1–2
myndir á hverri síðu ,,blæða“ út fyrir
rammann sem gerir þær stærri og
dýpri en ella. Þetta eru myndir sem
þurfa mikið pláss og sígild ramma-
uppsetningin hefði orðið nokkuð
hamlandi. Litanotkun er þó á köflum
ívið mikil og hefði myrkara litaval
jafnvel sómt sér betur til að halda
takti við söguframvinduna.
Eitt er það atriði í bókinni sem
sýnir mér hversu vanafast atferli það
er að lesa myndasögur og hversu
truflandi minnstu frávik geta verið.
Ég var langt kominn með lesturinn
þegar ég áttaði mig á því hvað það
var sem stuðaði. Orðabelgirnir sem
Vess notar eru hálfgegnsæir þannig
að glittir í bakgrunninn. Venjulega
er um að ræða heilhvíta fleti sem
standa aðskildir frá myndmálinu og
er samruninn hér því meiri en gerist
og gengur. Ég er ekki sérlega hrifin
af þessari útfærslu en það að ég skuli
nenna að eyða púðri í jafn veigalítið
atriði segir kannski mest um hversu
frambærileg sagan í heild sinni er.
Köttur úti í mýri, setti upp á sér
stýri, úti er ævintýri.
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Rós án þyrna
Myndasaga vikunnar er Rose eftir Jeff
Smith og Charles Vess. Cartoon Books
gefur út, 2002. Bókin fæst í mynda-
söguversluninni Nexus.
heimirs@mbl.is
Heimir Snorrason
Rose á nálum. Þessi mynd er
dæmi um þá „blæðitækni“ sem
Vess notar í myndum sínum.
EINN vinsælasti poppdúett allra
tíma, Pet Shop Boys frá Bretlandi,
snýr nú aftur með plötuna Release,
sem mun vera áttunda hljóðvers-
skífan þeirra. Á plötunni kveður
við nokkuð nýjan tón, en þann sem
aðdáendur hafa átt að venjast, en
sérlegur aðstoðarkokkur á plöt-
unni er enginn annar en gítar-
gúrúinn Johnny Marr en hann er
vitaskuld þekktastur fyrir að hafa
verið leiðtogi Smiths sálugu ásamt
Morrissey. Platan er því prýdd
poppuðum þriggja gripa hljómum í
meiri mæli en fyrr, og dregið úr
danssveiflunni að sama skapi. Leið-
ir Marr og Pet Shop hafa reyndar
legið saman áður, en þeir unnu
saman að laginu frábæra „Getting
Away With It“ ásamt Bernard
Sumner, í gegnum sveit Marrs og
Sumner, Electronic, árið 1991.
En að Pet Shop Boys séu búnir
að gefa út nýja plötu er ekki meg-
inástæða þessara skrifa. Þannig er
að dúóið hefur nú opinberlega sagt
yfirmenn sína hjá útgáfufyrirtæk-
inu EMI vera fífl. Ástæðan fyrir
stóryrðunum liggur aðallega í
„Cary-klúðrinu“ en fyrirtækið
greiddi söngkonunni Mariuh Carey
sem kunnugt er tæplega 4 millj-
arða íslenskra króna, í „starfsloka-
samning“ en söngkonan sein-
heppna hafði áður gert samning
við fyrirtækið upp á 7 milljarða.
Carey lenti svo í sálrænum krögg-
um og ekki bætti úr skák er mynd-
in Glitter og samnefnd plata flopp-
uðu feitt, listrænt séð svo og
sölulega.
Í síðasta mánuði var og 1800
manns, sem
starfa í verk-
smiðjum fyr-
irtækisins, sagt
upp störfum.
„Fífl í hæstu
stöðum hjá
E.M.I. borga
sjálfum sér
milljónir og
gera djarfa
samninga við
listamenn eins
og Mariuh Carey
sem falla svo flatt
á nefið, og þeir
neyðast til að borga þeim him-
inháar fjárhæðir er þeir svo hverfa
á braut,“ sagði Chris Lowe, annar
helmingur dúettsins. Þeir félagar,
Lowe og Neil Tennant segja EMI
hafa eyðilagt fyrir nýju plötunni
þeirra vegna þessa.
„Þeir (hjá EMI) hafa alltaf verið
ömurlegir er að kynningarmálum
kemur,“ sagði Lowe ennfremur.
Pet Shop Boys skamma forkólfa EMI
„Þeir eru fífl!“
Það veður eng-
inn yfir Pet
Shop Boys!
Sérblað alla
sunnudag