Morgunblaðið - 14.04.2002, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
ur, hafi átt sér stað við íslensk stjórn-
völd um mögulega þátttöku
fyrirtækisins í stóriðjuframkvæmd-
um á Íslandi.
„Við verðum bara að bíða og sjá til
hvers þessar viðræður leiða. Við ger-
um okkur grein fyrir því að málið er
mjög mikilvægt fyrir Íslendinga. Ef
þessar viðræður komast á alvarlegt
stig munum við verja meiri tíma til að
skýra okkar afstöðu. Á þessu stigi eru
þetta aðeins könnunarviðræður,“ seg-
ir Jake Siewert, aðstoðarforstjóri
upplýsingamála hjá Alcoa.
Fyrirtækið er hið stærsta í áliðnaði
í heiminum með árlega framleiðslu-
getu upp á 3,2 milljónir tonna af áli.
Alcoa var stofnað í Pittsburgh í
Bandaríkjunum um miðjan níunda
áratug 19. aldar. Fyrirtækið er með
350 verksmiðjur í 38 löndum, m.a. á
nokkrum stöðum í Evrópu, og hjá því
starfa um 129 þúsund manns. Velta
TALSMAÐUR bandaríska álfyrir-
tækisins Alcoa segir í samtali við
Morgunblaðið að óformlegar viðræð-
ur, nokkurs konar könnunarviðræð-
Alcoa á síðasta ári nam 23 milljörðum
Bandaríkjadala eða um 2.300 millj-
örðum íslenskra króna. Nýlega var
tilkynnt um afkomu fyrsta fjórðungs
þessa árs, sem var hagnaður upp á
tæpar 218 milljónir dala, eða um 22
milljarða króna. Það er nokkru minna
en eftir sama tíma í fyrra þegar hagn-
aðurinn nam um 40 milljörðum ís-
lenskra króna.
Finnur Ingólfsson, seðlabanka-
stjóri og formaður viðræðunefndar
sem iðnaðarráðherra skipaði nýlega í
stóriðjumálum, segir að hvorki hann
né aðrir í nefndinni hafi sett sig í sam-
band við talsmenn Alcoa. Hann viti þó
af því að fulltrúi stjórnvalda hafi verið
í sambandi við álfyrirtækið. Finnur
segist hafa fengið vitneskju um að
áhugi kunni að vera fyrir hendi hjá
Alcoa.
„Formlegar viðræður við Alcoa eru
hins vegar ekki hafnar. Menn þurfa að
nálgast hver annan til að geta fundið
einhverja snertifleti og hvort virkileg-
ur áhugi sé fyrir hendi. Vafalítið verð-
ur þetta gert á næstunni. Ef áhuginn
er til staðar hjá Alcoa er sannarlega
vel þess virði að skoða þann aðila nán-
ar, ekki síst í ljósi þess hve öflugt fyr-
irtækið er,“ segir Finnur.
Hann segir að fyrsta verkefni við-
ræðunefndarinnar sé að forvitnast
um hvaða áherslur álfyrirtæki eins og
Alcoa hafi. Finna þurfi út hvort
áherslur fyrirtækisins séu enn þær að
kaupa upp önnur fyrirtæki í áliðnaði,
eða hvort áherslurnar séu að breytast
í þá átt að byggja upp ný álver.
„Þessi álheimur er frekar lítill,
menn vita vel hver af öðrum og einnig
að hér er vel skilgreint álverkefni til
staðar. Ýmsir aðilar hafa haft sam-
band við okkur að undanförnu til að
lýsa yfir áhuga á stóriðjuframkvæmd-
um hér,“ segir Finnur.
Könnunarviðræður milli
stjórnvalda og Alcoa
FJÖLDI fólks lagði leið sína út í
Gróttu á fjölskyldudegi í gærmorg-
un. Börn og fullorðnir nutu nátt-
úrufegurðar og boðið var upp á
kaffi og rjómavöfflur í setrinu.
Morgunblaðið/Golli
Nutu úti-
verunnar
í Gróttu
TIL AÐ bregðast við minnkandi
sölu, sem fyrirtækið telur að stafi
einna helst af síaukinni ólöglegri
fjölföldun á tónlist, hyggst plötufyr-
irtækið Skífan læsa geisladiskum
sem það gefur út svo að ekki sé
hægt að spila þá í tölvum og þá ekki
hægt að afrita þá. Einnig hyggst
Skífan lækka verð á nýjum og ný-
legum geisladiskum um allt að 9%.
Í sameiginlegri tilkynningu að-
standenda Norðurljósa, sem eiga
Skífuna, fulltrúa Samtaka flytjenda
og hljómplötuframleiðenda og Sam-
taka tónskálda og eigenda flutnings-
réttar kemur fram að þetta sé gert
til að bregðast við síaukinni ólög-
legri fjölföldun, en í tilkynningunni
kemur fram að samkvæmt upplýs-
ingum frá alþjóðasamtökum hljóm-
plötufyrirtækja sé einn diskur
brenndur fyrir hvern disk sem seld-
ur er.
Í tilkynningunni segir og að geng-
isþróun íslensku krónunnar síðustu
vikur hafi veitt ákveðið svigrúm til
verðlækkunar, en auk þess vilji fyr-
irtækið leggja sitt af mörkum til að
sporna gegn verðbólgu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hyggjast aðrar íslenskar
útgáfur hafa sama háttinn á og
þannig verða útgáfur Smekkleysu
varðar á sama hátt og einnig stefnir
Edda útgáfa & miðlun að því að
læsa sínum útgáfudiskum.
Skífan ætlar
að læsa öll-
um geisla-
diskum
Brugðist við/11
TÆPLEGA þrítugur Íslendingur,
Börkur Hrafn Víðisson, lést í mót-
orhjólaslysi í bænum Puket í suður-
hluta Taílands sl. þriðjudag. Hann
var einn á ferð að kvöldi til á mót-
orhjóli er hann missti stjórn á því og
hafnaði á ljósastaur. Talið er að hann
hafi látist samstundis. Börkur Hrafn
var nýkominn til Taílands ásamt ís-
lenskum félaga sínum er slysið varð.
Hann var búsettur og við nám í
Danmörku, en hann fæddist þar í
landi 27. nóvember árið 1972. Börk-
ur Hrafn var ókvæntur og barnlaus.
Lést í mótor-
hjólaslysi í
Taílandi
Börkur Hrafn
Víðisson
Minnst
atvinnuleysi
mælist á
Vestfjörðum
ATVINNULEYSI í marsmánuði
síðastliðnum jafngilti 2,7% af áætlun
Þjóðhagsstofnunar um mannafla á
vinnumarkaði. Alls voru 77.445 at-
vinnuleysisdagar skráðir í mánuðin-
um á landinu öllu, sem jafngilda því
að 3.692 manns hafi að meðaltali ver-
ið á atvinnuleysisskrá.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun hefur atvinnu-
lausum í heild fjölgað um 3,8% að
meðaltali frá febrúarmánuði, en um
83,4% frá marsmánuði 2001. Tekið
er fram að þá hafi atvinnuleysi verið
með minnsta móti.
Atvinnuleysi er nú mest á Norður-
landi eystra 3,2%, höfuðborgarsvæð-
inu 2,8% og Austurlandi 2,7% en
minnst á Vestfjörðum 1,5%.
63% atvinnulausra í mars höfðu
verið atvinnulaus í þrjá mánuði eða
skemur, en 15% höfðu verið atvinnu-
laus í yfir sex mánuði.
Vinnumálastofnun telur líklegt að
atvinnuleysið breytist lítið í apríl og
verði á bilinu 2,5%–2,8%.
Framboð af lausum störfum í lok
mars hefur aukist. Alls voru 225 laus
störf hjá vinnumiðlunum í lok mars-
mánaðar en 167 störf í lok febrúar.
♦ ♦ ♦